Morgunblaðið - 09.11.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 9. NÓVEMBER 1990-
7
Ólympíumótið í skák í Júgóslavíu:
Islenska sveitin í 7.
sæti í styrkleikaröð
ÍSLENSKA landsliðið í skák
heldur 14. nóvember næstkom-
andi til Novi Sad í Júgóslavíu þar
sem 29. Ólympíuskákmótið fer
fram dagana 1T. nóvember til 4.
desember. Búist er við að rúm-
lega 100 skáksveitir taki þátt í
mótinu en tefldar verða 14. um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Helgi
Ólafsson stórmeistari sagði að
sveitin stefndi að því að verða á
meðal þeirra tíu efstu. íslending-
ar senda ekki kvennasveit að
ars Eyjólfssonar. Kvaðst Helgi eiga
von á því að íslenska sveitin verði
á meðal tíu efstu sveita þegar upp
verður staðið. Besti árangur skák-
landsliðsins á Ólypíumóti til þessa
'var 5. sætið á rnótinu í Dubai 1986
en á síðasta Ólympíumóti hafnaði
sveitin í 15. sæti.
Eimskipafélag íslands hefur
styrkt Skáksamband íslands vegna
þátttökunnar með 1,5 milljöna
króna framlagi.
Islenska skáklandsliðið. Efri röð frá hægri: Jóhann Hjartarson, Helgi
Ólafsson og Margeir Pétursson. Neðri röð frá hægri: Héðinn Steingr-
imsson, Jón L. Arnason og Björgvin Jónsson.
Forsetinn
til Japans
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, fer til Japans í dag
til að verða viðstödd krýningu
Akihito Japanskeisara þann 12.
þessa mánaðar.
Forseti tekur þátt í íslandskynn-
ingu í Tokyo 14.-20. nóvember.
Kynningin er að mestu kostuð af
japönskum fyrirtækjum en 36
íslensk fyrirtæki og stofnanir tengj-
ast henni.
Kornelíus Sigmundsson forseta-
ritari fylgir forseta íslands.
þessu sinni.
Sveitin er þannig skipuð að á 1.
borði er Helgi Ólafsson, Margeir
Pétursson á 2. borði, Jón L. Arna-
son á 3. borði og Jóhann Hjartarson
á 4. borði. 1. varamaður verður
Héðinn Steingrímsson og 2. vara-
maður Björgvin Jónsson. Björgvin
er alþjóðlegur meistari en aðrir í
sveitinni eru stórmeistarar. Héðinn
og Björgvin koma í stað Karis Þor-
steins og Þrastar Þórhallssonar sem
voru varamenn á síðasta Ólypíu-
skákmóti 1988. Fararstjóri verður
Þráinn Guðmundsson, forseti Skák-
sambandsins, Áskell Örn Kárason
verður liðstjóri og sérlegur áðstoð-
armáður sveitarinnar verður Gunn-
ar Eyjólfsson, leikari og skátahöfð-
ingi.
Þátttökusveitum verður raðað í
styrkleikaröð eftir skákstigaijölda
fjögurra aðalmanna hverrar sveitar
og er talið líklegt að Sovétríkin
verði í 1. sæti, Bandaríkin í 2. sæti,
England í 3. sæti, Júgóslavía í 4.
sæti, Ungveijaland í 5. sæti, Holl-
and í 6. sæti og ísland í 7. sæti.
Hvorki Garrí Kasparov heimsmeist-
ari né Anatolíj Karpov verða í so-
vésku sveitinni vegna heimsmeist-
araeinvígisins sem nú stendur yfir.
íslenska sveitin hefur verið í
æfingabúðum og að sögn Helga
Ólafssonar voru skákrannsóknir
stundaðar af elju auk þess sem ein-
beitingar- og slökunaræfingar hafa
verið stundaðar undir stjórn sérlegs
aðstoðarmanns sveitarinnar, Gunn-
Erlendir ferðamenn:
16% fleiri
komu í haust
ALLS komu 7.187 erlendir ferða-
menn til landsins í október. Er
það 906 ferðamönnum fleira en
í sama mánuði í fyrra og nemur
aukningin á milli ára 14,4%.
Fyrstu tíu mánuði ársins komu
fleiri ferðamenn til landsins en
allt síðasta ár.
Fyrstu tíu mánuði þessa árs eru
erlendir ferðamenn orðnir 131.893,
10.144 fleiri en á sama tíma 1989
og hefur orðið 8,39&" aukning á milli
ára. í frétt frá Ferðamálaráði kem-
ur fram að árið verður metár í
ferðaþjónustu því þegar hafa fleiri
erlendir ferðamenn komið en allt
árið í fyrra. Ferðamálaráð segir að
sérstaklega ánægjulegt sé hvað
aukningin sé mikil nú á haustmán-
uðum. Aukningin í september og
október er 16% miðað við sömu
mánuði í fyrra. Svíar og Bretar
valda mestu um aukninguna nú í
haust.
Töluverð breyting hefur orðið á
samsetningu þess ferðamannahóps
sem sækir landið heim. Ferðamönn-
um hefur fjölgað mest frá megin-
landi Evrópu og Bretlandi og einnig
hefur ferðamönnum frá Norður-
löndunum fjölgað. Hins vegar eru
færri Bandaríkjamenn í ferða-
mannahópnum en áður. Frá Norð-
urlöndunum komu 44.630 ferða-
menn í ár (5,1% fjölgun), 20.007
frá Bandaríkjunum (2,7% fækkun),
19.701 frá Vestur-Þýskalandi
(10,2% aukning); 12.815 frá Bret-
landi (15% aukning), 9.844 frá
Frakklandi (23,6% aukning), 5.399
frá Sviss (18,7% aukning),og 3.510
frá Ítalíu (20,3% aukning), svo
nokkur lönd séu nefnd.
.
aru 15 við
LISTMÁLARINN
TÓNLISTAMAÐURINN
IBM A ISLANDI
VERÐLAUNATÓLVAN
9 FATLAÐIR
VERSLUNIN
FERÐAMAL
TUNGA
MULTIMEDIA"
HÖNNUÐURINN
HEILBRIGÐISMÁL
SKRIFSTOFAN
SJÁVARÚTVEGURINN
Frá hverjum þessara
viðkomustaða liggja
nýjar leiðir til aukinna
afkasta, vinnugleði og
lífsfyllingar.
UNDRAHEIMUR IBM í HEKLU
HÚSINU ER OPINN:
Miðvikudag, fimmtudag og föstudag
kl. 13-19
laugardag og sunnudag
kl. 10-19
Börn yngri en 12 ára velkomin í fylgd
með fullorðnum.
AÐGANGUR ÓKEYPIS.
VERÐ1AIH\T
Getraunaseðill með auðveldum
spurningum fylgir hverri
sýningarskrá. í verðlaun verða 3
PS/1 undraverðar heimilistölvur.
Sú nýjasta frá IBM.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLlÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700
I>að verða allir að sjá þessa óvenjulegu sýningu!