Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
25
Boeing 737 fórst í lendingu í Canton í Kína:
Sprenging í stjórnklefa
eftir átök við ræningja
Peking. Reuter.
SPRENGING varð í kínverskri
farþegaþotu af gerðinni Boeing
737 í lendingu á flugvellinum í
Canton í Kína í gærmorgun með
þeim afleiðingum að hún enda-
sentist eftir flugbrautinni og
rakst á tvær kyrrstæðar þotur.
Þegar síðast var vitað var tala
látinna komin í 127 menn.
Sprengingin varð í flugstjórnar-
klefa þotunnar eftir átök a.m.k.
annars af tveimur flugræningjum
við flugliða í þann mund sem hún
Norðurlandaráð:
Sendinefnd til
Eystrasalts-
ríkjanna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sjö
manna sendinefnd Norðurlanda-
ráðs haldi til Eystrasaltsríkjanna
þriggja og Moskvu 14. til 20.
október næstkomandi.
Nefndin mun eiga viðræður við
embættismenn og þingleiðtoga í
Eystrasaltsríkjunum, í Vilnius í Lit-
háen 17. október, Riga í Lettlandi
18. október og Tallinn í Eistlandi
19. október. Aður mun hún eiga
viðræður við fulltrúa beggja deilda
Æðsta ráðs Sovétríkjanna í Moskvu
15. og 16. október.
Páll Pétursson, forseti Norður-
landaráðs, verður formaður.sendi-
nefndarinnar.
var að lenda í Canton. Vélin var á
leið þangað frá Xiamen með 93
farþega og 10 manna áhöfn er
henni var rænt. Flugræningjarnir,
sem taldir eru hafa verið kín-
verskir, kröfðust þess að þotunni
yrði flogið til Tævans. Þegar ræn-
ingjamir hafi áttað sig á því að flug-
mennirnir höfðu ekki orðið við þeirri
kröfu og voru í þann mund að lenda
í Canton, hafi annar þeirra ruðst
fram í stjórnklefann með fyrr-
greindum afleiðingum.
Sjónarvottar sögðu að þotan
hefði brotnað í tvennt í lendingunni
og hlutar hennar skoppað inn á
hlað flugstöðvarinnar þar sem ann-
ar þeirra hefði hafnað á tómri Bo-
eing-707 þotu og hinn á Boeing-757
þotu. Sú síðarnefnda var á leið í
áætlunarflug til Sjanghæ og voru
farþegar komnir um borð.
Einhveijir útlendingar munu
hafa verið í tveimur af þotunum
þremur sem við sögu komu en ná-
kvæmar upplýsingar um slysið hafa
verið af skornum skammti og emb-
ættismenn neituðu að ræða við er-
lenda fréttamenn um það. Hermt
er að einhveijir þeirra sem voru um
borð í 737-þotunni hafi komist lifs
af. Vestrænir stjórnarerindrekar
létu í ljós áhyggjur annars vegar
yfir ruglingslegum upplýsingum af
atburðinum og hins vegar mikilli
leynd sem þeim virtist hvíla yfir
atburðinum. Tók það kínversk yfir-
völd 12 stundir að senda frá sér
yfirlýsingu á ensku sem var bæði
stutt og ónákvæm. Kínverska þjóð-
in, rúmur 1,1 milljarður manna,
hafði ekkert fengið að vita um at-
burðinn rúmum hálfum sólarhring
eftir slysið þar sem kínverskir fjöl-
miðlar fluttu engar fréttir af því.
Kínverska flugmálastjórnin kvaðst
ekki hafa skrá yfir farþega flugvél-
anna og því gátu erlendir stjórnar-
erindrekar ekki fengið staðfestan
fjölda eða af hvaða þjóðerni útlend-
ingar um borð hefðu verið.
Reuter
Brak Boeing-757 farþegaþotu kínverska ríkisflugfélagsins á flugvell-
inum í Canton. Eyðilagðist hún er Boeing-737 þota sem sprenging
varð í við lendingu endasentist eftir flugbrautum og hafnaði á henni.
Varað við hættulegnm
moskítóflugum í Flórída
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Heilbrigðisyfirvöld ýmissa byggðarlaga í Flórída hafa nú varað
fólk við því að vera klæðalítið utandyra eftir sólsetur Hefur fólki
verið ráðlagt að vera í síðbuxum og skyrtum með löngum ermum -
og úða sig með vökva sem fælir burtu moskítóflugur. Vökvi þessi fæst
í úðabrúsum í ýmsum stórmörkuðum og lyfjabúðum og heitir „OFF“.
is) gekk síðast yfir Flórída 1975.
Þá létust á þriðja hundrað sjúkling-
ar. Vírusinn veldur bólgu í heila og
sjúkdómseinkennin eru höfuðverkur,
hiti, ógleði og hálsrígur.
Ástæða varúðarráðstafananna er
að sjúklingum með heilahimnubólgu
hefur fjölgað. Smitberinn er
moskítóflugan, sem þrífst best í veð-
urfari eins og verið hefur. í Flórída
að undanförnu, þegar skiptist á helli-
rigning og þurrt veður.
19 sjúklingar hafa gi-einst með
heilahimnubólgu af þessum sökum
í Flórída á skömmum tíma og einn
hefur látist. Grunur leikur á að 67
aðrir sjúklingar í Flórída og tveir í
Houston í Texas séu auk þess með
heilahimnubólgu af völdum moskító-
flugubita. Flusurnar bera smitið
Léleg kosningaþátttaka í Ungveijalandi:
Stj órnarflokkar tapa fylgi
í s veitastj órnarkosningnm
milli sýktra fugla og manna.
Hvorki bóluefni né læknismeðferð
er til gegn þessum sjúkdómi. Þess
vegna hvetja heilbrigðisyfirvöld til
ítrustu varkárni. Moskítóflugan leit-
ar sér helst að fæðu að næturlagi
og sækir þá mest á bert hörund.
Ferðalangar sem koma til Disney
World eru nú hvattir til að fara í
langerma skyrtur og síðbuxur eftir
sólsetur.
Yfirvöld í Indian River County á
austurströnd Flórída hafa beðið
skólayfirvöld að færa alla íþrótta-
kappleiki skólafólks í hús og hvatt
áhorfendur til að hylja sig sem mest
með klæðum. Talið er óráðlagt að
hafast við í tjöldum eða húsvögnum.
Yfirvöld álíta að hættan hafi ekki
enn náð hámarki. Eldra fólk er talið
í meiri hættu en fólk á æskuskeiði
en enginn er þó óhultur ef sýkt fluga
stingur hann.
Faraldur heilahimnubólgu af
þessum stofni (kenndur við St. Lou-
Malasía:
Kjúklings
sárt saknað
Penang, Reuter.
TÍU ára Malasíustúlka fyrir-
fór sér á sunnudag þegar hún
komst að því að eftirlætis
kjúkling hennar hafði verið
slátrað og hann hafður í helg-
armatinn.
Móðir stúlkunnar sagði
fréttamönnum að stúlkan hefði
brostið í óstöðvandi grát er
henni var sagt að kjúklingurinn
á hádegisverðarborðinu hefði
verið sóttur út í hænsnakofa.
Hefði hún síðan rokið inn í her-
bergi og hengt sig.
Búdapest. Reuter.
UNGVERSKU stjórnarflokk-
arnir guldu afhroð í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum í
Ungveijalandi á sunnudag, að
sögn fulltrúa kjörstjórnar.
Flokkar stjórnarandstöðunnar
hlutu 72% atkvæða í höfuðborg-
inni, Búdapest, og 47% í öðrum
helstu borgum landsins. Víða
verður að kjósa aftur vegna
ónógrar kjörsóknar en um 37%
atkvæðisbærra tóku þátt í kosn-
ingunum.
Úrslitin eru tal-
in mikið áfall fyrir
Jozsef Antall for-
sætisráðherra og
samsteypustjórn
hans sem lýtur
forystu flokks An-
talls, Lýðræðis-
vettvangs Ung-
verjalands.
Stjómmálaskýrendur höfðu sagt
að kosningarnaryrðu nokkurs kon-
ar prófsteinn á stefnu stjórnarinn-
ar sem setið hefur að völdum í fjóra
mánuði.
Engar kosningartölur voru birt-
ar en embættismenn sögðu aðeins
að flest atkvæði hefði helsti stjórn-
arandstöðuflokkurinn, Samband
fijálsra demókrata, hlotið og Lýð-
ræðisvettvangur Antalls næstflest.
Einnig að hinn rótttæki flokkur
Band'alag ungdemókrata hafi unn-
ið mikið á í Búdapest og öðrum
borgum. Að sögn fulltrúa kjör-
stjórnar náðu margir . fyrrum
kommúnistaleiðtogar, sem boðið
höfðu sig fram óháð flokkum, kjöri
í dreifbýliskjördæmum þar sem
þeir njóta mikillar virðingar.
Kosningaþátttaka var öðrum
þræði dræm í borgum og sögðu
stjómmálaskýrendur að með því
hefðu kjósendur viljað mótmæla
hinu nýja stjómarfari sem ekki
hefði tekist að minnka verðbólgu,
sem nú er 31,6%, eða draga úr
atvinnuleysi. Verður að efna til
annarrar kosningaumferðar í
mörgum kjördæmum, m.a. í Búda-
pest, 14. október þar eð kosninga-
sókn var innan við 40%. Kosn-
ingaáhugi Ungveija virðist annar
lítill því aðeins 14% þátttaka var
í þjóðaratkvæði um forsetakosn-
ingar í júlí sl.
Joszcf Antall.
Irakar sakaðir um
aftökur í Kúvæt
Nikósíu. London. Reuter.
ÍRASKI innrásarherinn hefur tekið af lífi eða pyntað mikinn
fjölda manna eftir innrásina í Kúvæt 2. ágúst sl. Hundruð
manna hafa verið fangelsuð af handahófi, að sögn mannrétt-
indasamtakanna Amnesty International.
Talsmaður Amnesty sagði að
þær upplýsingar sem samtökin
hefðu viðað að sér bentu til þess
að hrollvekjandi atburðir hefðu
átt sér stað í Kúvæt í kjölfar
innrásarinnar. Víðtækar íjölda-
handtökur hefðu átt sér stað,
fólk hefði sætt pyntingum við
yfirheyrslur, og aftökur án und-
angenginna réttarhalda farið
fram í stórum stíl.
Saud Al-Faisal prins, utanrík-
isráðherra Saudi-Arabíu, hvatti
íraka í ræðu á allsheijarþingi
Sameinuðu þjóðanna í gær til 1
þess að draga innrásarheri sína
frá Kúvæt til þess að menn
gætu einbeitt sér að því að leysa
mál Palestínumanna.
Bandarísíci heraflinn á Persaf-
lóasvæðinu efndi til æfinga í gær
er réttir tveir mánuðir voru liðn-
ir frá innrás íraka í Kúvæt. Sam-
dægurs sigldi flugvélamóður-
skipið Independence inn á Pers-
aflóa, hlaðið 70 bardagaflugvél-
um. Hefur bandarískt flugvéla-
móðurskip ekki komið á þetta
innhaf í 16 ár.
Olía lækkaði í gær rétt niður
fyrir 36 dollara fatið eða um tvo
dollara. Ástæðan mun vera
auknar vonir um að deilan um
Kúvæt leysist friðsamlega og
írakar fari þaðan með innrásar-
heri sína án þess að til átaka
komi.
SIEMENS
Mjó
en
dugleg!
Uppþvottavél
?R.ió2.a
• Breidd: 45 sm.
• 6 þvottakerfi.
• Fjórföld vöm gegn
vatnsleka.
• Hljóðlát og vandvirk.
• Hentar vel þar sem
• fáir eru í heimili eða
þrengsli mikil í eldhúsi. 1
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300