Morgunblaðið - 27.11.1990, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
Reykjaneshryggur:
Morgunblaðið/Sverrir
Skautasvellið senn tilbúið
Veðurfarið á höfuðborgarsvæðinu í vetur hefur verið óvenjumilt, og áhugamönnum um skauta-
íþróttir því ekki gefist tækifæri til að iðka íþrótt sína. Senn líður að því að vélfrysta skautasvellið
í Laugardal verði tilbúið til notkunar, og eflaust bíða þess margir með eftirvæntingu.
Líkur á að mikið finnist
af málminum mangan
Eignarréttindi íslendinga tryggð með
þingsályktunartillögu frá 1982
TALSVERT magn af mangani hefur fundist í sýni sem tekið var á
Reykjaneshryggnum um 110 kilómetra suðvestur af Reykjanestá í
leiðangri rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar í byijun þessa
mánaðar. Að sögn Sveins Jakobssonar, jarðfræðings hjá Náttúrufræði-
stofnun, benda bráðabirgðaniðurstöður til þess að umtalsvert magn
af mangani sé að finna á þessum stað, en það hefur ekki áður fundist
á þessu svæði í neinum mæli. Samkvæmt hafréttarsáttmála Sameinuðu
þjóðanna hafa íslendingar ótvíræðan eignar- og fullveldisrétt yfir
hafsbotninum á Reylqaneshrygg og auðlindum hans allt út í 350 mílur
frá grunnlínum, en þau réttindi voru tryggð með samþykkt þingsálykt-
unartillögu, sem alþingismennirnir Pétur Sigurðsson og Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson fluttu árið 1982.
Alls voru tólf sýni tekin í leið-
angri Bjarna Sæmundssonar, sem
kostaður var af breskum og banda-
Ólympíuskákmótið
í Júgóslavíu:
Jafntefli gegn
heimamönnum
ÍSLENSKA skáksveitin gerði
jafntefli við B-sveit Júgóslava í
9. umferð Olympíuskákmótsins í
Novi Sad í Júgóslavíu í gær og
er með 22 vinninga í 10.-11. sæti
ásamt Svíþjóð. Sovétmenn hafa
tekið forustuna á mótinu með
24,5 vinningum en þeir
Kínverja 3-1 i gær.
unnu
Helgi Ólafsson tapaði á 1. borði
gegn Sokolov. Helgi fékk þrönga
stöðu og missti fljótlega peð, að sögn
Þráins Guðmundssonar fararstjóra
íslenska liðsins. Margeir Pétursson
náði hins vegar að vinna Velimirovic
á öðru borði í langri og erfiðri skák.
Jóhann Hjartarson og Björgvin Jóns-
son gerðu báðir 24 leikja jafntefli
við Ivanovic ög Lalic.
Af úrslitum umferðarinnar má
nefna, að A-sveit Júgóslava vann
Bandaríkjamenn 2,5-1,5. Englend-
ingar unnu Tékka með sama mun
og Svíar unnu Indverja, 2,5-1,5. Þá
unnu Færeyingar Angólabúa
2,5-1,5.
Sjá skákþátt bls. 54.
rískum vísindamönnum í því skyni
að leita nýrra gosminja, en tilefnið
var jarðskjálftahrina sem hófst á
þessu svæði 30. október og virtist
vera tengd neðansjávareldgosi. Að
sögn Sveins Jakobssonar þykir ekk-
ert benda til að um eldgos hafí ver-
ið að ræða, en hann sagði að þó
væri ekki hægt að útiloka að svo
hafí verið.
Sveinn sagði að í ellefu sýnanna
sem tekin voru hefði reynst vera
mjög einsleitt basalt, en í umræddu
sýni hefði einungis verið sandsteinn.
Þar hefði manganoxíð verið í
sprungum í steininum og í sumum
tilvikum límt hann saman. Sýnið er
41 kíló að þyngd, og sagði Sveinn
að giskað væri á að í því væri hálft
kíló af hreinum manganmálmi, sem
væri óvenjuhátt hlutfall. Það var
tekið á 100-300 metra dýpi, sem er
miklu minna dýpi en mangan hefur
verið unnið á, en það hefur aðallega
verið í Kyrrahafí, og hefur vinnsla
þess reynst erfiðleikum bundin
vegna mikils dýpis. Hann sagði
manganið á Reykjaneshrygg senni-
lega hafa myndast vegna jarðhita-
virkni, þó það væri ekki á jarðhita-
svæði heldur aðeins utan við það.
Mangan er mjög verðmætur
málmur, sem einkum er notaður til
herslu í mámblöndur, til dæmis í
stálframleiðslu. Aðspurður sagði
Sveinn að of snemmt væri að segja
til um hvort þarna væri til staðar
svo mikið magn að um arðbæra
vinnslu á því gæti orðið að ræða,
en skilyrðislaust yrði að rannsaka
Ofarlega í mínum
huga að bjóða fram
sérstakan lista
það betur. „Það er umhugsunarvert
að útlendingar þurfí að kosta svona
ferðir eins og var í þessu tilviki, en
það var engin íslensk rannsókna-
stofnun sem hafði bolmagn til að
kosta rannsóknaskip þarna,“ sagði
hann.
Með þingsályktunartillögu, sem
alþingismennirnir Pétur Sigurðsson
og Eyjólfur Konráð Jónsson fluttu
árið 1982 um hafsbotnsréttindi á
Reykjaneshrygg og samþykkt var
einróma, voru tryggð formlega ótví-
ræð réttindi íslendinga til hafsbotns-
ins á Reykjaneshrygg og út frá
hlíðum hans, sem ísland á tilkall til
samkvæmt 76. grein Hafréttarsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna. Sáttmál-
inn veitir íslendingum réttindi yfír
hafsbotninum allt út í 350 mílur frá
grunnlínum, og taka þau til allra
auðæfa sem í jarðlögum botnsins
fínnast, svo og allra lífvera sem
ekki hreyfa sig án snertingar við
botninn.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Sveinn Jakobsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, með hluta
af sýninu sem reyndist innihalda verulegt magn af mangani.
Avöxtunarkrafa eldri skulda-
bréfa ríkissjóðs orðin 7,05%
Stutt í að borgi sig að taka bankalán til að
kaupa bréfin, segir Valur Valsson bankastjóri
AVÖXTUNARKRAFA eldri
skuldabréfa ríkissjóðs á Verð-
bréfaþingi Islands hækkaði í
síðustu viku. Að sögn Eiríks
Guðnasonar, aðstoðarbanka-
stjóra Seðlabankans, er ávöxt-
unarkrafan nú 7,05%, meðal
annars í tilboðum, sem Seðla-
bankinn hefur sett fram, en hún
var til skamms tíma 6,8%. Valur
Valsson bankastjóri íslands-
banka segir að nærri láti að það
borgi sig, miðað við hagstæð-
ustu kjörvexti, að taka bankalán
til að kaupa bréfin.
þannig að menn geti tekið lán fyr-
ir skuldabréfum og fengið vaxta-
mun.
„Við höfum nú verið að reyna
að halda því þannig að svo sé
ekki,“ sagði hann. „Það er hins
vegar mjög tæpt á því, vegna þess
að verðtryggðir vextir hjá okkur
til bestu viðskiptavina, kjörvextir
svokallaðir, eru núna 6,75%. Þáð
er einhver kostnaður í kring um
lántöku, en þetta er alveg á mörk-
unum að því er varðar bestu við-
skiptavini."
Valur var spurður hvort hann
teldi líkur á að raunvextir hækki
á næstunni eða hvort þörf yrði á
að hækka þá. Hann kvaðst ekkert
vilja láta hafa eftir sér um það.
Kjarasamningar sjómanna:
Samið innan þjóðarsáttar
Vextir á nýjum skuldabréfum
eru nú 6% í beinum kaupum, 6,2%
í áskrift og eitthvað hærri til stórra
kaupenda, að sögn Eiríks Guðna-
sonar.
Samkvæmt þessu eru því hærri
vextir í boði þegar keypt eru ríkis-
skuldabréf á verðbréfamörkuðum
með 7,05% ávöxtunarkröfu heldur
en þegar keypt er í áskrift eða
beint af ríkissjóði.
Valur Valsson var spurður hvort
vextimir á bréfunum væm nú
orðnir hærri en útlánsvextir banka
SKRIFAÐ var undir kjarasamning sjómanna og útvegsmanna á laug-
ardag. Að sögn Óskars Vigfússonar, forseta Sjómannasambandsins,
eru samningarnir á sömu nótum og samningar yfirmanna og innan
ramma þjóðarsáttar. Olíuverðsviðmiðun hlutaskipta var leiðrétt auk
þess sem ágreiningur um greiðslur vegna löndunar fisks í gáma
fékkst leiðréttur.
„Samningurinn gildir til 15. sept-
ember á næsta ári án uppsagnar.
Við mælum með samþykkt hans við
umbjóðendur okkar. Ég tel að unn-
ið hafi verið að þeim af raunsæi,"
sagði hann.
Ríkissáttasemjari lagði fram
miðlunartillögu varðandi afgreiðslu
samninganna sem fer fram með
sameiginlegri atkvæðagreiðslu allra
sambandsfélaga. Atkvæðaseðlar
verða sendir til félaganna á næst-
unni með þeim tilmælum að efni
samningsins verði skýrt á fundum.
Taldi Oskar að talning yrði ekki
gerð fyrr en í kringum áramót.
- segir Guðmundur G. Þórarinsson
„VIÐ töluðum saman um þetta
mál, ég og Steingrímur, og ég
skýrði honum frá því, vegna þess
að hann hafði skorað á mig að
taka annað sæti á listanum, að
það væri útilokað," sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson, alþingis-
maður, sem gekk á fund for-
Afengi hækk-
ar í dag
ÁFENGI hækkar i verði í dag
og verða nokkrar af áfengisút-
sölum landsins lokaðar af þeim
sökum. Ekki fékkst uppgefið hjá
ÁTVR um hve mikla hækkun
væri að ræða.
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR sagði að þær verslanir ÁTVR
sem komnar eru með nýtt af-
greiðslukerfi verði opnar í dag.
Verslanir með gamla afgreiðslu-
kerfínu verða lokaðar.
Síðast hækkaði verð á áfengi í
júní síðastliðnum um 5,6% að með-
altali og tóbaki um 4%.
manns Framsóknarflokksins i
gær vegna deilna um úrslit skoð-
anakönnunar flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi.
„Kæran sem ég lagði fram á
sínum tíma gengur út á það að
þessi skoðanakönnun verði ógilt og
það verði gerð ný skoðanakönnun
meðal stuðningsmanna flokksins í
Reykjavík. Steingrímur mun hafa
lagt það til við Finn Ingólfsson að
gerð verði ný skoðanakönnun meðal
flokksmanna í Reykjavík. Mér líst
mjög vel á þá tillögu en mér er
sagt að Finnur hafi tekið mjög illa
í það.“
„Ég lýsti þvi yfir við forsætisráð-
herrann að það væri mjög ofarlega
í mínum huga að fara fram á BB-
lista. Það eru fordæmi fyrir því að
bjóða fram tvo lista frá einum flokki
í sama kjördæmi," sagði Guðmund-
ur.
Stjóm fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins í Reykjavík mun fjalla um
kæm Guðmundar á fundi á morgun.
Ekki náðist í Steingrím Her-
mannsson vegna þessa máls í gær-
kvöldi.