Morgunblaðið - 03.10.1990, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
37
kjósa sér það hlutskipti. Ástæðan til
þess, að aðilar vinnumarkaðarins
semja í raun um gengislækkanir,
þegar þeir semja um krónutöluhækk-
anir, er sú, að stjórnvöld skrá gengi
samkvæmt kjarasamningum.
IV.
Sú „þjóðarsátt“, sem tekist hefur
um stund, er ekkert annað en nýtt
nafn á gamalli lummu, sem er launa-
stefna á vegum stjórnvalda. í stað
þess að láta kjarasamninga afskipta-
lausa reyna stjórnvöld að hafa áhrif
á þá, svo að launahækkanir fari ekki
úr hófi, gjarnan með því að lofa opin-
berum aðgerðum, skattalækkunum,
félagsmálapökkum eða öðru slíku.
En reynslan hefur hvarvetna sýnt,
að launastefna mistekst fyrr eða
síðar. Hún er ein tegund verðlags-
hafta. Atvinnulífið er ekki eins og
myndse'gulband, sem má frysta með
því að ýta á einn hnapp. Það er í
sífelldri þróun, undirorpið breyting-
um. Laun sumra þurfa að hækka,
annarra að lækka. Það, sem þar
ræður úrslitum, er eftirspurn eftir
þjónustu manna og framboð hennar,
og þetta mælist á einfaldan hátt á
markaðnum: Ef ijörtíu hæfir um-
sækjendur eru um laust starf fiug-
freyju, þá njóta flugfreyjur augljós-
lega of hárra launa. Ef enginn fæst
til þess að gerast götusópari, þá eru
laun þeirra hins vegar of lág. Yfir-
borganir og launaskrið, sem svo er
kallað, leysa þennan vanda að nokkru
leyti, en á ófulikominn hátt. Fijáls
vinnumarkaður væri miklu hag-
kvæmari. íslenskir iaunþeg^r kvarta
gjarnan undan því, að ríkið taki af
þeim samningsréttinn. Þetta er lauk-
rétt. En þeir gleyma því, að verka-
lýðsfélög taka líka af þeim samnings-
réttinn. Verkalýðsfélög hindra það
með ofbeldi eða hótunum um of-
beldi, að fólk fái að ráða sig í störf,
sem losna vegna þess, að aðrir leggja
niður vinnu (þ.e. vegna svonefndra
verkfalla). Hér myndast ekki heil-
brigt andrúmsloft á vinnumarkáðn-
um, fyrr en einstaklingarnir fá hver
og einn aftur sinn samningsrétt og
semja síðan um laun á eigin ábyrgð,
en ekki stjórnvalda.
Ég get ekki lokið þessu skrifi án
þess að minna á það, að stjórnmál
snúast ekki eingöngu um kaldrana-
leg rök fræðimanna, heldur líka um
fólk af holdi og blóði. Við sáum það
í Bretlandi á fyrstu ' stjórnarárum
Thatchers og sjáum það nú aftur í
Austur-Þýskalandi, hvílíkur sársauki
getur verið því samfara að koma
atvinnulífinu í skynsamlegra horf.
Þeir, sem höfðu atvinnu af því í þess-
um löndum að framleiða vöru, sem
ekki er nein eftirspurn eftir eða sem
aðrir gátu framleitt á ódýrari hátt,
misstu hana, og langur tími getur
liðið, þangað til slíkir menn fá aðra
atvinnu. Auðvitað skapaði Thatcher
ekkert atvinnuleysi í Bretlandi og
því síður Kohl nú í Þýskalandi: Þau
komu aðeins upp um það atvinnu-
leysi, sem áður var dulbúið. En það
breytir engu um vandann sjálfan. Á
því leikur enginn vafi, að hér á landi
er mikið dulbúið atvinnuleysi. Hér
eru tvö hagkerfi, eitt á suðvestur-
horninu, þar sem fyrirtæki lúta
sæmilegum aga og óskynsamlegum
rekstri lýkur með gjaldþrotum, annað
víða um Iand, þar sem hundruðum
milljóna er dælt úr almannasjóðum
í vonlausan rekstur. Við þurftum að
aðstoða það fólk, sem býr í gervihag-
kerfinu, til þess að flytja sig í arðbær-
ari störf. Til þess verða stjórnvöld
að hafa ijárhagslegt svigrúm. Svo
Lesörk um
kveðjuna
HJÁ Námsgagnastofnun er kom-
in út lesörkin Kveðja í flokkinum
Lesarkasafn grunnskóla.
Kveðja er ætluð nemendum í
5.-7. bekk grunnskóla og hefur
skilnað og söknuð að meginefni.
Efni bókarinnar er úr ýmsum átt-
um, frumsamið og þýtt, gamalt og
nýtt, og valdi Þórður Helgason ef-
nið og samdi kennsluleiðbeiningar.
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir
teiknaði myndir.
Bókin er 128 bls. sett og brotin
um hjá Námsgagnastofnun, prent-
uð í Steinholti hf. og bundin hjá
Félagsbókbandinu-Bókfelli hf.
5^ % • cs
UTIUF
Sími 82922
Höfundur er lektor í
stjórnmálafræði í
Félagsvísindadeild Hóskóla
íslands.
Metsölublað á hverjum degi!
vel vill til, að þessi vandi er leysanleg-
ur. Ríki og sveitarfélög eiga fjölda
arðbærra fyrirtækja, sem má selja
(eða nota hlutabréf til þess að greiða
fólki laun og styrki). Mér telst til,
að verðmæti þeirra geti numið öllum
fjárlögum ríkisins í eitt ár eða um
áttatíu milljörðum króna. Má þar
nefna ríkisbankana tvo, Landsvirkj-
un, Póst og síma og ýmis önnur fyrir-
tæki. Auk þess getur skynsamleg
skipan fiskveiða fært ríkissjóði
nokkra milljarða árlega í skatttekjur
af þeim fyrirtækjum, sem eftir verða
í greininni, þótt ekki sé reiknað með
öðru en venjulegum tekjuskatti fyrir-
tækja, en ég hef sem kunnugt er
verið mótfallinn sérstökum auðlinda-
skatti á útgerðarfyrirtæki.
Með stórfelldri einkavæðingu má
slá margar flugur í einu höggi:
breyta rekstri fyrirtækja í hagkvæm-
ara horf, veita íslenskum eigna- og
athafnamönnum ný tækifæri til að
spreyta sig og gera ríki og sveitarfé-
lögum fjárhagslega kleift að leysa
þann tímabundna vanda, sem hlýst
af nauðsynlegri endurskipulagningu
atvinnulífsins, eftir að stjórnvöld
hætta að þjarga aðilum vinnumark-
aðarins undan afleiðingum gerða
sinna, en láta sér þess í stað nægja
að halda uppi lögum og rétti, tryggja
almennt afkomuöryggi og sjá okkur
fyrir traustuin peningum.
Islenskum stjórn-
völdum þakkaður
stuðningur við Letta
TALSMAÐUR satntaka Letta í
Bandaríkjunuin kom nýlega eft-
irfarandi yfirlýsingu á framfæri
við islenska sendiráðið í Was-
hington, að sögn utanríkisráðu-
neytisins.
Ég vil fyrir hönd Samtaka lett-
neskra Bandaríkjamanna tjá hug-
heilar þakkir til ríkisstjórnar íslands
fyrir að viðurkenna með svo skjót-
um hætti rétt Eystrasaltsríkjanna
til sjálfstæðis. Ræða utanríkisráð-
herra yðar, Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, hjá Sameinuðu þjóðun-
um var stórkostlegt fordæmi sem
aðrar þjóðir geta notað til að vekja
athygli á málstað Eystrasaltsríkj-
anna. Þjóðir Lettlands, Litháens og
Eistlands munu ávallt verða þakk-
látar íslensku ríkisstjórninni fyrir
að verða fyrst vestrænna stjórna
til að mæla með sjálfstæði Eystra-
saltsríkjanna á þessum erfiðu og
sögulegu tímum. Megi tengslin milli
Islands og Lettlands vaxa og dafna
í kjölfar þessa frábæra upphafs.
Enn á ný, bestu þakkir frá lett-
nesku þjóðinni til ríkisstjórnar yðar
fyrir að taka afstöðu sem byggist
á hugrekki og tryggð við grundvall-
arsjónarmið.
Nýkomið
Karate- og
júdóbúningar, ^
karatehlífar og belti f
Sparið
ryrir
venirinn
PHILIPS - WHIRLPOOL
FRYSTISKÁPAR OG KISTUR
Góð tæki- Gott verð
philips Whirlpool
Heimilistæki hf
SÆTUM 8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20
WðtáuM’Sveúyaitíe^iWKtuitífito