Morgunblaðið - 27.11.1990, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
Jón Baldursson og Aðalsteinn
Jörgensen yfirburðasignr-
vegarar á Kauphallarmóti
__________Brids_____________
GuðmundurSv. Hermanns-
son
„Fyrsta, annað og Þessi
orð hefur Haraldur Blöndal oft
farið með enda vanur að bjóða
upp listaverk. En á laugardag-
inn bauð hann í fyrsta skipti
upp menn, þegar hann „seldi“
22 bridspör á rúma milljón sam-
tals, þau dýrustu á vænt kýr-
verð, eða á milli 100-145 þúsund
krónur. Sú fjárfesting borgaði
sig þó I mörgum tilfellum, því
þarna var verið að selja hluta-
bréf í væntanlegum verðlaun-
um paranna á Kauphallarmót-
inu sem Bridgesambandið,
Skeljungur, Vífilfell og Verð-
bréfamarkaður íslandsbanka,
stóðu að um helgina. Og þijú
af fjórum dýrustu pörunum
enduðu í þremur efstu sætum
mótsins og skiluðu „eigendum"
sínum 80-250 þúsund króna
ágóða.
Mótið var haldið að fyrirmynd
Cavendish-mótsins í New York,
sem dregur árlega til sín bestu
spilara heims. Fyrir mótið eru
pörin boðin upp, og kaupverðið
rennur að mestu í verðlaunapott
sem efstu pörin og eigendur þeirra
skipta með sér.
Á Cavendish-mótinu seljast
pörin fyrir háar fjárhæðir, en fyr-
irfram var erfítt að áætla sölu-
verðið á Kauphallarmótinu. Strax
í byijun varð þó ljóst hvert stefndi
því fyrsta parið, Ásgeir Ásbjöms-
son og Hrólfur Hjaltason, seldist
á 66 þúsund krónur. Þegar upp
var staðið voru þetta dýrustu pör-
in: Jón Baldursson og Aðalsteinn
Jörgensen, 145 þúsund. Sigurður
Vilhjálmsson og Valur Sigurðs-
son, 130 þúsund. Bjöm Eysteins-
son og Guðmundur Sv. Her-
mannsson, 115 þúsund. Símon
Símonarson og Öm Arnþórsson,
100 þúsund. Guðmundur Páll
Amarson og Jónas P. Erlingsson,
75 þúsund. Karl Sigurhjartarson
og Sævar Þorbjömsson, 70 þús-
und. Páll Valdimarsson ogRagnar
Magnússon 70 þúsund.
Eftir uppboðið lá fyrir, að
fyrstu verðlaun til eigenda vom
371 þúsund og 106 þúsund til
spilaranna. í önnur verðlaun vom
247 þúsund til eigenda og 70
þúsund til spilara. I 3. verðlaun
vom 185 þúsund til eigenda og
53 þúsund til spilara. 4. sætið gaf
148 þúsund til eigenda og 42
þúsund til spilara og 5. sætið gaf
123 þúsund til eigenda og 35
þúsund til spilara. Veitt vom verð-
laun fyrir fyrstu 8 sætin.
Vafalaust hefur fleimm en und-
irrituðum verið undarlega innan-
brjósts í mótsbyijun, að bera
skyndilega ábyrgð á vemlegu fé
annarra með því að spila brids.
Að auki bauð keppnisformið upp
á miklar sveiflur og eitt spil gat
kostað eða gefið vel á annað
hundrað stig. Einbeitingarleysi
eitt augnablik gat því kostað 100
stig og þúsundfalda þá peninga-
upghæð.
Ásmundur Pálsson og Guð-
mundur Pétursson byijuðu best
og þegar fyrstu lotu af þremur
Bjöm Eysteinsson og Guðmundur
Hermannsson skutust upp í efsta^
sætið í lok lotunnar og eftir 14
umferðir var staðan þessi: Björn
og Guðmundur 497, Guðni og
Ómar 486, Jón og Aðalstemn
460, Ragnar og Svavar 392, Ás-
mundur og Guðmundur 391.
Guðni og Omar fengu lotuverð-
launin en þeir skomðu 435 stig.
Bjöm og Guðmundur vora í 2.
sæti með 409 stig og Símon og
Öm í 3. sæti með 314 stig.
í þriðju lotunni var hms vegar
komið að Jóni og Aðalsteini sem
skoruðu látlaust. Þeir náðu fljót-
lega fyrsta sætinu og bilið milli
þeirra og annarra breikkaði stöð-
ugt. Hins vegar var mikil keppni
Morgunblaðið/Arnór.
Sigurvegarar fyrsta Kauphallarmótsins, Jón Baldursson og Aðal-
steinn Jörgensen sýna „vöruna" , eins og Haraldur Blöndal orð-
aði það, áður en boðið var í þá á uppboðinu. Þeir voru að lokum
slegnir Gunnari F. Helgasyni á 145 þúsund krónur eftir talsverð-
an slag.
um hin verðlaunasætin. Óm og
Símon komust í 2. sætið í næsts-
íðustu setu, en i síðustu umferð-
inni fengu Bjöm og Guðmundur
risaskor og náðu sætinu aftur.
Þegar upp var staðið höfðu þessi
pör lent í verðlaunasætum:
1. Jón Baldursson - Aðalsteinn
Jörgensen 1.355
2. Björn Eysteinsson - Guð-
mundur Sv. Hermannsson 783
3. Símon Símonarson - Orn
Arnþórsson 666
4. Jakob Kristinsson - Pétur
Guðjónsson518
5. Sverrir Ármannsson - Matt-
hías Þorvaldsson 438
6. Ómar Jónsson - Guðni Sigur-
bjarnason 350
7. Ásmundur Pálsson - Guð-
mundur Pétursson 221.
8. Steingrímur G. Pétursson -
Sveinn R. Eiríksson 115.
Jón og Aðalsteinn unnu líka
lotuverðlaunin með 895 stigum,
Öm og Símon vom þar í 2. sæti
með 459 stig og Sveinn og
Steingrímur í 3. sæti með 358
stig.
Á meðan á mótinu stóð rak
Verðbréfamarkaður Islandsbanka
kauphöll með hlutabréfín í pömn-
um og þar vora oft lífleg við-
skipti. Jón Baldursson og Aðal-
steinn Jörgensen áttu ekki síður
annríkt í kauphöllinni en við spila-
borðið enda áttu þeir, ásamt öðr-
um, í mörgum pömm. Gámngam-
ir sögðu að Jón og Aðalsteinn
hefðu ekkert mátt vera að því að
spila fyrr en á sunnudaginn, en
þá spýttu þeir svo sannarlega. í
lófana.
Að venju sá Agnar Jörgensson
um keppnisstjóm og Kristján
Hauksson um útreikning sem eft-
ir hveija setu lá fyrir með undra-
skjótum hætti.
Yngstu spilararnir á mótinu,
Steingrímur G. Pétursson og
Sveinn R. Eiríksson, náðu 8. og
síðasta verðlaunasætinu með
góðum endaspretti. Þeir spila
hér við Ragnar Magnússon og
Pál Valdimarsson.
lauk vom þeir efstir með 414 stig.
í öðm sæti vora Ragnar Her-
mannsson og Svavar Bjömsson
með 298 stig, Gestur Jónsson og
Sigfús Öm Ámason voru í 3.
sæti með 236 stig og Eiríkur
Hjaltason og Hjalti Elíasson í 4.
sæti með 118 stig. Þrenn auka-
verðlaun vom veitt fyrir þijár
hæstu skorirnar í hverri lotu.
í annarri lotu tóku Guðni Sigur-
bjarnason og Ómar Jónsson mik-
inn sprett og náðu fomstunni en
Guðmundur Sv. Hermannsson og Björn Eysteinsson urðu í 2.
sæti. Þeir spila hér við Friðþjóf Einarsson og Kristófer Magnússon.
„Súrefnisblóm“
Blóm vikunnar
Umsjón: Ágústa Björnsdóttir
192. þáttur
Flestum þætti kostur að geta
lifað á loftinu einhvem tíma, og
oft er spurt um plöntur sem þola
mikinn skugga, eða plöntur sem
geta þrifíst í gluggalausum her-
bergjum og að sjálfsögðu væri
þægilegast að þurfa sem minnst
að hugsa um þær.
__Em gerviblóm ekki lausnin?
Þau em fáanleg í ýmsum stærðum
og gerðum, — ef þau henta ekki
hvað þá?
Hvað um litla græna brúskinn
sem kallaður er „súrefnisblóm"?
Hann lifír bara á loftinu, má ekki
vökva og þolir ekki sól. Því ekki
að reyna hann? En hvað er þetta
— gervi- eða lifandi blóm?
„Súrefnisblómið“ hefur fræðihei-
tið Sertularia cupressina, erlend
nöfn á markaðsvörunni vóm sjó-
mosi eða Haf-cypress og bentu
til að þetta kæmi úr sjónum. Þetta
reyndist ekki vera planta heldur
hópur fmmstæðra lífvera sem lifa
í sambýli, nár.ar tiltekið holdýr,
nánir ættingjar kóralla og smárra
marglyttna. Söluvaran „súrefnis-
blómiff‘ er ekki lengur lifandi,
smálífverumar em dauðar, en sá
vöxtur sein virðist verða, er af
því að greinarnar draga til sín
raka úr loftinu og teygja sig líkt
og gerist með svampa.
Árið 1758 gaf Linné áður-
nefndri „plöntu" latneska nafnið
Sertularia cupressina.
Frekari fróðleikur úr „Flóru
Danmerkur" frá 1935:
Þennan sjávargróður er að
fínna við strendur Atlantshafsins
beggja vegna, aðallega á grunn-
sævi. í Evrópu fínnst hann frá
Miðjarðarhafinu og norður til
Novaja Semlja og er sjaldgæfur
nyrst en í miklu magni í Norður-
sjónum.
í enskri vasaútgáfu frá Collins
(1958) um lífíð í sjónum, segir
að þennan gróður reki á land á
Norðursjávarströnd Englands og
kallist hann þar „hvítt illgresi"
(White Weed). í Harwic, hafn-
arbæ við Ermarsund, er gróðrin-
um safnað Samaii, hann þurrkað-
ur, litaður og seldur til skrauts
víða um Evrópu.
Nokkuð sérstakt þetta holdýra-
sambýli sem líffræðilega er í hópi
dýra en er markaðssett sem
skrautplanta og þar sem annar
gróður þrífst illa gleður hún augað
Súrefnisblóm.
og þessi vitneskja um uppmna
hennar gerir hana dálítið spenn-
andi.
Athugið: Vökvið ekki, þá upp-
litast „plantan".
Þess má geta að lokum að „Súr-
efnisplantan“ hefur af og til verið
fáanleg í blómaverslunum.
Lára Jónsdóttir,
garðyrkjufræðingur.