Morgunblaðið - 29.06.1990, Page 29

Morgunblaðið - 29.06.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JUNI 1990 Of dýrt að hringja í sím- svara Veðurstofimnar eftir Markús A. Einarsson Snemma í þessum mánuði fjallaði Víkvetji Morgunblaðsins nokkuð um símsvara, þar á meðal símsvara Veð- urstofu íslands, og varaði hann við kostnaði við notkun þeirra. í lok svars við athugasemd í Velvakanda 17. júní sl. vakti Páll Bergþórsson veður- stofustjóri einnig athygli á hinum nýja símsvara Veðurstofunnar og gerði þar heldur lítið úr því gjaldi sem tekið er fyrir 2 mínútna svar, sagði það tilsvara „hluta úr vínarbrauði". Þar sem sá er þetta ritar vann að undirbúningi þess að hið nýja, fjöl- breytilega símsvarakerfi yrði að veru- leika tel ég mér skylt að skýra frá aðdraganda málsins. Úr fyrirsögn greinarinnar má lesa að ég tel of hátt gjald tekið fyrir þessa þjónustu, enda er það bæði í ósamræmi við upphaflega óskir Veðurstofunnar og jákvæðar undirtektir Pósts og síma. Vil ég þegar í upphafi vekja at- hygli lesenda á auglýsingu á bls. 2 í símaskrá ’90, en þar eru upplýsing- ar um veður kynntar. Þar kemur m.a. fram að verð fyrir þessa þjón- ustu sé samkvæmt gjaldflokki 3. Á bls. 30 í símaskránni má svo sjá að þarna er um hæsta gjaldflokk að ræða. Hér skal í stuttu máli skýrt frá ástæðu þessa og því hversu einf- alt er að leiðrétta það. Aðdragandi Upphaflegar óskir Veðurstofu Is- lands um símsvara fyrir alla lands- menn voru settar fram í bréfi Hlyns Sigtryggssonar veðurstofustjóra til Póst- og símamálastofnunar. Var þar m.a. farið fram á: „að notandi gæti heyrt spá fyrir sinn landshluta án þess að greiða fyrir það langlínu- gjald. „Markmiðið var því að hafa gjaldið sem lægst Póst- og símamálastofnun bauðst í framhaldi af þessu til að setja upp símsvara á fjórum stöðum úti á landi. í því boði fólst m.a. að Póst- og síma- málastofnunin setti upp símsvarana á sinn kostnað, en að Veðurstofa ís- lands mataði þá með veðurupplýsing- um Pósti og síma að kostnaðarlausu á sama hátt og gilt hafði fyrir notkun símsvara nr. 17000 í Reykjavík. Til sögunnar komu síðan ný tæki sem fólu í sér að hringja mætti í sömu númer hvaðanæva af landinu. Breytti það í engu þeirri forsendu að Póstur og sími setti upp tækin á sinn kostnað og sæi um þau að öllu leyti. Einnig féllst sú stofnun á gjaldskrá fyrir þessa símsvara sem að mínu mati var hagstæð. Breytt viðhorf Hinn 5. apríl 1990 voru hin nýju tæki tekin í notkun og frétti ég skömmu síðar hjá Pósti og síma hvert gjaldið væri. Reyndist það vera hæsti gjaldflokkur eins og þegar hefur komið fram. Var það ákvörðun núver- andi veðurstofustjóra, sjálfsagt með samþykki samgönguráðuneytis, að Veðurstofan tæki í fyrsta skipti greiðslu fyrir dreifingu veðurupp- lýsinga til almennings. í viðbót við það gjald sem Póstur og sími hafði þegar fallist á varð niðurstaðan sú, að Veðurstofan skyldi fá annað hvert skref greitt að undanskildu grunn- skrefi. Hækkaði gjaldið sem því nem- ur og kem ég að því síðar. Viðbrögð mín sem yfirmanns veð- urspádeildar sem sér um þá þjónustu sem hér er til umfjöllunar voru þau, að ég ritaði veðurstofustjóra bréf. Þar vakti ég á því athygli að hið nýja kerfi símsvara leiddi ekki til aukakostnaðar fyrir veðurspádeild, væri kostnaði við auglýsingar daginn sem símsvarinn var tekinn í notkun sleppt. Starfandi eftirlitsmenn á deildinni -sjá um innlestur og allt það efni sem lesa þarf er fyrir hendi, enda um almenna veðurþjónustu að ræða. Vitaskuld eykst sá tími sem fer í lestur, en sá tími er fyrir hendi og verkið unnið af áhuga, ekki síst vegna þeirrar trúar að hinir nýju símsvarar muni draga úr öðru símaá- lagi. Ég lagði til að áður óþekktur aukaskattur sem veðurstofustjóri ákvarðaði þvert á þau markmið sem stefnt hafði verið að félli niður. Markús Á. Einarsson „Það verður að mínu mati að teljast alvarlegt mál að skattleggja þegjandi og hljóðalaust dreifíngu veðurupplýs- inga til almennings, en þá dreifingu skal Veð- urstofa Islands annast lögum samkvæmt.“ Lítum nú aðeins á verðið. Hvert er gjaldið? Endurtekið skal að um hæsta gjaldflokk er að ræða. Hér skulum við miða við að leitað sé upplýsinga í símsvara 990600 og hlustað á upp- lýsingar þar í 2 mínútur. Á virkum degi þarf að greiða kr. 17,94 fyrir þetta. Væri hinu óvænta gjaldi til Veðurstofunnar sleppt yrði verðið kr.10,46. Hinn nýi skattur hækkar verðið um 71,5%, hvorki meira né minna. Á virku kvöldi kosta 2 mínútur nú 12,94, en myndu ella kosta 7,95. Verðið er 63% hærra en til stóð. Um nætur og helgar kosta 2 mínútur kr. 10,46, en var ætlað að kosta kr. 6,72. Hækkun 55,7%. Svo sem þarna má sjá er um veru- legan mun að ræða sem svarar til talsverðs fjölda vínarbrauða fyrir þá sem veðri eru háðir og þurfa oft að nota þessi tæki. Hér að framan var miðað við hundraðshluta af gjaldinu eins og til stóð að það yrði. Sennilegt er að þeir sem veija vilja þetta gjald óski frekar að miða við lægri hundr- aðshluta, þ.e. lækkun frá núgildandi verði, en jafnvel á þann hátt verða tölur áfram háar. Niðurfelling auka- skatts til Veðurstofu myndi leiða til 35-42% lækkunar frá því gjaldi sem nú er. Það verður að mínu mati að teljast alvarlegt mál að skattleggja þegjandi og hljóðalaust dreifingu veðurupplýs- inga til almennings, en þá dreifmgu skal Veðurstofa íslands annast lögum samkvæmt. Það verður að auki að teljast und- arlegt að Veðurstofan ætli sér sérs- takt gjald af þeim sem leita sér upp- lýsinga í símsvara, en ekki af hinum sem hringja beint á veðurspádeild og fá sömu svör ef ekki ítarlegri. Þjón- usta símsvara á bæði að vera almenn- ingi í hag og starfsliði veðurspádeild- ar sem mjög þarf á því að halda að símaálag léttist. Vonandi draga símsvaranir ekki úr veðurþjónustu á rás 1 Þeim hugmyndum hefur verið varpað fram, hvort ekki sé tímabært að fella niður lestur veðurlýsinga í veðurfregnum á rás 1 kl. 10.10 og 18.45 frá einstökum veðurstöðvum og skipum sem senda veðurskeyti. í staðinn verði sá lestur í símsvara Veðurstofunnar. Það væri vissulega áhyggjuefni ef nota ætti hið nýja kerfi símsvara Veðurstofunnar til að draga úr þeirri þjónustu sem hlustendur rásar 1 njóta og sem Ríkisútvarpinu ber reyndar skylda til að sinna. Satt best að segja hef ég fram til þessa aðeins heyrt tillögur um styttingu veðurfregna með þessum hætti frá sumum þeirra sem skipulögðu dagskrá útvarpsins og þótti veðurfregnir trufla niðurröð- un dagskrár. Forráðamenn Ríkisút- varpsins hafa hins vegar ætíð gert sér grein fyrir skyldum stofnunarinn- ar í þessu efni. Þeir eru vissulega margir sem telja lestur veðurfregna of langan. Nú er staða fjölmiðla hins vegar sú að hlust- endur eiga marga kosti að velja. Ef til vill er sá hópur manna ekki stór sem hlusta þarf á veðurfregnir í smáatriðum, en að fenginni reynslu . tel ég, að þeir sem hiusta á veður- lýsingu auk veðurspár séu einmitt sá hluti landsmanna sem háðastir eru veðri og þurfa á allri þessari öryggisþjónustu að halda. Ég leyfi mér því að vænta þess að hvorki vegna dagskrár, né þeirrar trúar að nýr símsvari komi í staðinn fyrir allt annað, verði ákveðið að draga úr nauðsynlegum, en stundum löngum veðurlýsingum í veðurfregnum rásar 1 í Ríkisútvarpinu. llöfundur er deildarstjóri Veðurspádeildar Veðurstofu íslands. paKstai meo sni Pianrýa þakstál Aðrir helstu sölu-og þjónustuaðilar: Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733. Blikkrás hf, Akureyri, sími 96-26524. Vélaverkstæði Bjöms og Kristjáns, Fteyðarfirðl, sími 97-41271. Vélaverkstæðið Þór, Vestmannaeyjum, simi 98-12111 Hjá okkur færðu allar nýjustu gerðir hins virtsæla frá Plannja. Utval lita og mynstra„m.a. Plannja þakstál með mattri litaáferð, svartri eða tígulrauðri. ÍSVÖR hf. Smiöjuveg 4e, 200 Kópavogur. Póstbox: 435.202 Kópavogur. S: 31 -$7 04 55. Fax; 67 04 67 ■ HÁR og forðun heitir ný hár- greiðslu- og förðunarstofa sem hef- ur verið opnuð í Faxafeni 9. Þar er boðið upp á alla almenna þjón- ustu í hársnyrtingu og förðun. Eig- andi stofunnar er Mjöll Daníels- dóttir hárgreiðslumeistari. Aðrir starfsmenn stofunnar eru Jónheið- ur Steindórsdóttir hárgreiðslu- meistari, Rósella G. Mosty nenii og Gerða Th. Pálsdóttir förðunar- fræðingur. ■ EVRÓPUFERÐIR verða nw* ferðakynningu í Miklagarði vestíkr í bæ (Við Hringbraut) f dag, föstu- dag, kl. 14.00-19.30. Alhliða kynn- ing verður á helstu áfangastöðum ferðaskrifstofunnar með sérstaka áherslu á Portúgal og Madeira. Evrópuferðir er með daglega brottför allt árið til áfangastaða um allan heim. AÍIKUG4RDUR ALLAfí BÚÐIR KAUPSTAÐUR ÍMJÓDD 2.HÆÐ HVÍTA HÚSID / SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.