Morgunblaðið - 23.05.1990, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAl 1990
67
RICIIAKD GI-KE
JULIA ROBERTS
FRUMSÝNIR TOPPGRÍNMYNDINA:
STÓRKOSTLEG STÚLKA
JÁ, HÚN ER KOMIN TOPPGRÍNMYNDIN
„PRETTY WOMAN", SEM ER FRUMSÝND, EINS
OG AÐRAR STÓRMYNDIR, BÆÐI f BÍÓHÖLL-
INNI OG BÍÓBORGINNI. PAÐ ER HIN HEILL-
ANDI JULLA ROBERTS SEM FER HÉR Á KOST-
UM ÁSAMT RICHARD GERE SEM ALDREI HEF-
UR VEIRÐ BETRI.
„PRETTY WOMAN" TOPPMYNDIN í
DAG f LOS ANGELES, NEW YORK,
LONDON OG REYKJAVÍK!
AÐALHL : RICHARD GERE, JULLA ROBERTS,
RALPH BELLAMY, HECTOR ELIZONDO.
TITILLAGIÐ OH, PRETTY WOMAN FLUTT AF
ROY ORBISON. - LEIKSTJ.: GARRY MARSHALL.
FRAML. ARNON MILCHAN, STEVEIN REUTHER.
SÝND KL. 4.45,6.50,9 OG 11.15.
GAURAGANGURí LÖGGUNNI h
ÁBLÁÞRÆDI
Sýnd kl. 5,7,9,11.15.
Bönnuö innan 16 ára,
rowN
TANGOOGCASH
Sýnd kl. 5,7,9,11.15
Bönnuö innan 16 ára.
Sýndkl.5,7,9,11.15.
■ Á VEGUM Grönn eru
haidin helgarnámskeið fyrir
ofætur, bæði karla og konur,
sem vilja hætta ofáti, en það
getur falist í því að borða
of mikið, of lítið eða bara
of óreglulega. Þessi nám-
skeið eru byggð á reynslu
tugþúsunda karla og kvenna
um allan heim sem hafa nýtt
sér þessa leið til varanlegs
heilbrigðis og hamingju.
Kynningarfyrirlestur verður
haldinn fimmtudaginn 24.
maí kl. 21 í þjónustumiðstöð-
inni, Hlíðarenda, Hvol-
svelli. Ræðumaður: Axel
Guðmundsson. Skráning á
námskeiðið, helgina 26. og
27. maí, fer fram á fyrirlestr-
inum og nauðsynlegt er að
væntanlegir þátttakendur
námskeiðsins mæti á fyrir-
Axel Guðmundsson
lesturinn til að fá fulla nýt-
ingu út úr námskeiðinu.
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
HJARTASKIPTI
Hnyttileg afþreying/'
★ *i/2+ SV.Mbl.
BOB HOSKINS
DENZELWASHINGTON
CHLOEW'EBB
HEART
CONDITION
Stórkostleg spennu- gamanmynd með Bob Hoskins
(Roger Rabitt), Densel Washington (Cry Freedom;
Glory) og Cloe Webb (Twins) í aðahlutverkum.
Kynþáttahatarinn Moony (Hoskins) fær hjartaáfall og er
grætt í hann hjarta úr svörtum lögmanni. Svertinginn geng-
ur aftur og fylgir honum hvert fótmál, en enginn sér hann
nema Moony. Þeir sem höfðu gaman af „Twins" verða
ekki fyrir vonbrigðum.
„Leikurinn örvar púls áhorfenda og
heldur hraðanum."
Siegel, Good Morning America.
Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Þau fara á kostum í þessari
stórgóðu og mannlegu kvik-
mynd Jack Lemmon,
Ted Danson, Olympia
Dukakis og Ethan Hawke
Pabbi gamli er of vemdaður
af mömmu, sonurinn fráskil
inn, og sonar sonurinn reik-
andi unglingur.
Sýnd í B-sal kl. 5, 7 og 9.
UaLD4H0N-TlDDVNSÓN t _ _ ___ '
PABBI
EKIÐMEÐ
DAISY
Sýnd í C-sal kl. 5, 7.
FÆDDUR
4.JÚLÍ
Sýnd í C-sal kl. 9
Bönnuð innan 16ára.
BREYTTU
réh
Sýnd íB-sal kl. 11.
Bönnuð innnan 12 ára.
Þau Óskar Bjartur Bjarnason, Guðjón Hólm Gunnarsson,
Arnór Bohic, Margrét Arna Arnardóttir og Gunnþóra
Guðmundsdóttir, nemendur í 7. bekk Tjarnaskóla, hlutu
1. verðlaun fyrir samstarfsverkefhi i hugmyndasam-
keppni á „Degi jarðar“. Þau kalla verk sitt „Við viljum
lifa.“
Það voru þær Heiður Huld Hreiðarsdóttir og Áslaug
Rán Einarsdóttir, sem hlutu 2. verðlaun í ritgerðarsam-
keppninni, Eyrún Ýr Þorleifsdóttir, sem hlaut 1. verð-
laun og Iris Tost, sem hlaut 3. verðlaun. Allar eru þær
nemendur í 7. bekk í Foldarskóla.
Dagur jarðar:
Yerðlaun í hug-
myndasamkeppni
Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkurumdæmis efiidi
til hugmyndasamkeppni
meðal nemenda í 7. bekk
grunnskóla Reykjavíkur í
tilefhi af „Degi jarðar".
Fyrstu verðlaun fyrir sam-
starfsverkefni hlaut 7.
bekkur Tjarnarskóla eins
og áður hefur komið fram
og fyrstu verðlaun í ritgerð-
arsamkeppninni hlaut Eyr-
ún Ýr Þorleifsdóttir í 7.
bekk Foldaskóla.
Verkefnið var að fjalla um
hvernig unnt væri að bæta
umhverfi og draga úr meng-
un. Verðlaunin voru ýmis
tæki til nota í skólum og
bækur. Verðlaunin voru feng-
in að gjöf frá verslunum og
fyrirtækjum í tilefni sam-
keppninnar. Þrenn verðlaun
voru veitt í hvorum flokki og
voru þau afhent í anddyri
Borgarleikhússins á „Degi
jarðar" 22. apríl.
19000
FRUMSÝNIR GRÍNMYNDINA:
ÚRVALSDEILDIN
KEFLVÍSKU INDÍÁNARNIR ERU SAMANSAFN AF VON-
LAUSUM KÖRLUM OG FURÐUFUGLUM, EN ÞEIR ERU
KOMNIR í ÚRVALSDEHXWNA, ÞÖKK SÉ STÓRLEIKUR-
UM Á BORÐ VH) TOM BERENGER, CHARLIE SHEEN OG
CORBEN BERNSEN. I ÚRVALSDEILDINNI ER MIKIÐ
FJÖR OG MEKIL SPENNA, ENDA MARGT BRALLAÐ.
„MAJOR LEAGUE" ER STÓRGÓÐ GRÍNMYND, SEM SLÓ
RÆKILEGA í GEGN í BANDARÍKJUNUM.
„BRJÁLÆÐISLEGA FYNDIN MYND" - Daily Mirror.
Aðalhl.: Tom Berenger, Charlie Sheen, Corben Bernsen.
Leikstjóri: David S. Ward.
Sýnd kl. 5,7, 9og 11.
SKÍÐAVAKTIN
HELGARFRÍ MEÐBERNIE
Frábær grínmynd sem kemur
öllum í sumarskap með
Andrew McCarthy
í aðalhlutverki.
Sýnd kl.5,7, 9,11.
HÁSKAFÖRIN
Stanslaust fjör, grín og
spenna ásamt stórkost-
legum skíðaatriðum frá
uppbafi til cnda.
Sýnd kl. 5,7, 9,11.
FJÓRÐA STRÍÐIÐ
(DAMNED RIVER)
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan16 ára.
(FOURTH WAR)
Sýnd kl. 5,7,9,11.
Bönnuð innan 12 ára.
Aðalfundur Minja og sögu
AÐALFUNDUR Minja og
sögu var haldinn 15. maí
sl. í Þjóðminjasafni Is-
lands. Fundarstjóri var
Sigurður Líndal. Fráfar-
andi formaður, Katrín
Fjeldsted, greindi m.a. írá
þremur fræðsiufundum,
sem félagið hélt á starfsár-
inu.
Á fundinum voru sam-
þykktar þrjár tillögur: Sú
breyting var gerð á félags-
gjöldum, að þau voru lækkuð
úr 2.000 krónum í 1.500
krónur, og verður nú jafnt
fyrir alla félagsmenn. Áður
greiddu hinsvegar ellilíf-
eyrisþegar ekki árgjöld.
Fundurinn beindi því til
menntamálaráðherra og
fjármálaráðherra að beita
sér fyrir því að upp verði
tekið eins konar „tappa-
gjald“ af bjórumbúðum, ekki
lægra en 5 krónur af hverri
einingu. Þeim fjármunum
verði varið til að styrkja
menningarsöguleg söfn í
landinu, sem starfa skv.
þjóðminjalögum.
Félagið gangist fyrir því,
að efnt verði til sögudaga
fjölskyldunnar að sumarlagi
ár hvert um allt land til að
vekja athygli á fjölþættri
starfsemi safna landsins. Þar
er um að ræða, að öll söfn,
byggðasöfn, friðuð hús, torf-
bæir, kirkjur, sögustaðir,
uppgreftir, hús og mannvirki
á fornleifaskrá og aðrar
menningarminjar, hvar sem
er á landinu, yrðu opnar al-
menningi til skoðunar undir
leiðsögn starfsmanna eða
áhugamanna.
Katrín Fjeldsted, formað-
ur félagsins, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs, og voru
henni þökkuð góð störf í for-
mennsku félagsins, sem nýt-
ur krafta hennar áfram í
stjórninni.
Stjórn félagsins skipa nú:
Sverrir Kristinsson, formað-
ur, Ólafur Ragnarsson, vara-
formaður, Sigríður Th. Er-
lendsdóttir, ritari, Guðrún
Þorbergsdóttir, gjaldkeri/
Sverrir Sch. Thorsteinsson,
Guðjón Friðriksson og Katrín
Fjeldsted.
■ NORRÆNT vinabæja-
mót verður haldið dagana
14.—16. júní nk. í Loimaa í
Finnlandi. Loimaa er vina-
bær Mosfellsbæjar, en aðrir
bæir í þeirri keðju eru Skien
í Noregi, Uddevalla í
Svíþjóð og Thisted í Dan-
mörku. Af þessu tilefni
gengst Héraðsbókasafii
Kjósarsýslu i samvinnu við
stjórn Norræna félagsins í
Mosfellsbæ fyrir kynningu &
Finnlandi og vinabæjamót-
inu. Kynningin hefst 23. maí
og stendur yfir til 10. júní í
bókasafninu að Markholti
2, Mosfellsbæ, en það er
opið frá kl. 13—20. alla virka
daga. Kynningin er með
þeim hætti að frammi munu
liggja bækur, blöð og bækl-
ingar um Finnland og
Finnska sendiráðið í
Reykjavík hefur góðfúslega
útvegað. Einnig eru upplýs-
ingar um vinabæjamótið
dagskrá þess. Vinabæjamót-'
ið ber yfirskriftina „Unga
fólkið og umhverfið“. Hér-
aðsbókasafnið og stjórn
Norræna félagsins hvetja
fólk tii að koma í safnið og
kynna sér Finnland, vina-
bæjamótið í Loimaa og
ferðamöguleika innan Finn-
lands.