Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 64
64
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
fclk f
fréttum
Sendifulltrúinn Jane
Seymore
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur skipað bresku
leikkonuna Jane Seymoreyfir
alþjóðlegt átak gegn ofbeldi gegn
börnum. Bandaríkin leiða þetta
átak 35 þjóða og verður leikkonan
þekkta sérlegur sendifulltrúi og
yfirboðari þess. Seymore hefur
lagt á sig gífurlega vinnu í þágu
líknarmála.
Leikkonan segist hreykin vegna
þessa og lítur svo á að hér sé um
viðurkenningu á ötulu starfi sínu
að ræða. Til þessa hefur Seymore
ásamt eiginmanni sínum,
fasteignasalanum Dave Flynn, og
böniunum Katie, 8 ára, og Sean,
4 ára, verið á endalausu flakki á
milli Bretlands og Bandaríkjanna,
en í báðum löndum eiga þau
glæsileg hús.
Reiknar Seymore með því að
þau setjist að í Bretlandi, þegar
flakkinu lýkur. Til þess að
undirbúa það, hafa hjónin skráð
ATAK
börn sín í heimavistarskóla í
Bretlandi.
Jane Seymore
HJONABAND
Sókn er besta vörnin hugsar Sylvester og rekur upp Rambóösk-
ur. En á innfelldu myndinni sjást hinir þrír ættliðir, Sage Moonbe-
am, 14 ára sonur Sylvesters, kappinn sjálfur og svo Frank gamli
faðir hans.
Beckenbauer giftur
áný
Fyrrum
knattspyrnusnillingur-
inn og núverandi
Herra og frú Beckenbauer.
landsliðseinvaldur
Vestur-Þýskalands Franz
Beckenbauer gekk nýlega í það
heilaga. Beckenbauer og frú
höfðu ætlað sér borgaralegt
brúðkaup í kyrrþey. Fréttamenn
komust hins vegar á snoðir um
atburðinn og Ijölmenntu á
fógetaskrifstofuna í Kitzbiihl í
Austurríki þar sem Beckenbauer
hefur búið síðustu árin. Þar
verður heimili hinna nýgiftu
hjóna.
Brúðurin heitir Sybille
Weimer og er 42 ára gömul
fyrrum ritari hjá vestur-þýska
knattspyrnusambandinu.
Beckenbauer leitaði því ekki
langt yfír skammt. Þau hjónin
hafa þekkst og verið saman í
tvö ár, en ár er liðið síðan
Beckenbauer fékk skilnað frá
Brigitte, fyrri konu sinni, en
með henni á hann þijá syni sem
eru nú 21, 23 og26 ára. Hætt
er við að frú Beckenbauer sjái
heldur lítið af karli sínum á
næstunni, því að landslið
Vestur-Þýskalands undirbýr sig
nú af kappi fyrir úrsiitakeppni
í Evrópukeppni landsliða sem
fram fer á Italíu innan skamms.
Morgunblaðið/ÓIafur Bernódusson
Grillveislu var slegið upp í
blíðviðrinu á Skagaströnd eftir
tiltekt á staðnum.
VORHREINGERNING
Hreinsunarátak ung-
IÞROTTIR
Rambo lið-
tækur
pólóleikari!
Sylvester Stallone er ekki
allur þar sem hann er séð-
ur og margir sem séð hafa
Rocky og Rambó-myndir
myndu jafnvel trúa því að
vöðvabúntið gæti hvorki lesið
né skrifað, svo að ekki sé
meira sagt. Stallone leynir
hins vegar á sér og enginn er
hann veifiskati, viðskiptaviti
hans er við brugðið og hann
þykir manna prúðastur og
geðþekkastur í daglegri um-
gengni. Hið nýjasta sem spurst
hefur um kappann er, að hann
er liðtækur pólóleikari! Sá leik-
ur felst í því að slá bolta af
hestbaki. Fyrir skömmu var
haldinn góðgerðarleikur í
Palm Beach í Flórída þar sem
Stallone smalaði saman nokkr-
um kunnum köppum og öttu
þeir kapps við liðið Palm, Be-
ach Polo. Fyrirliði þess er eng-
inn annar en Frank Stallone,
faðir Sylvesters. Þess er getið
að gamli maðurinn og lið hans
hafi sigrað kvikmyndastjörn-
urnar 6-5. Fjöldi áhorfenda
fylgdist með leiknum og rann
allur ágóði auk áheita til
líknarmála.
■Abu
Garcia
ULTRA
CAST
DESIGN
...°g þú kastar lengra
Veiöimaöurinn
mennafélagsins
Það ríkti gleði og glaumur í blíðviðrinu þegar ungmennafélag-
ið Fram stóð fyrir hreinsunarátaki á Skagaströnd á dögun-
um. Hátt í 100 krakkar og fullorðnir gengu þá um þorpið með
ruslapoka og tíndu upp rusl eftir veturinn. Þegar búið var að
safna bílförmum af rusli kom hópurinn saman við skólann þar
sem slegið var upp grillveislu. Þaf var heldur en ekki handagang-
ur í öskjunni við að sporðrenna pylsunum, pylsubrauðunum og
drekka Blöndu með. Fyrirtæki á Skagaströnd gáfu hráefni
til veislunnar ásamt Krútt-brauðgerðinni og Mjólkursamlaginu
á Blönduósi.
- ÓB.