Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 31

Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 31
MORGUNBLABIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1900 ASÍ þing 1992: Eining vill halda þingið á Akureyri SÆVAR Frímannsson formaður Verkalýðsfélagsins Einingar hefur lagt fram tillögu í miðstjórn Alþýðusambands Islands þess efnis að kannaður verði möguleiki á því að þing sambandsins, sem iialdið verð- ur árið 1992, verði haldið á Akureyri. Sævar lagði einnig fram sams konar erindi í atvinnumálanefnd og fól hún ferðamálafulltrúa að kanna Tónleikar í Dynheimum Akureyskar hljómsveitir koma fram á tónleikum sem haldnir verða í Dynheimum á morgun, laugardag. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og standa til miðnættis. Fram koma hijómsveitirnar Skurk, Amma Dýr- unn, Exit, Helgi og hljóðfæraleikar- arnir, Norðanpiltar, Svörtu kagg- arnir, Dust og Hrafnar: Sumar þessara hljómsveita eru kunnar, en aðrar að koma fram í fyrsta sinn. Fréttatilkynning málið og skila um það greinargerð. Þorleifur Þór Jónsson ferðamálafull- trúi sagði að niðurstöður yrðu að lík- indum til í næstu viku. Yfir 500 fulltrúar eiga sæti á ASÍ-þingi, en þau eru að jafnaði haldin í nóvember fjórða hvert ár. Sævar sagði að vissulega gæti orðið erfiðleikum bundið að halda þingið á Akureyri, einkum ef haldið yrði fast við að það yrði í nóvember. Yrði það hins vegar fært fram til septem- ber, eða þess tíma er starfsemi í skólum er ekki hafín þá skapaðist möguleiki á að halda þingið í bænum. Sævar lagði og til að kostnaði ein- stakra aðiidarfélaga innan sam- bandsins vegna sambandsstjórnar- funda og alþýðusambandsþinga verði jafnað niður, þannig að kostnaður félaganna vegna hvers fulltrúa verði sem jafnastur án tillits til þess hvar á landinu fundir eða þing verða haldin. Atvinnumálanefnd: Sex sækja um starf SEX umsóknir bárust um starf starfsmanns Atvinnumálanefndar Akureyrar, en umsóknarfrestur er runninn út. Umsóknir verða vænt- anlega kynntar á fundi nefndarinnar innan skamms. Karl Jörundsson stafsmanna- áramót, en þá rennur út þjónustu- stjóri Akureyrarbæjar sagði að gert samningur sem nefndin gerði við væri ráð fyrir að starfsmaður Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar. nefndarinnar tæki til starfa um Saffa Akureyrar kynnt á Amtsbókasafninu SAGA Akureyrar, 1. bindi, eftir Jón Hjaltason sagnfræðing, verð- ur kynnt á Amtsbókasafninu á Akureyri í dag, föstudag, en ein- mitt þennan dag árið 1968 var núverandi hús bókasafnsins vígt og tekið í notkun. Sýningarflekar með myndum og öðru efni úr bókinni verða á báðum hæðum safnsins og kl. 15.30 verður athöfn á safninu í tengslum við útkomu bókarinnar. Formaður menningarmálanefndar flytur ávarp og lesið verður úr bókinni. Öll starfsemi safnsins verður ótrufluð og er þess vænst að sem flestir leggi leið sína á Amtsbóka- safnið síðdegis í dag í tilefni þessa atburðar. Fréttatilkynning Morgunblaðið/Rúnar Þór Efnilegir skákmenn Kiwanisklúbburinn Kaldbakur og Skákfélag Akureyrar héldu skák- mót fyrir grunnskólanema nýlega. Á stærri myndinni sjást hinir ungu og efnilegu skákmenn að tafli. Á minni myndinni eru Einar Jón Gunnarsson í miðjunni, en hann varð efstur nemenda í 7. bekk, við hægri hlið hans er Héðinn Jónsson, sem varð í 2. sæti og Gunnþór Jónsson en hann varð þriðji. Þóra Hjaltadóttir ekki með í prófkjöri Framsóknar: Reynslan af setu á Alþingi auð- veldaði mér að taka þá ákvörðun ÞÓRA Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands, skipaði 4. sæti á lista Framsókn- arflokksins fyrir síðustu kosn- ingar, var í „Akureyrarsætinu“, en hún gefur ekki kost á sér nú. Hún segist ekki treysta sér til að skipta sér á milli svo krefj- andi starfa sem þingmennskunn- ar og heimilisins. Þá segir hún reynslu sína af setu á þingi hafa auðveldað sér þá ákvörðun að draga sig í hlé. „Ég hef tekið þátt í störfum flokksins í mörg ár og oft velt fyrir mér þeim möguleika að setja markið á Alþingi. Sú reynsla sem ég fékk af þeim vinnustað fyrir ári síðan auðveldaði mér að taka þessa ákvörðun, að draga mig út úr slagn- um,“ sagði Þóra. „Það er ætlast til að maður sitji í glansbirtu sjónvarpsljósanna og hlusti, oft og tíðum, á endemis þvælu. Satt best að segja fannst mér sumir þingmenn hafa mjög ein- hliða og takmarkaða þekkingu á því sem þeir voru að tala um,“ sagði Þóra, en hún kvaðst gera miklar kröfur til alþingismanna, stæðu þeir undir þeim, væri ekki svo illa komið fyrir virðingu Aiþing- is. Þar væru vissulega margt hæft fólk, en einnig aðrir sem þar hefðu ekkert að gera. „En það er ekki nóg að gera kröfur til annarra, það verður mað- ur líka að gera til sjálfs sín. Ég treysti mér ekki til að skipta mér á milli svo krefjandi starfa sem þingmennskan og heimilið er. Mér þykir því best að sinna því sem mikilvægara er á meðan mín er þar þörf. Morgunblaðið/Rúnar Þór Þórshanmr opnar bílasölu Þórshamar opnaði fyrir skömmu bílasölu í um 400 fermetra sal við Glerárgötu 36. „Það hefur lengi verið draumur hjá okkur að setja upp bílasölu í góðum sal og nú hefur sá draumur ræst, þannig að við erum afar ánægðir," sagði Ellert Guðjónsson framkvæmdastjóri Þórsham- ars. Sölustjóri er Magnús Jónsson, en hann hefur unnið að margvísleg- um störfum tengdum bílum frá árinu 1955. Jens að sinna starfi ferjumanns yfir Lónið. Tvívegis hefur brúna tekið af, en alltaf var Jens boðinn og búinn til þess að hjálpa fólki yfir Kaldalón og ekki var við það komandi að borga fyrir greiðann. Jens er ágætur smiður og hagur á tré og járn, sem hefur komið sér vel í afskekktri byggð. Ég minnist þess að hann smíðaði t.d. skauta fyrir Árna bróður minn, listilega gerða og flatjárnið hringað upp að framan eins og stolt keisaraskegg. — Þegar Kjartan Halldórsson frá Bæjum hóf að smíða bryggjur við Djúp um miðjan 5. áratuginn var Jens þar á meðal og þeir bræður Engilbert bóndi á Hallsstöðum og hann byggðu bryggjuna á Melgras- eyri árið 1948, á sama tíma var Kjartan Halldórsson á Arngerðar- eyri við bryggjusmíði. En fyrsta bryggjan við Djúp var byggð í Bæjum og fullgerð haustið 1946. Félagslyndur er Jens með af- brigðum og hjálpfús. Þegar ung- mennafélagið ísafold var stofnað 1935 lét hann sitt ekki eftir liggja og réðust félagar í byggingu húss af litlum efnum en þeim mun meiri bjartsýni og var það vígt árið 1940 og gefið nafnið Ásgarður. Upphaf- ið var þó bygging sundlaugar 1934 fram á Dalsal og þar var haldið úti sundkennslu í áraraðir. — Og enn var Jens jafn áhugasamur þá er Átthagafélag Snæfjallahrepps var stofnað 5. ágúst 1972 og bygg- ing félagsheimilisins Dalbæjar hófst, sem var vígt með pomp og pragt 4. ágúst 1973. Árið 1948 keypti Jens hluta úr landi Bæja, þar sem heitir Hærri- bær og heyjaði þar um sumarið og einnig árið eftir og flutti heyið inn að Lónseyri. Fjölskyldan fluttist svo út í Bæi haustið 1950. Eftir tæp- lega 40 ára búskap i Bæjum tóku þau hjón sig upp og fluttust ásamt fóstursyni á sl. ári að Kirkjubæ við Skutulsfjörð í Eyrarhreppi og hófu þar búskap og láta engan bilbug á sér finna. Þá eru einungis þijú býli í byggð í Snæfjallahreppi. Þau eru: Neðribær, Æðey og Unaðsdalur. Ekki hefur Jens farið varhluta af andstreymi lífsins, en öllum erf- iðleikum hefur hann mætt með karlmennsku og æðruleysi. Bænd- ur við Djúp urðu fyrir óskaplegum skaða síðari hluta sjöunda áratug- arins og fram á þann áttunda af völdum kals í túnum. En gríðarleg ræktun hafði átt sér stað áratuginn á undan þessum hörmungum. En 11. febrúar 1973 varð Jens fyrir því, að missa 130 fjár í aftaka veðri og áhlaupi sem skall á eins og hendi væri veifað. Bætur fyrir þennan skaða voru litlar og komu seint og um síðir. Hér hefur einung- is verið stiklað á stóru í minninga- brotum úr lífsbók Jens Guðmunds- sonar. En á vetrum í fannfergi við Djúp er Djúpbáturinn Fagranes eina samgöngutækið og hefur lengstum annast alla flutninga fyr- ir héraðið. Það segir sig sjálft, að í slíkri einangrun og fámenni er einstaklingurinn enn mikilvægari heldur en í fjölmenni. Aðstæðurnar skapa einnig betri félagsanda og samheldni. Jens í Kaldalóni hefur verð fréttaritari Morgunblaðsins í tvo áratugi. Á undan honum var það Páll bóndi Pálsson í Þúfum, sem hafði það á hendi frá 1945. Auk fréttapistla frá Djúpi hefur Jens svo blandað sér í þjóðmálaumræð- una og ritað kjarnyrtar greinar í þeim efnum eins og vikið er að í upphafi þessa greinarkorns. Von- andi eiga lesendur eftir að sjá hvort tveggja enn um langa hríð. — Ég óska svo mínum kæra vini hjartan- lega til hamingju á þessum tíma- mótum í lifi hans og þeim hjónum allra heilla um ókomna tíð í nýjum heimkynnum. ■ LEIKFÉLÖGIN innan Banda- lags íslenskra leikfélaga helga áhugaleiklistinni laugardaginn 10. nóvember í tilefni af Bandalagsdeg- inum. Tilgangur með Bandalags- deginum er að efla innra starf og kynna almenningi starfsemi áhuga- leikfélaganna. Ungmennafélagið Islendingur í Borgarfirði sýnir þennan dag í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit gaman- og söngleik- inn Sídin kemur og síldin fer eft- ir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur undir leikstjórn Ing- unnar Jensdóttir og er þetta niunda sýning félagsins. En Ung- mennafélagið Islendingur lætur ekki þar við sitja því að kvöldi laug- ardagsins 10. nóvember tekur fé- lagið þátt í sameiginlegri skemmtun áhugaleikfélaganna í Borgarfirði á Hlöðum á Hvalfjarðarstfönd. Skemmtunin sem haldin er annað árið í röð er opin almenningi og til skemmtunar verður m.a. söngur, ljóðalestur og frumsamdir leikþætt- ir. TÖLVUR Fyrirtæki á Akureyri, sem selur tölvur og hugbúnað, leitar að tölvufræðingi eða manni með mjög víðtæka þekkingu og reynslu á tölvum og hugbúnaði. Starfið er laust nú þegar. Umsóknareyðublöð og upplýsingar aðeins á skrifstofunni. iiIIRÁÐNINGAR Endurskobun Akureyrí hfGlerárgötu 24, sími 26600 Hjalti Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.