Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 71

Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 71
 SVIÞJOÐ Landslidsbún- ingum stolið Hundrað æfinga- og keppn- isbúningum, sem voru sér- saumaðir á sænska landsliðið í knattspyrnu fyrir HM á Ítalíu, var stolið á Ar- landaflugvellin- um við Stokk- hólm á sunnu- daginn. Það vakti ekki mikla kátínu hjá for- ráðamönnum sænska knatt- spyrnusambandsins, sem báru sig aumlega og sögðu að ljóst væri að Svíar yrðu að leika í gömlum búningum á Ítalíu. Það var greinilegt að þjófarn- ir hafa fengið samviskubit þegar þeir fréttu að ieikmenn sænska landsliðsina yrðu að leika í göml- um búningum. Þeir skiluðu nýju sérsaumuðu búningunum til sænska knattspyrnusambands- Frá Þorsteini Gunnarssyni i Sviþjóð ms 1 gær. Morgunblaöið/Sigurgetr Kristján Jónsson og Tómas Tómasson beijast um knöttinn í Eyjum. Meidsli Gunnars tóku sig upp Gunnar Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu, mun ekki geta leikið með íslandi gegn Al- baníu. Gunnar lék ekki með Hácken gegn Djurg- arden í gærkvöldi í úrsiitaleik sænsku bikarkeppn- innar. Gunnar stóðst ekki læknis- skoðun á mánudagskvöldið - meiðsli hans tóku sig upp, en Gunnar meiddist á læri á dögunum. Vörn Hácken var eins og gata- sigti gegn Djurgarden, sem vann, 3:0. Það var greinilegt- að ■Gautaborgarliðið saknaði Gunnars... Frá Þorsteini Gunnarssyni i Sviþjóö Gunnar G. MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MíðVIfC’uÍjÁGUR 23. MAI 1990 „Krístján lék vel í Eyjum" - segir Bo Johannsson, landsliösþjálfari, sem hefur valið Knstján Jónsson í landsliðshóp sinn Kristján Jónsson er á ný kom- inn í landsliðshóp lslands. Bo Johannsson, landsliðsþjálfari, var mjög hrifinn af leik Kristjáns með Fram í Vestmannaeyjum á laugardaginn og valdi hann ( tandsliðshóp sinn eftir leikinn. Bo hugsar eflaust svo að Kristj- án geti tekið hlutverk Gunnare Gíslasonar, ef Gunnar verður ekki klár í slaginn gegn Albönum. „Kristján lék mjög vel með Fram í Vestmannaeyjum og hafði góðar gætur á Tómasi Tómassyni, ein- um hættulegasta sóknarleikmanni Eyjamanna. Þegar ég var úti í Eyjum á dögunum til að horfa :i leiki í móti þar, lék Tómas :njög vel. En þegarTómas mætti Kristj- áni átti hann aldrei möguleika. Kristján hélt hbnum algjörlega niðri," sagði Bo. Kristján, sem hefur klæðst landsliðspeysunni Uu sinnum, lék síðast í febrúar 1987 S ’.eik gegn Kuwait - þegar island gerði jai'n- tefli, 1:1, í Kuwait, þannig ið það eru rúm þijú ár slðan hann lék síðast með landsliðinu. Marteinn hefur valið Ólympíulandsliðid Marteinn Geirsson, _þjálfari Ólympíulandsliðs Islands, hefur valið landslið sitt sem leikur gegn Albaníu í undankeppni ÓL á þriðjudaginn kemur. Undankeppni ÓL er einnig undankeppni Evrópu- keppni 21 árs landsliða. Landsliðshópurinn er skipaður þessum leikmönnum: Anton Markússon, Fram, Bjarki Péturs- son, Akranesi, Bjarni Benediktsson, Stjörnunni, Grétar Steindórsson, Breiðabliki, Haraldur lngólfsson, .AkrtthfigL__Helgi... Björgyinsson, Víkingi, Ingóífur Ingólfsson, Stjörnunni, Kristján Finnbogason, KR, Kristján Halldórsson, ÍR, Ólaf- ur Pétursson, Keflavík, Ríkharður1*" Daðason, Fram, Rúnar Kristinsson, KR, Steinar Adólfsson, Val, Steinar Guðgeirsson, Fram, Valdimar Kri- stófersson, Stjörnuunni og Þormóð- ur Egilsson, KR. Þar sem hópurinn var valinn áður en Steinar Guðgeirsson meiddist, á Marteinn eftir að velja leikmann í_ hans stað. „Við munum sækja grímmt að Albönum“ - segirBoJohansson, landsliðsþjálfari íslands. íslendingarleika sinn 200. lands- leik þegar leikið verður gegn Albaníu á Laugardalsvellinum 30. maí „VIÐ munum leika til sigurs gegn Albönum og ég hef trú á að við náum að leggja Albani að velli. Það verður ekki auð- velt verk, en ef strákarnir gefa allt í ieikinn á það að takast," sagði B9 Johansson, landsliðs- þjálfari íslands, þegar lands- liðshópur hans fyrir Evrópuleikinn gegn Albaníu á Laugardalsvellinum 30. maí var tilkynntur í gær. Íslendingar eiga marga góða leik- inn, en það er verst hvað þeir geta sjaldan komið saman. Flestir af bestu leikmönnum íslands leika víðs vegar um Evrópu. Ég hef til dæmis ekki enn séð Guðmund Torfason leika nema á myndbandi frá leik íslands gegn Austurríki í undankeppni heimsmeistarakeppn- innar,“ sagði Bo, sem sagði að hann myndi alltaf velja bestu leikmenn Islands að hans mati til að leika. „Það er þá sama hvort þeir leika með Breiðabliki eða Stuttgart." Hópur Bos er byggður upp á jafn mörgum varnar- og sóknarleik- mönnum. „Þetta er svona á pappírnum, en í hópnum eru marg- ir leikmenn sem geta leikið margar stöður. Arnór Guðjohnsen, Sigurður Grétarsson og Þorvaldur Örlygsson geta jafnt leikið á miðjunni, .sem í fremstu víglínu. Þá getur Ólafur Þórðarson jafnt leikið á miðju og í vörn. Það að er aðeins spumingin ] hvernig jafnvægi er á leik liðsins hveiju sinni,“ sagði Bo Johansson. „VerAurm að sækja framarlega" „Það er nauðsynlegt að við sækj- um á Albani framarlega. Við mun- um sækja fram til að vinna knöttinn framarlega á vellinum og byggja leik okkar upp þar. Albanir eru ekki auðveld bráð. Leikmenn þeirra eru mjög leiknir og snjallir að leika saman. Þeir leika yfirleitt varnar- leik á útivelli, þar sem átta menn mynda múr fyrir framan markið, og geysast síðan fram í skyndisókn- ir. Þeir reyna að nýta sér breidd vallarins. Það er okkar að koma í veg fyrir að þeir fái tækifæri til að leika knettinum á milli sín á eigin vallarhelmingi." „Veittu Svíum harða keppni“ Albönum hefur farið mikið fram Asgeir. Atli. Mm FOLK ■ LANDSLEIKURINN gegn Albaníu verður 200. landsleikur íslands í knattspyrnu. ■ PÉTUR Pétursson mun leika sinn fertugasta landsleik gegn Albaníu á Laugardalsvellinum. Arnór Guðjohnsen mun ná að leika sinn þrítugasta landsleik. ■ FORSETI Islnnds, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður heiðurs- gestur á leiknum. Hún mun mun heilsa leikmönnum liðanna fyrir ieikinn._ ■ KSÍ hefur boðið Asgeiri Sigur- vinssyni og eiginkonu hans Astu Guðmundsdóttur til landsins í sambandi við landsleikinn. Ásgeir verður sæmdur gullmerki KSÍ fyrir leikinn. ■ McKNlGHT frá Skotlandi mun dæma leikinn, en eftirlitsmað- ur verður Wharton frá Skotlandi. ■ MICHEL Platini, landsliðs- þjálfari Frakklands mun mæta á leikinn og einnig koma hingað „njósnarar" frá Spáni og Tékkó- slóvakiu. ■ ATLI Eðvaidsson nálgast landsleikjamet Marteins Geirsson- ar, sem er 67 landsleikir. Atli leik- ur landsleik nr. 61 gegn Albaníu. Sævar Jónsson er næst leikreynd- asti leikmaðurinn í landsliðhópnum nú - hefur leikið 54 landsleiki. Bo Johansson, landsliðsþjáifarí í knattspyrnu. á undanförnum árum. Þeir náðu að veita Svíum liarða keppni í und- ankeppni heimsmeistarakeppninn- ar. Þá léku þeir vamarleik í Svíþjóð og þeir koma hingað til að veijast. Þeir lifa í voninni um að ná að vinna sinn fyrsta leik í heimsmeistara- keppni eða Evrópukeppni á útivelli hér í Reykjavík. Við erum aftur á móti ákveðnir að leggja þá að velli og margir knattspyrnuunnendur hér á landi hafa beðið lengi eftir þessum landsleik. Það er langt síðan að landslið íslands hefur leikið hér á landi,“ sagði Bo, sem lofaði skemmtilegum leik. Landsliðshópurínn Bo Johansson hefur valið þessa leikmenn til að leika fyrir hönd íslands gegn Albaníu: Bjami Sigurðsson, Valur Birkir Kristinsson, Fram Atli Eðvaldsson, Genglebirci Guðni Bergsson, Tottenham Gunnar Gislason, Háckén Kristján Jónsson, Fram Ormarr Örlygsson, KA Sævar Jónsson, Val Ólafur Þórðarson, Brann Pétur Ormslev, Fram Þorvaldur Örlygsson., Nott. For. Sigurður Grétarsson, Luzern Pétur Pétursson, KR Guðmundur Torfason, St. Mirren Eyjólfur Sverrisson, Stuttgart Amór Guðjohnsen, Anderlecht ■Ef meiðsli koma upp mun Bo gera breytingar á hópi sinum um helgina. Nú þegar er ljóst að Gunnar Gíslason getur ekki leikið. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.