Morgunblaðið - 08.06.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
Neyðarlög numiii úr
gildi í Suður-Afríku
Höfðaborg, Durban, París. Reuter.
F. W. de Klerk, forseti Suður-Afríku, skýrði frá því á þingi í gær að
ákveðið hefði verið að aflétta neyðarlögum sem verið hafa i gildi í
landinu í tæp fjögur ár. Ákvörðun þessi mun þó ekki taka til Natal-hér-
aðs þar sem blökkumenn berjast af mikili heift. Nelson Mandela, leið-
togi Afríska þjóðarráðsins, ANC, sem staddur er í Frakklandi, fagnaði
þessum tíðindum í gær en áður hafði hann lýst yfir því að afnám neyð-
arlaga myndi engu breyta um nauðsyn þess að áfram yrði haldið áfram
e&ahagsþvingunum gegn Suður-Afríku.
Neyðarlögunum verður formlega
aflétt kl. 22 að íslenskum tíma í
dag, föstudag. Afríska þjóðarráðið
hafði sett það sem skilyrði fyrir því
að hafnar yrðu viðræður við stjórn-
völd um framtíð Suður-Afríku að lög
þessi yrðu numin úr gildi. P.W. Bot-
ha, fyrrum forseti landsins, kom
neyðarástandslögunum á þann 12.
júní 1986 en samkvæmt þeim hafa
öryggissveitir stjórnvalda haft nán-
ast óskoruð völd til að handtaka
blökkumenn og aðra andstæðinga
stjórnar hvíta minnihlutans í Suður-
Afríku. Þá hafa lögin einnig tryggt
stjómvöldum rétt til að ritskoða
fréttir af mótmælum blökkumanna.
Lögin réttlætti Botha forseti hins
vegar með tilvísun til þess að koma
yrði í veg fyrir frekara blóðbað og
vígaferli eftir að blökkumenn höfðu
risið upp gegn stjóm hans. Þá vildi
forsetinn með þessu einnig freista
þess að koma í veg fyrir innbyrðis
átök blökkumanna. Á þessu ári hafa
rúmlega 1.000 manns fallið í Suður-
Afríku, flestir í átökum hópa blökku-
manna í Natal-héraði.
Nelson Mandela, sem staddur er
í París, sagði í gær að tilkynning
forsetans væri sigur fyrir alla íbúa
Suður-Afríku. Hann vék að því að
neyðarlög yrðu áfram í gildi í Nat-
al-héraði og kvaðst efast um rétt-
mæti þeirrar ráðstöfunar. Grimmd-
arverkunum þar hefði ekki linnt þótt
öryggislöggjöfín hefði verið í gildi í
fjögur ár. Fyrr um daginn hafði
Mandela, sem er á sex vikna ferða-
lagi um Evrópu, Afríku og Banda-
ríkin, lýst yfír því að viðhalda bæri
efnahagsþvingunum þeim sem vest-
ræn ríki hafa beitt Suður-Afríku sök-
um kynþáttastefnu stjómvalda þar.
Enn hefði lýðræði ekki verið komið á
í heimalandi hans og enn hefði ekki
verið hróflað við helstu máttarstólp-
um kynþáttastefnunnar.
Reuter
Jacques Chirac, borgarstjóri Parísar, ræðir við Nelson Mandela og
eiginkonu hans Winnie i ráðhúsi borgarinnar i gær. Mandela-hjónin
eru nú á sex vikna ferðalagi og munu eiga viðræður við ráðamenn
i eigi færri en 13 löndum.
Fundur utanríkisráðherra NATO:
Virða ber hagsmuni Sovét-
manna í Þýskalandsmálinu
Turnberry í Skotlandi. Reuter.
FUNDUR utanríkisráðherra 16
aðildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) hófst í Turnberry
í Skotlandi í gær. Á fundinum kom
fram að eining er ríkjandi innan
bandalagsins um að taka beri tii-
lit til öryggishagsmuna Sovétríkj-
anna í viðræðum um sameiningu
þýsku ríkjanna tveggja. Athygli
vakti að ónefhdir vestur-þýskir
heimildarmenn sögðu að sljórn-
völd í Bonn hygðust leggjast gegn
því að nýtt flugskeyti, sem hugsað
er sem mikilvægur liður í lgarn-
orkuvörnum bandalagsins í fram-
tíðinni, yrði geymt á þýsku land-
svæði.
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
Líbería:
Foringi uppreisnarmanna fellur
Monrovíu. The Daily Telegraph.
ELMER Jo-
hnson, helsti
herforingi upp-
reisnarmanna í
Afríkuríkinu
Líberíu, féll í
bardögum
skammt suð-
austur af höfúð-
borginni Samuel Doe
Monrovíu á þriðjudag. Er þetta
talið alvarlegt áfall fyrir upp-
reisnarmenn sem svarið hafa þess
dýran eið að steypa stjórn Samu-
els Doe.
Emmanuel Bowier, upplýsinga-
ráðherra stjórnar Samuels Doe, lagði
ökuskírteini Johnsons fram sem
sönnun fyrir því að hann hefði verið
drepinn. Fréttin fékkst einnig stað-
fest eftir öðrum leiðum. Að sögn
stjómvalda féll Johnson er hann sótti
að síðustu varðstöð stjórnarhersins
á Firestone-gúmmíplantekrunni
skammt frá höfuðborginni. Upp-
reisnarmenn em taldir vera nokkur
hundruð en Doe forseti hefur um
1.000 þrautþjálfaða og vel vopnaða
lífverði á sínum snærum. Forsetinn
hefur verið einráður í Líberíu í tíu
ár en hann rændi völdum í apríl
1980 og lét taka þáverandi forseta
landsins og 13 háttsetta embættis-
menn af lífi. Fyrsta verk Doe var
að afnema stjómarskrá Líberíu, sem
varð sjálfstætt ríki árið 1847, og
banna starfsemi stjómmálaflokka.
isráðherra Vestur-Þýskalands, sagði
á fundi með blaðamönnum að ráð-
herramir væm sammála um að virða
bæri öryggishagsmuni Sovétmanna
í Þýskalandsmálinu. Kvað hann
þessa niðurstöðu fela í sér mikilvæga
orðsendingu til Sovétstjómarinnar.
Míkhaíl S. Gorbatsjov hefur margoft
lýst yfir því að Sovétmenn geti ekki
fallist á að Þýskaland eigi aðild að
Atlantshafsbandalaginu en sú er
krafa Þjóðveija og annarra aðild-
arríkja bandalagsins. Sameining
Þýskalands og staða þess í Evrópu
með tilliti til varnar- og öryggismála
var ofarlega á baugi á leiðtogafund-
inum í Washington en þær viðræður
allar skiluðu engum áþreifanlegum
árangri. Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna og Edúard She-
vardnadze, starfsbróðir hans frá Sov-
étríkjunum, ræddu málið á ný fyrr í
vikunni í Kaupmannahöfn. Mun Ba-
ker hafa skýrt frá því á NATO-fund-
inum að afstaða sovéska utanríkis-
ráðherrans gæfí tilefni til bjartsýni.
Á leiðtogafundinum í Washington
lagði Bush Bandaríkjaforseti fram
áætlun í níu liðum varðandi samein-
ingu þýsku ríkjanna og stöðu hins
nýja Þýskalands með tilliti til örygg-
ismála í Evrópu. Ónefndur banda-
rískur embættismaður sagði í sam-
tali við Reuíers-fréttastofuna í gær
að utanríkisráðherrar NATO-ríkj-
anna myndu leggja blessun sína yfír
áætlun þessa á fundinum í Skotl-
andi. Þá myndu ráðherrarnir og
hvetja til þess að viðræðum um fækk-
un hermanna og vígtóla í Evrópu
yrði hraðað.
í umræðum þeim sem fram hafa
farið á vettvangi NATO að undan-
fömu um framtíðarvarnir bandalags-
ins í ljósi breyttra aðstæðna í Evrópu
hafa Bandaríkjamenn og Bretar
ákaft hvatt til þess að aukin áhersla
verði lögð á kjamorkuvamir í lofti.
Boðað hefur verið að nýtt kjamorku-
flugskeyti til árása á skotmörk á
jörðu niðri verði smíðað í þessu skyni
og mun það verða langdrægara en
eldri gerðir. Ónefndir heimildarmenn
sögðu í gær að vestur-þýsk stjórn-
völd hefðu tilkynnt að flugskeyti
þetta yrði ekki geymt á þýsku land-
svæði. Bandarískur embættismaður
lýsti yfir furðu sinni sökum þessara
ummæla en bætti við að mál þetta
myndi ekki spilla fyrir viðræðum um
sameiningu Þýskalands.
Bretland:
Þingdeildir deila um
frumvarp um stríðsglæpi
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TIL ágreinings hefur komið milli þinmanna í neðri deild brezka
þingsins og hinna sem sitja í lávarðadeildinni um það, hvernig tek-
ið skuli á þeim einstaklingum, sem búsettir eru í Bretlandi og unnu
voðaverk á vegum nazista í síðari heimsstyrjöldinni. Frumvarp til
laga um stríðsglæpi var fellt í lávarðadeildinni á mánudaginn. Ríkis-
stjórnin hefur ekki ákveðið hvert framhald málsins verður.
Stofnun Símonar Wiesenthals,
nazistaveiðara, Iagði á sínum tíma
fram lista með nöfnum um 200
einstaklinga, sem grunur léki á,
að hefðu gerzt sekir um stríðsglæpi
í seinni heimsstyijöldinni og sezt
að í Bretlandi að henni lokinni.
Raddir höfðu heyrzt um þetta áð-
ur, en í þetta sinn ákváðu brezk
stjórnvöld að setja nefnd í málið.
Hún var skipuð í febrúar árið 1988.
Mælt með málssókn
Fyrir réttu ári skilaði nefndin
áliti. Hún taldi æskilegt, að gripið
yrði til málssóknar af einhveiju tæi
gegn þeim, sem væru nú brezkir
þegnar og væru grunaðir um
stríðsglæpi. Hún taldi mögulegt að
hefja mál gegn fjórum einstakling-
um og ástæðu til að skoða frekar
mál 75 einstaklinga. Það var einn-
ig álit nefndarinnar, að betra væri
að höfða mál gegn þessum ein-
staklingum fyrir brezkum dómstól-
um, en að þeir yrðu framseldir til
landa, þar sem glæpimir voru
framdir.
Stjómvöld lögðu fram frumvarp
um lagaheimild til að draga brezka
þegna fyrir dóm vegna stríðsglæpa.
Heimildin átti að ná aftur til ársins
1939. Neðri málstofa þingsins sam-
þykkti þessi lög með 273 atkvæð-
um gegn 60 í marz sl, en flokk-
saga var aflétt í þessu máli og þing-
menn áttu það aðeins við samvizku
sína, hvemig þeir greiddu atkvæði.
Þessu frumvarpi hafnaði Lá-
varðadeildin sl. mánudagskvöld
eftir mjög langa umræðu með 207
atkvæðum gegn 74.
Hefiid eða réttlæti?
Rök lávarðanna gegn þessu
frumvarpi voru þau helzt, að lögin
væru afturvirk, þeim væri beint
gegn tilteknum einstaklingum, þau
væm hefnd fremur en réttlæti og
nánast útilokað væri, að réttarhöld
samkvæmt þessari heimild yrðu
sanngjöm og réttlát. Shawcross,
lávarður, sem er fyrrverandi dóms-
málaráðherra og var einn af sak-
sóknurunum í Niirnbergréttarhöld-
unum, sagði að lögin væm hefndar-
ráðstöfun en ekki réttlæti. Báðir
aðilar seinni heimsstyijaldarinnar
hefðu framið stríðsglæpi. Yrðu
þessi lög samþykkt, væm þau óaf-
máanlegur blettur á brezku réttar-
fari.
Hailsham, lávarður, sagði þetta
fmmvarp vera misbeitingu á rétt-
arfari vegna þess að lögin yrðu
afturvirk. Hann benti á, að nefndin
hefði talið mögulegt að hefja mál
gegn fiómm einstaklingum, en nú
væri einn þeirra látinn, annar of
sjúkur til að hægt yrði að draga
hann fyrir dóm og einn þeirra hlyti
öragglega ekki dóm. Eftir stæði
því einn. Af þeim 75, sem rannsaka
ætti frekar, mætti telja líklegt að
kannski einn lenti í málaferlum.
Ferrar, jarl, innanríkisráðherra
Símon Wiesenthal
í lávarðadeildinni, sagði að aftur-
virkni laganna væri ekki slæm í
þessu tilviki, vegna þess að öllum
hefði verið ljóst og hefði átt að
vera ljóst á þeim tíma, sem verkin
vom framin, að þau væm glæpir
við hvaða réttarfar sem væri. Hann
benti einnig á, að bæði Ástralir og
Kanadamenn hefðu sett svipuð lög.
Hann sagði, að það að fella þessi
lög jafngilti því að litið yrði á Bret-
land sem griðastað stríðsglæpa-
manna.
Stjórnvöld í vanda
Ákvörðun lávarðadeildarinnar
hefur sett stjórnvöld í nokkurn
vanda. Deildin hefur einungis vald
til að tefja fmmvörp, sem neðri
Hailsham lávarður
deildin hefur samþykkt. Ár verður
að líða frá því, að lávarðadeildin
fellir slíkt frumvarp, þar til má
leggja það fram óbreytt. Samþykki
neðri deildin það í annað sinn geng-
ur það beint til drottningar til sam-
þykktar samkvæmt þingsköpum
frá 1911 og 1949.
Talið er ólíklegt, að lávarðadeild-
in vilji að það skerist í odda með
svo afdráttarlausum hætti og hún
muni samþykkja frumvarpið fari
það í gegnum neðri deildina óbreytt
í annað sinn. Ríkisstjórnin hefur
ekki látið uppi, hvað hún hyggst
gera. Búizt er við, að umræða verði
um framhald málsins í Neðri deild-
inni bráðlega.