Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 1
72 SIÐUR B/C/D
255. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þrotlausir fundir utanríkisráðherra risaveldanna um Persaflóadeiluna:
Shevardnadze útilokar ekki
beitingu hervalds gegn Irak
Bandaríkjamenn ákveða að senda 100.000 hermenn til viðbótar til Saudi-Arabíu
Moskvu. Bagdad. Brussel. Reuter.
JAMES Baker og Edúard Shev-
ardnadze, utanríkisráðherrar
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna,
áttu þrotlausa fundi í Moskvu í
gær um lausn Persaflóadeilunn-
ar og afvopnunarmál. Eftir níu
tíma fundarsetu sagði Shev-
ardnadze að ekki væri hægt að
útiloka beitingu hervalds. Hing-
að til hafa Sovétmenn og
Kínverjar verið tregir til að sam-
Albanía:
Róttækar
sijómarskrár-
breytíngar
Vín, Tirana. Reuter, dpa.
RAMIZ Alia, forseti Albaníu,
hvatti í gær til róttækra breytinga
á stjórnarskrá landsins auk þess
sem moskur og kirkjur kynnu að
verða opnaðar að nýju eftir að
hafa verið lokaðar í tvo áratugi.
Alia lagði þetta til á fundi mið-
stjórnar kommúnistaflokksins í Tir-
ana, þar sem hann lýsti hnignandi
efnahag landsins, óánægju almenn-
ings og andstöðu harðlínumanna við
breytingar. Forsetinn lagði ennfrem-
ur til að efnt yrði til leynilegra kosn-
inga í febrúar.
þykkja slíkt í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Bandaríkja-
menn sem nú hafa um 210.000
hermenn í Saudi-Arabiu hafa
ákveðið að senda 100.000 her-
menn þangað í viðbót. George
Bush Bandaríkjaforseti sagði að
þetta væri gert til þess að tryggja
árásarmátt alþjóðlega heraflans
ef á þyrfti að halda.
Shevardnadze svaraði spurning-
um fréttamanna síðdegis í gær áður
en hann hélt til seinni fundarlotu
með Baker í gærkvöldi. Hann var-
aði við því að menn ályktuðu sem
svo að Bandaríkjamenn og Sovét-
menn væru ekki sammála um af-
stöðuna gagnvart Irökum. Hann
var m.a. spurður hvort hann teldi
mögulegt að Öryggisráðið ákvæði
að beita heivaldi. „Ekki er hægt
að útiloka slíkt og sú staða gæti
komið upp að slíkra aðgerða yrði
þörf,“ sagði Shevardnadze.
Willy Brandt fyrrum kanslari
Véstur-Þýskalands hefur framlengt
heimsókn sína til íraks og fer heim
í kvöld með 170 vestræna gísla. í
gær átti hann í annað skipti viðræð-
ur við Saddam Hussein íraksfor-
seta. Niðurstaðan varð sú að Sadd-
am ákvað að sleppa 50 vestrænum
gíslum. Eftir fyrri fundinn hafði
■ hann tilkynnt að 120 gíslum yrði
sleppt, einkum Þjóðvetjum. Brandt
sagði við fréttamenn að hann eygði
vissa möguieika á því að hægt
væri að ræða um friðsamlega lausn
Persaflóadeilunnar við Saddam.
Saddam hefur rekið yfirmann
herráðs landsins. Reyndar gerðist
það fyrir þremur vikum en komst
ekki í hámæli fyrr en í gær. Ástæð-
an var að sögn breska dagblaðsins
The Daily Telegraph sú að hers-
höfðinginn hafði ekki skýrt forset-
anum frá bréfí sem hann fékk frá
öðrum herforingjum þar sem hann
er hvattur til að reyna að afstýra
hörmungum þeim sem Saddam
væri að leiða yfir þjóðina.
Morgunblaðið/Börkur Arnarson
Ungfrú heimur
Gina Maria Tolleson frá
Bandaríkjunum var í gær
valin Ungfrú heimur í Lund-
únum. I öðru sæti varð
Ungfrú Irland og Ungfrú
Venezúela varð þriðja. Kepp-
endur voru 81 og varð Ásta
Sigríður Einarsdóttir, full-
trúi Islands, ekki meðal tíu
efstu.
Reuter
Tadeusz Mazowiecki og Helmut Kohl á gangi í
þýsku __ landamæraborginni Frankfurt an der
Oder. I baksýn má sjá Maríukirkjuna.
Kohl og Mazowiecki:
Samningur um
landamærin í höfn
Frankfurt an der Oder. DPA. Reuter.
HELMUT Kohl kanslari Þýskalands og Tadeusz
Mazowiecki forsætisráðherra Póllands náðu í
gær samkomulagi um að landamæri rikjanna
skyldu miðuð við Oder-Neisse-línuna. Verður
samningur um það efni undirritaður í Varsjá í
lok mánaðarins.
Pólveijar hafa lagt ríka áherslu á að ganga frá
samningum um vesturlandamæri sín sem fyrst og
að þau yrðu miðuð við Oder-Neisse-línuna sem mörk-
uð var í stríðslok. Kohl hafði viljað að landamæra-
samningur yrði hluti af allsherjar samstarfssamn-
ingi ríkjanna en féll frá því í gær og gekk að kröf-
um Mazowieckis. Embættismenn í Varsjá töldu þetta
mikinn sigur fyrir pólska forsætisráðherrann og
sögðu möguleika hans á sigri í forsetakosningunum
eftir rúmar tvær vikur hafa aukist. Hermt er að
Kohl hafi í staðinn tryggt sér loforð Mazowieckis
um að í víðari samstarfssamningi ríkjanna yrðu rétt-
indi þýska þjóðarbrotsins í Póllandi tryggð.
Reuter
Mary Robinson forsetaframbjóðandi á írlandi var sigurviss þegar hún heimsótti aðsetur kjörstjórnar í
Dyflinni í gær ásamt eiginmanni sínum Nicholas.
Forsetakosningarnar á Irlandi:
Líkur benda til sig-
urs Mary Robinson
Dublin. Reuter.
LIKUR þóttu í gærkvöldi benda til þess að Mary Robinson yrði fyrst
kvenna kjörin forseti Irlands. Fulltrúar flokkanna, sem voru viðstadd-
ir talninguna og þykja glöggir með afbrigðum, spáðu því að hún myndi
vinna nauman sigur á Brian Lenihan, ákaflega vinsælum stjórnmála-
manni og frambjóðanda stjórnarflokksins Fianna Fail.
Á írlandi er hefð fyrir því að full-
trúar flokkanna, er fylgjast með taln-
ingu atkvæða, spái fyrir um úrslit
kosninga og þykja niðurstöður þeirra
almennt og yfirleitt áreiðanlegar. Er
stuðst í einu og öllu við spásagnir
þeirra en tölvur og önnur rafknúin
tól og tæki koma að öllu jöfnu ekki
við sögu í kosningum á írlandi.
Talnameistararnir sögðu í gær að
of snemmt væri að slá því föstu að
Mary Robinson, sem naut einkum
stuðnings stjórnarandstöðunnar og
vinstri rnanna, yrði næsti forseti ír-
lands. Á hinn bóginn kváðust þeir
hallast að því að Lenihan hefði feng-
ið 44 til 45% atkvæða, Mary Robin-
son 39% og þriðji frambjóðandinn,
Austin Currie, 16-17%. Hins vegar
væri víst að Mary Robinson fengi
meirihlutann af fylgi Currie, er önn-
ur umferð talningarinnar færi fram
í dag, föstudag, en samkvæmt írsku
kosningalöggjöfinni, sem þykir ein
sú flóknasta sem sögur fara af, er
talið á ný á milli tveggja efstu manna
fái enginn frambjóðenda hreinan
meirihluta í fyrri umferð.
Mary Robinson, sem er lögfræð-
ingur að mennt og þekktur kvenrétt-
indafrömuður, kvaðst ekki telja tíma-
bært að fagna sigri en sagði mikia
kjörsókn kvenna gefa tilefni til bjart-
sýni. Hún er 46 ára gömul, þriggja
barna móðir og gift Nicholas Robin-
son, virtum lögfræðingi sem einnig
er þekktur fyrir skopteikningar sínar
af írskum stjórnmálamönnum.