Morgunblaðið - 17.07.1990, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JULI 1990
31
__ m æv 0)0) NS
BMHMI
SÍMI 78900 - ÁLFABAKKA 8 - BREIÐHOLTI
BIODAGURINN!
í DAG 200 KR. TILBOÐ í ALLA SALI
NEMA EINN / FULLKOMINN HUGUR.
FRUMSYNIR TOPPMYNDINA:
FULLKOMINN HUGUR E
„TOTAL RECALL" MEÐ SCHWARZENEGGER ER
ÞEGAR ORÐIN VTNSÆLASTA SUMARMYNDDM í
BANDARÍKJUNUM ÞÓ SVO HÚN HAEI AÐEINS
VERIÐ SÝND ÞAR í NOKKRAR VIKUR. HÉR ER
VALINN MAÐUR í HVERJU RÚMI, ENDA ER
TOTAL RECALL" EIN BEST GERÐA TOPP-
SPENNUMYND SEM FRAMLEIDD HEFUR VFRIÐ.
„TOTAL RECALL" TOPPMYND EINS
OG ÞÆR GERAST BESTAR!
Aðalhl.. Araold Schwarzenegger, Sharon Stone,
Rachel Ticotin, Ronny Cox. Leikstj.: Paul Verhoeven.
Sýnd kl. 4.50,6.50, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
BIODAGURINN!
MIÐAVERÐ 200 KR.
AÐ DUGA EÐA DREPAST
A &
íiS. \ ■í’Jf
„HARD TO KILL" TOPPSPENNA í HÁMARKI!
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.10. — Bönnuð innan 16 ára.
STORKOSTLEG STULKA
IIICIIARI) CEIIE JLLIA ROBERTS J *
★ ★★ SV. MBL. — ★ ★ ★ SV.MBL.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9 og 11.10.
SIÐASTA FERÐIN
TANGOOG CASH
i siiTiim smiME im iisssll
Sýnd kl. 5,7,9,11.10
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
BIODAGURINN!
MIÐAVERÐ 200 KR.
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ í ALLA SALI KR. 300.
POPP OG KÓK Á TILBOÐSVERÐI
Frumsýnir gamanmyndina:
UNGLINGAGENGIN
★ ★ ★ AI Mbl. ★ ★ ★ AI Mbl.
Gamanmynd meö nýju sniði, sem náö hefur miklum vin-
sældum véstan hafs. Leikstjórinn, John Waters; er þekktur
fyrir að fara ótroðnar slóðir í kvikmyndagerð og leikara-
vali. Aðalstjarnan í þessari mynd er Johnny Depp, sem
kosinn var „1990 MALE STAR OF TOMORROW" af bíó-
eigendum í USA. Myndin á að gerast 1954 og er um bar-
áttu unglinga, „betri borgara" og þeirra „fátækari". Þá er
Rock'n Rollið ekki af verri endanum.
Aðalhl.: Johnny Depp, Amy Lorane og Susan Tyrell.
Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11.
ALLTAF
bMMIMiBHm
LOSTI
„SEAOFLOVE"
Al Pacino fékk nærri taugaá-,
fall við töku á helstu ástar-
senum þessarar frábæru
myndar.
Endurs. kl. 5, 7, 9 og 11.
Rallakstur:
Feðgamir aftur
á sigurbraut
FEÐGARNIR Rúnar Jónsson og Jón Ragnarsson á Ford
Escort RS unnu rallkeppnina, sem fram fór um helgina
og lá um Kjalveg frá Reykjavík til Akureyrar. Er þetta
fyrsti sigur þeirra á árinu, en þeir eru margfaldir íslands-
meistarar í rallakstri en hafa ekki haft erindi sem erfiði
í baráttunni um efsta sætið til þessa.
Ásgeir Sigurðsson og árangurinn, tókum fljótlega
Bragi Guðmundsson á fjór-
hjóladrifnum Metro 6R4
tóku forystu í byijun, en
þeir hafa unnið tvö fyrstu
mót ársins. Voru þeir komnir
með gott forskot, þegar
tímareim vélarinnar slitnaði
á lokasprettinum og hefti
frekari framför. Tóku Rúnar
og Jón þá forystu, en á Norð-
urlandi var meðal annars
ekin sérleið á götum Akur-
eyrar. „Það var geysilega
gaman að þeysa á götunum,
en slíkt er algengt í rallmót-
um erlendis, þar sem heilu
röllin eru skipulögð á mal-
biki,“ sagði Jón Ragnarsson
í samtali við Morgunblaðið.
„Við érum ánægðir með
þá ákvörðun að keyra bara
upp á annað sætið, því
Metro-bíllinn er yfirburðabíll
þessa dagana," sagði Jón.
„Við áttum í nokkrum vand-
ræðum þar sem talkerfi
bílsins var í ólagi og stundum
gekk erfiðlega að leiðbeina
Rúnari sökum þess. Við vor-
um þó farnir að nota hálf-
gert fingramál til að skilja
hvor annan á köflum á fullri
ferð. Festan í akstri skilaði
sér svo í lokin þegar Metro
bíllinn bilaði. Það var tals-
verður hraði í keppninni og
það kom mér á óvart hve
hraður Kjölur er, vegurinn
er orðinn miklu betri en áður
fyrr,“ sagði Jón.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Langþráður sigur feðganna Rúnars Jónssonar og Jóns
Ragnarssonar leit dagsins ljós í Bónus-railkeppninni.
Þeir unnu mótið á Ford Escort RS.
REGNBOGINN
CgQ
CS3
19000
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ 200 KR. Á ALLAR MYNDIR NEMA
NUNNUR Á FLÓTTA
WANTED r
„Nuns On the Run" er frábær grínmynd sem hefur al-
deilis slegið í gegn erlendis og er hún nú í öðru sæti í
London og gerir það einnig mjög gott í Ástraliu um
þessar mundir. Þeir félagar Eric Idle og Robbie Coltrane
fara hreinlega á kostum í þessari mynd sem seinheppnir smákrimm-
ar er ræna bófagengi; en ná einungis að flýja fyrir hornið og inn í
næsta nunnuklaustur... og þá fyrst byrjar fjörið.
Aðalhl.: Eric Idle, Robbie Coltrane og Camille Coduri.
Leikstjóri. Jonathan Lynn. Framl: George Harrison.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
FOÐURARFUR
Úrvalsmynd með Richard
Gere og Kevin Anderson.
Sýnd kl. 9og 11.
SEINHEPPNIR
BJARGVÆTTIR
Frábær grínmynd þar sem
Qheech Marin fer á kostum.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
HJOLABRETTA GENGIÐ
Topp spennu- og hasarmynd.
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð innan 12 ára.
HELGARFRIMED BERNIE
Pottþétt grínmynd fyrir alla.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
IELDLINUNNI
T opp-spennumynd
með Schwarzenegger.
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
SKIÐAVAKTIN
Sýnd kl. 5 og 7.
I__
Engin undirboð
afhálfuRÚV
- segir auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins
VERÐ á auglýsingum í Rás tvö Ríkisútvárpsins var 19%
hærra en á Bylgjunni í apríl. Munurinn var hinsvegar
10% í október, að sögn Helga S. Helgasonar auglýsinga-
stjóra RÚV. Hann segir að fullyrðingar Páls Þorsteins-
sonar útvarpsstjóra Bylgjunnar um undirboð RÚV fái
ekki staðist. Þvert á móti hafi Bylgjan nýverið breytt
verðskrá sinni þannig að næturtaxti sé í boði frá kl. 18-8,
í stað 19-7 eins og á Rás tvö.
Morgunblaðið greindi á
sunnudag frá tilboði Ríkisút-
varpsins um 70% afslátt á
auglýsingum í Morgunsyrpu
Rásar tvö. Tilboðið stóð eina
viku, 3.-10. júlí síðastliðinn.
Fullyrti Páll Þorsteinsson að
þetta væri dæmi um mark-
aðssókn Ríkisútvarpsins sem
gerðist sífellt þyngri. Haft
var eftir Páli að áður hafi
verið boðinn afsláttur á aug-
lýsingum síðdegis á Rás tvö
og gjarnan hafi útvarpsaug-
lýsing fylgt í kaupbæti með
sjónvarpsauglýsingu.
Helgi S. Helgason segir
að aldrei hafi verið veittur
afsláttur á auglýsingum
síðdegis á Rás tvö. Þá hafi
aldrei verið í boði þessi
fríðindi til auglýsenda í sjón-
varpi. Hann segir að mörg
dæmi séu um undirboð
einkastöðvanna. Þannig
bjóði Stöð tvö auglýsendum
sem kaupa tíu birtingar nú
fimm i kaupbæti.
„Miðlar Ríkisútvarpsins
eru að styrkjast í áhorfi og
koma vel út í skoðanakönnf
unum. Þar ríkir ágætis
starfsfriður sem tryggir að
við getum sífellt aukið og
bætt þjónustu okkar. Við
hyggjumst bæði keppa með
góðri dagskrá og verja tekju-
stofna okkar, sem eru aug-
lýsingar og afnotagjöld,“,
segir Helgi S. Helgason.