Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
Jólakortin, sem MS félagið selur fyrir þessi jól, eru hönnuð af Erlu
Axelsdóttur.
MS félag Islands safn-
ar fé í byggingasjóð
MS FÉLAG íslands hefur hafið
kynningu á jólakortaútgáfu sinni,
en sala jólakorta er liður í söfnun
til styrktar byggingar húsnæðis
undir starfsemi félagsins.
í samtali við Oddnýju Lárusdótt-
ur, forstöðumann dagvistunar MS
félags íslands, kom fram að MS fé-
laginu hefur verið úthlutað lóð við
Sléttuhlíð í Reykjavík en fynrhugað
er að tengja húsið húsnæði Öryrkja-
bandalagsins á næstu lóð með milli-
gangi. Fyrirhugað er að húsið verði
500 fm að flatarmáli en núverandi
húsnæði MS félagsins í Álandi 13
er einungis 200 fm að flatarmáli. í
því húsnæði, sem félagið leigir af
Reykjavíkurborg, er meðal annars
boðið upp á dagvistun, -sjúkra og
iðjuþjálfun.
Jólakortasala MS félagsins er einn
liður í fjáröflun til byggingar hússins
við Sléttuhlíð en að auki mun félagið
standa fyrir maraþonsundi í þessum
mánuði og hinn árlegi jólabasar fé-
lagsins fer fram í desember.
22 deildir eru innan ITC
í öllum landsfj órðungum
Morgunblaðið/Sverrir
Halldóra Guðmundsdóttir, Hjö/dís Jensdóttir og Ólöf Jónsdóttir
við merki ITC-samtakanna á íslandi.
ITC-samtökin á íslandi eru nú
að hefja vetrarstarf sitt en á
milli 400-500 félagar eru í sam-
tökunum hér á landi. Landsfor-
seti ITC á íslandi er Halldóra
Guðmundsdóttir. Hún sagði að
helstu markmið samtakanna
væru bætt Ijáskipti til að efla
skilning manna á meðal um alla
veröld. Kjörorð ITC á íslandi
er málrækt og verndun tung-
unnar. Samtökin halda kynning-
arfund á Holiday Inn kl. 20.30
á morgun, fimmtudagskvöld.
Á íslandi eru starfandi 22 deild-
ir innan ITC í öllum landsfjórðung-
um. Halldóra sagði að starfsemin
snerist um mannleg samskipti og
væri Iögð áhersia á fundarsköp og
ræðuflutning á fundum samtak-
anna. Einnig væri sérstök þjálfun
veitt í meðferð íslensks máls.
„Við lærum að skipuleggja tíma
okkar, við lærum að skipuleggja
litla og stóra fundi. Það er til að
mynda mikil þjálfun fólgin í því
að fá það verkefni að skipuleggja
tveggja daga ráðstefnu fyrir 100
manns með öllu sem því fylgir,“
sagði Halldóra. Hún bætti við að
samtökin væru jafnt opin körlum
sem konum en öllu fleiri konur eru
skráðar í samtökin.
Hjördís Jensdóttir, formaður
aðildarnefndar ITC og annar vara-
forseti, sagði þátttöku í ITC hafa
komið mörgum til góða og nefndi
að gamlir félagar hefðu starfað
sem þingmenn og margir ættu
sæti í sveitar- og bæjarstjórnum.
Hjördís, sem vinnur hjá stóru
fyrirtæki í byggingariðnaði, sagði
að eftir að hún hóf þjálfun í ITC
sé húp mun betur búin undir starf-
ið. „Ég á betra með að takast á
við dagleg störf og þetta hefur í
raun hjálpað mér mjög mikið,“
sagði Hjördís. Hún bætti því við
að samtökin nytu mikillar .virðing-
ar á vinnumarkaðnum.
Ólöf Jónsdóttir, blaðafulltrúi
samtakanna, sagði að þjálfunin
færi fram á fundum sem haldnir
væru tvisvar í mánuði og þátttak-
endur skiptust á að taka að sér
verkefni, eins og upplestur eða
ræðuflutning. Einnig væri mikil
þjálfun fólgin í að starfa í stjóm
deildanna.
Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar um skattamál:
*
Neysluskattar á Islandi 1988
hæstír meðal aðildarríkjanna
Heildarskattar hér á landi næstlægstir meðal Evrópuþjóða innan OECD
SAMKVÆMT árlegri skýrslu OECD, Efnahags- og framfarastofnunar-
innar í París, um skattamál voru heildarskattar ríkis og sveitarfélaga
á íslandi árið 1988 næstlægstir meðal Evrópuþjóða innan OECD, mið-
að við hlutfall af landsframleiðslu, og það ár voru heildarskattar á
íslandi fimmtu lægstir meðal allra aðildarrílq'a stofnunarinnar. Neyslu-
skattar voru hins vegar langhæstir hér á landi, eða 57% skattheimtunn-
ar, en í aðildarríkjum OECD voru neysluskattar að meðaltali rúm 30%
skattheimtunnar á árinu 1988. Skýrslan tekur nú í fyrsta sinn til ís-
lands, en hingað til hafa íslendingar ekki tekið þátt í störfum á þessu
sviði OECD.
Erna G. Sigurðardóttir.
Erna sýnir í
Stokkhólmi
ERNA G. Sigurðardóttir opnar
sýningu á verkum sínum í Gall-
erí Westlund, Sturegatan 12 í
Stokkhólmi, laugardaginn 6.
október. Hún vinnur með bland-
aðri tækni í tré.
Ema útskrifaðist úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1989 og er nú við framhaldsnám
við The Slade School of Fine Art í
London. Þetta er fyrsta einkasýning
hennar.
Skýrsla OECD um skattheimtu í
aðildarríkjum stofnunarinnar kom
út fyrir skömmu, og kynnti Ólafur
Ragnar Grimsson fjármálaráðherra
helstu niðurstöður hennar á fundi
með fréttamönnum í gær. Hann
sagði að fjármálaráðuneytið hefði
tekið ákvörðun um það fyrr á þessu
ári að taka þátt í skattasamstarfi
OECD, meðal annars í þeim tilgangi
að eyða öllum vafa um hvar Island
stæði í samanburði við önnur aðild-
arríki stofnunarinnar hvað varðar
skattbyrði.
Aðildarríki OECD eru 24 talsins,
en það em 18 ríki Vestur-Evrópu,
Tyrkland, Kanada og Bandaríkinj
Japan Ástralía og Nýja-Sjáland. I
skýrslu stofnunarinnar eru birtar
tölur um öll aðiidarríkin fyrir árið
1988, en bráðabirgðatölur fyrir
nokkur ríkjanna fyrir árið 1989.
Árið 1988 var skattheimta mest
í Svíþjóð af OECD-ríkjum, eða
55,3%, en minnst í Tyrklandi, eða
22,9%. Skattheimta á íslandi nam
31,7% af landsframleiðslu, og var
ísland í fimmta neðsta sæti af aðild-
arríkjunum öllum, ofan við Tyrk-
land, Japan, Ástralíu og Bandaríkin.
Á sama tíma var skattheimta 38,4%
af landsframleiðslu að meðaltali í
aðildarríkjunum, og 40,8% að meðal-
tali í Evrópubandalagsríkjunum.
Á fundinum með fjármálaráð-
herra kom fram að með sömu aðferð-
um og OECD beitir fengist sú niður-
staða að skatttekjur ríkis og sveitar-
félaga hafi numið 34% af landsfram-
leiðslu hér á landi árið 1989, og því
hafi aukningin milli ára verið 2,3%.
„Menn sjá af þessu hvað viðbótin í
sköttunum, sem mjög hefur verið til
umræðu hér á landi síðastliðið eitt
og hálft ár, er í raun og véru lítil
samanborið við heildarskattbyrðina.
Hún er í raun og veru það lítil að
hún dugir ekki til að færa ísland
fram úr neinu landi nema Sviss á
árinu 1989, en áfram eru öll aðild-
arríki Evrópubandalagsins og öll
EFTA-ríkin nema Sviss töluvert fyr-
ir ofan ísland hvað skattbyrði snert-
ir,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
í skýrslu OECD er greint frá sam-
setningu skattheimtunnar í aðild-
arríkjunum, og þar kemur fram að
skattar á vöru og þjónustu námu
rúmum 57% af skattheimtunni hér
á landi 1988, og þar er ísland í lan-
gefsta sæti. Næst koma Portúgal
með rúm 48% og Grikkland með rúm
45%, en að meðaltali voru skattar
af vöru og þjónustu rúm 30% skatt-
heimtunnar í aðildarríkjum OECD.
Tekjuskattar á einstaklinga og fyrir-
tæki voru hins vegar 26,4% skatt-
heimtunnar á íslandi, en rúmlega
38% að meðaltali í aðildarríkjum
OECD.
Samvinnuferöir - Landsýn
Reykjavik: Austurstræti 12, s. 91-691010, Innanlandsferðir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu viö Hagátorg, s. 91 -622277, póstfax 91 -623980.
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588, telex 2195.