Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 40
OCCt 51MHMMVÓM ,C HUDACIUT8Ö'l GiqAJflM'JOHOM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 Kristín Geirs- dóttir — Minning Fædd 3. janúar 1908 Dáin 3. nóvember 1990 Látin er í Reykjavík Kristín Geirsdóttir í 83. aldursári. Kristín fæddist 3. janúar 1908 í Múla, Biskupstungum, yngsta barn hjónanna Guðbjargar Oddsdóttur og Geirs Egilssonar. Guðbjörg var fædd 30. júní 1879 á Gamla-Hliði, Álftanesi, d. 29. desember 1972, dóttir hjónanna Odds bónda í Melshúsum, f. 4. júní 1849, d. 28. maí 1897, Erlendsson- ar bónda á Svarfhóli í Flóa, Ólafs- sonar, og Hallgerðar Snorradóttur, f. 10. febrúar 1854, d. 28. júlí 1937, Jónssonar bónda á Selfossi. Geir, bóndi, búfræðingur og kennari, var fæddur 10. marz 1874, d. 5. ágúst 1916, sonur hjónanna Egils bónda og hreppstjóra í Múla, f. 9. júní 1822, d. 24. febrúar 1881, Pálssonar, bónda í Múla, Þorsteins- sonar og Önnu Jónsdóttur, f. 6. október 1833, d. 2. júlí 1914, prests á Breiðabólstað, Fljótshlíð, Hall- dórssonar, og konu hans, Kristínar Vigfúsdóttur, sýslumanns, Þórar- inssonar. Kristín Geirsdóttir bar nafn Kristínar langömmu sinnar í föður- ætt. Systkini Kristínar voru Anna, f. 14. apríl 1901, d. 20. janúar 1933; Oddgerður, f. 6. nóvember 1902, býr í Reykjavík, og Egill, f. 11. júlí 1905, bóndi í Múla. Hálfsystir Kristínar er Geira B. Parris, f. 6. febrúar 1923, búsett í Bandaríkjun- um. Geir í Múla, faðir Kristínar, féll frá á bezta aldri af völdum tauga- veiki. Var hann harmdauði öllum enda í miklu afhaldi fjölskyldu sinnar og sveitunga, ekki sízt vegna stakrar manngæzku. Guðbjörg bjó með börnum sínum í Múia fyrstu árin eftir lát Geirs, en árið 1919 brá hún búi. Flutti hún til Reykjavíkur með börn sín og hafði þar matsölu, en leigði jörðina. Kristín, sem var aðeins 11 ára gömul þegar fjölskyldan fluttist, gekk í barnaskóla hér í Reykjavík og síðar í kvöldskóla. Kornung sigldi hún til Danmerkur til náms á lýðháskóla og vann síðan skamm- an tíma í Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna starfaði Kristín ásamt Önnu, systur sinni, í Tryggvaskóla á Selfossi. Þær systur báðar kynnt- úst mannsefnum sínum þar. Kristín giftist 19. október 1929 Kristjáni Sigurði Elíassyni, f. 31. maí 1899, d. 9. nóvember 1977, síðast starfandi í mörg ár sem verk- stjóri hjá Eimskipafélagi íslands. Þau hjón eignuðust ijögur börn. Fyrsta barnið, Guðbjörgu, sem fædd var 22. febrúar 1931, misstu þau aðeins nokkurra mánaða gamla 23. september sama ár. Hin börnin eru Geir, f. 16. janúar 1934, kvænt- ur Önnu Gísladóttur, eiga tvö börn og þijú barnaböm; Ánna Guðbjörg, f. 3. febrúar 1935, var gift Ólafi Hannibalssyni, eiga þijú börn, og yngst er Halldóra Elísabet, f. 25. júní 1944, gift Daða Ágústssyni, eiga þijú böm. Þau Kristín og Kristján hófu búskap í nábýli við fjölskyldu Krist- jáns á Urðarstíg, en fluttu síðan á Bræðraborgarstig 4. Þegar Anna, systir Kristínar, dó úr lungnabólgu frá þremur ungum sonum, tóku þau hjónin yngsta drenginn, Torfa, í fóstur. Nokkru síðar skipuðust mál þann veg, að þau hjónin fluttu á Sólvallagötu 18 og héldu heimili með Ásgeiri L. Jónssyni, mági Kristínar, og sonum hans þremur eða þar til Ásgeir kvæntist aftur árið 1937. Á vetmm var Guðbjörg, móðir Kristínar, einnig á heimilinu. Vom þessi ár sonum Önnu ákaflega dýrmæt, enda veitti Kristín þeim ómælda ástúð og umhyggju bæði þá og síðar. Heimili Kristínar og Kristjáns stóð lengst á Njálsgötu 102. Starfs- vettvangur Kristínar var innan veggja heimilisins og fórust henni húsmóðurstörfin hið bezta. Kristín Geirsdóttir var fremur hávaxin kona, sviphrein og fríð. Hún var hæglát en það, sem ein- t Elskuleg eiginkona min og móðir, KRISTÍN S. JÓHANIMESDÓTTIR, lést á Landakotsspítala 7. nóvember. t Björn Benediktsson, Agnar Björnsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, SIGFÚSÍNA SIGFÚSDÓTTIR, Langholtsvegi 188, lést 7. nóvember. Margrét Þorvaldsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Margrét Ágústa Þorvaldsdóttir. t Systir okkar, SOFFÍA GUTTORMSDÓTTIR fyrrv. ráðskona, Kópavogshæli, lést miðvikudaginn 7. nóvember. Sölvi Guttormsson, Droplaug G. Helland. Fóstursystir mín, + PETREA INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR frá Þúfukoti íKjós, til heimilis á Reykjalundi, Mosfellssveit, lést miðvikudaginn 7. nóvember. Sólveig Einarsdóttir. kenndi hana sérstaklega, var ein- stök geðprýði. Þó bjó hún yfir nokk- uð ríkri skaphöfn, en fór vel með. Kristín var félagslynd, ræðin og skemmtileg og hafði stálminni. Henni var létt um hlátur og sá gjarnan spaug í orðum og athöfn- um. Hún var einstök móðir, auð- sýndi bæði börnum sínum, barna- börnum og systkinabömum ást, blíðu og umburðarlyndi, enda gerði hún sér far um að skilja barns- sálina. Ef til vill hefur föðurmissir á unga aldri, missir litlu dótturinn- ar, Guðbjargar, svo og fráfall Önnu, systur hennar, haft þar nokkur áhrif. Kristín kunni þá list að taka heilshugar þátt í gleði og sorgum fjölskyldu sinnar og vina, enda var hún bæði vinmörg og vinföst. Hjónaband þeirra Kristínar og Kristjáns var með fágætum far- sælt. Þau voru ákafiega samrýnd og með þeim var jafnræði. Bæði virtu þau þarfir og þrár hvort ann- ars og ástareldurinn þeirra bliknaði hvergi þótt árin færðust yfir. Frá- fall Kristjáns var Kristínu því þung- bært, en hann lézt eftir erfíð veik- indi. Kristín bjó ein eftir lát manns síns. Síðustu árin fór heilsu hennar hnignandi. Hennar lán var þá að eiga góð börn og barnabörn, sem vildu henni allt það bezta, og ág- ætt sambýlisfólk. Er á engan hallað þó sérstaklega sé getið nábýlisfólks hennar á Njálsgötunni, þeirra Krist- ins Árnasonar og Ingu Jóhannes- dóttur. Þau reyndust Kristínu með afbrigðum vel, ávallt með útréttar hjálparhendur. Umhyggjusemi Kristins átti dijúgan þátt í því, að henni auðnaðist að dvelja á heimili sínu þar til fyrir nokkrum vikum. Útför Kristínar Geirsdóttur verð- ur gerð í dag, föstudaginn 9. nóv- ember, kl. 15, frá Árbæjarkirkju á dánardægri eiginmanns hennar. Hún er kvödd með virðingu og þökk. Guðbjörg Kristinsdóttir Þegar við fréttum yfír Atlants- hafið að hún Kristín amma var dáin fannst okkur erfítt að trúa því. Við vissum að hún væri orðin mjög máttfarin af veikindum ’síðustu mánaða, en amma og Njáls- gatan voru fastir og óhagganlegir punktar í tilverunni og við vorum viss um að sjá hana heima um jólin. Heimili ömmu og afa á Njálsgöt- unni var samkomustaður þriggja, og stundum fjögurra, kynslóða. Þar fundum við fyrir þeirri hlýju sem tekur .sér bólfestu heima hjá góðu og heilsteyptu fólki. Amma var oft með okkur eldri barnabörnin í gæslu og hún kunni best við sig í hlutverki gestgjafans innan um ættingja og afkomendur. Sérstakan sess skipuðu stórveislur á jóladag og á afmælisdag ömmu, 3. janúar, en það var alltaf von á góðgerðum og hlýjum móttökum þegar við lit- um inn á „Njálsinn". Amma missti mikið þegar Krist- ján afi dó, en það hvarflaði ekki að henni að flytja. Hún þáði sjaldan aðstoð okkar við viðurgerninginn, ekki heldur þegar við sáum hana síðast. Þá var sjónin orðin lítil og líkaminn lasburða, en hugurinn var ennþá skýr og hún lék á als oddi á meðan við ræddum um málefni dagsins eða hún rifjaði upp gamla tíma. Amma var minnug og kunni ógrynni af sögum af samtíðarmönn- um sínum. Hún kunni að gera þeim þannig skil að okkur væri skemmt, en aldrei heyrðum við hana tala illa um nokkurn mann, enda ekki hægt að ímynda sér að hún bæri kala í brjósti til nokkurs. Hún var jákvæð og glaðlynd og fordómalaus og átti því auðvelt með að umgangast okk- ur af yngri kynslóðinni. Hún fylgd- ist vel með umhverfí sínu og sá jafnan spaugilegu hliðarnar á hversdagslegum atburðum. Hún fylgdist líka grannt með sínum nán- ustu og gat alltaf frætt okkur um hvað aðrir í fjölskyldunni höfðu fyr- ir stafni. Amma hefði varla getað búið svona lengi ein ef Kristins nágranna hennar hefði ekki notið við. Hann var óþreytandi við að hjálpa henni og var henni góður félagi, þar sem þau skiptust á að fara í kaffí hvort til annars. Samband ömmu og Doddu systur hennar var líka sér- stakt; þær skiptust á fréttum og skoðunum hvern dag, þó að oft liði langt á milli heimsókna í seinni tíð. Það var ömmu erfítt að fara frá Njálsgötunni í haust eftir að hún veiktist. Hún vildi ekki vera alveg upp á aðra komin og ef til vill var hún sátt við að ljúka langri og gæfuríkri ævi þegar svo var komið. Hún kvaddi þetta líf með þeim virðuleik sem hún hafði alltaf von- ast eftir að gera. Það var lán að eiga Kristínu ömmu að. Við geymum minninguna um góða konu og kveðjum hana með söknuði og þakklæti. Hugi og Sólveig í dag er borin til hinstu hvílu Kristín amma mín, Njálsgötu 102, Reykjavík. Njálsgatan hefur verið mér sem annað heimili þó ég hafi ekki verið þar eins mikið í æsku og eldri systk- ini mín og frændsystkin. Hún var góður viðkomustaður ef sinna þurfti erindi í bænum. Þar voru mörg fjöl- skylduboð haldin. Afmæli ömmu batt endahnútinn á jólahaldið, með heitu súkkulaði, enda byijuðu skól- ar yfirleitt daginn eftir. Ommu fórst margt vel úr hendi. Til eru eftir hana útsaumaðar og málaðar myndir og útsaumaður stóll. Auk þess lopapeysur sem prýða alla fjölskylduna og fjölda ferðamanna sem hingað hafa kom- ið. Pijónana lagði hún ekki frá sér fyrr en í sumar. Á Njálsgötunni bjuggu líka Krist- inn og Inga og er það ekki síst þeim að þakka að amma gat búið þar svo lengi þó sjónin væri lítil. Síðustu sex vikurnar bjó amma hjá okkur mömmu. Ég hafði til morgunmat og hádegismat handa okkur og eru þessar stundir og þær t Ástkær móðir' okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN GEIRSDÓTTIR, Njálsgötu 102, Reykjavík, verður jarðsungin 9. nóvember, frá Árbæjarkirkju í dag, kl. 3.00 síðdegis. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Anna G. Kristjánsdóttir, Halldóra E. Kristjánsdóttir, Daði Ágústsson, Geir Kristjánsson, Anna Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. sögur sem hún sagði ógleymanleg- ar. Ég þakka fyrir mig um leið og ég kveð ömmu mína. Kristín Það er nú rúmur aldarfjórðungur síðan ég kom fyrst á Njálsgötu 102, heimili Kristínar Geirsdóttur og Kristjáns S. Elíassonar, sem síðar urðu tengdaforeldrar mínir. Þar var oft þröng á þingi í litlu íbúðinni á hátíðisdögum, en sannað- ist hið fornkveðna, að þar sem er hjartarúm þar er og húsrými nóg. Kristín Geirsdóttir var frá Múla í Biskupstungum. Þar sem forfeður hennar og formæður höfðu búið í marga ættliði og jafnan í fremstu bænda röð, þekkt fólk að rausn og höfðingsskap og í hávegum haft meðal nágranna og samtíðar- manna, svo sem glöggt má sjá í endurminningum Böðvars á Laug- arvatni, Undir Tindum. Kristín var höfðingleg kona ásýndum, þegar orðin hvít fyrir hærum, þegar ég kynntist henni, röggsöm og ákveðin í fasi og skammt milli orðs og athafnar. Ef þar munaði einhveiju var það þá helst að athöfnin kæmi á undan orðinu. Jafnframt var hún létt í lund og hláturmild og fundvís á grínið í alvörunni, átti létt með að umgangast fólk og öllum leið jafnan vel í návist hennar. Hún var frábær húsmóðir og veislur hjá henni ævin- lega tilhlökkunarefni. Hún og Kristján maður hennar voru sam- hent um að koma börnum sínum til manns, og síðan stoð þeirra og stytta, svo og bamabamanna frá fyrstu tíð. Hún kaus jafnan að vera veitandi fremur en þiggjandi, hélt áfram heimilishaldi af fullri reisn eftir lát manns síns og fram undir það síðasta. En þegar hún fann kraftana þverra var hún líka reiðu- búin að kveðja þennan heim með sama æðruleysi og hún hafði jafnan tekið því sem að höndum bar í lífinu. Tryggð hennar var einstök. Þótt leiðir okkar Önnu dóttur hennar skildu og ég flyttist búferlum á annað landshorn, hélt hún áfram að vera sama elskulega tengdamóð- irin og jafnan áður, mundi eftir mér um leið og hún pijónaði á börn og barnabörn, reyndi að sjá um að ekki væsti um mig í hretviðrum lífsins í sokkaplöggum og útpijón- uðum peysum frá henni. Sumar þeirra eru líklegar til að endast mér til loka og minna mig á þá notalegu hlýju, sem Kristín Geirsdóttir bjó ölluin og öllu umhverfis sig. Minn- ingar um slíka konu er gott að eiga í farteski sínu. Olafur Hannibalsson Andlát móðursystur minnar kom engum á óvart, þar sem hún hafði átt við veikindi að stríða. Sjálf beið hún endalokanna. Eða eins og hún orðaði það sjálf við tengdason sinn, Daða, sem var að ljúka endurbótum á herbergi heima hjá sér: „Það tek- ur þig skemmri tíma að ljúka þessu, en mér að ljúka lífinu." Síðan skelli- hló hún sínum mjúka hlátri, sem hún átti svo létt með. Slíkur var kjarkur hennar, æðruleysi og reisn við dauðans dyr. Þar fór kona, sem átti lífsferil með hreina samvisku og vó alla hluti til betri vegar, jafnt i blíðu og stríðu. Við bræður, Jón Geir, Geir Jón og þó sérstaklega undirritaður, eig- um henni og manni hennar heitnum, Kristjáni S. Elíassyni, mikið að þakka, en Kristín tók mig í fóstur fyrst eftir að móðir okkar dó frá okkur ungum í janúar 1933. Móðir mín Anna og Kristín voru systur, en systkini þeirra eru Odd- gerður, f. 6. nóvember 1902, og Egill bóndi í Múla, f. 11. júlí 1905. Anna fæddist 14. apríl 1901 en dó 20. janúar 1933. Hálfsystir þeirra er Geira B. Parris, f. 6. febrúar 1923. Umburðarlyndi og elska Kristín- ar nam land í hjörtum þeirra barna, sem hún umgekkst og sem betur fer voru þau mörg. Svo var og með alla, sem kynntust henni, þar fundu menn velvildina. Bróðir okkar Jóns Geirs, Geir Jón, sem er látinn, hefði tekið und- ir eftirfarandi orð okkar; „Við kveðjum elsku Kristínu með ást og þakklæti". Torfi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.