Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
Háskólabókasafn 50 ára:
Nemendafjöldi aukist helmingi
meira en bókakostur safnsins
„ Morgunblaðið/KGA
Á afmælissamkomunni voru meðal gesta Sigmundur Guðbjarnason, háskólarektor, og kona hans Margr-
ét Þorvaldsdóttir, forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Svavar Gestsson, menntamálaráðherra og
Margrét Anna Sigurðardóttir, eiginkona Einars Sigurðssonar háskólabókavarðar. Einar stendur í pontu.
HALDIÐ var upp á 50 ára afmæli
Háskólabókasafns á dögunum í
aðalbyggingu Háskólaíslands, en
safnið var opnað 1. nóvember
1940. Af þessu tilcfni voru safninu
færðar gjafir frá Félagi háskóla-
kennara, Stúdentaráði og samtök-
um bókavarða, bókasafna og
skyldum stofnunum. Fleiri gjafir
hafa jafnframt borist á árinu, í
tilefni afmælisins.
í erindi sem Einar Sigurðsson
háskólabókavörður hélt á afmælis-
samkomunni kom fram að á 50 ára
starfstíma Háskólabókasafns hefði
ritakostur þess vaxið úr 30 þúsund
bindum í nær 300 þúsund eða allt
að tífaldast. Á sama tíma hefði stúd-
entafjöldi á háskólanum nær 20 fald-
ast.
„Safnið hefur því lengst af átt
fullt í fangi með að fylgja eftir hinni
öru þróun háskólans," sagði Einar.
í erindi hans kom jafnframt fram
að um 25 ár væru liðin frá því að
hugmyndir um byggingu Þjóðarbók-
hlöðu hefðu komið upp, þó nafnið
hefði hún ekki fengið fyrr en síðar.
„Engan mun hafa órað fyrir því á
þeim tíma, að safnið næði fimmtugs-
aldri áður en sú ætlan kæmist í fram-
kvæmd,“ sagði Einar.
Félag háskólakennara færði bóka-
safninu ljósprentun af Gutenbergs
biblíunni að gjöf í tilefni afmælisins.
Fyrir hönd stúdenta afhenti formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla íslands
grafíkmynd að gjöf, en samtök bóka-
varða, bókasöfn og skyldar stofnanir
færðu safninu geisladisk með gagna-
banka sem innihldur tilvísanir í tíma-
ritsgreinar um bókasafnsmál. Ymsar
gjafir hafa jafnframt borist safninu
á árinu og má þar m.a. nefna gjöf
frá Dr. Robert Cook prófessor í ensku
við Háskólann, en hann færði safninu
fimm hundruð bindi rita úr einka-
bókasafni sínu.
Sýning- um sögu safnsins
í tilefni afmælisins hefur verið
sett upp sýning í aðalanddyri skólans
um sögu og þróun safnsins, svo og
þjónustu þess eins og hún er nú, í
anddyri aðalbyggingar Háskóla ís- ,
lands. Greint er á veggspjöldum frá
starfsemi safnsins, sögu þess og þró-
un bæði í máli og myndum. Sýndar
eru bókagjafir sem safninu hafa bo-
rist á afmælisárinu, svo og ýmis
gömul og merk rit úr eigu safnsins.
Sýningin stendur til 15. nóvember
og er öllum opin.
Morgunblaðið/Einar Falur
Guðrún Marinósdóttir
>
Asmundarsalur:
Sýningu Guð-
rúnar að ljúka
Sýningu Guðrúnar Marinósdótt-
ur á ofnum verkum úr viðartágum
sem staðið hefur frá 27. október í
Ásmundarsal við Freyjugötu lýkur
sunnudaginn 11. nóvember. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14.00-19.00.
Kjarvalsstaðir:
Tvær sýningar
í vestursal stendur yfir sýning
á skúlptúr eftir Brynhildi Þor-
geirsdóttur.
í austursal stendur yfir Inuita-sýn-
ing. Sýndir eru munir frá menningar-
heimi eskimóa í Vestur-Alaska. Sýn-
ingin er á vegum Menningarmála-
nefndar Reykjavíkur og Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna. Kjarvals-
staðir eru opnir daglega frá kl.
11.00 - 18.00.
ROKKSVEIT
RÚNARS JÚLÍUSSONAR
HINEINA SANNA
★
FRÍTT INN
í KVÖLD
★
Diskótek:
Darri Ólason á EFFEMM
og Sigvaldi Kaldalóns.
Húsið opnað kl. 22. Snyrtilegur klæðnaður.
Árshátíöir
eða annar mannfagnaður fyrir
smáa sem stóra hópa.
Láttu bragðið og verðið
koma þér á óvart!!!
Laugavegi 45
s. 626120
UPPI
7 s. 11220
Þú gengur að gæðunum vísum
IMillabar
Óli blaðasali
Guðmundur Rúnar,
Steini og Palli
Frábært stuð
Munið hádegisbarinn
Opiðfrá kl. 18.00-03.00
HLJÓMSVEiTIIVI SJÖUND
frá Vestmannaeyjum leikur fyriri dansi
Frítt inn til kl. 24.00 Snyrtilegur klæðnaður