Morgunblaðið - 29.09.1990, Side 17

Morgunblaðið - 29.09.1990, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990 17 Séra Bjartmar Kristjánsson, fyrr- verandi prófastur Eyfirðinga, hefir nú kvatt þennan heim og horfið til enn fegurri veraldar, ef trú okkar er rétt. Hann hafði dvalist lengi sumars á sjúkrastofnunum, lengst af sunnanlands, og gengist þar undir hættulega skurðaðgerð, sem lánaðist þó mæta vel. Hann var fyrir fám dögum kominn norður til átthaganna aftur, þegar kallið kom. Og það kom nokkuð óvænt, því að hann virtist hafa náð sér nokkuð þrátt fyrir „illyrmislegan sjúkdóm", eins og hann komst sjálfur að orði, sem hann bar og þoldi með stillingu og hetjulund þess, sem á vonina og trúna. Séra Bjartmar fæddist á Ytri- Tjörnum í Öngulsstaðahreppi 14. apríl 1915, sonur hjónanna Fann- eyjar Friðriksdóttur og Kristjáns H. Benjamínssonar bónda þar. Þau hjón eignuðust 6 syni og 6 dætur, og varð allur sá stóri systkinahópur merkis- og myndarfólk. Þeir fylgd- ust að, bræðurnir, Bjartmar og Valgarður, í Menntaskólann á Ak- ureyri og íuku þaðan stúdentsprófi 1941, Valgarður úr máladeild, en Bjartmar úr stærðfræðideild. Hann lét það þó ekki aftra sér frá að inn- ritast í guðfræðideild Háskóla ís- lands, og þaðan lauk hann embætt- isprófi með glæsibrag vorið 1946. Þá um sumarið vígðist hann til Mælifellsprestakalls í Skagafirði og þjónaði því, þangað til hann fékk veitingu fyrir Laugalandspresta- kalli í Eyjafirði vorið 1968 og gerð- ist þar eftirmaður séra Benjamíns prófasts bróður síns. Séra Bjartmar varð prófastur í Eyjafjarðarpróf- astsdæmi 1984, en lét af prestskap fyrir aldurs sakir vorið 1986. Hann kvæntist 9. október 1943 Hrefnu Magnúsdóttur jámsmiðs á Akureyri Arnasonar og Snæbjargar Aðalmundardóttur. Þau eignuðust 6 böm, Snæbjörgu Rósu, Kristján Helga, Jónínu Þórdísi, Benjamín Garðar, Fanneyju Hildi og Hrefnu Sigríði, og komu þeim öllum vel til manns. Þegar séra Bjartmar lét af embætti reistu þau Hrefna í félagi við Jónínu dóttur sína hús, sem þau nefndu Álfabrekku og stendur á fögmm stað í grennd við æsku- stöðvar húsbóndans. Þar er útsýni geysifagurt, og þaðan sér að heita má um allt Eyjafjarðarhérað. Þar hafa þau hjónin unað sér vel síðan, þrátt fyrir allþungan heilsubrest beggja hin síðari ár, og stutt hvort annað á fagran hátt. Þó að við vissum vel hvorir af öðrum á menntaskólaárunum, Ytri-Tjarnabræður og undirritaður, tókust ekki með okkur veruleg kynni, fyrr en við vomm komnir í Háskólann og urðum nágrannar á Garði. Séra Bjartmar bjó í næsta herbergi við mig sömu megin gangs, en Valgarður, sem las lög- fræði, var andbýlingur minn. Þó að við værum þannig hver í sinni há- skóladeild, tókum við oft tal saman og urðum brátt miklir mátar, svo að af varð ævilöng vinátta. Mörg voru þau kvöld, sem við sátum inni á herbergi annars hvors þeirra bræðra og ræddum þá margt yfir svörtum kaffibollum, því að þeir áttu merkilega kaffikönnu, sem gekk fyrir rafmagni og hellti upp á sig sjálf. Slíkar kostakýr vom ekki á hveijum bæ á þeim áram. Fá málefni létum við okkur óvið- komandi, en mér er enn ofarlega í minni, að guðfræðistúdentinn kynnti okkur hinum mörg áleitin umhugsunar- og umræðuefni úr fræðigrein sinni af lærdómi og yfir- gripsmikilli þekkingu, og hann fjall- aði um þau af skarpleik og rök- festu. Samtöl okkar og kappræður þessar kvöldstundir á Garði urðu mjög til að móta viðhorf og skoðan- ir okkar leikmanna í trúmálum og urðu til þess, að við gerðumst félag- ar í Bræðralagi, kristilegu félagi stúdenta, og sóttum þar fundi, þó að það væri einkum skipað guð- fræðingum og guðfræðistúdentum. Þetta var frjálslyndur og fordóma- laus félagsskapur, sem studdur var af mörgum kirkjunnar mönnum í höfuðborginni og víðar og aðhylltist það sjónarmið, að bókstafurinn deyadi, en andinn lífgaði. En svo kom að því, að við félag- arnir héldum hver til sinna starfa og hver í sína áttina að námi loknu. Þó höfum við alltaf haldið sam- bandi og félagsskap hver við annan eftir föngum, og ekki lét séra Bjartmar sig muna um að skreppa í annan landsfjórðung til að gefa okkur hjónin saman fyrir hartnær 43 ámm. Eftir að hann gerðist sálu- sorgari Eyfírðinga höfum við Ellen oft heimsótt þau Hrefnu, bæði að Syðra-Laugalandi og Álfabrekku. Okkur hefír alltaf verið fagnað vel, og við höfum átt með þeim hjónum margar góðar stundir. Húsfreyjan ljúfmannleg og rausnarleg og hús- þóndinn gerhugall, fróður, skemmt- inn og gamansamur. Séra Bjartmar átti sér ýmis áhugamál utan sérsviðs síns. Hann var vel að sér í stjörnufræði, mál- fræði, íslenskum bókmenntum forn- um og nýjum, sögu lands og héraðs og þá ekki síst kirkjusögu. Hann var jafnframt mikill smekkmaður á málfar, og ræður hans vom allar á vönduðu máli, fögm og kjammiklu, en þó með öllu lausar við orðskrúð og tilgerð. Þegar hann talaði var sem tært lindarvatn sprytti fram úr hreinu bergi. Hann velti fyrir sér og hugleiddi orðaval og stílblæ þeirra texta, sem hann notáði, svo sem Biblíuþýðinga, hafði á þeim ákveðnar skoðanir og valdi þá, sem honum vom helst að skapi, þó að þeir væru ekki alltaf þeir nýjustu. Hann hélt tryggð við fastmótaða og venjubundna beygingu á nafni lausnarans og barðist í ræðu og riti gegn allri nýbreytni þeirrar beygingar. Þá taldi hann smekk- laust og óheimilt með öllu að breyta sálmum fyrri tíðar skálda til að þjóna undir hina nýju beygingu nafnsins. Barátta hans, þung, en stillilega háð, til varnar löngu liðn- um og varnarlausum sálmaskáldum og alkunnum textum, sem hvert bam hafði lært, hlaut stuðning margra mætra skálda og fræði- manna. Þetta atriði skal nefnt sem dæmi um almenna afstöðu séra Bjartmars til margra málefna. Hann var ekki uppnæmur fyrir öllum nýjungum, vildi meta þær eftir eðli þeirra og gildi, velja úr þeim og viðurkenna, ef honum þótti þær horfa til bóta, en hafna þeim ella. í afstöðu sinni fór hann eftir sannfæringu sinni og samvisku og lét ekkert annað segja sér fyrir verkum. Sumir kunna að kalla það íhaldssemi, en aðrir telja litla skynsemi í að varpa því fyrir borð, sem vel hefir gefist, en gleypa óhugsað við hverri nýj- ungarbólu. Slíkt mætti þá eins kalla fljótfærni og vanhyggju. En trú- mennska og vöndugleiki í orðum og athöfnum, smáu og stóm, voru mnnin sér Bjartmari í merg og bein, jafnt í embættisfærslu, skoð- unum og dagfari. Síðustu árin fór heilsu hans hnignandi. í vor heimsótti ég hann, þar sem hann lá rúmfastur í sjúkra- húsi. Honum var ljóst, að óvænlega horfði um bata, en kjarkur hans var óbilaður, og bjartsýnin ríkti í huga hans, þrátt fyrir allt. Hann gladdist yfir því, að Hrefna var þá að koma frá útlöndum eftir vel heppnaða læknisaðgerð þar, og hann hlakkaði til að hitta hana í Reykjavík, þegar hann færi þangað sjálfur fám dögum seinna svipaðra erinda. — „Ég treysti læknunum fullkomlega," sagði hann, „þetta eru vandvirkir snillingar og heiðurs- menn. Nú, ef snilli þeirra hrekkur ekki til, þá er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að lifa þrjá aldar- fjórðunga, það er lengri ævi en margur verður að láta sér nægja, og mér finnst allt að því frekja að heimta meira. Ekki þar fyrir, ég gæti alveg þegið lengra líf, og mér þætti sárt að kveðja ástvini mína, en mér er nú samt ýmislegt meira kvíðaefni en það að fara til himna- ríkis. Allt mitt ráð, líf eða dauði, er í hendi drottins, og hann mun vel fyrir sjá. Verði hans vilji, þeirrar bænar hefi ég beðið langa ævi, og svo geri ég enn. Ég þarf engu að kvíða.“ Svo mælir sá einn, sem trúna hefir. Verði honum nú að trú sinni. Ég þakka honum trausta vináttu allt frá fyrstu kynnum. Við Ellen sendum Hrefnu, börn- um þeirra hjóna og fjölskyldum þeirra svo og systkinum séra Bjartmars einlægar samúðarkveðj- ur á saknaðarstund. Blessuð sé minning góðs vinar. Sverrir Pálsson I dag, 29. september, verður afi okkar borinn til hinstu hvíldar. Það er skrítið að hugsa til þess að við munum aldrei framar sjá hann né heyra í þessu lífi. Við barnabörnin dvöldum oft hjá afa og ömmu, bæði á Syðra-Lauga- landi og í Álfabrekku, okkur til mikillar ánægju og vonandi var það gagnkvæmt. Þegar við vorum yngri voru þau ófá skiptin sem farið var til afa og beðið um blað til að teikna á. Fórum við jafnan nokkrum blöð- um ríkari og fylgdi gjarnan líflegt klapp á kollinn. Það var jafnan stutt í góða skapið hjá afa og lét hann sér detta ýmislegt í hug. Hann fann til dæmis hin ýmsu nöfn á okkur barnabörnin. Mig kallaði hann Full- veldínu, því ég er fædd á fullveldis- daginn. Svo voru fleiri nöfn eins og til dæmis Lilleman, Drumbur, Nafni, Fröken Fix, Landaskelfir og Nóvemberína. Afa var margt til lista lagt. Hann var góður smiður og eiga sum okk- ar húsgögn eftir hann. Einnig fékkst hann við skriftir og hafði gaman af því að yrkja um hitt og þetta og m.a. um okkur barnabörn- in. Við þökkum elsku afa fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur og kveðjum hann með þessu versi: Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Fyrir hönd barnabarna, Sigríður Perla TILBODSDAGAR TIL MÁNAÐAMÓTA POTTAPLONTUR Blómstrandi ERIKA (Stofulyng) í leirpotti. Verð aðeins 495.- Blómstrandi BEGÓNÍA, aðeins 296.- HAUSTLAtfKAR 50 TÚLÍPANAR, aðeins 699.- KlRAMiK 20-50% afsláttur af keramikpottum í tilefni tilboðsdaga. Á¥IKTIR Úrvals, steinlausar APPELSÍNLR. Verð pr. kg. aðeins 119.- KIWI, mjög gott frá Nýja Sjálandi, 5 stk. í poka. Verð aðeins 109.- Opið alla daga frá kl. 9-21. Sími 689070.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.