Morgunblaðið - 27.11.1990, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. aprfl)
Þú átt auðvelt með að tjá það sem
þú hugsar núna, en getur hitt
fyrir þrasgefið fólk í dag. Þú
hefur ánægju af að taka þátt í
menningarviðburðum og ferða-
lögum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Fjármálaþróunin verður þér hag-
stæð í dag, en þú getur átt í úti-
stððum við einhvem þér nákom-
inn út af peningamálum. Þú verð-
ur að fresta stefnumóti.
Tvíburar
(21. maí - 20. júni)
Eigðu frumkvæði að því að halda
skemmtun núna, en vertu ávallt
fús að mæta ástvinum þínum á
miðri leið. Sjálfselskan getur
spillt miklu f samlífi fjölskyldunn-
ar. Reyndu að horfa á málin frá
sjónarhóli annarra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HI8
Þetta er á margan hátt góður
tími fyrir þig til að undirbúa
stöðuhækkun þína á vinnustað,
en varastu að stofna til deilna
við samstarfsmenn þma. Nákom-
inn aðili gæti misskilið orð þín
núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður dagur tii skipu-
lagningar vinafunda og ættar-
móta. Þú frestar viðskiptafundi
sem til stóð að þú tækir þátt í.
Einn vina þinna er viðkvæmur
núna.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) a*
Dugnaðurinn dugir þér vel í sam-
keppninni í dag, en varastu að
vera særandi við viðskiptavini
þína. Veldu að vera heima í kvöld
fremur en að fára eitthvað út að
skemmta þér.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Hjón eru á sömu bylgjulengd
núna og vinna saman sem einn
maður, en viðskiptafélagi þinn
gæti orðið fremur þrætugjam.
Eigðu kvöldið með ástvinum
þínum.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sýndu sveigjanieika í dag ef
breyta þarf einhverjum áætiun-
um. Það er mikið í húfi fyrir þig
og fjárhagslegur ávinningur f
vinnunni.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú dregst inn i einhverjar illdeilur
núna. Óvæntur aukakostnaður
gæti lent á þér í dag. Blástu
nýju lífi í ástarsamband þitt og
bjóddu maka þínum út að borða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú verður óhress með eitthvað
fyrri hluta dagsins. Eirðarleysi
þitt gerir hlutina erfiðari núna,
en í kvöld áttu góða stund með
ástvinum þínum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Sinntu skapandi verkefnum í dag.
Þú getur nú rætt um viðkvæmt
mál við náinn ættingja eða vin.
Leggðu áherslu á hópstarf og
vinafundi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Tam
Það rfkir jafnvægi heima og á
vinnustað, og það er einmitt það
sem þú sækist eftir núna. Þú átt
von á fjárhagslegum ávinningi,
en ættir ekki að lána peninga. .
AFMÆLISBARNIÐ vinnur best
þegar það fær innblástur og er
þrautseigt þegar að þrengir. Það
sækist eftir krefjandi verkefnum
og er líklegt til að vera með
mörg jám í eldinum í senn. Það
Ieggur mikla áherslu á fjárhags-
legt öryggi, en kann að hneigjast
fremur að listum eða sérfræði-
störfum en viðskiptum. Það er
búið leiðtogahæfileikum og vill
ekki láta segja sér fyrir verkum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
TOMMI OG JENNI
/VtÍNlR BSU St/O
NiSKire að eR
LJOSKA
HV'etíNIÖ' FVHPlST þén AQ I
STÁ /WG i TÓLAK.TÓL SlUS
OG> f>CSSUM ?
FERDINAND
SMAFOLK
til afsökunar í þetta skipti?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
„Betri er einn fugl í hendi en
tveir í skógi,“ segir málsháttur-
inn. Sem er eins og að segja,
„betri er einn slagur á hendi en
tveir í blindum." Sem sagt, ein-
tómt kjaftæði.
Vestur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ KD865
♦ 1054
♦ K32
♦ 63
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass 1 lauf
1 spaði 2 tíglar Pass 2 grönd
Pass Pass 3 grönd Pass Pass
Útspil: spaðasexa.
Hvað getur verið eðlilegra en
að drepa spaðatíu austurs með
gosa? Grípa gæsina meðan hún
gefst! Og fæla hinar um leið.
Sagnhafi sér átta slagi ef
hann drepur á spaðagosa.
Níundi slagurinn verður að koma
á tígul eða hjarta. Svíning er
neyðarúrræði, svo auðvitað væri
best að geta fríað tígulinn. En
það er ekki hægt nema suður
dúkki spaðatíuna. Ef hann drep-
ur strax, notar austur innkomu
sína á tígul til að spila spaða í
gegnum A9x. Vestur getur þá
fríspilað litinn og beðið rólegur
með tígulkóng.
Með því að dúkka og láta
næst níuna, nýtist innkoma
austurs á tígulásinn ekki til að
bijóta spaðann.
Þetta er einfalt á pappírunum,
en við spilaborðið er auðvelt að
missa af þessum leik.
♦ 72
♦ KG3
♦ DG10976
*K9
Suður
♦ ÁG94
▼ Á96
♦ 84
A Ánmn
Austur
♦ 102
♦ D872
♦ Á5
+ 87542
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Haustmóti TR kom þessi
staða upp í skák nafnanna Þrast-
ar Ólafssonar (2.270) ogÞrastar
Þórhallssonar (2.410), alþjóðlegs
meistara, sem hafði svait og átti
leik.
19. — Rb4!, 20. exf6 — Dxa4!
(Eftir 20. - Rxd5?, 21. Dxd5
stæði hvítur hins vegar vel að vígi,
hótar t.d. 22. Dg5) 21. Bd3 -
Hbd8!, 22. Hxd8 - Hxd8, 23.
Kd2 - Hxd3+, 24. Ke2 - gxf6
og með tvö peð yfir og hvíta kóng-
inn á hrakhólum vann svartur
auðveldleg.