Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 24

Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990 Snúum okkur í vest- ur fari viðræður um EES út um þúfur - segir utanríkisráðherra í samtali við Reuters-fréttsistofunzL JÓN Baldvin Hannbibalsson utanríkisráherra segir í samtali við Keuíers-fréttastofuna um helgina að fari viðræður milli Fríverslunar- samtaka Evrópu (EFTA) og Evrópubandalagsins (EB) um Evrópskt efnahagssvæði (EES) út um þúfur eigi Islendingar ekki annars úr- kosti en leita eftir samningum við Bandaríkjamenn. „Fari viðræðumar út um þúfur er okkur nauðugur einn kostur að reyna að gera viðskiptasamning við Bandaríkjamenn .. og sætta okkur við að við eigum samleið með þeim í framtíðinni," segir Jón Baldvin í viðtalinu. Hann fer hörðum orðum um stefnu Evrópubandalagsins í sjávarútvegs- og fískveiðimálum og segir að þótt í orði kveðnu aðhyllist bandalagið fríverslun sé sú alls ekki raunin í þessum málaflokkum. Hann segir ennfremur að það ráðist fyrir áramót hvort eitthvað komi út úr viðræðunum milli EFTA og Roald Dahl Roald Dahl látinn London. Reuter. BRESKI rithöfundurinn Roald Dahl, sem þekktastur er fyrir barnabækur sínar, Iést síðast- liðinn föstudag 74 ára að aldri. Barnabækur hans eins og „Kalli og súkkulaðiverksmiðj- an“ seldust í yfir átta milljón- um eintaka og voru þýddar á a.m.k. 17 tungumál. Roald Dahl fæddist árið 1916 og var af norsku foreldri kominn. Hann gekk í konunglega breska flugherinn við upphaf seinni heimsstyijaldarinnar og slapp naumlega lífs af þegar flugvél hans hrapaði á eyðimerkursvæði í Líbýu. Ailar bækur Dahls urðu met- sölubækur á alþjóðlegum mark- aði og bréfum frá bömum rigndi yfir hann. EB. En ef útiloka eigi íslendinga frá samruna Evrópu þá verði þeir að snúa sér í vesturátt. „Við vorum fyrstu pólitísku útlagarnir í Evrópu og það er opin spurning hveijum við tilheyrum." Pólitískur vilji sé fyrir því í Bandaríkjunum að gera fríverslunarsamning við íslendinga en gerð hans sé ekki einföld og taki tvö til þijú ár. Fréttaritari Reuters segir að þeir íslensku stjórnmálaleiðtogar' sem hann hafí rætt við séu sammála um að ekki komi til greina að semja við Evrópubandalagið um að það fái aðgang að íslenskum fískimiðum í skiptum fyrir fríverslun með fisk innan EES. Reuter Margaret Thatcher veifar til stuðningsmanna sem saman voru komnir nærri bústað hennar í gær. Breski forsætisráðherrann var á leið til fundar i höfuðstöðvum Ihaldsflokksins. Leiðtogakjör breska íhaldsfiokksins: Baráttan talin munu standa milli Heseltines og Majors Flestir búast við þriðju umferðinni St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FRAMBJÓÐENDURNIR þrír í leiðtogakjöri breska íhaldsflokksins, Michael Heseltine, þingmaður, John Major, fjármálaráðherra, og Douglas Hurd, utanríkisráðherra, hertu kosningabaráttu sína um helgina. Allir þrír sögðust geta sigrað. Flestir búast við, að enginn þeirra fái hreinan meirihluta í þessari umferð og kjósa verði í þriðja sinn á fimmtudag. Kosningabaráttan var háð af full- um krafti í fjölmiðlum um helgina. Allir frambjóðendur mættu í viðtöl í fréttaskýringaþáttum sjónvarps- stöðvanna og útvarpsstöðvanna og sömulejðis stuðningsmenn. Þing- menn íhaldsflokksins héldu í kjör- dæmi sín og leituðu eftir skoðunum stuðningsmanna sinna og kjósenda. Bæði John Major og Michael Heseltine segjast hafa stuðning um og yfír 150 þingmanna og Douglas Hurd segist njóta stuðnings að minnsta kosti 100 þingmanna, en hann býst ekki við að sigra í þess- ari umferð, en treystir á þriðju umferðina. Flestir fréttaskýrendur telja, að baráttan standi milli Heseltines og Majors. Skoðanakannanir, sem birt- ust um helgina, gefa til kynna að íhaldsflokkurinn njóti nú meira fylgis en Verkamannaflokkurinn, sama hver verður leiðtogi hans. Forskot hans yrði á bilinu 3-8%, ef Major eða Heseltine yrðu kosnir leiðtogar, en 1-3% ef Hurd yrði kjör- inn leiðtogi. Starfsmenn flokksins og stuðn- ingsmenn eru langflestir mjög gramir Heseltine fyrir að bjóða sig fram gegn Margaret Thatcher og steypa henni úr embætti í reynd. Þingmenn, sem hlera vel skoðanir stuðningsmanna sinna, hafa allir fengið skýr skilaboð frá þessum Samkomulag, um Kambódíu: Öryggisráð SÞ taki við stj órnartaiimum hópi um að styðja ekki Heseltine. Jafnframt er ljóst, að John Major nýtur mests fylgis í þessum hópi. John Wakeham, orkumálaráð- herra og einn nánasti stuðnings- maður Margaret Thatcher, staðfesti um helgina, að ein ástæðan til þess að hún dró sig í hlé á endanum, hefði verið vilji til að koma í veg fyrir, að Heseltine yrði kjörinn, með því að gefa öðrum ráðherrum kost á að bjóða sig fram um leið og hún drægi sig í hlé. Talið er líklegt, að Thatcher styðji John Major, en hún hefur einungis lýst yfir, að hún óski þess að næsti leiðtogi komi úr ríkis- stjórninni, sem þýðir annað hvort John Major eða Douglas Hurd. John Major neitaði því í viðtölum um helgina, að hann væri sérstakur fulltrúi hægri arms íhaldsflokksins og lagði áherslu á, að stuðningur sinni kæmi úr öllum valdahópum hans. Michael Heseltine sagðist ekki líta á sig sem fulltrúa vinstri arms flokksins heldur stæði stuðningur hans traustum fótum víða innan flokksins. Douglas Hurd sagði, að hann gæti best sameinað flokkinn á ný, þegar leiðtogakjörið væri af- staðið. Hurd og Major njóta stuðnings 7 ráðherra hvor, en einn hefur lýst stuðningi við Heseltine. Bæði Sir Geoffrey Howe, fyrrum varaleiðtogi flokksins, og Nigel Lawson, fyrrum Suður-Afríka: fjármálaráðherra, hafa lýst yfir stuðningi við Heseltine og sömuleið- is Carrington, lávarður, fyrrum ut- anríkisráðherra, en hann hefur þó ekki atkvæðisrétt. Búist er við, að úrslit verði kunn úr þessari umferð leiðtogakjörsins um kl. hálf sjö í kvöld að íslenskum og breskum tíma. Verndun fiski- stofna: Búist við neyð- aráætlun EB Brussel. Reuter. BÚIST er við því að fram- kvæmdastjórn Evrópubanda- lagsins kynni á morgun neyð- aráætlun til að bjarga fiski- stofnum ríkja bandalagsins. „Við erum engir afundnir umhverfisverndarsinnar," sagði ónefndur embættismaður hjá framkvæmdastjóminni í samtali við Reuíers-fréttastofuna. „En ef viðrbreytum ekki háttum okk- ar hið fyrsta er hmn framund- an.“ Að hans sögn vill Manuel Marin, sem fer með sjávarút- vegsmál í framkvæmdastjóm- inni, meðal annars að EB banni reknetaveiðar en einnig vill hann grípa til aðgerða til að vernda þorsk, ýsu og lýsu. BANDARIKJAMENN segja að samkomulag það sem náðst hefur með fastafulltrúum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna marki þátta- skil í þeirri viðleitni að binda enda á tólf ára stríð í Kambódíu. Efasemdir eru þó uppi um að stríðandi aðilar þar í landi leggi niður vopn. Fastafulltrúarnir fímm, Banda- ríkin, Bretland, Frakkland, Kína og Sovétríkin, náðu samkomulagi á þriggja daga fundi í París sem lauk um helgina. Með samkomulag- inu er gerð ítarlegri grein fyrir hugmyndum sem settar vora fram í New York í ágúst. Gert er ráð fyrir að bráðabirgðastjórn Samein- uðu þjóðanna í Kambódíu taki við stjórninni, haldnar verði frjálsar kosningar, flóttamenn sem yfírgáfu landið á áttunda áratugnum komi aftur og gerð verði ný stjómar- skrá. í yfírlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa er skorað á stríðandi fylkingar í Kambódíu, þar á meðal Rauðu khmerana, að sam- einast í þjóðstjórn, svokölluðu Yfir- þjóðarráði, og taka upp friðarvið- ræður í París. Gefíð er í skyn að æskilegt væri að Sihanouk prins yrði forseti Yfírrþjóðarráðsins. Hun Sen, forsætisráðherra lepp- stjórnar Víetnama í Kambódíu, var þó búinn að hafna mikilvægum hluta samkomulagsins áður en það var gert, þ.e.a.s. að viðræðumar færu fram í París og að bráða- birgðastjórn Sameinuðu þjóðanna færi með völd í landinu. Fulltrúi Bandaríkjanna í samn- ingaviðræðunum um helgina sagði að vonir stæðu til þess að viðræður gætu hafíst fljótlega í París og þess vegna yrði ráðstefnuhöllin, sem reist var til bráðabirgða þar í borg vegna Ráðstefnunnar um ör- yggi og samvinnu í Evrópu, ekki rifín að svo stöddu. Sihanouk prins er nú kominn til Parísar og hefur hann skorað á aðrar fylkingar í Kambódíu að koma til viðræðna. Hann hefur ennfremur lýst sig fylgjandi því að Hun Sen yrði vara- forseti. Tiittiigri og tveir létu líf- ið í átökum um helgina Johannesarborg. Reuter. ÁTÖK milli stríðandi fylkinga í byggðum blökkumanna í Suður- Afríku um helgina kostuðu að minnsta kosti 22 menn lífið, þar af felldi lögregla einn. Alvarlegasti atburðurinn átti sér stað í bænum Harding í Natal-hér- aði, þar sem vopnaðir menn réðust á sendiferðabíl og lítinn fólksflutn- ingabíl og skutu níu manns til bana. Atburðurinn kom íbúum í Hard- ing mjög á óvart, þar sem svo hafði virst undanfarið sem erjur milli stríðandi fylkinga Afríska þjóðar- ráðsins og Inkatha-hreyfingarinnar væru að fjara út. Átökin náðu til nágrannabæjar Harding, Paddock, í gærmorgun. Þar voru 80 hús brennd til ösku og hundrað manna flúðu heimili sín. Um 4000 þúsund manns hafa látið lífið í Natal-héraði á síðustu þremur árum í átökum milli ANC- hreyfingar Nelsons Mandela og Ink- atha-hreyfíngar Mangosutuhus Buthelezis Zuluhöfðingja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.