Morgunblaðið - 08.06.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
47
ItsúmR
FOLK
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ -1. DEILD
Fádæma yfirburðir Fram
H BIRKIR Kristinsson er eini
markvörðurinn í sögu fyrstu deildar
sem hefur varið vítaspyrnu í tveim-
ur leikjum í röð. Eirkir hefur nú
haldið marki Fram hreinu í 451
mínútu. Sumarið 1988 lék Birkir
í 743 mínútur án þess að fá á sig
mark og náði þá að höggva nærri
meti Sigurðar Haraldssonar sem
lokaði Valsmarkinu í 824 mínútur
árið 1978.
I BIRKIR hefur leikið 40 fyrstu
deildar leiki fyrir Fram og fengið
á sig 16 mörk. Það þýðir að meðal-
tali 225 mínútur milli marka.
H ANNAÐ mark Guðmundar
Steinssonar gegn KA í gærkvöldi
var 75. mark hans fyrir Fram. Það
var þrumuskot af 20 metra færi,
mjög svipað fyrsta markinu.
H TINDASTÖLL hefur gengið
frá samningi við sovéskan leikmann
sem mun leika með úrvalsdeildarliði
félagsins í körfuknattleik næsta
vetur. Sovétmaðurinn heitir Sevc-
senko Aleksander og er 26 ára
leikmaður með A og B landsleiki
að baki.
H EINAR Einnrsson körfuknatt-
leiksmaður úr ÍBK hefur einnig
gengið til liðs við Tindastól.
H ÞRÍRieikir fara fram í 1. deild
kvenna í knattspyrnu um helgina.
Tveir þeirra verða á Akureyri þar
sem Þór og Valur leika í kvöld kl.
20.00 og KA og Valur á laugardag
kl. 14.00. Þá leika KR og Breiða-
blik á KR-velli á laugardag kl.
14.00.
URSUT
Fram — KA 4 : O
Laugardalsvöllur, íslandsmótið, 1. deild,
Hörpudeild, fimmtudaginn 7. júní 1990.
Mörk Fram: Ríkharður Daðason (13.), Am-
ljótur Davíðsson (65.), Guðmundur Steinssonn
2 (68. og 90.).
Gult spjald: Kristinn R. Jónsson, Fram.
Áhorfendur: 1.107.
DómarnÞorvarður Bjömsson. Komst vel frá
ieiknum.
Línuverðir: Sæmundur Viglundsson og
Björgvin Guðjónsson.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn Þor-
steinsson, Kristján Jónsson, Pétur Ormslev,
Viðar Þorkelsson, Kristinn R. Jónsson, Jón
Sveinsson, Guðmundur Steinsson, Anton Bjöm
Markússon, Am|jótur Davíðsson, (Jón Erling
Ragnarsson vm 81.), Ríkharður Daðason,
(Haukur Pálmason vm. 81.).
Lið KA: Haukur Bragason, Árni Hermanns-
son, Halldór Kristinsson, Heimir Guðjónsson,
Erlingur Kristjánsson, Arnar Bjamason,
Bjami Jónsson, Hafsteinn Jakobsson, (Jón
GiAtar Jónsson vm. 69.), Steingrímur Birgis-
son, Kjartan Einarsson og Ormarr Örlygsson.
Guðmundur Steinsson, Fram.
Birkir Kristinsson, Kristján Jónsson, Kristinn
R. Jónsson, Fram.
Pétur Ormslev, Viðar Þorkelsson, Amljótur
Daviðsson, Rfkharður Daðason, Fram. Ormarr
Örlygsson, Steingrímur Birgisson, KA.
Bikarkeppni KSÍ
UBK—Snæfell........................3:0
Willum Þór Þórsson 2, Grétar Steindórsson
4. deild C
HK—Stokkseyri......................5:0
Róbert Haraldsson 2, Bjami Frostason 2,
sjálfsmark
GOLF
Opið mót GR
Nissan-stigamótið fer fram um helgina
á velli GR í Grafarholti. Mótið gefur stig
til landsliða karla, kvenna og unglinga.
Leikinn verður 36 holu höggleikur án for-
gjafar f kvenna og karlaflokki. Þátttökurétt
hafa karlar með 10 og lægra í forgjöf og
konur með 20 eða lægra.
Skráning er í golfskála til kl. 18 í dag
en keppni hefst á morgun kl. 8.
Á sunnudaginn kl. 14 hefst svo Nissan-
unglingamótið fyrir 14 ára og yngri. Það
er 18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Opna Selfossmóti*
Opna Selfossmótið ! golfi fer fram á
morgun á Svarfhólsvelli. Skráning er í goif-
skálanum frá kl. 17 í dag.
Læknamótið I golfi, Delta-mótið, fer fram
á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar. Ræst
verður út frá kl. 15-16.
íslandsmeistarar KA enn án stiga. Framarará toppnum og hafa ekki fengið á sig mark
FRAMARAR sýndu fádæma yfirburði gegn Islandsmeisturum KA
á Laugardalsvelli, unnu 4:0 og var það síst of stór sigur miðað
við gang leiksins. Guðmundur Steinsson átti sannkallaðan
stjörnuleik, gerði tvö stórglæsileg mörk og lagði upp það þriðja.
Birkir Kristinsson, markvörður, varði vítaspyrnu annan leikinn í
röð og hefur ekki fengið á sig mark það sem af er íslandsmót-
inu. Fram er í efsta sæti og markatala þeirra hreint frábær,
12:0. Sömu sögu er ekki hægt að segja um KA, sem enn hefur
ekki unnið leik.
ValurB.
Jónatansson
skrifar
Það tók hinn unga og efnilega
Ríkharð Daðason aðeins 13
mínútur að skora fyrir Fram. Guð-
mundur Steinsson pijónaði sig í
gegnum vöm KA
vinsta megin og gaf
háa sendingu á fjær-
stöng og þar var
Ríkharður mættur
og skallaði örugglega í netið áður
en varnarmenn KA og Haukur
markvörður höfðu áttað sig. Þetta
mark setti pressu á KA-menn og
var eins og þeir kæmust aldrei í
takt við leikinn eftir það. Fram átti
nokkrar snarpar sóknir fram að
hálfleik sem rötuðu ekki rétta leið.
í síðari hálfleik voru yfirburðir
Fram enn meiri en í þeim fyrri.
Þeir léku eins og meisturum sæmir
og réðu lögum og lofum á vellinum.
Það var þó ekki fyrr en um miðjan
hálfleikinn sem Fram gerði endan-
lega út um leikinn er þeir gerðu tvö
mörk með þriggja mínútna millibili.
Fyrra markið gerði Arnljótur eftir
frábæran undirbúning Kristjáns
Jónssonar. Guðmundur Steinsson
gerði það síðara er hann komst í
gegn eftir sendingu Péturs
Ormslev, lék á Hauk í markinu og
skrúfaði knöttinn aftur fyrir sig
með vinstri fæti efst í markhornið
fjær. Hann kórónaði síðan stórleik
sinn á síðustu mínútu leiksins er
bylmingsskot hans af 20 metra
færi hafnaði efst í bláhorninu
hægra megin.
Birkir Kristinsson sannaði það
áþreifanlega að hann er.besti mark-
vörður landsins. Hann varði víta-
spyrnu frá Kjartani Einarssyni um
miðjan síðari hálfleik og var þetta
annað skiptið í jafnmörgum leikjum
sem hann leikur þann leik. Víta-
spyrnan var dæmd á Kristinn R.
Jónsson er hann varði skot Erlings
Kristjánssonar með hendi á
marklínu. Spyrna Kjartans var föst,
en Birkir varði boltann sem hrökk
síðan út í teig og þar kom Bjarni
Jónsson aðvífandi og spyrnti aftur
að marki, en aftur var Birkir mætt-
ur til varnar. „Ég var ákveðinn í
því að bíða og láta hann [Kjartan]
gera fyrstu hreyfinguna. Það var
meiriháttar að verja því skotið var
fast og mun erfiðara en vítið sem
Þór fékk fyrir norðan," sagði Birk-
ir, markvörður.
Framarar geta borið höfuðið
hátt. Þeir léku sem ein heild, mikil
hreyfing var á leikmönnum og
maður hafði á tilfinningunni að
þeir væru fleiri en andstæðingarnir
á vellinum. Ef svo heldur áfram sem
horfir verða þeir að teljast meistara-
efni þessa árs.
Leikur íslandsmeistara KA í
fyrstu leikjum sumarsins hefur
valdið miklum vonbrigðum og verða
þeir að fara að hugsa sinn gang
ætli þeir sér að hanga í deildinni.
Leikmenn virka mjög þungir og
virðast ekki vera í nægilegri æfingu
og eru langt frá því að vera sann-
færandi.
„Draumaleikur<c
- sagði GuðmundurSteinsson, sem
lagði upp eitt mark og skoraði tvö
Guðmundur Steinsson, Fram,
er fyrsti leikmaðurinn til að
fá hæstu einkunn, eða 3M, í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins á
þessu Islandsmóti. Hann átti frá-
bæran leik, gerði tvö mörk, lagði
upp eitt og var mjög ógnandi.
„Þetta var algjör draumaleikur
fyrir mig. Mörkin voru ekki af
verri endanum. Fyrri markið var
skemmtilegra enda var ég í
þröngri stöðu. Síðara markið er
mér þó kærara fyrir þær sakir
að geta sýnt strákunum að ég get
líka gert mörk með langskotum.
Þeir voru að stríða mér með því
að ég hafi skorað þijú fyrstu
mörkin á tímabilinu af samtals
sex metra færi,“ sagði Guðmund-
ur.
„Það var mikil pressa á KA
fyrir þennan leik og þeir virkuðu
n\jög þungir. Eftir að við skorað-
um fyrsta markið var á brattan
að sækja hjá þeim og við gátum
leikið okkar bolta. Þetta hefur
verið ótrúieg byijun hjá okkur,
en við erum ekki orðnir meistarar
og það er erfiður leikur framund-
an gegn KR,“ sagði Guðmundur,
sem er markahæstur í 1. deild
með 5 mörk.
Morgunblaðið/RAX *
Staða leikmannanna á myndinni
er táknræn fyrir yfirburði Fram
gegn KA í gærkvöldi, en Framarar
sigruðu 4:0. Guðmundur Steinsson
svífur hér hátt yfir KA-markmann-
inn Hauk Bragason. Guðmundur
átti stórleik fyrir Fram, skoraði tvö
mörk og er fyrsti leikmaður sumars-
ins sem hlýtur 3M í einkunnagjöf
Morgunblaðins.
Arnljótur Davíðsson fagnar
marki Ríkharðs Daðasonar, en Am-
ljótur var einmitt á skotskónum síðar
í leiknum og skoraði annað mark
Fram.
Fj. leikja u i T Mörk Stig
FRAM 4 3 1 0 12: 0 10
KR 4 3 0 1 7: 4 9
ÍBV 4 3 0 1 5: 5 9
VALUR 4 2 1 1 5: 3 7
FH 4 2 0 2 7: 5 6
STJARNAN 4 2 0 2 6: 9 6
VÍKINGUR 4 1 2 1 6: 5 5
ÍA 4 1 1 2 4: 8 4
ÞÓR 4 0 1 3 1: 6 1
KA 4 O O 4 1: 9 O
ir nokkrum árum ásamt því að
leika með liðinu. Hann gekk síðan
til liðs við Vaismenn, en heí'ur
samningaviðræðum við leikmann
frá Ungveijalandi sem hefur leik-
ið með unglinga og A-landsliði
Ungveija.
ÉiHM-leikvikaill&íún liSÖOlÍÉ^ An Jjjl mm m
KORFUKNATTLEIKUR Leikur 1 Sovétríkin - Rúmenía
Hreinn þjálfar Leikur 2 Ítalía - Austurríki
Lelkur 3 Bandaríkin - Tékkóslóvakía
Leikur 4 Brasilía - Sviþjóð
Leikur 5 V-Þýskaland - Júgóslavía
Lelkur 6 Costa Rica - Skotland
wllffitftl Leikur 7 Enqland - írland
^^H H1A#H WHH Leikur 8 Belgía - S-Kórea
|Y| ýliðar Snæfells í úrvalsdeild- ekki leikið í úrvalsdeildinni undan- lli inni í körfuknattleik hafa farin tvö ár. Hreinn hefur 44 A- Leikur 9 Uruguay - Spánn
Leikur 10 Argentína - Sovétríkin
ráðið Hrein Þorkelsson sem þjálf- landsleiki að baki. ara fyrir næsta keppnistímabii. Hreinn, sem einnig mun leika með Snæfellingar eiga von á enn liðinu, er gamalreyndur í úrvals- frekari liðsstyrk, en þeir standa í Leikur11 Júgóslavía - Kólumbía
Leikur 12 Kamerún • Rúmenía
Leikur 13 Austurríki - Tékkóslóvakía
ekkibaaheppni
Lauaardaaur kl.14:55
Þú átt möguleika á 100 milljónum
- ef þú spilar með !