Morgunblaðið - 03.10.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
51
KORFUKNATTLEIKUR
Pétur meo Tlndastóii?
PÉTUR Guðmundsson, sem
verið hefur atvinnumaður í
körfuknattleik í Bandaríkjunum
undanfarin ár, leikur að öllum
líkindum hér á landi í vetur —
með Tindastóli frá Sauðár-
króki. Pétur kemur væntanlega
til landsins í vikunni og verður
löglegur strax í fyrsta leik; gegn
Val, sínu gamla félagi, að
Hlíðarenda á sunnudaginn.
Gunnar Pétursson, formaður
körfuknattleiksdeildar Tinda-
stóls, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi, að aðeins ætti
eftir að ganga frá formsatriðum.
„Við erum að senda Pétri samning-
inn til undirskriftar með telefaxi.
Við erum vongóðir um að hann
kém
FOLK
■ PÉTUR Ormslev nær lang-
þráðum áfanga í dag er hann slær
leikjamet Marteins Geirssonar
fyrir Fram. Leikurinn í dag verður
sá 320. en Pétur lék
Frá Loga fyrst gegn KR á
B. Eiðssyni Laugardalsvellinum
íSvíþjóð 1975. „Ég átti ekki
von á að ná metinu
á þessu ári, eftir að við féllum úr
bikarnum, og nú er bara að gera
þetta eftirminnilegt og skora,“
sagði Pétur.
■ RÍKHARÐUR Jónsson, afí
Ríkharðs Daðasonar framheijans
unga, lék með Fram gegn
Djurgárden í Reykjavík 1948.
Djurgárden sigraði þá 4:2 en sú
markatala mundi ekki duga liðinu
í dag. Ríkharður Jónsson er ein-
mitt í Stokkhólmi í boði Framara,
einnig Guðmundur Óskarsson í
Sæbjörgu, fyrirliði íslandsmeistara
Fram 1962.
■ DJURGÁRDEN er eitt elsta
félag Svíþjóðar og er í miðbæ
Stokkhólms. Liðið var mjög sigur-
sælt á árum áður og varð átta sinn-
um sænskur meistari frá 1912 til
1966. Síðan hefur liðinu gengið illa
að ná í bikar, sigraði þó í bikar-
keppninni í fyrra.
I DJURGÁRDEN leíkur heima-
leiki sína yfirleitt á Stokkhólmsvell-
inum, en mætir Fram á Rásunda-
vellinum sem tekur 45.000 áhorf-
endur, þar af 28.000 í sæti. Þau
verða þó örugglega ekki öll full því
að áhorfendum hefur fækkað veru-
lega eftir að liðið skipti um völl og
eru nú aðeins um 3.000 að meðal-
tali, en voru 9.000 í fyrra.
skrifi undir og verði þá löglegur
með liðinu gegn Val í fyrsta leik
íslandsmótsins að Hlíðarenda á
sunnudag," sagði Gunnar.
Gunnar sagði að stefnan væri
að sjálfsögðu tekin á toppinn í vet-
ur, enda hafi þeir fengið góðan liðs-
styrk að undanförnu. „Ahuginn á
körfuboltanum hefur verið mikill á
Sauðárkróki og ekki minnkar hann
við að fá Pétur hingað."
„Það er mikill styrkur fýrir okkur
að fá Pétur og einnig lyftistöng
fyrir íslenskan körfuknattleik,“
sagði Valur Ingimundarson, lands-
liðsmaður úr Tindastóli, en félagið
hefur fengið tvo aðra nýja leikmenn
frá sl. keppnistímabili. Tékkann
Ivan Jónas og Einar Einarsson frá
Keflavík.
Við gerum okkur grein fyrir að
það verður ekki um marga
valkosti að ræða hjá okkur hér í
Sofm,“ sagði Guðjón Þórðarson,
þjálfari KA, sem leikur seinni leik
sinn gegn CSKA Sofía í Evrópu-
keppni meistaraliða, en KA vann
fyrri leikinn, 1:0, á Akureyri.
„Það er Ijóst að við verðum að
draga okkur meira aftur en i heima-
leiknum. Búlgararnir koma örugg-
lega eins og grenjandi ljón til leiks.
Við ætlum okkur ekki að verða
auðveld bráð fyrir þá, heldur erum
við ákveðnir að taka vel á móti,“
sagði Guðjón, sem mun tefla fram
sama bytjunarliði og lék á Akureyri.
KA-liðið verður þannig skipað:
Haukur Bragason, Hafsteinn
Jakobsson, Gauti Laxdal, Halldór
Halldórsson, Halldór Kristinsson,
Heimir Guðjónsson, Bjarni Jónsson,
Jón Grétar Jónsson, Kjartan Ein-
barsson, Steingrímur Birgirsson,
Ormarr Örlygsson.
Þórður Guðjónsson er ekki með
KA í Búlgaríu, þar sem hann er
að leika með 18 ára unglingalands-
liðinu í Belgíu.
Pétur Guðmundsson á leiðinni heim.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNIN
„Vid verðum að
vera varkárír“
- segirÁsgeirElíasson, þjálfari íslandsmeistara Fram
ASGEIR Elíasson, þjálfari Fram, segist eiga von á
erfiðum leik gegn Djurgárden í dag. „Þetta verður
örugglega erfitt og við verðum að vera varkárir.
Við getum gert ráð fyrir að þeir byrji af miklum
krafti og það er mikið atriði að halda út fyrstu
tuttutu mínúturnartil að auka pressuna. Það er
líka mikilvægt að reyna að nýta skyndisóknirnar
enda ekki nema eðlilegt að gera ráð fyrir að þeir
sæki meira,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði að þijú mörk væru vissulega gott for-
skot, en Framarar væru þó engan veginn öryggir
áfram. „Svíar voru mjög svekktir með tapið í Reykjavík,
enda telja þeir sig vera betri en við. Ég hugsa að ef við
myndum spila fimm leiki mundu þeir vinna
fleiri, en eftir svona tíu til fimmtán leiki
mundi það snúast við. Málið er nefnilega
það að við þurfum fleiri erfiða leiki og ég
er ekki í nokkrum vafa um að í mínu liði
eru betri knattspyrnumenn."
Ein breyting hefur verið gerð á liðínu frá því í fyrri
leiknum. Pétur Arnþórsson kemur inn í byijunarliðið fyr-
ir Baldur Bjarnason. Guðmundur Steinsson og Þorsteinn
Þorsteinsson, sem voru varamenn í fyrri leiknum, verða
ekki með vegna meiðsla. Fram ætlar að leika 3-5-2 leikað-
ferð. Birkir Kristinsson verður í markinu. Jón Sveinsson
aftastur í vörn, Kristján Jónsson hægra megin og Viðar
Þorkelsson vinstra megin og fyrir framan þá Kristinn
R. Jónsson. Á miðjunni verða Pétur Ormslev, Steinar
Guðgeirssön, Pétur Arnþórsson og Anton Björn Markús-^
son og í framlínunni Ríkharður Daðason og Jón Erling
Ragnarsson.
LogiB.
Eiðsson
skrifar
frá Svíþjóð
Pétur Ormslev setur leikjamet.
FH-ingar í Skotlandi:
Dundee United tef lir
fram ungum mönnum
FH og Dundee United Ieika síðari leik sinn í Evrópukeppni félagas-
liða í Dundee i Skotlandi í kvöld kl. 18.30. Skoska liðið vann fyrri
leikinn í Hafnarfírði, 3:1. Skosku blöðin skýrðu frá því í gær að
Dundee mundi gefa ungu leikmönnunum tækifæri í dag þar sem
mótspyrna FH-inga væri ekki mikil.
FH æfði á í flóðljósum á velli Dundee í gær. „Völlurinn er mjþg
góður, eins og teppi og tekur yfir tuttugu þúsund áhorfendur, þar af
átta þúsund í sæti. Reiknað er með að um átta þúsund áhorfendur
verði á leiknum,"" sagði Hörður Magnússon, leikmaður FH, í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
FH-ingar tefla fram sama liði og lék fyrvi leikinn í Hafnarfiðri:
Halldór Halldórsson, Bjöm Jónsson, Birgir Skúlason, Guðmundur Hilm-
arsson, Guðmundur Valur Sigurðsson, Kristján Gíslason, Þórhallur
Víkingsson, Magnús Pálsson, Olafur H. Kristjánsson, Andri Marteins-
son og Hörður Magnússon.
Verðum í varn-
arhlutverki
segir Guðjón Þórðarson, þjálfari KA
Lestar-
stjórar von-
asteftir
sigri Djur-
gárden
Búist við ólátum ef
Djurgárden tapar
Lestarstjórar! Stokkhólnii von-
ast eftir sigri Djurgárden í
leiknum gegn Fram í dag. Fari svo
að sænska liðið komist ekki áfram
gBBHI má búast við mikl-
LogiB. um ólátum en sú
Eiðsson varð raunin er það
skrifar tapaði fýrir
traSviþjóð Norrköping, 2:8,
um síðustu helgi.
Við tapið féll liðið niður i 5.
sæti en ein umferð er eftir að deild-
arkeppninni. kjjögurefstu liðin fara
áfram í úrslitakeppni og bendir
flest til þess að Öster nái 4. sæti,
en Djurgárden verði í því fimmta.
Eftir tap Djurgárden um heigina
voru 90 af hörðustu stuðnings-
mönnum Djurgárden settir í sér-
staka lest fra Norrköping til
Stokkhólms. Þegar hún rann í hlað
í Stokkhólmi var hún nánast tilbú-
in undir tréverk! Sætin höfðu verið
rifin upp, gluggar og veggir brotn-
ir og reyndar nánast allt brotið og
bramlað. Lögreglan beið eftir bull-
unum á lestarstöðinni í Stokk-
hóimi, en skömmu áður en lestin
kom að stöðinni höfðu ólátabel-
girnir stöðvað hana með neyðar-
hemli og stokkið út. Þegar lögregl-
an kom inn ! lestina voru þar að-
eins nokkrir sakieysingjar, lamaðir
að ótta, og bófamir á bak og burt .
Þetta mál, og oibeldi stuðnings-
manna liðsins hefur vakið mikla
athygli og umræðu í Sviþjóð enda
ólæti á knattspyrnuvöilum nánast
óþekkt.
ÚRSUT
Evrópukeppni félagsliða:
Chemnitz (A-Þýskal.) - Dortmund ______,0á
Thomas Helmer (24.), Miehael Rummenigge (50.)
■Dortmund vann samanlagt, 4:0.
Real Soeiedad -1 jmsanne (Sviss)______1:0
John Aldridge (55.)
BReal Sociedad áfram á fleiri mörkum skor-
uðum á útjveili, 3:3.
Evrópukeppni meistaraliða:
Bayem Mhchen - Nicosia (Kýpur)..______4:0
Augenthaler (48.), Mihailovic 3 (63., 89., 90.).
8.000.
■Bayem vann samanlagt, 7:2
Glasgow Rangers - Valletta (Möltu) —..6.0
Davie Ðodds (5.), John Spencer (6.), Maurice
Johnston 3 (23., 37., 78.), Ally McCoist (75.).
20.627
■Rangers vann samanlagt, 10:0.
England:
Fimm leikir voru leiknir í 2. deild:
Bamsley - Ipswich................ 5:1
Oldham - Swindon............... 3:2
Plymouth - West Bromwich.......... 2:0
Watfotd - Hull____________________0:1
Wolves - Chariton—...-.............30
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Gardabær, Stjarnan-Selfoss........20
Höllin, KR-Grótta_—........... 20
Strandgata, Haukar-ÍR..........20
Valsheimilið, Valur-Fram...—18:30
Vestm.,ÍBV-KA................ 20
1. deild kvenna:
Höllin, Fram-FH.............21:15
Strandgata, Haukar-KR-------18:30
Valsheimilið, Valur-Víkingur___20
2. deild karla:
Höllin, ÍS-Ármann...........18:30
Keflavík, ÍBK-UMFN.............20
Strandgata, ÍH-UBK..........21:15