Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 43

Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 43
W.U JI'-IMUMVO'/ i;)/ • i • |.ii: .;i> ji: MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 9. NOVEMBER 1990 fólk í fréttum Inga við brunn sinn í Munchen. KRAFTAKARLAR GOSBRUNNAR Islensk listakona hannar gosbrunn í Miinchen IMiinchen í Þýskalandi eru taldir vera um 1.300 gosbrunnar. Um 500 þeirra eru í umsjá borgarinnar, en þegar byggt er á vegum hennar er ávallt ákveðin kostnaðarprósenta sem er ætluð til listrænna skreyt- inga og listamönnum boðið að keppa um úrlausnir. Fyrir nokkru gerðist það, að gosbrunnhugmynd eftir íslenska listakonu varð hlut- skörpust í slíkri keppni og í sumar- byrjun var brunnurinn vígður. Listakonan íslenska heitir Inga Ragnarsdóttir, en gosbrunnur hennar er staðsettur á horni Herzogstrasse og Fallmerayerst- rasse í Schwabing-hverfinu. Inga byggir verk sitt á hugmynd um hringrás og vatn sem lífgjafa. Fyrir henni er brunnur samkomu- staður fólks. Það tafði nokkuð loka- frágang brunnsins og vígslu hans, að illa gekk að fá samþykki fyrir því að drykkjarhæft vatn yrði leitt í brunninn þannig að fólk gæti sval- að þorsta sínum í honum. Um síðir var það þó samþykkt og ekkert var lengur að vanbúnaði. Inga á ekki langt að sækja lista- hæfdeika sína, faðir hennar var Ragnar heitinn Kjartansson mynd- höggvari, en móðir hennar Katrín Guðmundsdóttir frá Skaftafelli. Eftir nám við MHÍ á íslandi var hún í sex ár við keramík- og högg- myndanám við Myndlistarakadem- íuna í Múnchen, en frá henni út- skrifaðist hún 1987. Hún er búsett og starfar í Þýskalandi. Jötnaslagur í Reiðhöllinni Kraftajötnar reyndu með sér um síðustu helgi í Reiðhöllinni. Þar kepptu heljarmenni frá þremur löndum, íslandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Leikar fóru svo, að Bandaríkjamennirnir reyndust hin- um oljarlar, bæði í einstaklings- keppni og liðakeppni. Hjalti „Úrsus“ Arnason keppandi og mótshaldari sagði í samtali við Morgunblaðið að troðfullt hús hefði verið og stemmningin firnagóð. „Það er augljóst að þessi íþrótt á mikla framtíð fyrir sér hér á landi,“ sagði hann. Beljakarnir reyndu með sér í greinum sem eru fremur í ætt við forna starfshætti en nútíma keppn- isíþróttir. Þeir óku níðþungum hjól- börum, köstuðu stórum grjóthnull- ungum og hlupu með lýsistunnur svo dæmi séu nefnd. Að sögn Hjalta reyndi þar á þrek, styrk og keppnis- anda. Sigurvegari í einstaklingskeppn- inni varð Bandaríkjamaðurinn Bill Kazmeier og hlaut hann 27,5 stig. næstur varð landi hans O. D. Wii- son með 23 stig, þá komu íslending- arnir Magnús Ver Magnússon með 21,5 stig og Hjalti með 14 stig. Lestina ráku Bretarnir, Jamie Ree- ves með 13 stig og Adrian Smith með 6 stig. I liðakeppninni, þar sem reyndi á samvinnu manna, sigruðu Banda- ríkjamennirnir með 68,5 stig, þá komu Islendingar með 61,5 stig og loks Bretarnir með 35 stig. Frá brunnvígslunni, ræðuhöld. LILJA HALLGRIMSDOTTIR Hjalti „Úrsus“ Árnason á hlaupum með eina lýsistunnuna. K Dags. 9.11 1990 NR. 182 VAKORT Númer eftirlýstra korta 4548 9000 4548 9000 4543 3700 4543 3700 4929 541 Kort frá Kuwait 4506 13** 4966 4507 13** 4921 4547 26** 4552 4508 70** 4507 0019 8145 0027 9424 0000 2678 0001 5415 675 316 sem byrja á nr.: 66** 4509 02** 04** 4921 90** 41** 4560 31** 77** 4966 82** Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ISLAND húsmóðir Prófkjör sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi Lilju í öruggt sæti K

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.