Morgunblaðið - 27.11.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
15
erra og Sidney í Ástralíu. Kórinn,
sem fór þessa ferð, söng þrjú lög,
Deep River, bandarískan negra-
sálm, Kvöldljóð eftir Kodaly og
Bamagælu, skemmtilegt lag eftir
Hjálmar H. Ragnarsson við skondið
„hrekkjusvínakvæði“ eftir Vilborgu
Dagbjartsdóttur. Það sem ein-
kenndi söng eldri kóranna var sér-
lega skýr og fallega mótuð tón-
myndun. Það er auðheyrt að bömin
hafa fengið góða þjálfun, því radd-
imar em mjög þéttar og hljómmikl-
ar er gefa mikla möguleika í út-
færslu styrkleikabreytinga.
Fýrmrn félagar og nemendur í
Oldutúnsskólanum hafa stofnað
kór, sem nefnist „Mömmukórinn“
er söng undir stjórn Brynhildar
Auðbjargardóttur, tónmenntakenn-
ara, Laksi mina, finnskt þjóðlag,
Hvað flýgur mér, eftir Þorkel Sigur-
bjömsson og Ábba-labba-lá eftir
Friðrik Bjamason. Eftir ágætan
söng „Mömmukórsins" komu allir
kóramir saman, alls um 150 böm
og sungu Þú hýri Hafnarfjörður,
eftir Friðrik Bjamason. Það var
áhrifamikil sjón og sérstæð upplifun
að sjá og heyra þennan barnafjölda
syngja lag Friðriks tandurhreint og
með sérlega skýmm framburði.
Sá árangur sem Egill Friðleifsson
hefur náð, er á heimsmælikvarða
og þá notar undirritaður þetta orð
í fullri alvöm og ennfremur, að
þessi árangur er verk Egils, þó
hann geti þakkað samstarf við
söngfús böm og hjálpfúsa sam-
starfsmenn. Vert er að hafa það
hugfast, að trúlega hefur Egill gef-
ið kómum margar stundir, sem
ekki hafa verið reiknaðar til launa
og að kór verður aðeins góður sé
kórstjórinn góður fagmaður. Um
uppeldislegt hlutverk kórsins mætti
rita langt mál, þegar „hæsigarg"
og afkáraleg hegðun er helsta dæg-
urskemmtan fólks. Kór Öldutúns-
skóla hefur í 25 ár verið gróðurvin
fegurðar og glæsileg uppeldisstofn-
un, sem hefur gefið þúsundum
bama ríkulega útilátið og mikilvægt
veganesti fyrir leið þeirra út í hring-
iðu lífsins. I þeirri gróðurvin er fólg-
in sú hamingjuósk, sem erfítt er
að túlka með orðum en býr í þrá
mannanna eftir íegurð, sem dýmst
birtist í kristalhreinum röddum
bama okkar.
■ FRÓÐI HF. hefur gefíð út
þriðju útgáfu Stóru barnabókar-
innar sem fyrst kom út fyrir nokkr-
um árum en verið hefur ófáanleg
um langt skeið. Jóhann Thor-
steinsson fóstra valdi efnið en
myndskreytingar gerði Haukur
Halldórsson myndlistarmaður. í
Stóru barnabókinni em ýmsar
perlur sem íslensk börn hafa kunn-
að vel að meta í gegnum tíðina:
Gátur, sögur, ævintýri, ljóð, barna-
gælur, þrautir, þulur, bænir, leikir
og föndur. Stóra bamabókin er 96
bls. Prentstofa G. Ben. vann bókina.
■ BÓKAÚTGÁFAN Selfjall hef-
ur gefíð út bókina Dýrin í garðin-
um eftir Margréti E. Jónsdóttur.
Þetta er þriðja barnabók hennar.
Áður hafa komið út eftir hana
Skotta og vinir hennar og Skotta
eignast nýja vini. Anna V. Gunn-
arsdóttir myndskreytti allar bæk-
umar. Bókin íjallar um dýrin sem
búa í húsagörðum í þettbýli.
■ SKÁLHÖLTSÚTGÁFA hefur
gefíð út bókina Jesús - Maðurinn
sem breytti sögunni og _er hún
ætlauð 10-14 ára bömum. I kynn-
ingu útgefanda segir m.a. að: „í
bókinni geta böm kynnst mannin-
um sem breytti sögunni, kynnst
landinu sem hann bjó í og fólkinu
sem þekkti hann. Þar geta þau les-
ið skýrslu Lúkasar læknis um fólk
sem Jesús læknaði, kynnst því
hverjir óvinir hans vora og fylgst
með atburðum síðust daga ævi
hans. í bókinni geta þau lagt mat
á fullyrðingar hans um sjálfan sig
og rökin fyrir upprisu hans frá
dauðum. í bókinni geta þau einnig
lesið hvað fylgjendur hans nú á
dögum segja um hann og myndað
sér skoðun um þennan frábæra
menn í leiðinni." Bókin skiptist í
20 kafla með litmyndum, teikning-
um og verkefnum. Höfundur bókar-
innar er Meryl Doney en sr. Karl
Sigurbjörnsson þýddi.
Sérvitringur á glapstigum
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Björgúlfur Ólafsson: SÍÐASTA
SAKAMÁLASAGAN. 154 bls.
Söguforlagið. Reykjavík, 1990.
Af heiti þessarar bókar, og reynd-
ar líka upphafi hennar, mætti ætla
að hér væri á ferð ósvikin sakamála-
saga. Svo er þó ekki, að minnsta
kosti ekki í venjulegum skilningi.
Þetta gæti allt eins skoðast sem
vandamálasaga. Eða þá sálarlífslýs-
ing eins og sagt var í gamla daga.
Vafalaust hefur höfundurinn ætlað
að skrifa tilþrifamikla sögu sem at-
hygli vekti; hver sest ekki að skrift-
um með þau markmið fyrir augum?
Viljann sýnist ekki vanta. Tækni og
æfíng er á hinn bóginn nokkuð sem
höfundur á eftir að öðlast. Mesti
vandi skáldsagnahöfundar er að
skyggna eigið verk úr fjarlægð,
skoða það eins og óvilhallur áhorf-
andi. Ella getur hann naumast vænst
þess að verk sitt verði rétt skilið né
metið. En til þess þarf yfirsýn, og
þó öllu fremur þjálfun. Þess háttar
valdi yfir verkefni sínu hefur höfund-
ur enn ekki náð. Stíllinn er tæpast
nógu lipur, málfar hefði mátt bæta.
Og söguþulur veit of mikið af per-
sónu sinni, stendur því einatt á milli
söguefnis og lesanda. Athugasemdir
eins og: »Nú má ekki skilja mig svo
að ég segi þetta sjálfum mér til af-
sökunar ... Nú má ekki skilja mig
sem svo að ég hafí skrifað þetta
handrit af því að ég vildi verða fræg-
ur ... Nú á svo að heita að ég sé
afkomandi víkinga ... Nú er það
svo að okkur er tamt að líta á það
sem fyrir augu ber nánast daglega
sem eitthvað lítilfjörlegt, gott ef
ekki ómerkilegt ... Nú er það al-
kunna að þjóðsöngur okkar er ein-
hver sú mesta hrákasmíð sem um
getur ... Nú er það svo að ég hef
kosið að hafa þessa sögu í fyrstu
persónu . ..« gefa til kynna að höf-
undur hefði þurft að leggja verkefni
sitt til hliðar um stund og endur-
skoða það síðar með vemlegar lag-
færingar fyrir augum. Sakamálin í
síðari hluta sögunnar vilja því miður
falla í skuggann fyrir þessari
mælsku sögumanns.
Annars er sögumaður hálfgerður
furðufugl og tekst höfundi best upp
þegar hann lýsir ýmsum sérvisku-
Björgúlfur Ólafsson
háttum hans. Sumt af því er bara
nokkuð fyndið.
Er peningakassinn
Leiðbeiningarit sent til þeirra sem eiga að nota sjóðvélar.
Ólöglegar sjóðvélar í viðskiptum eiga nú að Horfur eru á að viðurlög við brotum á reglum
heyra sögunni til. Þessa dagana eru sjóðvélar- um tekjuskráningu verði hert verulega á næst-
skyldir aðilar að fá í hendurleiðbeiningarit þar unni. Lögleg og rétt notuð sjóðvél er allra hag-
sem meðal annars eru ítrekuð þau skilyrði sem ur og tryggir öryggi í viðskiptum. Það er því
löglegir peningakassar verða að uppfylla. Þeir mikilvægt að bæði neytendur og notendur
sem enn hafa skráningu sína í ólagi eru ein- sjóðvéla taki höndum saman um að stuðla að
dregið hvattir til að koma viðskiptaháttum heiðarlegum og traustum viðskiptum.
sínum strax í löglegt horf.
Leiðbeiningaritið Sjóðvélar. Hafðuþín viðskiptiá
hreinu! verður sent til sjóðvélarskyldra'aðila í
þessari viku. Ritið liggur frammi hjá skattstjórum
og fjármálaráðuncytinu.
FjÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Glugginn verður
að sjást
Viðskiptavinurinn
á að fá kassa-
kvittunina
í hverjum kassa
verður að vera
innri strimill og
einnigdagsölu- og
uppsöfnunarteljari
Kassanum á
að loka
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA