Morgunblaðið - 08.06.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. JUNI 1990
&
Til Velvakanda.
Undanfarið hafa áform um
krókódílarækt í Mývatnssveit verið
nokkuð í fréttum og eru sögð vera
tillaga iðnráðgjafans á Húsavík.
Þessi saga minnir mann á eggjavarp
spaugarans Nasreddíns en hann
vaknaði einn morgun og tjáði konu
sinni að hann hefði verpt eggi um
nóttina. Konan trúði þessu og sagði
vinkonu sinni að Nasreddín hefði
verpt tveim eggjum. Vinkonan trúði
þessu og sagði vinkonu sinni að
Nasreddín hefði verpt þrem eggjum
og svo framvegis.
Staðreyndir um krókódílarækt í
Mývatnssveit eru eftirfarandi:
Fy-rir rúmu ári kom fram enskur
maður í fréttatíma sjónvarpsins og
sagði frá hugmynd um króódílarækt
á Islandi. Hann sagði að krókódílar
nýttu fæði sitt afar vel (gæti verið
fiskúrgangur) og kjöt þeirra væri
mjög ljúffengt (líktist kjúklinga-
kjöti), skinnin væru verðmæt og
mætti nýta í ýmsar vörur, þeir þyrftu
á hlýju umhverfi að halda og kæmi
þá jarðhitinn í góðar þarfir, en einn-
ig gæti ræktun þeirra haft töluvert
aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Út frá
þessu hringdi í mig maður í Mývatns-
sveit sem þótti fréttin forvitnileg og
bað mig að afla frekari upplýsinga
um málið. Ég hafði þá upp á Eng-
lendingnum og hann skrifaði smá
ritgerð um málið gegn greiðslu.
Þetta er allt og sumt.
Ég veit ekki til þess að nein áform
séu um það að halda þessu máli
áfram og ekki hef ég lagt það til
enda þarf miklu ýtarlegri upplýsing-
ar um það til að dæma um það hvort
það sé framkvæmanlegt og hag-
kvæmt, en það eru ugglaust mörg
ljón í veginum fyrir þessu verkefni.
Ástæða þess að þetta mál var
vakið upp aftur var að Iðnþróunarfé-
lag Þingeyinga er að vinna að stóru
verkefni sem varðar könnun og nýt-
ingu auðlinda í Þingeyjarsýslum og
voru flest sveitarfélög í sýslunum
heimsótt til að fá kunnáttu og hug-
myndir heimamanna. Allsstaðar var
mikið rætt um ferðamál enda er
þarna örugglega um mikinn vaxtar-
sprota í atvinnumálum að ræða. Á
fundi á Hótel Reynihlíð var mikið
rætt um ferðamál, en það er vanda-
'mál hvað ferðamannatíminn er stutt-
ur og hvað ferðamenn skilja lítið
eftir í sýslunum. Það kom í ljós að
heimamenn voru með ýmsar hug-
myndir til þess að auka ijölbreytni í
ferðamálum og þar minntist einn
maður í viðræðum á þetta mál og
gat ég þess með einu orði í áfanga-
skýrslu sem ég samdi og er mér með
öllu óskiljanlegt af hverju þessi .
skondna hugmynd var blásin svona
upp.
Stóra málið þ.e. auðlindakönnunin
fékk hins vegar litla sem enga um-
ijöllun.
Þarna er ugglaust á ferðinni eitt-
hvað mannlegt lögmál sbr. söguna
með Nasreddín en óneitanlega er
grínið farið að ganga heldur langt.
Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafi.
■ >
1990
GASGRILL
Vinsælu gasgriiiin
frá Charmglow
Verð frá kr. 13.900,- m/kút
Opnunartími:
Föstudag................13-22
Laugardag...............10-19
Sunnudag, sjómannadag...10-19
I LAUGARDALSHÖLL TIL 10. JÚNÍ
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA