Morgunblaðið - 07.12.1990, Qupperneq 4
4
MÖRGíjftSííÁÖÍÉ)' röStÍÍljAbt'k^. DkftkAÍrtRk' liiíió’
Verðlagsráð sjávarútvegsins:
Fijálsu fiskverði gegn takmörk
un á ísfiskútflutningi hafnað
FULLTRÚI útgerðarmanna í Verðlagsráði sjávarútvegsins hafnaði
á fundi ráðsins í gær þeirri tillögu fulltrúa fiskkaupenda í ráðinu
að verð á bolfiski verði gefið frjálst frá 1. desember sl. gegn því
að útflutningur á óunnum fiski verði takmarkaður verúlega, eða
þannig að einungis verði leyft að flytja út óunninn fisk, sem fari
beint til neyslu.
Fulltrúar fiskkaupenda höfðu
boðið hækkun á lágmarksverði bol-
fisks frá 1. desember sl. í samræmi.
við þjóðarsáttarsamningana svo-
kölluðu en fulltrúar fiskseljenda,
sjómanna og útgerðarmanna, lögðu
hins vegar fram sameiginlega til-
lögu um að fiskverð yrði gefið
frjálst. Næsti fundur í Verðlagsráði
verður haldinn 17. desember nk.
„Stjómarfundur í Útvegsmanna-
félagi Austfjarða sendi ályktun til
stjórnar Landssambands íslenskra
útvegsmanna og okkar manns í
Verðlagsráði, þar sem við minnum
á þá samþykkt aðalfundar LÍÚ að
lágmarksverð verði áfram ákveðið
í Verðlagsráði," segir Eiríkur Ólafs-
son, útgerðarstjóri Hraðfrystihúss
Fáskrúðsfjarðar og formaður Út-
vegsmannafélags Austfjarða.
„í þessari ályktun bentum við á
að búa þurfí til reglur, eða sett
verði lög, um það hvernig standa
eigi að verðlagningu eða samnihg-
um um fiskverð. í öðru lagi að allt-
af verði til lágmarksverð á físki,
eins og er til dæmis í Evrópubanda-
lagslöndunum, svo og að skilgreint
verði hvað fijálst fískverð sé og
fulltrúi LÍÚ í Verðlagsráði standi
ek’ki að frjálsu fískverði, nema
gengið verði að áðurgreindum atrið-
um. Það er ekki fijálst fískverð, þar
sem notaðar eru alls konar þvingun-
araðferðir. Það verður að vera til
einhver vinnurammi, sem menn
geta unnið eftir,“ segir Eiríkur.
„Ef fijálst fískverð kæmi gætu
þær aðstæður komið upp að nauð-
synlegt væri að vera með lágmarks-
verð. Ef til dæmis Neskaupstaður
eða Seyðisfjörður lokuðust algjör-
lega vegna snjóa, eða annars, gæti
vinnslan þar hugsanlega keypt fisk-
inn fyrir gúanóverð,“ segir Eiríkur.
Hann segir að fiskverð hafí
hækkað um rúm 30% hjá Hrað-
frystihúsi Fáskrúðsfjarðar á þessu
ári. „Við sömdum í byijun septemb-
er um 28% heimalöndunarálag frá
10. júlí síðastliðnum og greiðum
sjómönnunum auk þess sérstaklega
vegna útflutnings á óunnum físki
en við flytjum mjög lítið út af hon-
um,“ segir Eiríkur Ólafsson.
Lágmarksverð Verðlagsráðs fyr-
ir 5 kílóa slægðan þorsk var 49
krónur fyrir kílóið til 1. desember
sl. Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar
gerir út togarana Ljósafell SU og
Hoffell SU. Ljósafellið hefur fengið
55,61 krónu meðalverð fyrir kílóið
af þorski, sem landað er til vinnslu
heima, og 64,64 króna meðalverð
fyrir ýsu frá 10. júlí síðastliðnum
og Hoffellið hefur fengið 59,80
krónur fyrir þorsk og 64,48 krónur
r Heimild: Veöurstí
(Byggt á veðurspá ki. 1(
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 7. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Milli Svalbarða og Norður-Noregs er víðáttumikil
960 mb djúp lægð sem hreyfist norðaustur, en vaxandi hæðarhrygg-
ur á Grænlandshafi mun hreyfast austur.
SPÁ: Norðvestangola eða kaldi og víðast léttskýjað. Frost 6-14 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Vestlæg átt, kaldi eða
stinningskaldi og hiti nálægt frostmarki. Slydduél um vestanvert
landið en annars þurrt.
TAKN:
•Q ► Heiðskírt
Léttskýjað
■Qk Hálfskýjað
SkýÍað
Jlll, Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
r r r r Rigning
r r r
* / *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
-j o Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súid
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að fsl. tíma
Akureyri Reykjavik hiti ■1-6 +4 veður snjóél úrkoma í grennd
Björgvin 7 rigningogsúld
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn 4 rlgning
Narssarssuaq -s-13 léttskýjað
Nuuk í-7 snjókoma
Ósló 1 skýjað
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn 2 snjóél
Algarve 16 þokumóða
Amsterdam 7 Þokumóða
Barcelona 11 místur
Berlín 0 mistur
Chlcago Feneyjar 8 vantar heiðskirt
Frankfurt 2 léttskýjað
Glasgow 8 rigníng
Hamborg 2 skýjað
tas Palmas 21 alskýjað
London 0 þoka
Los Angeles 12 helðskírt
Lúxemborg 1 heiðskírt
Madrfd Malaga 16 vantar alskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Montreal +4 snjóél
NewYork 0 alskýjað
Orlando 10 alskýjað
París 4 heiðskirt
Róm 9 léttskýjað
Vín 0 hálfskýjað
Washlngton +1 léttskýjað
Winnipeg +13 léttskýjað
Fulltrúar fiskkaupenda og -seljenda í Verðlagsráði sjávarútvegsins
hafa enn ekki náð samkomulagi um fiskverð.
fyrir ýsu á sama tíma.
Á fískmarkaðnum í Hafnarfirði
var meðalverð fyrir kílóið af slægð-
um þorski 96,96 krónur í nóvember
síðastliðnum, eða 43,3% (29,31
krónu) hærra en í sama mánuði í
fyrra og meðalverð á slægðri ýsú
93,25 krónur, sem er um 12%
(10,25 krónum) hærra en í nóvemb-
er í fyrra. Frá verðinu á markaðnum
má hins vegar draga 5% vegna
kostnaðar við söiuna.
Á bresku fiskmörkuðunum fást
nú rúmar 150 krónur fyrir kílóið
af þorski, eða um 37% hærra verð
en á sama tíma í fyrra og rúmar
160 krónur fyrir ýsu, eða um 46%
hærra verð en á sama tíma í fyrra.
Borgarstjórn:
Engar útfellingar
í hitaveituvatni
á síðustu vikum
-segir í minnisblaði hitaveitustjóra
til borgarstjóra
DAVÍÐ Oddsson, borgarsljóri, kynnti á fundi borgarsljórnar í gær
minnisblað frá hitaveitusljóra vegna umræðu um magnesíumsílíkat
útfellingar í hitaveituvatni. Þar kemur fram að ekkert bendi til að
uppblöndun vatns frá Nesjavöllum og jarðhitavatns af höfuðborgar-
svæðinu takist ekki. Síðustu vikur hafi rekstur Nesjavallavirkjunar
gengið eðlilega og útfellingar ekki orðið í hitaveituvatninu.
í minnisblaði hitaveitustjóra, september, hefur framleiðslu verið
Gunnars H. Kristinssonar, segir m.a.
að framleiðsla á heitu vatni á Nesja-
völlum hafí tekist betur en gert var
ráð fyrir og ekkert hafí komið fram
enn sem bendi til að uppblöndun
takist ekki, þrátt fyrir að nokkur
útfelling hafi átt sér stað í dreifikerf-
inu við uppkeyrslu virkjunarinnar.
Þá segir í minnisblaðinu; „Síðan
Nesjavallavirkjun fór í gang, í lok
stjórnað þannig, að ekki yrðu útfell-
ingar í dreifíkerfínu og hefur það
gengið mjög vel ef tekið er tillit til
þess að um nýja reynslu starfsmanna
er að ræða og er óhætt að fullyrða
að síðustu vikur hefur reksturinn
gengið eðlilega og útfellingar ekki
orðið. Fylgst er með framleiðslu og
blöndun reglulega og verður að sjálf-
sögðu gert áfram.“
Bókauppboð í Qsló:
Fornritin seldust ekki
Á BÓKAUPPBOÐI J.W. Cappe-
lens í Ósló í byijun þessa mánað-
ar voru boðnar upp tvær Skál-
holtsbækur sem prentaðar voru í
Skálholti á síðari hluta 17. aldar.
Bækumar seldust ekki þar sem
ekki bárust í þær viðunandi boð.
Annars vegar er um að ræða fjór-
ar sögur í einu bindi prentaðar í
Skálholti 1688 í upprunalegu skinn-
bandi og hins vegar Ólafs sögu
Tryggvasonar sem prentuð var í
Skálholti 1689, einnig í upprunalegu
bandi. Hæstu tilboðin í hvora bók
náðu ekki 1 milljón kr., en settar
voru 1,5 milljón kr. á fyrrnefndu
bókin en 1 miiljón á Ólafs sögu
Tryggvasonar. Þetta eru fyrstu forn-
ritin sem prentuð voru á íslandi.
Samkvæmt upplýsingum frá J.W.
Cappelens uppboðsfyrirtækinu bár-
ust ekki nægilega há tilboð í bæk-
urnar og voru þær því dregnar til
baka. Bækurnar eru enn til sölu ef
viðunandi tilboð berst. Eigandi bó-
kanna er norskur félagsskapur sem
starfsmaður J.W. Cappelen vildi ekki
segja nánari deili á.
Gangi fyrirhugaðar skattahækkanir eftir:
Verðbólga næsta árs
yrði 12% í stað 7,3%
- að mati hagdeildar Verslunarráðsins
VERÐBÓLGA yrði 12% á næsta
ári í stað 7,3%, gangi fyrirhugað-
ar skattahækkanir ríkissljórnar-
innar eftir eins og þær koma fram
í fjárlagafrumvarpi. Þetta er mat
hagdeildar Verslunarráðs Is-
lands.
í útreikningum Verslunarráðsins
er miðað við að kaumáttur launlega
og samkeppnistaða atvinnulífsins
verði varin á næsta ári með nauðsyn-
■legri gengisaðlögun, þar sem að með
föstu gengi hefði skattahækkun
annað hvort í för með sér aukið at-
vinnuleysi eða minni kaupmátt laun-
þega.
Utreikningar Verslunarráðs sýna,
að 6 mánaða verðbólga yrði 4,98%
í upphafi og 7,39% í lok næsta árs,
ef miðað er við forsendur aðila
vinnumarkaðar og Þjóðhagsstofnun-
ar. Ef miðað er við forsendur aðila
vinnumarkaðar og fyrirhugaðar
skattahækkanir ríkisstjórnar, yrði
verðbólgan - 5,68% í upphafí og
11,68% í lok næsta árs.