Morgunblaðið - 21.09.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1990
33
Minning:
Bjami Pálsson
Fæddur 4. október 1905
Dáinn 9. september 1990
Vinur okkar og velunnari á Sól-
vangi í Hafnarfírði, Bjami Pálsson
frá Seljalandi, kvaddi þetta líf
sunniidaginn 9. september sl.
Bjami var einn af fímmtán systkin-
um og átti auk þess einn hálfbróð-
ur. Hann fæddist á Seljalandi í
Fljótshverfí 4. október árið 1905.
Bjarni var alla tíð harðduglegur
og ósérhlífinn og þurfti ásamt
systkinum sínum að leggja hart
að sér á erfíðum tímum þegar
kuldar og Kötlugos gerðu slæman
ursla á ámnum 1917-1918. Ekki
aðeins á þessum ámm þurfti mann-
dóm og dug og var eftir tekið hve
systkinin frá Seljalandi voru út-
sjónarsöm og æðmlaus á erfíðum
tímum. Foreldrar Bjama vom
Málfríður Þórarinsdóttir og Páll
Bjarnason, en þau hófu búskap á
Seljalandi í tvíbýli við foreldra
Málfríðar.
Árið 1930 kvæntisti Bjarni, Sól-
veigu Sigurðardóttur ljósmóður, en
hún var fædd 17. desember árið
1898. Bjuggu þau á Maríubakka
í Fljótshverfí til ársins 1936. Auk
þess að stunda búskap á Maríu-
bakka var Bjarni einnig organisti
við Prestbakkakirkju á Síðu og um
tíma einnig við Kálfafellskirkju.
Bjarni sagði mér að hann hefði
aðeins lært orgelleik í þrjár vikur,
en þótt tími væri naumur frá bú-
skapnum þá reyndi hann að æfa
sig af kappi eftir því sem tök vom
á.
Frá Maríubakka fluttu þau hjón
til Reykjavíkur og hóf Bjami þá
störf hjá Blikksmiðju Breiðfjörðs
þar sem hann starfaði allt til árs-
ins 1957. Þar sem annars staðar
þótti Bjarni góður verkmaður,
vandvirkur og laginn. Árið 1957
sagðist Bjarni hafa verið farinn
að lýjast nokkuð og viljað snúa sér
að rólegra starfí og tók þá við
rekstri Hafnarbaðanna ásamt
bróður sínum Páli og vann við það
starf fram yfir sjötugt.
Þau hjónin Bjarni og Sólveig
bundu sérstaka tryggð við Sól-
vang, en starfínu sem þar er unnið
höfðu þau kynnst vegna þess að
bróðir Sólveigar, Jón, hafði notið
þar umönnunar og ennfremur kona
hans, Margrét Magnúsdóttir, sem
þar dvelur enn. Höfðu þau sam-
band við stjómendur á Sólvangi
og tjáðu þeim að vilji þeirra væri
sá að eigur þeirra að þeim látnum
mættu verða til þess að einhveiju
yrði komið í framkvæmd sjúkling-
um og starfsfólki til ánægju og
gleði, sem ella yrði erfítt að fram-
kvæma utan daglegra rekstrar-
þarfa. Var síðan í samráði við
Bjama ráðist í kaup á húsi í Hvera-
gerði, sem verið hefur síðustu tvö
árin sannkallaður sælureitur sjúkl-
inga og starfsfólk, sem þar hefur
notið dvalar.
Sólveig andaðist á Sólvangi 27.
apríl árið 1986 og hafði Bjarni
annast hana af stakri prýði eftir
að heilsu hennar tók að hraka.
Árið 1987 flutti Bjami úr Stór-
holti 43, þar sem þau hjón höfðu
búið, til Hafnarfjarðar í íbúðir aldr-
aðra við Álfaskeið 64.
Allir sem áttu þess kost að kynn-
ast Bjama fundu þar heilsteyptan
öðlingsmann, sem gott var að vera
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍSABET SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
frá Gröf, Lundarreykjardal,
Vesturgötu 164,
Akranesi,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 14. september.
Útförin fer fram frá Stóráskirkju, Hálsasveit, mánudaginn 24.
september kl. 14.00.
Bjarni Stefánsson, Benný Sigurgeirsdóttir,
Þórunn Stefánsdóttir, Guðmundur Guðjónsson,
Jón Stefánsson, Kristín Þorsteinsdóttir,
Fríða Stefánsdóttir, Magnús Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐLAUGAR KRISTMUNDSDÓTTUR
frá Rauðbarðaholti,
Suðurhólum 26,
Reykjavík,
sem andaðist 14. september, verður gerð frá Fossvogskapellu
mánudaginn 24. september kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á að láta
Krabbameinsfélagið njóta þess.
Sveinn Helgi Sveinsson,
Bryndís Sveinsdóttir, Sævar Reynisson,
Anna Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Jón Kristfeifsson
og barnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS SIGURÐSSONAR
frá Stóra-Fjarðarhorni.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur.
María Samúelsdóttir,
Fanney Jónsdóttir, Arngrímur Guðjónsson,
Jónas Jónsson, Guðríður Káradóttir,
Gísli Jónsson, Hlín Sigurðardóttir,
Sigurrós Jónsdóttir, Páll Garðarsson,
Sigurður Jónsson, . Elsa Bjarnadóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Sigurður Marinósson,
barnabörn og barnabarnabörn.
návistum við. Hann' var æðrulaus,
trúmaður og leitaðist við að rækta
sem best líkama sinn og sál. Bjarni
kunni frá mörgu að segja og er
eftirminnilegt að rifja upp í hugan-
um margt sem hann hefur miðlað
okkur vinum sínum. Bjarni var
glöggur maður á allt sem fagurt
var og unni mjög tónlist og fag-
urri náttúru. Heita má að vart
hafi liðið sá dagur að Bjarni hafi
ekki skroppið í góðan göngutúr og
einatt staldraði hann við í Kirkju-
garði Hafnarfjarðar til þess að
huga að leiðinu hennar Sólveigar
sinnar.
Sá sem þessi fátæklegu orð læt-
ur að leiðarlokum falla um sér-
stakan heiðursmann trúir því að
hann sé nú kominn til austursins
eilífa þar sem ljós Drottins lýsir
hæst.
Eg kveð vin okkar frá Sólvangi,
að sinni.
Sveinn Guðbjartsson
+
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
ODDNÝ LAXDAL,
Eikarlundi 16,
Akureyri,
sem lést í Borgarspítalanum 13. september, verður jarðsungin
frá Svalbarðsstrandarkirkju mánudaginn 24. september kl. 14.00.
Jarðsett verður á Akureyri.
Fyrir okkar hönd og annarra ástvina,
Pétur Ásgeirsson,
Margrét Líney Laxdal,
Jóhanna Helga Pétursdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar,
BJARNA PÁLSSONAR
frá Seljalandi.
Sérstakar þakkir færum við lækni, forstöðufólki og hjúkrunarfólki
Sólvangs í Hafnarfirði, fyrir frábæra hjúkrun og vináttu til hans
og okkar allra.
Systkin hins látna.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTINS FRIÐRIKSSONAR,
Stykkishólmi.
Þórá Sigurðardóttir,
synir, tengdadætur og barnabörn.