Morgunblaðið - 27.11.1990, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
49
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Þýsk-íslensku menningarsamtökin í Stuttgart komu í kring kynningarfundi um ísland, EFTA og EB
í iðnaðar- og verslunarráði borgarinnar fyrir skömmu. Hjálmar W. Hannesson, sendiherra Islands
í Þýskalandi, lengst til hægri, hélt fyrirlestur. Helgi Sæmundsson, verkfræðingur, og Emilia Hart-
mann, konsúll, eru með honum á myndinni.
MENNING
Einkaframtak
í menningarsamskiptum
Helgi Sæmundsson, verk-
fræðingur, sem hefur búið
í Þýskalandi í yfir þijátíu ár og
starfar hjá BASF í Stuttgart, er
maðurinn á bak við nýtt félag
sem heitir Þýsk-íslensku menn-
ingarsamtökin. Það hyggst auka
menningartengsl íslands og
Suður-Þýskalands og hefur þeg-
ar staðið fyrir veglegri lista- og
bókmenntasýningu á íslenskum
verkum í landsbókasafninu í
Stuttgart. Helgi, sem er Reyk-
víkingur og ólst upp á Bókhlöð-
ustígnum, hefur farið heim til
íslands að meðaltali einu sinni á
ári í gegnum árin og segist ein-
faldlega hafa gaman af verkefn-
um félagsins þegar hann er
spurður hvers vegna hann ákvað
að hella sér út í starfsemi þess.
Hann fékk hugmyndina að
sýningunni þegar samskonar
sýning var haldin á grískum
verkum í bókasafninu. Hann
stofnaði félag með Dr. Ernst
W. Bauer, kvikmyndagerðar-
manni, Manfred Bonz, forstjóra
sporvagna Stuttgarts, og Arno
Lederer, prófessor og eiginmanni
Jórunnar Ragnarsdóttur, arki-
tekts, til að standa að sýning-
unni og öðrum verkefnum. Það
sótti um styrki frá hinu opinbera
á íslandi og Þýskalandi og veg-
legasti styrkurinn, 125.000 ÍSK,
reyndist koma úr Bókakynning-
arsjóði menntamálaráðuneytis
Islands, en upphæðin samsvaraði
'A af heildarkostnaði sýningar-
innar. Emilia Hartmann, konsúll
íslands í Stuttgart, safnaði tölu-
verðu fé frá ýmsum fyrirtækjum
og borgin studdi sýninguna en
hæsti útgjaldaliður hennar var
útgáfa tveggja sýningarbækl-
inga. Annar þeirra er skrá sem
Christiane Knuppel í háskóla-
bókasafninu í Kiel gerði yfir allar
íslenskar bækur sem hafa verið
þýddar á þýsku síðan 1850.
Samskipti félagsins við þýska
ríkisstofnun sem sér um menn-
ingarsambönd við erlendar þjóðir
kom aftur hreyfingu á fyrirætlun
hennar að gefa út verk eftir
ungan, íslenskan höfund á
þýsku. Fyrirspurnir stofnunar-
innar um hugsanlegan höfund
höfðu strandað í kerfinu á ís-
landi. En nú stendur til að halda
fund í Reykjavík næsta haust
um útgáfuna. Stofnunin heldur
einnig listasýningar og Helgi
vonast tii að vekja áhuga hennar
á að halda sýningu á íslenskum
verkum í framtíðinni.
- ab.
47. leikvika - 24. nóv. 1990
Röðin : X1X-122-211-X12
HVER VANN ?
845.557- kr.
12 réttir: O raðir komu fram og fær hver: O- kr.
11 réttir: 5 raöir komu fram og fær hver: 42.277- kr.
10 réttir: 82 raðir komu fram og fær hver: 2.577-kr.
Tvöfaldur pottur - næst!
SIEMENS
Símtceki frá Siemens
Við bjóðum gott úrval af símtækjum
frá Siemens.
Siemens tryggir gœði, endingu og
fallegt útlit!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Miðlaðar rábleggingar frá Ijósverum aö handan
Bækur
sem
leibbeina,
glebja og
hjálpa.
XxiSaríjós tií
auSitffta Sfs
Sanaya
Roinan
jyXILtAD
pfjfSÓNULEGUM
STYKKOG
andlegum ÞROSKA
Þær eru
innbundnar og
kosta kr. 2.490,
BOK EMMANUELS
(Emmanuels Books)
Rituö af Pat Rodegast
LIFÐU I GLEÐI
(Living with joy)
Rituð af Sanaya Roman
Fást í öllum helstu
bókaverslunum
N YALDARBÆ KU R
Bolholti 6, símar 689278 og 689268
„Elskum alla ★ þjónum öllum“
Isaac B. Tigrett
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888