Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 34

Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 Afmæliskveðja: .Bragi Siguijónsson Það hafði hélað um nóttina. Rísandi haustsólin náði ekki að þíða frostrósirnar á framrúðu jepp- ans. Þó hafði rignt í gær þegar við renndum í hlað. En á öræfum gerast mörg undrin. Ég hafði farið jafnfætis Braga fram úr til að mynda fyrstu geisla sólarupprisu, þennan firnafagra ágústmorgun klukkan fímm. Snæfellið hafði tek- ið hattinn snemma ofan um kvöld- ið og vaknað berhöfðað inn í •mheiðríkan himininn. Nú reið á að skafa bílrúðurnar til þess að geta ekið upp á Sauðahnjúk, því andrá- in gæti glatast ef við gengjum alla leið. Og þarna í kaldri kyrrðinni upp við vörðu bauð hún góðan dag, fjallamóðirin sem hafði fylgt okkur alla ferðina. Hún bar hvorki slæðu né sjal, eins og hún vildi leiða athyglina aðeins að sér. Eða óttaðist hún kannski samkeppni, sá okkur hvarfla augum frá sér fjallahringinn: Fagradalsfjall, Kverkfjöll, Trölladyngja, Dyngju- fjöll. Hún heitir ekki að ófyrirsynju Herðubreið. Það er á slíkum ögrunarstund- ^aiim sem ég hef óskað þess að vera skáld! Tengdafaðir minn hefur þá náðargáfu, tók þann arfinn frá skáldbóndanum, föður sínum, sem skrifaði perluna Skriftamál ein- setumannsins, og skilaði sprotan- um til sonar síns, Siguijóns, sem orti sér til hugarhægðár meðan húsin sváfu. Bragi Siguijónsson, skáld og rithöfundur, tryggingafulltrúi, kennari, ritstjóri, alþingismaður, bankastjóri og ráðherra er fæddur 9. nóvember 1910. Foreldrar hans voru Siguijón Friðjónsson, bóndi og skáld, á Sandi í Aðaldal, síðast á Litlu-Laugum í Reykdælahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu, og kona hans, Kristín Jónsdóttir, húsfreyja - á Sandi, Einarsstöðum og Litlu- Laugum. Bragi lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1931, stúdentsprófí frá Menntaskólanum á Akureyri 1935 og stundaði nám í norrænudeild Háskóla íslands 1935-36. Hann var kennari við Reykdælaskóla 1936-38 og við Gagnfræðaskóla Akureyrar og Iðnskólann á Akureyri 1938-47. Fulltrúi hjá bæjarfógetanum á Akureyri við almannatryggingar 1946- 64, útibússtjóri Útvegsbanka íslands á Akureyri 1964-78, al- þingismaður Alþýðuflokksins 1967-71 og 1978-79, iðnaðar- og landbúnaðarráðherra í ráðuneyti Benedikts Gröndals 1979-80. Hann hefur gegnt margháttuðum félags- og trúnaðarstörfum um fjörutíu ára skeið frá 1946. M.a. var hann fulltrúi í bæjarstjórn Akureyrar 1950-54 og 1958-70 og forseti bæjarstjórnar 1967-70. Formaður Alþýðuflokksfélags Ak- ureyrar 1944-48, 1950 og 1951-56 og í stjórn Alþýðuflokks íslands 1950-79. í stjórn EÍliheimilis Akur- eyrar 1966-74 og í stjórn Menning- arsamtaka Norðlendinga 1980-85. Endurskoðandi Síldarútvegsnefnd- ar og Tunnuverksmiðju ríkisins frá 1958. Níu frumsamdar ljóðabækur hafa komið út eftir Braga og um þessar mundir kemur út bókin „Af erlendu'm tungum“, ljóðaþýðingar af Norðurlandamálum og ensku. Auk þess hefur hann sent frá sér smásögur og frásagnir, athafna- sögu „Skapta í Slippnum“ og að ógleymdu ritsafninu Göngur og réttir sem kom út á árunum 1948-54 og síðan aukið og endur- bætt 1983-87. Bragi ritstýrði tíma- ritinu Stíganda 1943-49 og viku- blaðinu Alþýðumanninum 1947- 64. Ótaldar eru aðrar blaða- og tímaritsgreinar, sem varla verð- ur komið tölu á. Loks ber þess að geta að á yngri árum tók hann virkan þátt í íþróttum, einkum glímu, og hlaut gullmerki Iþrótta- sambands íslands árið 1970. Árið 1936 kvæntist hann Helgu Jóns- dóttur Júlíusar Jónatanssonar, járnsmiðs á Akureyri, og konu hans, Þórunnar Friðjónsdóttur, húsfreyju. Börn þeirra eru: Sigur- jón, bankamaður, f. 24. apríl 1937, d. 4. febrúar 1976, Ilrafn, f. 17. júní 1938, hæstaréttardómari, Þór- unn, deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu, f. 13.' september 1940, Gunnhildur, sjúkraliði við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, f. 5. desember 1941, Ragnhildur, starfsmaður íslandsbanka á Akur- eyri, f. 1. febrúar 1944, og Úlfar, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals, f. 22. apríl 1949. Hér er aðeins stiklað á stóru um starfsævi Braga. Hún skiptist óvenju skýrt í þrennt, kennslu- og uppeldisstörf, félags- og stjórn- málastörf, skáldskap og ritstörf. Fjórða þættinum vildi ég bæta við: Ferðalögum og hvers konar nátt- úruskoðun og útivist. Margur mað- urinn gæti öfundað Braga að geta helgað sig því hjartans máli svo sem raun ber vitni, kominn á níræðisaldur. Maður með slíkan starfsferil að baki hlýtur að vera óvenjuvel gerð- ur til sálar og líkama. Því fremur eru afköstin furðuleg að Bragi hefur alla tíð virst hafa nægan tíma til allra verka. Aldrei hef ég séð hann stressaðan eða að flýta sér. Raunar finnst mér að hann hafi alltaf verið að leggja kapal þegar ég hef komið í heimsókn eða að lesa reyfara, en það er íþrótt þeirra Þórunnar, dóttur hans, að skiptast á þeim bókmenntum. Ég veit ekki um nokkurn mann sem betur á við orðtakið „morgunstund gefur gull í mund“. Þegar aðrir eru að vakna er Bragi nánast bú- inn að ljúka a.m.k. hálfu dags- verki. En hann er Iíka háttaður þegar aðrir byija að vaka, t.d. við að glápa á sjónvarp. Hér er komið helsta aðalsmerki Braga: Reglu- semin. Hann hefur alla tíð verið bindindismaður á tóbak og vín en lætur aðra í friði sem það vilja brúka og prédikar aldrei. Ég held að ungi íþróttamaðurinn úr Reykjadal, listaglímumaðurinn, hafí ákveðið snemma að það sam- rýmdist illa hugmyndum hans um manngildi og heilsusamlegt líferni að drekka frá sér ráð og rænu eða reykja sér til óbóta. Hið háttfasta og skynsamlega líferni Braga á örugglega öðru fremur þátt í því að maðurinn nýtur þess nú, við aftanskin, að hlaupa nær árlega eins og unglamb á Súlur. Þaðan getur hann horft stoltur yfir geng- inn æviveg á Akureyri þar sem hann situr nú á friðarstóli. Þar er sannarlega „heiðríkja að kvöldi" eins og minn gamli, góði lærifaðir og málsnillingur, Gísli Jónsson, nefnir svo fallega ritdóm sinn í Morgunblaðinu á síðasta ári um nýútkomna ljóðabók Braga, Ein- mæli. Þar segir m.a.: „Ég hef fylgst nokkuð með ljóðagerð hans, einkum hin síðari ár, og ég undr- ast hversu fijór hann er enn, bæði mikilvirkur og góðvirkur.“ Ritdóm- inn endar Gísli á þessum orðum: „Hafi svo Bragi Siguijónsson þökk mína fyrir ljóðin sín, fyrir karl- mennskuna, sáttfýsina, dugnaðinn og æðruleysið . .Betur verður ekki ævikvöldi Braga lýst. Bragi Siguijónsson er fríður maður sýnum, bjartur yfirliti og vel á sig kominn. Hann blæs ekki úr nös, hvort heldur er um líkam- lega eða andlega iðju er að ræða. Mér er sagt að hann sé skapmikill og geti jafnvel reiðst og þá sé eins gott að biðja guð að hjálpa sér. En svo vel stillir hann skap sitt að ég myndi fremur lýsa honum sem blíðum manni. Hann er frábær sögumaður enda fróður með af- brigðum. Hef ég fyrir satt að hann hafí einnig verið mælskumaður á mannþingum. Tupgutakið er svo íslenskt að sumum finnst það á stundum fornt og tyrfið enda er hann gjörkunngur fornbókmennt- um, ekki síður en nútíma skáld- skáp. Því ber gleggst vitni vandað bókasafn hans, þar sem næstum hver bók hefur verið lesin. Um rit- færni hans og ritleikni á hvaða sviði sem er þarf ekki að hafa mörg orð. í því efni eru hin íjöl- mörgu ritverk hans órækasti vitn- isburðurinn. Yfirburða þekking hans og smekkvísi á mál og stíl er svo mikil að sá er við hann á orðastað fer ósjálfrátt að vanda málfar sitt. — Bragi er skoðana- fastur og hefur alla tíð verið sam- kvæmur sjálfum sér, gjörsamlega laus við hroka og tildur. Það nefn- ist að vera mikill af sjálfum sér. Samt segir honum mannvitið að sveigjanleiki geti verið nauðsyn. Stundum finnst mér hann jafnvel láta á sig ganga, t.d. í samskiptum við flokkinn. Jafnaðarstefnan hef- ur hins vegar alla tið verið honum svo heilög að hann hefur hvorki hirt um daglaun né vegtyllur að kveldi. Nægir að minna á ritstjórn- arstörf hans við Alþýðumanninn, þar sem hann var ekki aðeins rit- stjóri, heldur einnig prófarkalesari, auglýsingastjóri, útsölumaður, dreifingaraðili og fjárhaldsmaður. Það starf eitt hefði nægt meðal- manni. Síðast en ekki síst er Bragi karlmenni. Því til sönnunar segi ég aðeins eina sögu. Fyrir fáum árum laskaðist hann á baki' er honum datt í hug að hlaupa upp á Blámannshatt einn vordaginn. Á leiðinni niður varð fyrir snjóskafl mikill og höfðu sumir þann hátt á að renna sér niður hann. Sennilega hefur meðfædd háttvísi og snyrti- mennska Braga og tillitssemi við Helgu, konu sína, ráðið því að hann fór ekki eins að og aðrir og lét sig hafa það að ganga á hælun- um niður harðfennið. Mun hann við það hafa skaddað hrygginn. Svo sem þeir vita, sem reynt hafa, fylgja slíku áfalli ómældar kvalir og svo fór fyrir Braga að vinstri fótur hans varð máttlítill um heils árs skeið. Gat Bragi raunverulega hvorki staðið, legið né setið, en það var fjarri honum að gefast upp. Hann hóf að æfa sig í gönguferð- um um Kjarnaskóg, bætti við sig á hveijum degi, og svo er nú kom- ið að hann kennir sér einskis meins. Hræddur er ég um að margur yngri maðurinn lægi nú annað- hvort á sjúkrahúsi eða í endurhæf- ingarstöð. — Ef ég ætti að lýsa Braga í einni stuttri setningu væri hún svona: Hann er maður vaskur til orðs og æðis. Nú segist Bragi vera áttræður. Ef ég vissi ekki betur myndi ég væna hann um skreytni. Til marks um það nægir að nefna ferðina okkar í haust. Þá lögðum við Hafrahvamma að fótum okkar í bókstaflegri merkingu. Svo mjög heillaði þessi náttúruparadís að við gengum æ lengra og lengra og hugðum ekki að ferð til baka. Það var ekki burðugur bílstjóri er loks- ins náði brúninni þangað sem „sá Arni Ragnar Árnason „Maður úr atvinnutífi Suðumesja sem við styðjum til Alþingis. “ Tryggjum Áma Ragnari 3. sæti íprófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi Það eru 27 ár síðan þingmaður, búsettur á Suðurnesjum, hefur setið Alþingi á Islandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Andrés B. Sigurðsson, framkvstj., Garðabæ Eydís Lúðvíksdóttir, listamaður, Mosfellsbær Hilmar Magnússon, útgerðarmaður, Keflavík Hjörleifur Hringsson, sölustjóri, Kópavogi Reynir Sveinsson, rafvmeistari, Sandgerði Teitur Lárusson, ráðgjafi, Seltjarnarnesi Bygging hjúkrunarheimilis Magnús L. Sveinsson Séra Sigurður H Guðmundsson Félagsfundur: Verzlunarmannafélag Rcykjavíkur heldur almennan félagsfund að Hótel Sögu, Súlna- sal, sunnudaginn 11. nóvember n.k. kl. 15:00. Fundarefni: 1. Kynnt skipulagsskrá fyrir umönnunar- og hjúkrunarheimilið Eir. 2. Tekin ákvörðun um þátttöku Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur í byggingu hjúkrunarheimilis. Framsögumenn: Magnús L. Sveinsson, formaður V.R. Séra Sigurður H. Guðmundsson, for- maður stjórnar Skjóls. Fundarstjóri: Elín Elíasdóttir, varaformaður V.R. Elín Elíasdóttir Félagsmcnn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur eru hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í ákvörðuna'rtöku um þctta þýðingarmikla mál. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.