Morgunblaðið - 08.06.1990, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
Minning‘:
Ingvar Sigurðs-
son Grá Efstadal
Fæddur 18. júlí 1919
Dáinn 2. júní 1990
Ingvar afi er dáinn, það virðist
svo ótrúlegt, því mér fannst hann
alltaf vera hraustur og lipur eins
og táningur.
Þegar ég var barn voru föður-
. afí minn og báðar ömmur mínar
komin með falskar tennur, en Ing-
var afi hafði enn sínar eigin tenn-
ur. Mamma sagði mér að það
væri vegna þess hve hann borðaði
hollan mat og hugsaði vel um
tennumar, og því ætti ég að taka
hann til fyrirmyndar ef ég vildi
halda mínum tönnum. Þetta voru
orð að sönnu, því afi var einhver
besta fyrirmynd í heilbrigðu
líferni, fór snemma í háttinn á
kvöldin, var kominn upp fyrir allar
aldir og fór þá í langa göngutúra
sér til heilsubótar.
Ein af fyrstu minningum mínum
um afa eru frá því að við bjuggum
A hjá ömmu og afa í Drápuhlíðinni
fyrstu árin mín. Þegar hann kom
heim á daginn hljóp ég á móti
honum og sagði; „Afi eigum vicf
að koma að telja í töskunni?" og
átti ég þá við að við ættum að
telja skiptimyntina í bílstjóratös-
kunni hans, en það var eitt það
skemmtilegasta sem ég vissi. Við
gátum setið tímunum saman og
raðað tíköllum og fimmköllum í
„glös“ eins og ég kallaði það. Mér
er minnisstætt eitt atvik þegar við
vorum einu sinni sem oftar að
„telja í töskunni" að nokkuð var
af einnar krónu peningum og smá-
aurum í töskunni, ég spurði afa
hvað ég ætti að gera við þá, hann
leit á hauginn annars hugar og
sagði; „Já, þetta er rusl“. Ég starði
á hann opinmynt, hvað átti hann
við með því að kalla peningana
rusl? Hann áttaði sig, brosti og
sagði mér að fara með aurana
fram í eldhús og láta ömmu fá
þá til að kaupa mjólk fyrir.
Afa þótti ákaflega vænt um fjöl-
skyldu sína. í fyrra sátum við eitt
sinn og drukkum kaffi í eldhúsinu
í Stigahlíðinni, afi, ég, mamma og
tvö af systkinum hennar. Við vor-
um að rifja upp sögur frá því að
þau systkinin voru lítil. Þá var oft
handagangur í öskjunni og einu
þeirra verður að orði, að það hljóti
t
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR,
Álftagerði,
lést á sjúkrahúsi Skagfirðinga aðfaranótt 6. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börn og tengdabörn.
t
Systir okkar,
HULDA SKAFTADÓTTIR,
lést á heimili sínu, Suðurhólum 24, þann 2. júní.
Ólafur Skaftason,
Eva Skaftadóttir,
Gunnar Skaftason.
t
Sonur okkar, faðir og bróðir,
GUÐMUNDUR TRAUSTI KRISTINSSON,
Hafnarbraut 22,
Hólmavik,
lést mánudaginn 4. júní.
Kristinn Sveinsson, Helga Sigurðardóttir,
börn og systkini hins látna.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
JÓN TORFI JÓHANNSSON,
Mjóanesi í Þingvallasveit,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. júní
kl. 13.30.
Rósa Jónsdóttir, Jóhann Jónsson,
Oddur Jóhannsson, Trausti Jóhannsson,
Júliana Kristín Jóhannsdóttir, Þorvarður Lárusson,
Lýður Valgeir Lárusson.
t
Hjartkær eiginkona mín,
ÁSA GUNNARSDÓTTIR,
Skógargerði 3,
Reykjavík,
er lést 31. maí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
8. júní kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfélagið.
Baldvin Árnason.
að hafa verið hræðilega erfítt að
eiga íjögur böm á svipuðum aldri.
Þá segir afí hinn rólegasti; „Þú
segir það, já, en ég veit ekki
hveiju hefði átt að sleppa.“ Þetta
var einkennandi fyrir afa. Hann
sýndi börnum sínum og okkur
barnabömunum mikla væntum-
þykju, og þegar maður kvaddi
hann eftir stutta heimsókn í Stiga-
hlíðina, gat maður ekki annað en
faðmað hann að sér, hann var svo
góður.
Fyrir nokkrum ámm festi fjöl-
skyldan kaup á sumarbústaðarl-
andi austur í Efstadal, á æsku-
stöðvum afa. í fyrra sumar var
svo hafíst handa við að reisa veg-
legt sumarhús á landinu, sem varð
fokhelt sl. haust. Alltaf var afi
jafn spenntur að fara að líta á
landið og seinna húsið sem þar
var að rísa og hlakkaði ákaflega
mikið til að fá að eiga þar góða
daga með fjölskyldunni í framt-
íðinni, en úr því verður því miður.
Ég heimsótti afa á Borgarspítal-
ann kvöldið áður en hann lést.
Hann var þá á góðum batavegi
eftir að hafa verið fluttur þangað
nokkrum dögum áður með krans-
æðastlflu. Hann sagði okkur að
hann væri kominn á sjötta stigið
af átta sem sjúklingar sem fá
kransæðastíflukast ganga í gegn-
um og var mjög ánægður með
hvernig sér færi fram. Hann var
líka ákaflega stoltur þegar hann
sagði okkur að læknarnir hefðu
beðið hann leyfis um að fá að
reyna á honum nýtt lyf, og væri
sú tilraun gerð í þágu vísindanna.
Honum fannst það sjálfsagt mál
og stórkostlegt ef hann gæti átt
þátt í þróun nýs lyfs sem gæti ef
til vill læknað eða linað þrautir
annarra. Það komst til tals að ég
og unnusti minn myndum fá íbúð-
Minning:
Kveðja frá starfsfólki
Hafrannsóknastofinunar
Kynni okkar Sigurðar Erlends-
sonar urðu býsna löng en ekki þó
samfelld. Mér er í barnsminni stór
og traustur maður sem var háseti
hjá föður mínum á bv. Mars, sem
lengi var eitt af mestu aflaskipum
flotans. Það var þó ekki vegna
ytra atgervis, sem mér varð mað-
urinn minnisstæður, heldur
kannski frekar vegna þess að hann
var sérlega barngóður og hress í
tali og það þurfti ekki að hlusta
lengi til þess að komast að raun
um að sjórinn átti hug hans öðrum
hlutum fremur.
Það er mér í fersku minni, er
fundum okkar Sigurðar bar saman
um áramótin 1959-1960. Þá var
ég að læra í Þýskalandi en kominn
með konu og son og til að spara
ina, sem við höfðum fest kaup á,
afhenta innan fárra daga. Afi lyft-
ist allur upp og spurði hvort hann
mætti ekki koma í heimsókn þegar
við værum búin að koma okkur
fyrir og við buðum hann að sjálf-
sögðu velkominn. Ég veit að afí
hlakkaði mikið til að sjá fyrsta
langafa bam sitt sem von er á nú
í sumar, en það mun kynnast Ingv-
ari, langafa sínum, í gegnum
minningar okkar af honum.
Við hefðum öll viljað hafa Ing-
var afa lengur hjá okkur, en við
erum þakklát fyrir það hve litlar
þjáningar hann þurfti að líða.
Megi hann hvíla í friði.
Þóranna Jónsdóttir
Sigurður Erlendsson
netagerðarmeistari
t
Ástkær eiginkona og móðir,
GUÐNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR,
Eyrarvegi 16,
Grundarfirði,
verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 9. júní
kl. 14.00.
Hermann Sigurjónsson,
Berglind Hermannsdóttir.
t
Litli, ástkæri drengurinn okkar,
HANNESPÁLLHAUKSSON,
andaðist þann 30. maf sl. á Landspítalanum.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu
og hlýhug við andlát og útför hans. Sérstakar þakkir til starfs-
fólks vöku- og meðgöngudeildar Landspítalans.
Haukur Alfreðsson, Anna Lísa Björnsdóttir,
Alfreð Hauksson, Björn Arnar Hauksson,
Jóhanna Hildur Hauksdóttir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginkonu minnar og móður okkar,
AUÐAR KRISTINSDÓTTUR,
Leifsgötu 13.
Guðmundur Sigurðsson,
Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurður Guðmundsson,
Freygerður Guðmundsdóttir, Indriði Guðmundsson,
Sif Guðmundsdóttir, Guðný Nanna Guðmundsdóttir.
Lokað
Félagsmiðstöð Heyr/ileysingjaskólans verður
lokuð laugardaginn 9. júní vegna jarðarfarar
BRYNDÍSAR H. STEINDORSDÓTTUR.
Skólastjóri.
okkur óþarfa útgjöld þáðum við
ókeypis ferð með togaranum Keili
frá Hafnarfirði til Þýskalands. Ég
lét mig hafa það að velja þennan
ferðamáta, þótt ég væri veikur um
þær mundir. Það reyndist þó ekki
koma að sök, því að Sigurður var
bátsmaður á skipinu og annaðist
okkur af sérstakri prýði á leiðinni
og lét sér einkar annt um hvítvoð-
unginn, sem löngu síðar átti svo
eftir að verða verkstjóri Sigurðar
á veiðarfæraverkstæði Hafrann-
sóknastofnunarinnar.
Ekki liðu ýkja mörg ár, þar til
Sigurður var kominn í þjónustu
Hafrannsóknastofnunarinnar. Var
hann lengi netamaður I gamla
Hafþóri og síðan Bjarna Sæ-
mundssyni en síðan 1978 vann
hann á netaverkstæðinu uns hann
lét af störfum fyrir um ári. Reynd-
ar fór Sigurður ekki alfarinn í
land, því að hann átti það til fram
yfír sjötugt að bregða sér í einn
og einn túr á togara, enda var
hann þar gjaldgengur lengur en
flestir aðrir.
Fyrir hönd okkar hjá Hafrann-
sóknastofnun vil ég þakka Sigurði
fyrir mörg og góð handtök til sjós
og lands. Við þökkum einnig fyrir
skemmtilegar sögur og hressilegt
viðmót. Fyrir okkur sem erum
hérna megin strandar er sjónar-
sviptir að Sigurði Erlendssyni, sem
lagður er af stað í síðustu sigling-
una.
Guðni Þorsteinsson
Minningar-
greinar
Að undanförnu hefur það
færst mjög í vöxt að minningar-
greinar berast til birtingar eftir
útfarardag og stundum löngu
eftir jarðarför. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að birta ekki
minningargreinar sem berast því
eftir að útför hefur farið fram.