Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
Fijónæmi og ferðalög
eftirDavíð Gíslason
Nú er óvenju góðu sumri að ljúka.
Sumarið hefur meiri þýðingu fyrir
okkur íslendinga en flestar aðrar
þjóðir. Margir bíða fneð óþreyju
eftir vorkomunni og óska þess að
sumarið færi þeim sem flesta sól-
skinsdaga. Aðrir láta ekki sólina á
Fróni nægja, en bregða sér í frí til
sólríkari landa.
Þó eru þeir til sem hugsa til sum-.
arsins með nokkuð blandinni gleði.
Það eru þeir sem haldnir eru svo-
nefndu frjónæmi, sem hér á landi
er í flestum tilfellum ofnæmi fyrir
grösum og fijókornum þeirra. Ný-
liðið sumar hefur verið þessu fólki
með erfiðasta móti.
Ekki eru til ábyggilegar tölur um
ijölda þeirra, sem hafa ftjónæmi
hér á landi. Af þeim gögnum, sem
ég hef undir höndum, hef ég áætlað
að 14. hv.er íslendingur fengi fijó-
næmi. í flestum öðrum löndum er
þessi tala nokkuð hærri eða um
10%.
Eins og allir vita er gróðurinn í
hámarki í júlí og ágúst. Það er á
þessum tíma sem grasfijó finnst í
andrúmsloftinu og einkenni ofnæm-
issjúklinga eru mest. Þó verður of-
næmiseinkenna vart nokkru fyrr
eða seinni hluta júní. Einkennin eru
þá alltaf væg og virðast oft tengj-
ast því, að garðar séu slegnir. Það
er líklegt að eimurinn úr heyinu,
þegar það þornar, innihaldi svipaða
ofnæmisvaka og fijókornin.
Myndin sýnir einkenni sjúklinga
með fijókvef og lyijanotkun þeirra.
Könnunin var gerð hér á landi fyr-
ir nokkrum árum, þegar voraði
snemma og tíðarfar var óvenju gott.
Einkennin voru mest þ. 20. júní til
5. ágúst, en það var hálfum mán-
uði_ fyrr en í meðalári.
I flestum löndum, sem við ferð-
umst til, er vorið fyrr á ferð en
hér. Gróðurinn er einnig fjölbreytt-
ari og ofnæmi algengt fyrir lauf-
tijám og ýmsum blómplöntum, sem
ekki valda ofnæmi hér á landi. Það
eru hins vegar grasfijóin, sem
skipta máli fyrir okkur Islendinga.
Þau eru í hámarki í löndunum við
Miðjarðarhaf u.þ.b. einum til tveim-
ur mánuðum fyrr en á íslandi og
hálfum til einum mánuði fyrr í
Norður-Evrópu.
Einkenni fijónæmis eru yfirleitt
miklu meiri í þessum löndum en
hér. Þetta er vegna þess að vorkom-
an er snögg og gróður fljótur að
taka við sér. Fijómagnið í andrúms-
loftinu verður því miklu meira en
þar sem vorkoman er hæg, en líður
líka fyrr hjá en t.d. hér á landi, þar
sem einkenni geta treinst fram í
september.
Ofnæmiseinkennin eru einstakl-
ingsbundin. Sumir hafa einkenni
sem líkja mætti við þrálátt kvef,
en hjá öðrum getur lífið nánast
verið óbærilegt.
Ég er nú komin að þeim atriðum
þessarar greinar, sem ég vil beina
til þeirra, sem reka ferðaskrifstof-
ur. Fólk man alltof sjaldan eftir
ofnæminu þegar það er að gera
áætlanir um sumarferðalögin. Sum-
ir hugsa kannski sem svo, að það
sé best að taka sér gott frí á sólar-
strönd eða njóta sumarsins í öku-
ferð um Evrópu áður en skollans
ofnæmið fari að þjaka það hérna
heima. En þessu fólki verður ekki
að ósk sinni. Það fær nefnilega
miklu verri ofnæmiseinkenni á þess-
um ferðalögum en það hefur vanist
á Islandi. Þegar það kemur lang-
þreytt úr ferðalaginu er fijókorna,-
tíminn að byija hér. Það má gera
sér í hugarlund vonbrigði þess yfir
því að hafa eytt fríi og peningum
til þess eins að lengja ofnæmis-
tímann.
Ferðaskrifstofur gætu komið í
veg fyrir misheppnuð ferðalög af
þessu tagi með því að minna við-
skiptavini sína á hættuna á fijó-
næmi. Það ætti ekki að vera erfið-
ara en að veita upplýsingar um
ýmis önnur atriði sem ferðamann-
inn fýsir að vita, svo sem um sól-
skinsdaga eða hitastig í sjónum á
þeim stað, sem hann hyggst ferðast
til. Með auglýsingum á skrifstofun-
um og í ferðabæklingum mætti
benda ofnæmissjúklingum á að
velja ferðatímann eftir því hvenær
grasfijótíminn er í landinu, sem
hann ætlar að heimsækja. Að sjálf-
sögðu þurfa ferðaskrifstofurnar að
geta veitt upplýsingar um þetta
atriði, en það ætti ekki að vera
erfitt.
í Vestur-Evrópu hafa 40-50
milljónir manna fijónæmi og í
Bandaríkjunum um 25 milljónir.
Þetta fólk myndi sjálfsagt vilja
leggja talsvert á sig til að losna við
óþægindin, sem fylgja ofnæminu.
Davíð Gíslason
„Það er ekki útilokað
að gera megi landið að
griðastað frjónæmis-
sjúklinga þann tímar
sem frjómagn er mest
í andrúmsloftinu á
heimaslóðum þeirra.“
í mörgum löndum eru upplýsing-
ar um fijómagn í andrúmslofti birt-
ar samhliða veðurfréttum. Það er
gert til þess að sjúklingar eigi hæg-
ar með að bregðast við miklu fijó-
magni. Þeir geta hagað ferðalögum
og útiveru í samræmi við þetta, og
flest ofnæmislyf eru fyrirbyggjandi
og þarf að taka áður en einkennin
gera vart við sig.
A dögum mikilla ferðalaga er
staðbundin þjónusta af þessu tagi
ófullnægjandi. Sá sem er að fara
frá Kaupmannahöfn til Parísar hef-
ur meiri áhuga á fijómagni í París
en í Kaupmannahöfn. Af þessum
ástæðum verður komið upp sam-
ræmdu upplýsingakerfi um alla
Evrópu 1992, sem dreifir vikulega
upplýsingum um fijómagn í álf-
unni. Fijónæmissjúklingar geta þá
gert sínar áætlanir um ferðalög og
sumarfrí í samræmi við þessar upp-
lýsingar.
Þrjú síðustu sumur hafa mæling-
ar verið gerðar á fijómagni í and-
rúmslofti í Reykjavík. Gagnasöfnun
var á vegum Veðurstofu Islands og
úrvinnsla á gögnum í höndum
Margrétar Hallsdóttur, jarðfræð-
ings. Kostnaður við rannsóknirnar
var greiddur úr Vísindasjóði og af
SIBS. Rannsóknirnar hafa þegar
veitt gagnlega þekkingu við grein-
ingu og meðferð ofnæmis. Gagn-
semin yrði þó miklu meiri ef hægt
væri að miðla niðurstöðunum til
sjúklinga reglulega, t.d. með veður-
fréttum á fimmtudagskvöldum eða
í hádeginu á föstudögum áður en
lagt er upp í ferðalag helgarinnar.
Kostnaður við fijómælingar er*'
sennilega kr. 500.000 á ári. Ekki
er líklegt að fijómælingum verði
haldið áfram á næsta sumri nema
þær verði hluti af starfsemi Veður-
stofunnar og greiddar úr ríkissjóði.
Með áframhaldandi fijómælingum
gætu íslendingar gerst aðilar að
samstarfi Evrópuþjóða um dreif-
ingu upplýsinga um fijómagn í and-
rúmsloftinu. Með því móti gæti
hver og einn séð hvar fijómagn er
minnst í Evrópu. Þetta gæti haft
ómetanleg áhrif fyrir ferðamanna-
straum til landsins, sérstaklega í
maí og júní, þegar fijómagn er í
hámarki í flestum löndum Evrópu.
Mér skilst að á þessum tíma sé frek-
ar lítið að gera í ferðaiðnaði lands-
,ins._
Ég vil vekja athygli ferðamála-
ráðs á þeim möguleikum sem sér-
staða íslands veitir að þessu leyti.
Það er ekki útilokað að gera megi
landið að griðastað fijónæmissjúkl-
inga þann tíma, sem fijómagn er
mest í andrúmsloftinu á heimaslóð-
um þeirra. Þetta gerist þó ekki af
sjálfu sér, heldur með samstilltu
átaki þeirra, sem fást við landkynn-
ingu erlendis.
Höfundur er sérfræðingur í
ónæmissjúkdónmm.
íslenskt atvinnulíf
eftir 1992
Fundur um áhrif innri markaðar EB á íslensk fyrirtæki
Frummælendur:
Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Jón Steindór Valdimarsson, Félagi íslenskra iðnrekenda. Sérfræðingur í EB-málum
Frá þjónustustofnunum atvinnuveganna:
Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðntæknistofnunar,
Ingjaldur Hannibalsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs
Gunnlaugur Sigmundsson framkvæmdasljóri Þróunarfélagsins.
Fundarstjóri:
Anton Bjarnason framkvæmdastjóri Glerborgar hf.
Jón Sigurösson
Jón Steindór Valdimarsson
Páll Kr. Pálsson
Ingjaldur Hannibalsson Gunnlaugur Sigmundsson
Fundurinn verður haidinn í
Skútunni, Dalshrauni 15, Hafnarfirði. Fimmtudaginn 4 okt. kl. 20.00
IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
Iðntæknistofnun 11
^ ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSIANDS
EXFORT CCXJNCLÖFICEIAND
///
É
FÉLAG ÍSLENSKRA
IÐNREKENDA
\ Þróunarfélas; Islands hf.
s y lcelandicFinanceandlnvestmentPLC.