Morgunblaðið - 29.09.1990, Side 40

Morgunblaðið - 29.09.1990, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1990 l/íÁ þur-fum a/feins. taemc*- hann eina sinni i MtStMuÍc." Með morgunkaffinu Vildi óska þú hefðir hringt fyrr. — Eg get ekki af- þakkað smávegis gleðskap úr þessu . .. Hugsum um heilsuna - hættum að reykja! Til Velvakanda. Nú er sumarið liðið og haustið komið. Þá er kjörið að fara að hugsa dálítið um heilsuna og hvað menn geti gert í því efni. Margir fara út að ganga eða skokka. Menn þurfa bara að fá sér hentug föt, sem kosta ekki mikið. Margir segja, að svo virðist sem streita og þreyta hverfi við þessa iðkun. — Þá er og einkar þægilegt að sækja sundstaðina, sem eru hér í Reykjavík og víða um land. Við erum heppin að hafa þessa sundstaði. Þetta er ótrúlegur mun- aður, sem veitist okkur íslendingum á mjög vægu verði. Og nú, gott reykingafólk, er al- veg rakið að hætta að reykja. Góð- ir menn halda námskeið fyrir þá sem vilja fá aðstoð, en sumir hætta sjálfír. Það skiptir miklu máli, að menn hætti þessari lífshættulegu vitleysu. Þá auka menn líkur á löngu og fögru lífi og draga mjög úr líkum á alvarlegum áföllum eða dauða langt fyrir aldur fram. — Og menn ættu að hugleiða hinn hrikalega kostnað, sem reykingum eru samfara. Hjón, sem reykja hvort um sig pakka á dag, þurfa að greiða á hveijum degi um 420 kr. Prófíð bara að margfalda þetta með 365,25 og þá kemur út beinn út- lagður kostnaður þeirra á ári. Og sé niðurstaðan margfölduð með 10, kemur út beinn kostnaður á áratug. Þetta þurfa menn að greiða með launum, þegar búið er að taka af þeim skatta og álögur. Það að hætta að reykja er því sem veruleg og varanleg launahækkun. Ekki myndi ýmsum af veita. Og þó er kostnað- urinn ekki aðalatriði málsins. Mestu máli skipta þær hörmulegu afleið- ingar, sem reykingarnar hafa í för með sér. Maður undrast oft, hversu hirðu- lausir sumir menn eru um líkama sinn. Ég las nýlega bók um tölvur. Þar var sagt, að mjög óráðlegt væri að reykja nálægt tölvu. Alls kyns efni úr reyk og ösku gætu komist inn í tölvuna og valdið þar tjóni. Þetta er eflaust hárrétt. En guð minn góður! Tölva er bara tæki, og það hægt að kaupa nýtt tæki, ef hið gamla er ónýtt, en menn kaupa ekki nýjan líkama, skaðinn er oft óbætanlegur. Samt er eins og sumir menn hugsi meira um tölvur sínar eða bíla en eigin skrokk. Sumir menn láta rannsaka bíla sína reglulega, en ekki líkama sinn. Það er eins og þeir hafi meiri áhuga á ýmsum dælum bflsins en hjartanu í eigin brjósti! Nýlega ræddi við mig ung og efnileg kona. Hún sýndi mér korn- ungan son sinn í barnavagni, efni- legan og fallegan dreng. En mér brá, er konan tók upp sígarettu og kveikti sér í. Mikið skelfing varð ég dapur og sagði þá: „Veistu ekki að hin hræðilegu efni í sígarettunni fara í barnið?“ Hún kvaðst vita það og vilja hætta að reykja. Við dæm- um engann, en vonum að henni takist að hætta, svo og öðrum í sömu sporum. Þeir sem hætta að reykja fá brátt miklu rýmri fjárráð. Þeim fer sjálf- um að líða milku betur. Þeir draga úr hættu á ægilegum áföllum og seinka komu ellinnar. Sjálfstraust þeirra og lífsvilji eykst, en það er niðurlægjandi að vera á valdi tó- baksins. Að sögn þeirra íslensku sérfræðinga, sem best þekkja til, deyja hér á landi um 300 menn árlega af völdum reykinga! Þetta er nánast einn maður á degi hveij- um. Mikið hefur dregið úr reyking- um, en sumir halda áfram þessu tilræði við eigin líkama. Sjálfur þekki ég ýmsa góða menn, sem hafa dáið allt of snemma vegna þessa ömurlega bölvalds. Við viljum halda hér uppi velferð- arþjóðfélagi. En þetta kostar mikið fé. Við getum hvert og eitt reynt að efia eigið heilbrigði og farsæld, en um leið leggjum við þá mikið af mörkum til að efla sameiginlega hagsmuni, heilbrigði þjóðarinnar í heild. Þetta getum við gert með því að temja okkur holla og ánægjulega lífshætti, — og þeir sem reykja ættu að íhuga alvarlega sín mál. Sá sem þetta ritar hefur áður skrifað til Velvakanda nokkrar svip- aðar hugleiðingar (sbr. Morgun- blaðið 11.1 og 23.5. ’89, og 28.5. 90.) Markmið þeirra hefur verið það að hvetja fólk til þess að íhuga þetta efni, — og hætta að reykja. Ég reykti sjálfur allmikið um skeið, fyrir rúmum áratug. Það er mín reynsla og margra annarra að það er allt annað og betra líf að vera laus við reykingarnar. Foreldrar, afar og ömmur, kenn- arar, íþróttafrömuðir og aðrir uppalendur verða að brýna það fyr- ir börnum og unglíngum að byija aldrei að reykja. En þeir sem reykja nú ættu að hugleiða eigin hag, sinna nánustu og þjóðar sinnar og hætta sem fyrst, — áður en það er orðið of seint. Fyrrv. Reyk-víkingur HÖGNI HREKKVISI * y———^ * C19W TrtbuAO Sotícm. Inc A■ Rlgru* Rnir.nl „ Be6TINSAKONAN „ Ht/AOA ISætSTIMGA- pe AO FARA .» kOWA?* Víkverji skrifar Norður í Þorvaldsdal sem geng- ur upp af Árskógsströnd við Eyjafjörð vestanverðan skoðaði Víkveiji fyrir nokkru sérkennilega steina eftir ábendingu heima- manna. Steinar þessir standa í bröttum brekkum vestur af Kleif og einnig er svipaður steinn norð- ar, fyrir ofan Krossa. Steinarnir eru nálægt hvor öðrum og er öll suð- austurhlið þeirra sett skálum og bollum. Skálarnar eru með áberandi reglulegu íhvolfu lagi og einnig er fjöldi smáhola og hringa sem mynda bein eða bogin mynstur. Af þessari lýsingu kynni einhver að segja, að þarna væri greinilega um skessu- katla að ræða, en þeir myndast eins og kunnugt er í vatni þar sem sand- ur eða steinar grafa í steininn vegna hringiðu. Skessukatlar víkka út eft- ir því sem neðar dregur, en það er andstætt bollunum í steinunum í Þorvaldsdal. Margir hafa lagt Ieið sína þarna uppeftir til að skoða þessi fyrirbæri og þar á meðal nokkrir vísindamenn og eru mjög skiptar skoðanir um tilurð bollanna. Skiptast menn þar í tvær andstæð- ar fylkingar, önnur segir þetta af mannahöndum gert og hin að nátt- úran sé að verki. Náttúrufræðingur sem skoðað hefur steinana, sagði Víkvetja að eiginlega væru skýring- arnar jafn langsóttar hvorri fylking- unni sem maður tilheyrði. XXX Svipaðir steinar þeim við Kleif hafa fundist kringum Eystra- salt og eru þá kallaðir skálasteinar eða sólarsteinar. Sammerkt með öllum þeim steinum er að skálamar snúa móti sólarupprás eða hádegis- sól og vilja margir tengja þá við sóldýrkendur. Slíkur steinn stendur m.a. í garði Þjóðarsafnsins í Kaup- mannahöfn. Flestir vísindamenn sem reynt hafa að spá í tilurð stein- anna tengja þá fijósemisdýrkun og skálamar séu fijósemistákn. Einar Petersen á Kleif telur að nafnið á fjalhnu sem steinarnir standa í gefí ákveðna vísbendingu um vitneskju sem skrásetjari Landnámu hafi haft um sóldýrkendur á Árskógsströnd, en fjallið heitir einmitt Sólarfjall. Helgi magri landnámsmaður í Eyjafirði gerði sér sérstaka ferð út á Árskógsströnd til að drepa gamla konu, að því er Svarfdæla hermir. Kenning Einars á Kleif er á þá leið, að Þórkatla í Kálfsskinni hafi verið blótgyðja sóldýrkenda og hreinlega hafí skorist í odda milli tveggja gjörólíkra lífsviðhorfa and- stæðra hópa. Fyrir landnám nor- rænna manna hafí búið hér fólk af allt öðrum toga, sem við komu ása- trúarmanna hafi verið þröngvað í þrælastöðu eða út í jaðar hins byggða lands. Sé þessi kenning rétt eru 3-4000 ár síðan ísland var num- ið af t.d. þeim sömu þjóðflokkum og komu til Bretlandseyja fyrir um 4000 árum. Þetta fólk telja sumir að hafí haft náin samskipti við há- menningarríkin fyrir botni Miðjarð- arhafs og trúað því að sólguðinn byggi í norðri þar sem sól sígur aldrei í sjó. Oneitanlega skemmtileg kenning sem hristir upp í viðteknum skoðunum okkar á landnámi og upphafi byggðar í landinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.