Morgunblaðið - 03.10.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
29
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
2. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 101,00 70,00 83,92 4,479 375.936
Þorskur(st.) 96,00 96,00 96,00 0,501 48.096
Þorskur (ósl.) 70,00 70,00 70,00 0,028 1.960
Ýsa 99,00 81,00 93,02 6,308 586.845
Ýsa (ósl.) 79,00 75,00 75,90 1,784 135.486
Karfi 41,00 30,00 35,21 30,714 1.081.367
Ufsi 42,00 25,00 37,62 1,941 73.057
Steinbítur 66,00 30,00 35,74 0,138 4.932
Smáýsa 68,00 68,00 68,00 0,054 3.672
Lýsa ' 49,00 49,00 49,00 0,130 6.370
Skötuselur 145,00 145,00 145,00 0,007 1.015
Langa 58,00 50,00 57,89 3,225 186.691
Keila 20,00 20,00 20,00 0,028 564
Lúða 240,00 120,00 188,11 0,373 70.220
Koli 40,00 15,00 39,74 3,080 122.409
Samtals 51,12 52,794 2.698
FISKMARKAÐUR SUÐURIMESJA hf.
Þorskur
Ýsa 94,00 30,00 87,24 17,987 1.569.177
Þorskur 118,00 43,00 87,99 22,961 2.020.347
Karfi 53,00 46,00 49,59 936 46.419
Ufsi 51,00 10,00 27,30 1,797 49.051
Steinbítur 75,00 53,00 62,56 873 54.615
Langa 61,00 24,00 53,51 5,563 297.686
Lúða 405,00 315,00 373,84 177,50 66.356
Skarkoli 56,00 56,00 56,00 19,00 1.064
Keila 37,00 19,00 30,49 10,376 316.328
Skata 218,00 218,00 218,00 8 1.744
Hnísa 25,00 25,00 25,00 22 550
Lýsa 42,00 31,00 39,18 117 4.584
Undirm.fiskur 30,00 30,00 30,00 28 840
Samtals 72,72 60.903 4.429,151
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA
1 SKIPASÖLUR í Bretlandi 24.-28. september
Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð Magn Heildar-
(kr.) (kr.) (kr.) (lestir) verð (kr.)
Þorskur 2,07 13,475 2.948.412,51
Ýsa 1,78 29.010 5.456.368,39
Ufsi 0,86 5,600 508.642,72
Karfi 1,32 115 16.093,61
Koli 1,37 18,790 2.722.043,21
Grálúða 0,00 0,00 0,00
Blandað 2,00 3,632 769.952,09
Samtals 1,66 70,622 12.421.512,52
Selt var úr FREYJU RE 38
GÁMASÖLUR í Bretlandi 24.-28. september
Þorskur 1,74 363,187 66.919.441,04
Ýsa 1,69 194,976 34.916.873,20
Ufsi 0,78 16,090 1.338.345,57
Karfi 0,90 17,060 1.626.610,89
Koli 1,17 111,590 13.896.785,38
Grálúða 1,49 1,200 189.523,41
Blandað 1,46 65,533 10.177.514,98
Samtals 1,58 770,637 129.065.094,47
SKIPASÖLUR í Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi 24.-28. sept.
Þorskur 4,06 3,490 511.653,98 •
Ýsa 5,05 1,180 215.092,55
Ufsi 2,57 19,245 1.786.036,75
Karfi 2,52 181,954 16.530.490,78
Koli 0,00 0,00 0,00
Grálúða 0,00 0,00 0,00
Blandað 2,19 4,614 363.997,51
Samtals 2,56 210,483 19.407.271,56
1 Selt var úr VIÐEY RE 6
Olíuverö á Rotterdam-markaöi
1. ág. -1. okt., dollarar hvert tonn
JlfofypnuHftfrife
Metsölublað á hverjum degi!
Tölvur á tækniöld:
Ráðstefna um tölvunet o g þrjá-
tíu aðilar með sýningu á tölvuni
YFIR 30 sýnendur taka þátt í
sýningunni Tölvur á tækniöld
sem opnuð verður í Þjóðarbók-
hlöðunni í dag kl. 17. Það eru
tölvunarfræðinemar við Há-
skóla íslands sem standa að sýn-
ingunni sem stendur til 7. októ-
ber næstkomandi.
Á sýningunni gefst fyrirtækjum
í tölvuiðnaði á Islandi kostur að
koma vörum sínum og þjónustu á
framfæri við almenning og auk
þess koma til landsins á vegum
erlendra stórfyrirtækja sérfræð-
ingar í tengslum við sýninguna.
Meðal þess sem kynnt verður á
sýningunni er flughermir og gefst
sýningargestum tækifæri til að
skoða og prófa þetta tölvustýrða
þjálfunartæki. Tveir af stónneist-
urum íslands í skák, þeir Helgi
Ólafsson og Margeir Pétursson,
ætla að etja kappi við nýjar og
öflugar gerðir skáktölva. Þá verð-
ur kynning á tölvuveirum og vöm-
um gegn þeim. Einnig verða
margs konar forrit kynnt á sýning-
unni.
Jafnframt sýningunni ætla tölv-
unarfræðinemar að standa fyrir
ráðstefnu á Hótel Sögu í dag, 3.
október, undir yfirskriftinni Tölvu-
net. í fréttatilkynningu frá sýn-
Sigurður Helgason, prófessor.
íslenska stærðfræði-
Tveir töfra-
menn rúm-
fræðinnar
SIGURÐUR Helgason prófessor
í stærðfræði flytur fyrirlestur á
vegum íslenska stærðfræðifé-
lagsins, sem hann nefnir Tveir
töframenn rúmfræðinnar, Ponc-
elet og Jacobi, á morgun,
fimmtudag.
í herför Napóleons til Moskvu
lenti franski stærðfræðingurinn
Jean-Victor Poncelet í fangelsi í
Saratov á Volgubökkum, þar sem
hann uppgötvaði eina af sínum
frægustu setningum.
Nokkrum árum síðar fann þýski
stærðfræðingurinn Carl G.J. Jacobi,
sem þá var einungis 24 ára gam-
all, mjög merkilega sönnun á setn-
ingunni með allt öðrum aðferðum.
í fyrirlestrinum verður sönnun
Jacobis skýrð og nokkrar afleiðing-
. ar setningarinnar.
Sigurður Helgason hefur verið
háskólakennari vestanhafs frá því
að hann lauk þar doktorsprófi fyrir
háifum fjórða áratug, undanfarin
aldarfjórðung hefur hann verið
prófessor í Stærðfræði við Tæknihá-
skóla Massachusetts í Boston.
Fyrirlesturinn sem er öllum op-
inn, verður haldinn í stofu 101 í
Odda og hefst klukkan 4.30 síðdeg-
is.
félágið:
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK:
28. september -1. október
1990
Þegar á heildina er litið var
frekar rólegt hjá lögreglunni í
Reykjavík þessa helgi.
44 gistu fangageymslurnar.
Tilkynnt var um 6 innbrot og 17
þjófnaðarmál, flest smávægileg.
Aðstoð og önnur þjónustuverkefni
voru 25 talsins. Tilkynnt var um
4 líkamsmeiðsl. Skemmdarverk
voru 21 talsins.
Kærur um umferðarlagabrot
voru 85, auk 26 stöðubrota og
þar af þurfti krani að flytja á
brott 11 ökutæki vegna slæmrar
staðsetningar þeirra. Hraðaakst-
ursbrot voru 36, grunur um ölvun
við akstur í 9 tilvikum og ekið
gegnt rauðu umferðarljósi í 10
tilvikum og önnur umferðarlaga-
brot 30.
Um hádegisbilið á föstudag
varð olíuslys við Ægisgarð. Þar
hafði MT/Bláfell verið að dæla
svartolíu í skip. Slanga losnaði
af dælustút og eitthvert magn af
olíu fór í sjóinn. Dælt var olíueyð-
andi efni.
Föstudagseftirmiðdaginn var
fullorðinn maður staðinn að því
að kaupa áfengi fyrir 16 ára ungl-
inga hjá ÁTVR við Lindargötu.
Lögreglan skarst í leikinn og
færði manninn og einn ungling á
lögreglustöðina. Foreldrum ungl-
ingsins var gerð grein fyrir mál-
inu.
Á föstudagskvöld var bifreið
ekið á hrossahóp á Suðurlands-
vegi móts við Hraungerði. Aflífa
varð þijú hrossanna. Ökumaður
og farþegi meiddust lítilsháttar. Á
föstudagseftirmiðdag varð mjög
harður árekstur tveggja bifreiða
á mótum Suðuriandsvegar og
Reykjavegar og þrír fluttir á
slysadeild og taka þurfti bifreið-
irnar með krana. Einnig aðstoðaði
lögreglan í Reykjavík lögregluna
í Árnessýslu vegna alvarlegs um-
ferðarslyss á Suðuriandsvegi við
Hveradali. Tilkynntir voru 47
árekstrar um helgina. Vert er að
vekja athygli ökumanna á þessum
hættutíma ársins þegar umferð-
aróhöpp og slys eru algengust,
um að þeir aki miðað við aðstæð-
ur.
Töluverður ljöldi fólks var í
miðborg Reykjavíkur aðfaranótt
laugardags og sunnudags, en til-
tölulega friðsamt. Um kl. 3.00
aðfaranótt laugardagsins urðu
þrír lögreglumenn á eftirlitsgöngu
í Austurstræti skammt austan
Veltusunds urðu vitni að því er
unglingspiltur réðst að öðrum pilti
og henti honum á járngrind við
verslunardyr. Árásarmaðurinn
reyndi að forða sér, en lögreglu-
mennirnir náðu honum. Hópur
ölvaðra unglinga reyndi að hindra
lögreglumennina við handtökuna
og voru unglingarnir færðir á lög-
reglustöð. Sjö voru vistaðir í
fangageymslu og færðir fyrir
dómara að morgni. Málum þeirra
var lokið með allt að 20.000 kr.
sektum.
Lögreglumenn á eftirlitsferð á
laugardagsmorgninum veittu at-
hygli illa staðsettri bifreið á Flug-
vallarvegi. I bifreiðinni voru þrír
menn og við nánari athugun kom
í ljós að í bifreiðinni voru laus
útvarpstæki og hátalarar. Um
þetta leyti var tilkynnt um
skemmdarverk á allmörgum bif-
reiðum, aðallega í Fossvogi og
þjófnaði úr sumum þeirra. Vakn-
aði grunur lögreglunnar um að
piltarnir ættu hlut að máli og einn-
ig kom í ljós að bifreiðin sem
þeir voru í var stolin. Grunurinn
reyndist réttur. Umræddir piltar
höfðu brotist inn í tíu bifreiðar,
þar af níu Saab bifreiðar í þeim
tilgangi að stela úr þeim. Einni
höfðu þeir stolið í Kópavogi og
ekið henni í húsagarð þar sem hún
sat föst. Þeir fóru síðan yfir í
Fossvogshverfið og þar inn í níu
bifreiðar og stálu m.a. bifreiðinni
sem þeir voru á þegar lögreglan
hafði afskipti af þeim. Málin eru
í rannsókn hjá RLR.
Friðsamt var aðfaranótt sunnu-
dags. Undir morgun kom maður
á miðborgarstöð en hann hafði
verið sleginn í höfuðið með áfeng-
isflösku. Oljóst var um atvik.
Meiðsli hans eru ekki talin alvar-
leg.
Unnið að undirbúningi sýningarinnar Tölvur á tækniöld í Þjóðarbók-
hlöðunni.
ingaraðilum segir að mörg fyrir-
tæki hér á landi hafi á undanförn-
um árum fjárfest'rangt í tölvubún-
aði þannig að í dag sitji þau uppi
með tölvubúnað sem nýtist þeim
illa. Nú sé hins vegar orðið mögu-
legt að nettengja tölvur með litlum
tilkostnaði og um leið að nýta
betur þann tölvukost sem fyrir er.
Bylting sé að hefjast hér á landi
á sviði tölvuneta. Ráðstefnan er
hugsuð sem vettvangur þar sem
stjórnendum fyrirtækja og stofn-
ana verða kynnt þau hugtök sem
tengjast tölvunetum. Ráðstefnan
stendur frá kl. 10-17.