Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 19
einstaklinga og reynt með þeim
hætti að ýta undir og styðja þann
áhuga á skógrækt sem ánægjulegt
er að sjá vaxa ár frá ári.
Deilan á Mógilsá snýst því ekki
um það, hvort hér skuli stundaðar
rannsóknir í skógrækt eða ekki, eins
og sumir hafa gengið svo langt að
halda fram. Það er ekki undirrót
þessara atburða að sumir vilji fagleg
vinnubrögð í skógrækt en aðrir ekki.
Hún snýst ekki um það hvort menn
vilji eða vilji ekki læra af reynsl-
unni. Þessi deila hefur heldur ekki
snúist um það eins og reynt hefur
verið að láta líta út, hvort tjáningar-
frelsi eigi að ríkja í landinu eða
ekki. Hún hefur því miður ekki ver-
ið fagleg deila nema þá að mjög iitlu
leyti að slíkt hafi blandast saman
við í lokin.
Ég sagði í upphafi að ég sæi mig
því rniður tilknúinn að gera svofellda
grein fyrir málum sem ég hef nú
gert. Dapurlegt er að sjá að mörgu
leyti ágætt og metnaðarfullt starf
sem unnið hefur verið af starfsfólki
Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá á
sínu fagsviði skaðast vegna þessara
deilna og starfsfólkið sjálft verða
leiksoppar í þessu máli.
Með þessari greinargerð er það
ásetningur minn og von að ég geti
látið lokið umfjöllun um þetta mál
á opinberum vettvangi. Innan
skamms verða gefnar út nýjar regl-
ur um starfsemi Rannsóknastöðvar
Skógræktar ríkisins á Mógilsá og
þar auglýst eftir nýjum forstöðu-
manni. Ég hef ástæðu til að vera
bjartsýnn um að þar fáist hæfir
menn til starfa og það er eindreginn
ásetningur minn, eins og áður sagði,
að þar verði áfram rekið öflugt
rannsóknastarf í skógrækt. A kom-
andi árum þarf að tengja það starf
náið við hið almenna skógræktar-
starf stofnana, félagasamtaka og
almennings í landinu, en einnig við
vísindastarf og rannsóknir við Há-
skóla íslands og í gegnum sam-
vinnuverkefni við ýmsar aðrar
stofnanir, eins og Landgræðslu
ríkisins, Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, Náttúrufræðistofnun
og jafnvel fleiri aðila. Þau ráð kann
ég nú best öllum mönnum þessu
máli viðkomandi að þeir hafi skyn-
semina að leiðarljósi, beiti fyrir sig
rökunum en leggi frá sér vopnin.
__________Brids____________
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids 1990
Fótboltinn setti mark sitt á spila-
mennsku í sumarbrids þriðjudaginn
26. júní og mættu 32 pör til leiks,
en þau spiluðu í tveimur 16 para
riðlum. Keppni var jöfn og spenn-
andi ír iðlunum og þá sérstaklega
í B-riðli, þar sem fá stig skildu að
efstu sæti. Meðalskor í riðlunum
var 210, en hæstu skor í A-riðli
hlutu:
Murat Serdar —
Ragnar Jónsson 262
Þráinn Sigurðsson -
Vilhjálmur Sigurðsson 251
Hrund Einarsdóttir —
Dröfn Guðmundsdóttir 240
Guðjón Jónsson —
Sveinn Sigurgeirsson 237
Sigrún Pétursdóttir —
Gunnþórunn Erlingsdóttir 228
Bræðurnir Þráinn og Vilhjálmur
þurftu að bíta í það súra epli að
vera í öðru sæti þriðja sinnið í röð
í sumarbrids. Hæstu skor í B-riðli
hlutu:
Hrefna Eyjóifsdóttir —
Sæmundur Björnsson 248
Halla Ólafsdóttir —
Sæbjörg Jónasdóttir 247
Rúnar Lárusson -
Magnús Sverrisson 242
Helgi Sigurðsson -
Helgi Jónsson 238
Dúa Olafsdóttir —
Véný Viðarsdóttir 234
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JUNI 1990
19
Myndlistarsýning í Djúpinu
SIGRÍÐUR Ólafsdóttir opnar
sína fyrstu einkasýningu í Djúp-
inu í Hafnarstræti laugardaginn
30. júní kl. 16.00.
Sigríður fæddist 1965 í
Reykjavík og útskrifaðist úr Fjöl-
tæknideild Myndlista- og handíða- ■
skóla íslands vorið 1989.
Á sýningunni eru myndir unnar
með blandaðri tækni úr ýmsum
efnum. Sýningin stendur til 19.
júlí og er opin á opnunartíma veit-
ingastaðarins Hornsins.
Sigríður Ólafsdóttir.
Leiðbeinendanámskeið
í skyndihjálp
verður haldið dagana 21 til 29. september nk.
Námskeiðið er ætlað fólki úr heilbrigðisstétt-
um, sjúkraflutningamönnum og félögum í
hjálpar- og björgunarsveitum. Námskeiðinu
lýkur með prófi og öðlast þátttakendur þá
réttindi til að kenna almenningi skyndihjálp.
Umsóknarfrestur rennur út 20. júlí.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu RKI í síma 91-26722.
Rauði Kross Islands
Áskriftareiningar - Lífeyriseiningar
Þeir búa vel
sem fylgja
fastri reglu
Smágerðir vinir okkar
flétta sér og sínum
trausta hreiðurkörl'u
með þolinmæði og elju
og einu strái í nefi í hverri ferð.
Með Áskriftareiningum Kaupþings
getur þú einnig smám saman
byggt upp trausta umgjörð um
fr^mtíð þína og þinna nánustu.
Aðferðin er einföld og fyrirhafnar-
/lítil. Þú gerir samning við Kaup-
þing um að leggja fyrir mánaðar-
lega tiltékna l'járhæð sem ræðst
að öllu leyti af efnum þínum og
aðstæðum. Fé, sem þú sparar
þannig, er varið til kaupa á
Einingabréfum 1, 2 eða 3. Kaup-
þing býður þér örugga hámarks-
ávöxtun og þú eignast smám sam-
an þinn eigin sjóð, aflar þér fjár til
framkvæmda eða lcggur grunn að
fjárhagslegu öryggi á efri árum.
Jafnhliða sparnaðinum gei’st þér
kostur á tryggingum sem greiða
umsaminn reglubundinn sparnað
þegar veikindi eða slys draga úr
möguleikum til tekjuöflunar um
lengri eða skemmri tíma.
Kynntu þér Áskriftar- og Lífeyris-
einingar Kaupþings og búðu þér og
þínum örugga framtíð.
KAUPÞING HF
Löggi/r verbbréfafyiirtœki
Krirtg/unni 5, 103 Reykjavtk
Sími 91-689080