Morgunblaðið - 27.07.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990
19
Georg Carey næsti erkibiskup af Kantaraborg heldur á trveimur
barnabörnum.
Næsti erkibiskup af
Kantaraborg skipaður
London. Reuter.
GEORG Carey, biskup af Bath og Wells, hefiir verið skipaður næsti
erkibiskup af Kantaraborg. Carey, sem er 54 ára, er tiltölulega óþekkt-
ur og var talið ólíklegt að hann yrði fyrir valinu. Hann hefur aðeins
verið biskup í þrjú ár. Fráfarandi erkibiskup er Robert Runcie.
Erkibiskup af Kantaraborg er
yfirmaður ensku biskupakirkjunnar
og andlegur leiðtogi 70 milljóna
manna víða um heim. Búist er við
að Runcie láti af embætti 31. janúar
nk. og kom skipun Careys þremur
mánuðum fyrr en áætlað hafði verið.
Elísabet Bretadrottning skipar
erkibiskupinn. Margaret Thatcher
forsætisráðherra tilnefnir hann, en
16 manna kirkjuráð gerir tillögur
um tvo menn og forsætisráðherra
velur á milli þeirra. Ekki hefur verið
greint frá nafni hins mannsins, sem
ráðið mælti með, en fjölmargir hafa
þegar lýst ánægju sinni með skipun
Careys.
Carey er hlynntur kvenprestum,
en það mál er mjög umdeilt innan
kirkjunnar, og hann styður umhverf-
isvernd. Hann segist vilja mikil og
árangursrík samskipti ríkisvalds og
kirkju og að hann muni veita kirkj-
unni staðfasta forystu'. Carey viður-
kenndi fyrir fréttamönnum að hann
hefði ekki talið sig eiga mikla mögu-
leika á að hljóta skipun en að til
hennar hefði ekki verið stofnað með
málamiðlun. „Ég hef aldrei verið
gefinn fyrir málamiðlanir. Það gætu
verið þeir sérstöku hæfileikar sem
mér eru gefnir og aldur minn sem
urðu til þess að ég var skipaður.
Ég held að ég hafi verið valinn vegna
þess sem ég hef til brunns að bera,“
sagði Carey.
Þjáðist van Gogh af
eyrnasjúkdómi?
New York. The Daily Telegraph.
VINCENT van Gogh, sem skar af sér vinsta eyrað og féll fyrir eigin
hendi fyrir 100 árum, var hvorki vitskertur né flogaveikur. Hann þjáð-
ist af truflun í innra eyra, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem
birtar voru á miðvikudag í riti bandarísku læknasamtakanna.
Meniere-sjúkdómurinn, sem hrjáði
van Gogh og sem lýsir sér í lamandi
svimaköstum og sársaukafullu suði
í eyranu, var þekktur meðal lækna
á 19. öld. Það hvarflaði hins vegar
aldrei að læknum sem önnuðust van
Gogh á St. Remy-hælinu, að hann
þjáðist af honum.
Dr. Kaufmann Arenberg, sem
starfar að rannsóknum í í Colorado-
ríkí í Bandaríkjunum, sagðist byggja
niðurstöður sínar á læknáskýrslum
og 796 bréfum van Goghs. Hann
segist hafa fengið áhuga á veikindum
van’Goghs þegar hann var í lækna-
skóla. Veitti hann því athygli að lýs-
ingar á veikindum listmálarans voru
mjög lík Meniere-sjúkdómnum.
í skýrslunni segir að þegar van
Gogh skar af hluta vinstra eyra síns
og sendi hann gleðikonu nokkurri
hafi hann þjáðst af ofheyrnum. Þá
segir að suðið hafi orðið óþolandi og
að van Gogh hafi e.t.v. talið sig geta
bundið enda á ofheyrnirnar með því
að fjarlægja eyrað. Vitað er að sjúkl-
ingar, sem þjást af sjúkdóminum,
hafa stungið inn í eyrun á sér til að
taka fyrir hávaðann. Sjúkdóminn er
hægt að lækna með skurðaðgerð eða
með sérstöku mataræði.
Fyrverandi yfirmað-
ur Stasi handtekinn
Austur-Berlín. dpa.
ERICH Mielke, fyrrverandi yfir-
maður austur-þýsku öryggislög-
reglunnar, Stasi, og nánasti sam-
starfsmaður Erichs Honeckers,
fyrrverandi leiðtoga Austur-
Þýskalands, var handtekinn í
gær fyrir spillingu, eftiahags-
niðurrif og valdníðslu.
Austur-þýska fréttastofan ADN
hafði eftir talsmanni skrifstofu
ríkissaksóknara að læknar hefðu
úrskurðað Mielke, sem er 82 ára,
nægilega heilsuhraustan til að sitja
í fangelsi.
Gunter Seidel ríkissaksóknari
ákærði Mielke einnig fyrir að hafa
hjálpað flölda félaga úr vestur-
þýsku hryðjuverkasamtokunum
Rauðu herdeildinni að setjast að í
Austur-Þýskalandi undir nýjum
nöfnum.
Honecker neitaði nýlega vitn-
eskju um að félagar úr Rauðu her-
deildinni væru í felum í landinu og
sagði að Mielke hefði leynt þessu
og ýmsu fyrir sér.
Skjöl hafa einnig fundist sem
sanna að Mielke hafði gert neyðará-
ætlun um að kyrrsetja þúsundir
andófsmanna í fangabúðum.
Erlch Mielke.
Reuter
Yfirvöld í Austur-Þýskalandi at-
huga nú einnig hvort Mielke hafi
átt þátt í sprengingunni í „La
Belle“-diskótekinu í Vestur-Berlín
árið 1986 þegar bandarískur her-
maður og tyrknesk kona létust.
H PHILIPS
Myndataka án fyrirhafnar
PHILIPS VKR 6843 er bæði VHS upptökuvél og myndband sem tengja má beint við
sjónvarp. Vélin er afar handhæg og einföld í notkun og vegur aðeins 1,3 kg.
Dagsetning og klukka sjást við upptöku. Sjálfvirk fókusstilling, sjálfvirk birtustilling,
stillanlegt hljóðnæmi. A linsu er ,,Macro“ stilling sem gefur möguleika á myndatöku
allt niður í 3.5 mm fjarlægð.
- CCD myndskynjari gefur hágæða mynd eða 320.000 myndpunkta.
•Tynga: i.j Kg (an ramioouj
•Lágmarks ljós: 10 lux.
•Hámarks Ijós: 100.000 lux.
•Hvítjöfnun: Sjálfvirk/handvirk.
•Aðdráttur: 6x mótordrifinn.
•Fókus: Sjálfvirkur/handvirkur.
•Linsa: F 1.2-22.
•Stærð: 33x12x14 cm. (LxBxH).
•Lokunarhraði: 1/50,1/500 eða 1/1000 úr sek.
• Myndbandsstaðall: VHS - C HQ.
•Myndskynjari: 1/2” CCD .
•Skoöari: Rafeindaskoðari
með 2/3” myndlampa.
•Ending rafhlöðu: ca. 60 mínútur.
(ö?
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SÍMI69 1515 ■ KRINGLUNNISIMI69 15 20
l/<öe/iUMSve(£fiaféegib C saMtutttjxwc
BÍLAGALLERÍ
Opið virka daga frá kl. 9-18.
Laugardaga f rá kl. 10-16.
MMC Colt GU 16 v '89. Rauð-
ur, elnn með öllu. Ek. 13.000
km. Verð 1.080.000, ath.
sklptl.
fíiiNSE '
Volvo 240 GL '88. Gullmet., sjólfsk. m/od, vökvastýrl. Ek. 38.000 km. Verð 1.100.000.
Charade CS '87. Ljósgrænn
met., belnsk. Ek. 35.000 km.
Verð 440.000.
Toyota Tercel 4wd, station,
'84. Sllfurgrðr, 5 glra,
útu/segulb. Verð 470.000.
Lada Sport 1600 4wd, '90.
Hvftur, útv/segulb. Ek. 6.000
km. Verð 710.000, ath. sklpti.
Nlssan Sunny SLx 4wd '87. Rauður, 5 gíra, útv/segulb. Ek. 46.000 km. Verð 720.000 ath. sklptl.
I Citroen Ax '89. Belnsk., I útv/segulb. Ek. 10.000 km. Verð 590.000, ath. sklptl.
Volvo 240 GL '85. Stelngrár met., 5 gira, plussóklœðl o.fl. Ek. 89.000 km. Verð 850.000.
Fjöldi annarra notaðra úrvals
bíla á staðnum og á skrá.
Brimborg hf.
Faxafeni 8, s. (91) 685870.