Morgunblaðið - 29.06.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
Staður fyrir nýtt álver;
Valið stendur um
Ejgaflörð, Reyðar-
fjörð og Keilisnes
VALIÐ um stað fyrir nýtt álver
stendur nú á milli Eyjafjarðar,
Keilisness á Vatnsleysuströnd og
Eyði ekki orku
í að greina frá
afstöðu minni
- segirSigrún
Magnúsdóttir borg-
arfúlltrúi
BORGARSTJÓRI hefur lagt
til að laun áheyrnarfúlltrúa í
borgarráði verði skert, að
sögn Sigrúnar Magnúsdóttur
borgarfulltrúa Framsóknar-
flokksins. Hafí borgarstjóri
jafnframt beint þeim tilmæl-
um til áheyrnarfúlltrúa
minnihlutans í borgarráði að
þeir kalli ekki til varamenn í
forföllum sínum. Sigrún
skýrði frá þessu þegar Morg-
unblaðið innti hana eftir af-
stöðu til beiðni Stöðvar tvö,
um að Reykjavíkurborg
ábyrgist 200 milljóna króna
lán til fyrirtækisins.
Sigrún kveðst ekki gefa upp
afstöðu sína til erindis sjön-
varpsstöðvarinnar fyrr en á
þriðjudag, þegar borgarráð
kemur saman og ber við gremju
vegna hugmynda borgarstjóra
um að vinnuframlag borgarfull-
trúa verði metið til lægri launa.
„Ég eyði því ekki orku minni í
að gefa upp afstöðu mína núna,
fjölmiðlar verða að bíða þar til
á þriðjudag til að komast að
henni eins og aðrir,“ sagði Sig-
ReyðarQarðar. Þetta var staðfest
í sérstakri bókun um framvindu
samninga um nýtt álver, sem und-
irrituð var í Reykjavík í gær í lok
þriggja daga samningafúndar
fulltrúa Atlantsálshópsins og
íslenskra stjórnvalda. Loka-
ákvörðun um staðsetningu á að
taka í september en stefht er að
því að ljúka samningum um nýtt
álver fyrir 20. september.
Jóhannes Nordal formaður ráð-
gjafamefndar iðnaðarráðuneytisins
um áliðju sagði við Morgunblaðið,
að í þessari samningalotu hefði ver-
ið farið yfir afar mikið efni. Þar
hefðu umhverfismál verið fyrirferð-
armikil, en einnig rætt um önnur
helstu atriði, svo sem staðsetningu,
skattamál, orkumál og lagalega
umgjörð. Jóhannes sagði að verulega
hefði miðað áfram og menh væru
ánægðir með það verk sem lokið
væri. Talsvert væri að vísu eftir en
þeim atriðum hefði fækkað.
Þegar Jóhannes var spurður hvort
niðurstöður þessa fundar þýddu að
af byggingu álversins yrði, sagði
hann svo ekki vera. Þetta hefði frek-
ar verið vinnufundur en að þar hefðu
verið tekin lokaskref. Hins vegar
hefði ekkert neikvætt komið fram í
umræðunum og málinu miðaði í
rétta átt, en lokaáfanginn yrði að
skera úr um niðurstöðuna þegar þar
að kæmi.
í samningaviðræðunum nú ræddu
fulltrúar álfyrirtækjanna þriggja í
Atlantsálshópnum við iðnaðarráð-
herra, umhverfisráðherra og ráð-
gjafarnefnd iðnaðarráðherra. Þá
tóku fulltrúar umhverfisráðuneytis,
Hollustuverndar ríkisins, Lands-
virkjunar og fjármálaráðuneytisins
þátt í viðræðunum.
.
V,
rwB <■!
I -ff
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikið lausum hala
Kýr Starra í Garði í Mývatnssveit röltir út í sumarið, en við fjósvegginn bíða hrífurnar eftir heyskapnum.
Eiturgasið í Nesjavallavirkjun:
Ekki alvarleg eftii’-
köst af eitruninni
Þarf að kanna hvort aðrar lofttegundir voru í rörinu
„ÞAÐ þarf að athuga hvaða loft-
tegundir aðrar en brennisteins-
vetni eru í rörum virkjunarinnar.
Mennirnir önduðu að sér miklu
magni af gasi í skamman tíma.
Þeir misstu mjög snögglega með-
vitund, en yfirleitt ber meira á
eitureinkennum í slímhúð," segir
Magni Jónsson læknir, en hann
Morgunblaðið/KGA
Víetnamska flóttafólkið kom með flugvél frá Kaupmannahöfn, eftir langt og strangt ferðalag frá Hong
Kong. Líklega þótti þessum ungu stúlkum umhverfið framandi.
Þrjátíu víetnamskir flótta-
menn komnir til landsins
ÞRJÁTÍU norður-víelnamskir flóttamenn, sem veitt hefur veriö hæli
á íslandi, komu til landsins í gær. Flóttamennirnir, sem eru átta fjöl-
skyldur, hafa dvalið í flóttamannabúðum í Hong Kong í allt að tvö ár.
í nótt svaf fólkið í gistiheimili í Grindavík og jafnaði sig eftir ferðina.
Á morgun fer hópurinn til Hafnarfjarðar og dvelur þar í viku áður
en fólkið flytur í íbúðir sem Rauði kross íslands hefúr útvegað því.
Koma flóttamannanna er skipu- eins víetnömsku og þarf því á túlk-
lögð af Rauða krossi íslands. Fyrir um að halda fyrst um sinn. í næstu
réttum ellefu árum kom hingað
hópur um 80 Víetnama og tóku
nokkrir þeirra á móti löndum sínum
við kom.una í gær. Fðlkið tálár áö-
viku verður byijað að veita því til-
sögn í íslenskri tungu og menn-
ingu. Þeirri kennslu verður haldið
áfraiti na-siu mánuði, meðan fólkið'
er að kynnast landi og þjóð.
Að sögn Hannesar Haukssonar,
framkvæmdastjóra Rauða kross ís-
lands, er fólkið ekki mikið mennt-
að. Flestir í hópnum hafa unnið við
fískverkun eða verkamannastörf.
Ekki hafa enn verið fundin störf
fyrir flóttamennina, enda ekki gert
ráð fyrir að þeir hefji vinnu fyrr
en þekking þeirra á tungumálinu
leyfir, að sögn Hannesar.
rannsakaði mennina fimm sem
fengu gaseitrun í Nesjavallavirkj-
un. Magni segir mennina hafa
sloppið mjög vel og á ekki von á
að alvarleg eftirköst hljótist af
eitruninni. Einn mannanna lá hins
vegar á gjörgæsludeild í gær
vegna brots í mjaðmagrind og
hugsanlegrar eiturverkunar í
lunga. Egill Jónsson staðarverk-
fræðingur við Nesjavallavirkjun
segir að mannleg mistök hafi
valdið óhappinu í fyrradag.
Um tíu menn voru við störf í véla-
sal Nesjavallavirkjunar þegar óhapp-
ið varð í fyrrakvöld. Eiturgufur
streymdu upp af gaslögn í salnum
þegar starfsmenn verktaka voru að
skipta um lok á henni. Um var að
ræða brennisteinsvetni sem kemur
úr borholum með jarðgufum. Það
er þynnt með lofti og því blásið um
stromp virkjunarinnar út í andrúms-
loftið. Brennisteinsvetni verður ekki
hættulegt fyrr en hlutfall þess í
andrúmsloftinu verður hærra en 10
hlutar af milljón.
„Þetta er fyrsta alvarlega vinnu-
slysið á virkjunartímanum," segir
Egill. „Það er ekki hægt að koma
algerlega í veg fyrir slysahættu á
svona stað, en hér gilda reglur eins
og að menn megi ekki vinna einir
að tilteknum verkum. Við erum að
athuga núna hvernig auka megi ör-
yggið.“
Fljótfærni varð til þess að eit-
urgasið komst út í vélasalinn, að
sögn Egils. Hann segir alveg ljóst
að það verði að tæma gasleiðslur
áður en skipt er um lok á þeim, það
hafi ekki verið gert. Þá hafi mis-
brestur verið á því að maður frá
virkjuninni fylgdist með þessari
vinnu.
Ingólfur Níels Árnason, einn
þeirra sem urðu fyrir eitrun af
brennisteinsvetninu, segist oft hafa
skipt um lok áður í virkjuninni með
félögum sínum. Þeir hafi ekki fengið
fyrirmæli um að tæma rörin fyrst.
Engilbert Þórðarson rafvirki
missti meðvitund þegar gasið steig
upp af rörinu í vélasalnum og féll
niður á álgólf af um 8 metra háum
palli. Hann brotnaði á mjaðmagrind
og hlaut áverka eða eiturverkun í
öðru lunga. Ingólfur Níels Árnason,
sem komst fyrstur að Engilbert,
missti einnig meðvitund og voru
þeir báðir fluttir á Borgarspítalann.
- Ingólfur-fékk -að- -fara heim -I- -gær.-
Þrír menn aðrir fengu gaseitrun,
urðu mjög slappir og kvörtuðu um
höfuðverk og almenna vanlíðan.
Þeir jöfnuðu sig fljótt eftir að kom-
ast út í ferskt loft. Mennimir fara
allir í læknisskoðun vegna slyssins
eftir hálfan mánuð.
Skipasmíða-
stöð Þorgeirs
og Ellerts
fær greiðslu-
stöðvun
SKIPASMÍÐASTÖÐ Þorgeirs og
Ellerts á Akranesi hefur fengið
greiðslustöðvun í þijá mánuði.
Iljá fyrirtækinu starfa milli 120
og 130 manns, en það er eitt af
stærri atvinnuveitendum á staðn-
um. „Þessir erfiðleikar eru miklir
og verður að leysa og til þess að
hafa einhvern frið var greiðslu-
stöðvun fengin. Það á að gera það
sem hægt er til að endurskipu-
le&83a fjármálin,“ sagði Jósef Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri
skipasmíðastöðvarinnar, í gær í
samtali við Morgunblaðið.
Hann sagði að verið væri að taka
saman skuldir fyrirtækisins og vildi
ekki segja til um hve miklar þær
væru, en um tugi milljóna króna
væri að ræða. Fyrirtækið hefði orð- 1
ið fyrir ýmsum áföllum í vetur. Þar
mætti nefna að verulegar upphæðir
hefðu tapast á smíði flóabátsins
Baldurs, auk þess sem mikið fé
væri bundið í skipi sem reynst hefði
nauðsynlegt að leysa til fyrirtækis-
ins á nauðungaruppboði vegna mik- ,
illa skulda. í þriðja lagi hefðu mikl-
ar fjárhæðir tapast vegna gjald- !
þrota undanfarið. Til dæmis hefði j
gjaldþrot Lindalax sennilega kostað
fyrirtækið 6-8 milljónir.
Jósef sagði að nú væri verið að
ljúka við endurbætur á hafrann-
sóknaskipinu Árna Friðrikssyni hjá
skipasmíðastöðinni og ýmsir mögu-
leikar væru varðandi önnur verk- ;
- efni.-----------