Morgunblaðið - 27.07.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990
25
Afínæliskveðja:
Jóney M. Jónsdóttir
Amma mín, Jóney Margrét Jóns-
dóttir, fæddist á Hellnum á Snæ-
fellsnesi 27. júlí 1900.
Foreldrar hennar voru Jón Magn-.
ússon og Katrín Friðriksdóttir.
Fyrstu árin elst hún upp hjá ömmu
sinni Ingileif Erlingsdóttur en fer
síðan 9 ára gömul til föður síns og
konu hans Sigurlínar Þormóðsdótt-
ur að Lýsudal í Staðarsveit. Um
tvítugt ræður hún sig til starfa í
Ólafsvík og um það leyti kynnist
hún afa mlnum Kristjáni Jónssyni
frá Einarslóni í Breiðuvíkurhreppi.
Afi minn lærði skósmíði í Ólafsvík
en gekk alla tíð að öðrum störfum
samhliða iðngrein sinni.
Afi minn og amma festu ráð sitt
árið 1923 og hófu búskap á ættjörð
hans. Þar urðu þau sem og ávallt
síðar þekkt fyrir gestrisni sína og
velvild og dvöldu oft hjá þeim marg-
ir gestir. Má þar nefna Jóh. S.
Kjarval, sem dvaldi hjá þeim sumar-
langt og var góður vinur þeirra.
Þeim varð þriggja dætra auðið
og þær eru Ingileif sem nú er látin,
Ólína og Þórheiður.
Árið 1944 flytja þau í Staðar-
sveit og voru þeir búferlaflutningar
ömmu minni mjög kærir, því hún
hefur alltaf unnað Staðarsveitinni,
þar sem hún sleit barnsskónum.
Árið 1954 flytja þau til Keflavík-
ur, þar sem heimili þeirra hefur
staðið síðan. Þar hóf amma mín
störf í Kaupfélagi Suðurnesja og
var þar við afgreiðslu í mörg ár.
Ég var í heiminn borinn á heim-
ili afa míns og ömmu og þaðan fór
ég ekki fyrr en ég stofnaði mitt
eigið heimili í Reykjavík. Ég naut
ástar og umhyggju þeirra frá fyrsta
degi og ég hef verið svo lánsamur
að fá að hafa hana ömmu sem
fastan punkt í tilveru minni alla
tíð. Þrátt fyrir háan aldur hefur hún
haldið andlegu atgervi sínu og stað-
ið eins og klettur við hlið mér og
fjölskyldu minnar og greitt götu
nu'na eins og hún best hefur getað.
Margs er að minnast frá bemsku-
dögum og þá sérstaklega hvað hún
amma var mér alltaf góð og um-
burðarlynd. Eftir að hún hætti að
vinna utan heimilis, þá drýgði hún
tekjurnar með því að baka og selja
flatkökur. Hún vaknaði fyrir allar
aldir til að vera tilbúin með kökurn-
ar áður en verslanir opnuðu. Ég
átti það til að bjóða félögum mínum
með mér heim í löngu frímínútunum
í heitar flatkökur og var því ávallt
tekið með æðruleysi og vinsemd.
Afi minn dó árið 1970 eftir
ströng veikindi og eftir það bjugg-
um við amma tvö. Ólína móðursyst-
ir mín hefur búið í nánu sambýli
við ömmu og hefur hún notið frá-
bærrar umönnunar hennar og
Matthíasar eiginmanns Ólínu.
í dag er þinn dagur amma mín
og við hlökkum til að gleðjast með
þér. Ég vona að þú haldir þinni léttu
íund og við fáum að njótajöín áfram.
Jón Ólafsson
Jóney Margrét Jónsdóttir tekur
á móti gestum í Víkingasal Hótels
Loftleiða í dag milli kl. 17.-19.
imwmAUGL YSINGAR
1. vélstjóra vantar á bát frá Grindavík. Upplýsingar í síma 92-68017. Álftanes - blaðberar Blaðbera vantar í Bjarnastaðavör, Hákotsvör Blaðberar óskast í Skerjafjörð - Bauganes og Austurbæ - Skipholt. Upplýsingar í síma 691253.
Kennarar <ennara vantar við Víkurskóla næsta skóla- ár. Kennslugreinar: íþróttir, enska og íslenska. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 98-71124 og sveitarstjóri í síma 98-71210. —víkursköl! ^^m^^m^ 870 VlK 1 MÝRDAL - SlMI 88 71242 o.fl. Upplýsingar í síma 652880. flltttgmililjifrUki Fótaaðgerðafræð-
Starfsfólk óskast til starfa sem fyrst. Upplýsingar á staðnum milli kl. 13-15 virka daga. Múlakaffi, Hallarmúla. ingur Fótaaðgerðafræðingur óskar eftir atvinnu. Bæði hálfsdags- eða heilsdagsstörf koma til greina. Einnig kemur til greina að fara út á land. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeiid Mbl merkt: „F-13362“.
, < -- --- ,,v | - ,.-t ..... '—\ a n
HÚ5NÆÐIÓSKAST ] BÁTAR-SKIP | HÚSNÆÐI í BOÐI
íbúð óskast í Reykjavík Vil kaupa 2ja-3ja herbergja íbúð sem næst Skólavörðuholtinu. Æskilegt væri að mega greiða hluta kaupverðs með gullfallegri bif- reið að verðmæti 1,5 milljónir. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Íbúð-bíll - 500“ fyrir 1. ágúst nk. Kvóti Viljum kaupa botnfiskkvóta. Seljendur, sem hafa áhuga, vinsamlegast hafið samband í símum 95-13209, 95-13203 og 95-13308. Hólmadrangur hf. Húseign til sölu Til sölu er húseignin nr. 10. við Aðalgötu á Sauðárkróki. í húsinu eru 6 herbergi en þar geta einnig verið tvær litlar íbúðir. Bruna- bótamat er um 3,4 milljónir. Upplýsingar utan vinnutíma veittar í síma 95-35313. Lífeyrissjóður steftarfélaga í Skagafirði. Sæmundargötu 7a. Sími 95-35433.
Kvóti til sölu Höfum með að gera u.þ.b. 90 tonn af þorsk- ígildi. Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl. merkt: „Kvóti - 9180“ fyrir 1. ágúst.
Höfn íHornafirði Ríkissjóður leitar eftir kaupum á hentugu íbúðarhúsnæði fyrir sóknarprest á Höfn. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg- ingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, afhendingartíma og sölu- verð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 7. ágúst 1990. Fjármálaráðuneytið, 25. júlí 1990. Húseigntil sölu Til sölu er húseignin nr. 10 við Aðalgötu á Sauðárkróki. í húsinu eru 6 herbergi en þar geta einnig verið tvær litlar íbúðir. Bruna- bótamat er um 3,4 milljónir. Upplýsingar utan vinnutíma veittar í síma 95-35313. Lífeyrissjóður stéttarfélaga í Skagafirði, Sæmundargötu 7a, sími 95-35433.
I ÞJÓNUSTA
Athugið Tek að mér að selja ýmsar vörur fyrir heild- verslanir og fleiri aðila. Kaupi einnig lagera. Allt kemur til greina. Tilboð leggist inn é auglýsingadeild Mbl. merk: „G - 9179“.
SHlá auglýsingar
Wélagslíf
Uftnpdt' fe+ð
HÚTIVIST
GRÓFINHII • REYKJAVÍK • SÍMI/SÍMSVUI14MK
Hornstrandir
Það er ógleymanleg upplifun að
ganga um stórbrotiö landslag
þessa eyðisvæðis. Aöeins tvær
ferðir eftir í sumar.
l. 8.-7.8. Hornvík. Tjaldbæki-
stöð. Áhugaverðar dagsferðir
m. a. á Hornbjarg. Fararstjóri
Gísli Hjartarson. Tilvalin ferð fyr-
ir þá sem dreymir um að kynn-
ast Hornströndum en treysta
sér ekki í bakpokaferð.
23.8.-31.8. Snæfjallaströnd —
Reykjafjörður. Bakpokaferð.
Gengið um fjölbreytt svæði frá
bæjum til Grunnavíkur, í Leiru-
fjörð, Hrafnsfjörð og yfir til
Reykjafjarðar. Fararstjóri Rann-
veig Ólafsdóttir.
Hálendið
4./8.-12./8. Kynnist töfrum há-
lendisins: Góður hálendishring-
ur, komið við á öllum helstu stöð-
unum norðan Vatnajökuls:
Trölladyngja - Herðubreiðar-
lindir - Kverkfjöll - Snæfell -
Lagarfljótsgljúfur. Norður um
Sprengisand í Gæsavötn, til baka
um Suðurfirði. Hús og tjöld. Far-
arstjóri: Ingibjörg Ásgeirsdóttir.
Sjáumst.
Útivist.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Sunnudagur 29. júlí -
dagsferðir:
Kl. 8.00 Þórsmörk - dagsferð
(Verð kr. 2.000,-).
Ath. ódýrt sumarleyfi hjá Ferða-
féiaginu í Þórsmörk. Ferðir til
Þórsmerkur sunnudaga, mið-
vikudaga, föstudaga og til baka
sömu daga.
Afmælisgangan Reykjavík -
Hvftárnes 8. ferð -
Brottför kl. 10.00.
1. Laugarvatnsvellir -
„Kóngsvegur*1 - Miðdalur
Gangan hefst við Laugarvatns-
helli og þaðan er gengið sem
leið liggur að Miödal. Gengið í
um 5 klst. Verð kr. 1.200,-.
Spurning í þessari ferð er: Hvað
hét konungurinn sem „Kóngs-
vegurinn" er kenndur viff?
2. Laugarvatnshellar -
Gullfoss - Geysir
Ekið að Gullfossi og síðan stopp-
að hjá Geysi. Verð kr. 1.200,-.
Brottför kl. 10.00 f báðar ferð-
irnar.
Miðvikudag 1. ágúst
Kl. 8.00 Þórsmörk - dagsferð
(verð kr. 2.000.-).
Kl. 20.00 Bláfjallaheliar
(Strompheliar). Áhugafólk um
hellaskoðun ætti ekki að missa
af þessari ferð. Brottför frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bil. Frítt fyr-
ir börn að 15 ára aldri.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 & 11798 19533
Helgarferðir 27.-29. júlí
1. Þórsmörk
- miðsumarsferð
Gönguferðir viö allra hæfi um
Mörkina. Margrómuð gistiað-
staða í Skagfjörðsskála/Langa-
dal hjá Ferðafélaginu. Dvöl i
Þórsmörk er peninganna virði.
2. Landmannalaugar -
Eldgjá - Háifoss
Ekið i Eldgjá og gengið á Gjátind
og að Ófærufossi. Á leiðinni til
Reykjavíkur á sunnudag verður
komið við hjá Háafossi. Gist í
notalegu sæluhúsi F.í. í Land-
mannalaugum.
3. Kjölur - Kerlingarfjöll -
Hveravellir
Gist í Hvítárnesi fyrri nóttina.
Ekið til Kerlingarfjalla á laugar-
degi og- gengið um svæðið.
Næstu nótt gist á Hveravöllum.
Góð gistiaðstaða í sæluhúsum
F.(. á Kili.
Álftavatnsskáli
Okkur vantar sjálfboðaliða
næstu viku. Hafið samband við
skrifstofuna.
Upplýsingar og farmiðasata á
skrifstofu F.(„ Öldugötu 3.
Helgarferðir með Ferðafélaginu
eru góð hvíld frá dagsins önn.
Feröafélag fslands