Morgunblaðið - 29.06.1990, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1990
„Græn símanúmer“ í tveimur ráðuneytum
PÓSTUR OG SÍMI býður nú upp
á svokölluð Græn númer fyrir
lÆvglínusímtöl. Þegar hringt er í
grænt númer greiðir sá sem hring-
ir aðeins gjald samkvæmt staðar-
taxta en viðtakandinn greiðir fyrir
símtalið meðallanglínugjald. Þeg-
ar hafa verið tekin í notkun Græn
símanúmer í samgöngumálaráðu-
neytinu og landbúnaðarráðuneyt-
inu. Græna númerið í samgöngu-
ráðuneytinu er 996900 og í land-
búnaðarráðuneytinu 996800.
í frétt frá Pósti og síma kemur
fram að Græn númer henti vel fyrir
stjórnsýslustofnanir vegna þess að
með þeim sé fólki á landsbyggðinni
gert kleift að hringja þangað án þess
að greiða meira fyrir símatalið held-
ur en ef stofnunin væri í viðkomandi
bæjarfélagi. Þeir sem bjóði viðskipta-
vinum sínum að hringja í Græn núm-
er tryggi þannig að þeir sitji allir við
sama borð, óháð búsetu og þurfi
ekki að greiða mismikið fyrir upplýs-
ingar eða þjónustu viðkomandi aðila.
Tekið er fram að þó búast megi við
að notendur grænu númeranna verði
einkum af landsbyggðinni en hand-
hafar þeirra, fyrirtæki og stofnanir
á höfuðborgarsvæðinu þá gagnist
þessi þjónusta einnig fyrirtækjum
út á landi sem vilja auðvelda við-
skiptavinum í Reykjavík að hafa
samband við sig.
Á kynningarfundi á þriðjudag kom
fram að Græn númer hafa notið
mikilla vinsælda erlendis og mörg
stórfyrirtækl hafa séð sér hag í að
bjóða viðskiptavinum sínum í öðrum
löndum að hringja í Græn fyrirtækja-
númer og spara þannig símakostnað.
Sem dæmi um kostnað má geta þess
að ef hringt utan að landi í Grænt
númer í Reykjavík og talað í sex
mínútur greiðir sá sem hringir 6
krónur fyrir símatalið én handhafi
Græna númersins greiðir 31.20 krón-
ur. Ef hringt er að kvöldlagi greiðir
símhringjandi 4.20 krónur en sá sem
hringt er í 21.60 krónur. Að nætur-
lagi greiðir símhringjandi 4.20 en sá
sem svarar 16.80 krónur.
Á fundinum sagðist Steingrímur
J. Sigfússon, samgöngu- og landbún-
aðarráðhera, líta svo á að Grænu
númerinn væru hluti að þróun í þá
átt að gera landið að einu gjald-
svæði. Olafur Tómasson, póst- og
símamálastjóri tók undir þetta en
benti á að sú þróun gæti tekið lang-
an tíma. í máli Ólafs kom fram að
símakostnaður hefur lækkað töluvert
á undanförnum áram. Sex mínútna
símatal á dagtaxta í gjaldflokki 3.1
kostaði t.d. 41.85 krónur árið 1984
en kostar nú 38.40 krónur. Þrátt'
fyrir þessa verðlækkun skilaði Póstur
og sími ríkissjóði 500 miljónum á
þessu ári en í fyrra skilað fyrirtækið
250 miljónum í ríkiskassann.
Gömlu númerin verða enn í gildi
fyrir þá sem hringja innanbæjar.
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðing vantar í 50% starf frá og
með 1. ágúst nk.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
688550.
HEILSUGÆSLAN ÁLFTAMÝRI
ALFTAMYRI 5 . 108 Rl YKJAVIK . S 688550
Vélamenn
- bílstjórar
- dekkjamaður
Hagvirki hf. óskar eftir vönum mönnum á
eftirtalin tæki: Jarðýtur, beltagröfur og vöru-
bíla. Einnig vantar mann vanan dekkjavið-
gerðum á dekkjaverkstæði fyrirtækisins.
Upplýsingar gefur Birgir Pálsson í síma
53999.
g g HAGVIRKI HF
§ SÍMI 53999
Umbpðsmaður
- Ólafsvík
Óskum eftir umboðsmanni til að sjá um dreif-
ingu blaðsins í Ólafsvík. Einnig kæmi til
greina að blaðberi sæi um starfið.
Upplýsingar í síma 691201 frá kl. 9.00-17.00
virka daga.
fRwgpmttbifeifr
Kennarar
Enskukennara vantar að Heppuskóla
(7.-9. bekkur) Höfn í Hornafirði.
Frekari upplýsingar veita skólastjóri í síma
97-81321 eða bæjarskrifstofurí síma
97-81222.
Skólanefnd.
Rafeindavirkjar
Viljum ráða rafeindavirkja á radíóverkstæði
okkar. Góð vinnuaðstaða og fjölbreytt vinna.
Verksviðið er aðallega viðgerðir á sjónvarps-
tækjum og hljómtækjum, einnig viðhald og
viðgerðir Ijósritunarvéla, símkerfa o.fl.
Greiddur verður flutningskostnaður búslóðar
og aðstoðað við útvegun húsnæðis, ef þörf
er á.
Upplýsingar gefa Guðjón Bjarnason radíó-
deild, heimasími 94-3703 og Óskar Eggerts-
son, framkvæmdastjóri.
Póllinn hf.,
Aðalstræti 9-11, ísafirði,
sími 94-3092.
m liúrpml jp, Á ■■ ilnoto
Metsölublad á hverjum degi!
RAÐ/A UGL YSINGAR
HÚSNÆÐIÓSKAST
íbúð óskast
Rólegur, reglusamur eldri maður óskar eftir
& 2ja-3ja herbergja íbúð til leigu, helst nálægt
miðbænum. Reglulegar og öruggar greiðslur.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Smáíbúð - 9157“.
TILKYNNINGAR
Skattskrá Norðurlands-
umdæmis vestra 1989
Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981
' * verða skattskrár í Norðurlandsumdæmi
vestra ásamt launaskattskrám fyrir gjaldárið
1989 lagðar fram til sýnis dagana 29. júní
til og með 12. júlí nk.
Skattskrárnar liggja frammi á eftirtöldum
stöðum í umdæminu:
Á skattstofunni Siglufirði.
Á bæjarskrifstofunni Sauðárkróki.
í öðrum sveitarfélögum í umdæminu, hjá
umboðsmönnum skattstjóra.
Á sömu stöðum og tíma liggja frammi til
sýnis sölugjaldskrár fyrir árið 1988 samkv.
' * 27. gr. laga nr. 10/1960 um söluskatt, sbr.
6. gr. laga nr. 33/1982.
Athygli er vakin á því, að enginn kæruréttur
myndast við framlagningu skattskránna.
Siglufirði, 25. júní 1989.
Skattstjórinn
í Norðurlandsumdæmi vestra,
* Bogi Sigurbjörnsson.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni leigul. vestan Isólfsskála, Stokks-
eyri, þingl. eigandi Hraðfrystihús Stokkseyrar hf., fer fram á eigninni
sjálfri, föstudaginn 6. júlí 1990 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru Hróbjartur Jónatansson hdl., Bergur Guðna-
son hdl., Gestur Jónsson hrl., Jón Kr. Sólnes hrl. og Ásgeir Thorodd-
sen hrl.
Sýslumaðurinn i Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Grænumörk 1c, Hveragerði, þingl.
eigandi þrotabú Skemmtigarðsins hf., fer fram á eigninni sjálfri, föstu-
daginn 6. júli 1990 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru Skúli Bjarnason hdl., Gunnar Jónsson hdl.,
Brynjólfur Kjartansson hrl. og Ævar Guðmundsson hdl.
Sýslumaðurinn í Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á fasteigninni Vatnsholti I, Vill., þingl. eigandi Kristján
Einarsson, fer fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 6. júlí 1990 kl. 10.00.
Uppþoðsbeiðendur eru Jón Þóroddsson hdl., Guðmundur Kristjáns-
son hdl., Reynir Karlsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hrl., Jakob J.
Havsteen hdl., Búnaðarbanki Islands, innheimtudeild, Stofnlánadeild
landbúnaðarins og Óskar Magnússon hdl.
Sýslumaðurinn i Árnessýslu.
Bæjarfógetinn á Selfossi.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
I H l. A (i S S T A R F
Hvolsvöllur
Sjálfstæðisfólk í austanverðri Rangárvalla-
sýslu.
Framhaldsstofnfundur sjálfstæðisfélagsins
verður í Hvolnum þriðjudaginn 3. júlí kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Nafn félagsins.
2. Kosning í fulltrúaráð.
3. Stjórnmálaumræður. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson.
Qútivist
GRÓFINNI l • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVARI14606
Hellaferð íFlóka
laugard. 30/6 kl. 13.00. Það
leynast margir skemmtilegir
hellará Reykjanessvæðinu. Flóki
í Dauðadölum er einn þeirra. I
hellinum gefur m.a. að líta mjög
fallegar hraunmyndanir. Hella-
rannsóknamenn verða með í för.
Komið með hanska og Ijós.
Verð kr. 800,-
Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Helgarferðir 29. - 1. júlf:
1. Þórsmörk - gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal.
Léttar gönguferðir um Mörkina.
( Skagfjörðsskála eru öll nauö-
synleg þægindi. Ódýr sumarleyf-
isdvöl.
2. Breiðafjarðareyjar.
(Brottför kl. 19.00).
Gist í Stykkishólmi (svefnpoka-
pláss). Siglt um Suðureyjar á
laugardag (bergmyndanir og
fuglabjörg skoðuð). Gengið á
land í Öxney. Gengið um Purkey
og dvalið fram eftir degi. Á
sunnudag verður siglt til Flateyjar.
3. Hítardalur - Tröllakirkja -
Gullborgarhellar.
Gist í tjöldum í Hítardal. Sérstök
náttúrufegurð og áhugavert
umhverfi í Hítardal.
Brottför í ferðir 1 og 3 er kl.
20.00 frá Umferðarmiðstööinni,
austanmegin. Farmiðar og upp-
lýsingar á skrifstofunní, Öldu-
götu 3.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Laugardaginn 30. júní
Kl. 8.00 - Hekla
Gengið frá Skjólkvíum. Gangan
tekur um 8 klst. Nauðsynlegt er
að vera í þægilegum skóm og
hlýjum fatnaði. Munið nesti.
Verð kr. 1.800,-
Sunnudagurinn l.júlí:
Kl. 8.00 - Þórsmörk, dagsferð
(verð kr. 2.000,-).
Stoppað um 3'h klst. og fariö i
gönguferð. Athugið ódýrt sum-
arleyfi í Þórsmörk. Þægileg gisti-
aðstaða - fagurt umhverfi.
Kl. 13.00. Afmælisgangan
7. ferð: Gjábakki - Laugar-
vatnsvellir.
í tólf áföngum verður gengið til
Hvítárness og er sá síðasti
genginn 22. sept. Léttar göngu-
ferðir - verið með í göngu til
Hvítárness i tilefni 60 ára afmæl-
is sæluhússins. Verð kr. 1.000,-
Brottför ef frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin. Farmið-
ar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd
fulltyðinna.
Ferðafélag íslands.