Morgunblaðið - 03.10.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
19
inu. Ég kom á þann fund af því
að mér fannst að þetta gæti kom-
ið mér við, þar sem ég bjó (og bý)
andspænis húsinu, hinum megin
við Lækinn. Á þennan fund komu
mjög fáir, svo fáir að kannski er
ekki einu sinni til um hann fundar-
gerð. Hinsvegar man ég að ég
hafði orð á því á fundinum við ein-
hvern skipulagsstarfsmann bæjaf-
ins að kannski yrði þetta nýja hús -
fullhátt fyrir minn smekk, og þá
átti ég við að það myndi valda því
að ég sæi ekki lengur Grindaskörð-
in úr glugganum fnínum. Talsmað-
ur bæjaryfirvalda fullvissaði mig
aftur á móti um það, að ég þyrfti
ekkert að óttast í því efni; nýja
húsið yrði ekki hærra en turninn
á Steinullarhúsinu hefði verið.
Ég var slíkt barn að trúa þessu.
Ég trúði því' að nýja húsið myndi
ekki koma í veg fyrir að ég gæti
haldið áfram að sjá Grindaskörðin
út um gluggann. En núna er nýja
húsið risið, og það reynist vera
talsyert hærra en mér var talin trú
um á fundinum að það yrði. Og
Grindaskörðin eru fyrir bragðið
algjörlega horfin út úr sjóndeildar-
hring mínum.
Nú er mér fullkomlega ljóst að
einkasjóndeildarhringur minn á
ekki að ráða byggð í Hafnarfirði.
Hins vegar verð ég að gera þá
kröfu til bæjaryfirvalda og skipu-
lagssérfræðinga að þeir segi sann-
leikann á opinberum kynningar-
fundum. Hefði hið rétta um hæð
þessarar byggingar komið fram á
sínum tíma er mjög líklegt að ég
og ýmsir fleiri í nágrenninu hefðu
farið af stað með andmæli í ein-
hveiju formi. Sjálfsagt hefði það
ekki borið neinn árangur, en það
hefði þó verið heiðarleg tilraun, og
ég er satt að segja býsna argur
yfir því að hafa látið blekkingar
hindra mig í að gera þá tilraun á
sínum tíma. Núna er það vitaskuld
orðið of seint.
Höfundur er skólameistari
Flensborgarskólans í Hafnarfirði.
Einar Sveinn Þórðarson listdans-
stjóri við Islenska dansflokkinn.
Nýr listdans-
stjóri við fs-
lenska dans-
flokkinn
EINAR Sveinn Þórðarson hefur
verið ráðinn listdansstjóri við Is-
lenska dansflokkinn tímabundið
frá 1. september að telja.
Einar hóf nám við Listdansskóla
Þjóðleikhússins árið 1969 en fór að
því búnu til framhaldsnáms á árun-
um 1978-82 við School of American
Ballet í New York. Að námi loknu
bauðst honum samningur við Penn-
sylvania Ballet í Philadelphia þar sem
hann dansaði í tvö ár. Eftir það kom
Einar þeim og starfaði með Islenska
dansflokknum um tveggja ára skeið.
Á því tímabili dansaði hann meðal
annars Dafnis í ballettinum Dafnis
og Klói. Að því loknu fór Einar til
Konunglega sænska ballettsins í
tæpt ár og þaðan yfir til Múnchen í
Þýskalandi þar sem hann starfaði frá
árinu 1986 þar til að hann sagði
samningi sínum lausum síðastliðið
sumar. Einar _mun dansa í fyrirhug-
aðri sýningu íslenska dansflokksins
á Pétri og úlfinum sem frumsýnd
verður 18. október næstkomandi.
Opið bréf til bæjar-
stjómar Hafnarfjarðar
Þetta ósmekklega „Hollywood"
skilti, sem byggingaverktakar hafa
reist í Fjárhúsholti í auglýsinga-
skyni, er í um tveggja kílómetra
ijarlægð frá Setbergshlíðinni.
Stærð þessa ferlíkis sést, ef unnt
er að koma auga á mennina, sem
eru að vinna við það að setja skilt-
ið upp.
Setbergshlíð er aldagamalt ör-
nefni í þeim hluta Setbergslands,
sem enn er í Garðabæ. Misnotkun
og tilfærsla þessa gamla örnefnis
er í augum hinna miklu fram-
kvæmdamanna hégómi, sem þeir
láta sér í léttu rúmi liggja. Því mið-
ur hefur þeim tekizt að blekkja
bæjarstjórann í Hafnarfirði til að
veita sér heimild til að setja upp
þetta ferlíki og auglýsa bygginga-
framkvæmdir í „Setbergshlíð".
Setbefgshlíðin verður aldrei flutt
í Fjárhúsholtið, og treystum við
bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að
leiðrétta þessi fljótfærnismistök og
að hún láti fjarlægja þetta fárán-
lega skilti úr Fjárhúsholtinu án taf-
ar, og sjái til þess, að verktakarnir
hætti að auglýsa byggingar í Set-
bergshlíð, sem er í öðru sveitarfé-
lagi, og þar eru engar byggingalóð-
ir til sölu.
Með kveðju og von um skilning.
Afkomendur Jóhannesar
Reykdal.
P.S. Örnefnið Setbergsholt er
ekki til, og væri því vel hugsanlegt
að skíra holtið upp, ef Fjárhúsholt
þykir of „sveitó“. — Það nafn væri
í góðu samræmi við Hvaleyrarholt
í suðurhluta Hafnarfjarðar.
Klæðskerasniðið
Borgarnesstál
úr völdu efni, í völdum litum.
Allt tillegg fylgir.
í klæðningarstáli býður enginn annar
allt það efnisval
og alla þá þjónustu
sem þú getur fengið hjá okkur,
og verðið
er aldeilis sláandi gott.
BÁRUSTÁL OG KANTSTÁL
Útsölustaðir BORGARNESSTÁLS eru á höfuðborgarsvæðinu
og úti um alla landsbyggðina. Hringdu til okkar og fáðu þær upplýsingar
sem þér gagnast, þ.á.m. um þann sölustað sem þér hentar best.
Sími: 93-71296, Fax; 93-71819. Vírnet hf. Borgarnesi.
SAMEINAÐA/SIA