Morgunblaðið - 07.12.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
19
IBM bauð starfsfólki
sínu á óperutónleika
IBM á íslandi keypti öll sæti í íslensku óperunni og bauð starfs-
fólki sínu ásamt gestum á óperutónleika um síðustu helgi. Að
sögn Gunnars Hanssonar forstjóra, mun fyrirtækið auk þess
styrkja óperuna um eina milljón króna á næsta ári.
„Við ákváðum að styrkja óper-
una á tvennan máta,“ sagði Gunn-
ar. „í fyrsta lagi var ákveðið að
kaupa húsið síðastliðinn sunnudag
og var starfsfólki ásamt sínum
nánustu boðið á óperutónleika
síðdegis þann dag. Tónleikarnir
vöktu mikla hrifningu og fólk var
Kvenfélag
Þistilfjarð-
ar 7 5 ára
Garði, Þistilfirði.
SUNNUDAGINN 2. desember
hélt Kvenfélag Þistilfjarðar upp
á 75 ára afmæli sitt í Barnaskól-
anum á Svalbarði og bauð félag-
ið öllum íbúum á félagssvæðinu
svo og kvenfélagskonum á Þórs-
höfn og mönnum þeirra og fleiri
gestum til kvöldverðar.
Þar sáu konurnar um frábæra
skemmtidagskrá sem þær höfðu að
öllu leyti unnið sjálfar, sama má
segja um allar veitingar. Þá var
uppi handavinnusýning kvenfélags-
kvenna, þar mátti sjá bæði nýja og
gamla muni, marga hrein listaverk.
Það voru 25 konur sem stofnuðu
kvenfélagið 1915. Eini núlifandi
stofnfélaginn var í afmælishófinu,
Þorbjörg Gestsdóttir, er hún vel
minnug og hin hressasta 95 ára
gömul. Átti hún fagra muni á sýn-
ingunni sem hún vann eftir að hún
var níræð. Heiðursfélagar kvenfé-
lagsins eru Þorbjörg Halldórsdóttir,
Elín Pétursdóttir og Sigríður Jóns-
dóttir og kom hún frá Húsavík til
að vera í hófinu og það sjálfsagt
ekki verið erfiðari ferð en oft áður
á meðan hún bjó í Krossavík og
sótti fundi og aðrar samkomur
kvenfélagsins. Kvenfélag Þistil-
fjarðar hefur starfað óslitið frá
.stofnun og unnið mikið að líknar-
og mannúðarmálum og jafnframt
gengist fyrir námskeiðahaldi og
fræðslufundum um hin ólíklegustu
málefni. Nú eru í Kvenfélagi Þistil-
fjarðar 33 konur, formaður er
Bjarnheiður Skaftfeld, Ytra-Álandi.
Félaginu bárust heillaóskir og
gjáfir og margar ræður voru flutt-
ar. Afmælishófinu lauk með því að
dans var stiginn fram eftir nóttu.
- Björgvin
Pennavinir
Tvítug sænsk stúlka með áhuga
á tungumálum, ferðalögum, bók-
menntum, íþróttum og útivist o.fl.:
Liselott Jannerhed,
Borgstuguvágen 7,
S-35261 Váxsjö,
Sverige.
alveg í skýjunum að þeim loknum.
Þá viljum við gera okkar til að
starfsemi óperunnar geti háldið
áfram en þar eru ýmis teikn á
lofti um mikla erfiðleika. Höfum
við heitið að leggja fram eina millj-
ón króna í fjárstuðning á næsta
ári og reyna þannig að hvetja aðra
til að ganga enn frekar til liðs við
óperuna svo að starfsemin leggist
ekki alveg niður.“
Morgunblaðið/Sverrir
Um 70 starfsmenn IBM ásamt gestum eða um 450 manns hlýddu á óperukórinn ásamt einsöngvuruin
á tónleikum í Islensku óperunni.
l| ÁRGERÐ1991
Cherokee
Tvítug frönsk stúlka með margv-
ísleg áhugamál:
Marie-Laure Bricourt,
4 Grand Place Saint-Python,
59730 Soles,es,
France.
Tvítug hollensk stúlka vill skrif-
ast á við íslenska jafnalda:
Marie-Jose Smulders,
Blauwsparstraat 3,
4849 BB Dorst,
Holland.
• LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
SOKME^P^
Á STIGAHÚS
Komið og skoðið
þessa glæsilegu jeppa
-ennþá fallegri og mun aflmeiri-
Opið laugardag og sunnudag kl. 13.00 -17.00
JÖFUR
ÞEGAR ÞU KAUPIR BIL
Nýbýlavegi 2, sími 42600
• LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •