Morgunblaðið - 07.12.1990, Side 26
26
MORGUNBKAÐIÐ FÖSTUÐAGUR' 73 DESEMBER 1’990
James Baker um málefni Mið-Austurlanda:
Bandaríkjastjóm styður ekki
ályktun um friðarráðstefnu
Washington, Túnisborg. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vísaði í gær á bng
fréttum um að Bandaríkjastjórn hygðist styðja ályktunartillögu hjá
Oryggisráði Sameinuðu þjóðanna um að efnt yrði til alþjóðlegrar
friðarráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda.
„Við mælum ekki með því nú að
efnt verði til alþjóðlegrar ráðstefnu
um deilur araba og Israela og við
styðjum ekki heldur ályktun um
slíkt hjá öryggisráðinu," sagði Bak-
er er hann ávarpaði útanríkismála-
nefnd fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings. Hann sagði að slík ályktun
væri í ósamræmi við þá afstöðu
Bandaríkjastjórnar að ekki mætti
tengja Persaflóamálið við deilu
araba og ísraela. „Það er því vita-
skuld ekki tímabært að efna til
slíkrar ráðstefnu,“ bætti hann við.
Bandarískir fjölmiðlar höfðu haft
eftir stjómarerindrekum að Banda-
ríkjastjórn hefði lagt fram tillögu
hjá öryggisráðinu um að efnt yrði
til alþjóðlegrar friðarráðstefnu „á
viðeigandi tíma“ og „með tilhlýði-
legu fýrirkomulagi" til að greiða
fyrir friðarsamningi milli ísraela og
araba. Stjórnarerindrekarnir sögðu
að þetta væri í fyrsta sinn sem
Bandaríkjastjórn styddi slíka tillögu
í slóð Leifs
heppna til
Ameríku
Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttaritara
Morgunblaðsins.
NORSKI ævintýramaðurinn
Ragnar Thorseth hefur nú gert
allt klárt fyrir næsta siglingaleið-
angur sinn en að þessu sinni
hyggst hann feta í fótspor Leifs
Eiríkssonar og sigla á víkingaskipi
til Ameríku.
í leiðangri Thorseths verða þijú
víkingaskip og verður lagt upp á
þjóðhátíðardegi Norðmanna, 17.
maí, frá Bergen. Tilgangurinn með
ferðalaginu er m.a. sá að minnást
Vínlandsfarar Leifs Eiríkssonar. Að
baki leiðangursins standa ríkisstjóm-
ir Noregs og íslands, norska sjón-
varpið og dótturfyrirtæki Kloster-
samsteypunnar, World City Disco-
very. Aætlaður kostnaður við leið-
angurinn er 20 milljónir norskra
króna, jafnvirði 190 milljóna ISK,
og er fjármögnun lokið. Einnig hefur
verið gengið frá fyrirhugaðri ferðaá-
ætlun.
Um borð í skipunum verða 26
menn, þar af fjögurra manna sveit
breskra kvikmyndatökumanna.
Víkingaskipin eru Gauksstaðaskipið,
sem er í eigu Kloster, Ósebergsskip-
ið sem er í eigu Bergesen útgerðar-
innar og Sigiar Saga sem er eign
fylkissafnsins á Sunnmæri. Verður
þeim reynslusiglt 1. mars nk. frá
Bergen til Þrándheims.
Fyrsti viðkomustaður leiðangurs-
ins verður í gamla víkingabænum
Kirkwall á Orkneyjum. Þaðan verður
haldið til Leirvíkur á Hjaltlandseyjum
en þar telja menn sig það tengda
Noregi að norski þjóðhátíðardagur-
inn- er þar haldinn hátíðlegur. Frá
Leirvík liggur leiðin út á Atlantshaf
og stefna tekin á Færeyjar. Hleypt
verður á land bæði í Þórshöfn og
Kirkjubæ en síðan siglt til íslands
og áætlað er að þangað verði skipin
komin um Jónsmessu. Þaðan verður
haldið til Grænlands, síðan til Ný-
fundnalands en leiðangrinum á að
ljúka í Washington D.C., höfuðborg
Bandaríkjanna um haustið.
Norska ríkissjónvarpið mun í sam-
vinnu við nokkrar sjónvarpsstöðvar
gera þætti um leiðangurinn og er
talið að þeir verði góð auglýsing fyr-
ir íslendinga og Norðmenn. Nortre
og Norges Eksportrúd munu i tengsl-
um við siglinguna efna til kynning-
ar-og markaðsátaks þar sem Noreg-
ur verður kynntur sem ferðamanna-
land og einnig norskar útflutnings-
með fyrirvörum hjá öiyggisráðinu
þótt hún hefði áður samþykkt álykt-
un þar sem minnst er á siíka ráð-
stefnu á varfærnislegan hátt. Þeir
sögðu að Thomas Pickering, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum, væri að ræða málið
við Ismail Bazal, sendiherra Mala-
ysíu, sem hefur ásamt þremur öðr-
um óháðum ríkjum lagt fram álykt-
unartillögu um hernumin svæði
ísraela.
Stjómarerindrekar sögðu að
Bandaríkjastjórn væri að reyna að
komast hjá því að beita neitunar-
valdi gegn tillögu óháðu ríkjanna
þar sem hún óttaðist að slíkt gæti
orðið til að ijúfa samstöðu ríkjanna
sem sameinast hafa gegn Saddam
Hussein íraksforseta í Persaflóa-
deilunni; Því hefði hún meðal ann-
ars léð máls á því að minnst yrði
á ráðstefnu „á viðeigandi tíma og
með tilhlýðilegu fyrirkomulagi“.
Baker sagði að Bandaríkjastjórn
hefði margoft notað þetta orðalag
í þessu sambandi og því hefði eng-
in breyting orðið á stefnu hennar.
■ Dick Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hvatti önnur
aðildarríki Atlantshafsbandalagsins
(NATO) til að senda fleiri hermenn
og vopn til Persaflóa á tveggja
daga fundi varnarmálaráðherra
bandalagsins sem hófst í Brussel í
gær. „Allir tóku vel í þetta en eng-
inn hefur enn gefið loforð,“ sagði
einn embættismanna NATO.
James Baker
Salman Rushdie birtist óvænt og fyrirvaralaust í bókaverslun í
bók sína. «
Reuter
London í gær og áritaði nýútkomna
Rushdie
úr felum
London. Daily Telegraph.
RITHÖFUNDURINN Salman
Rushdie kom úr felum í gær og
áritaði nýútkomna bók sína, Har-
ún og sagnahafið (Haroun and-
the Sea of Stories), í bókaverslun
í London.
Rushdie hefur verið í felum í tæp
tvö ár eða frá því erkiklerkurinn
Ayatollah Khomeini í íran lýsti
hann réttdræpan fyrir bókina
Söngvar Satans. Klerkurinn sagði
að umfjöllun bókarinnar um trúar-
siði múhameðstrúarmanna
helgispjöll.
Koma Rushdie vakti undrun
fjölda fólks sem var statt í búðinni.
Gaf hann sig á tal við viðstadda sem
sögðu að hann hefði leikið á alls
oddi og verið afslappaður í þær 20
mínútur sefn hann hafði viðdvöl í
búðinni -en á þeim tíma áritaði hann
um 100 bækur fyrir viðskiptavini
verslunarinnar.
væri
Forsetaframbjóðandi veldur heilabrotum hjá pólskum kjósendum:
Tyminski nærðist á ormum og
lirfum í myrkviðum indíána
Eiginkonan greinir líkamskvilla með því að rannsaka augu sjúklinganna
Varsjá, London. Reuter, Daily Telegraph.
BARÁTTAN fyrir síðari umferð forsetakosninganna í Póllandi á
sunnudag hefur einkennst af gagnkvæmum svívirðingum frambjóð-
endanna tveggja, þeirra Lech Walesa og Stanislaws Tyminskis.
Walesa sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann sakaði andstæð-
ing sinn um að gera Pólverja að aðhlátursefni heimsbyggðarinnar
með framboði sínu. Að sögn Walesa mætti Tyminski ekki á settum
tíma í sjónvarpskappræðu á sunnudag og mun hinn fyrrnefndi því
ekki semja um fleiri kappræður. Walesa nýtur mikilla yfirburða í
skoðanakönnunum en stuðningsmenn hans óttast að vissa kjósenda
um að úrslitin séu þegar ráðin geti valdið óvæntum atburðum; marg-
ir muni ekki nenna á kjörstað.
Tyminski segist vera harður
fijálshyggjumaður, boðar skatta-
lækkanir og heitir því að vera búinn
að bæta lífskjörin eftir aðeins mán-
aðar setu í embætti en forðast að
öðru Ieyti að útskýra stefnu sína.
Fólk, sem sagt er vera frá
Kanada, þar sem Tyminski hefur
að mestu búið undanfarna tvo ára-
tugi, hefur komið fram • í pólsku
sjönvarpi og haldið því fram að
frambjóðandinn beiji konuna sína
og tími ekki að kaupa mat handa
börnunum. Einnig er hann sagður
bijóta húsgögnin í reiðiköstum og
því hefur verið haldið á lofti að
hann hafí ekki verið talinn hæfur
til herþjónustu í Póllandi sakir geð-
rærtna kvilla og flogaveiki. Jozef
Glemp, kardínáli og æðsti maður
kirkjunnar í Póllandi, segir að Tym-
inski,sé „sögulegur brandari" og
hefur ítrekað stuðning kirkjunnar
við Walesa. Sjálfur segist Tyminski
hafa í fórum sínum upplýsingar um
Walesa sem geti skaðað mjög
orðstír hans en hafnar beiðni Sam-
stöðuleiðtogans um að birta þessar
upplýsingar. Walesa segir ljóst að
gamlir kommúnistar og fyrrverandi
öryggislögreglumenn styðji við bak-
ið á Tyminski í von um að auka
glundroða í landinu en gífurlegir
efnahagsörðugleikar hijá þjóðina
vegna gjaldþrots kommúnismans.
Athygli hefur vakið að Tyminski
hefur að sögn stjórnvalda oftar en
einu sinni komið við í Líbýu á ferð-
um til Póllands en sjálfur segir
hann þetta eintómar gróusögur.
Meðal indíána í Perú
Tyminski fór frá Póllandi 1969
til Kanada með viðkomu í Svíþjóð.
Hann er 42 ára gamall, fæddur í
smáborg í grennd við Varsjá. Hann
lærði tölvufræði í Kanada, segist
vera orðinn milljónamæringur í
Bandaríkjadollurum og vitað er að
hann rekur nú rafeindatækjafyrir-
tækið Transduction í Toronto, hefur
þar tíu manns í vinnu. Árið 1981
fór í hann í sumarleyfi til Perú en
þar hafði hann um hríð veitt fjórum
börnum fjárstuðning. í ferðinni kom
hann til afskekkts smábæjar ind-
íána, Iquitos, sem er við Amazon-
fljótið. Af einhveijum ástæðum féll
Tyminski fyrir staðnum og þar
kynntist hann núverandi eiginkonu
sinni, Gracielu sem sjaldan víkur
frá honum enda telur frambjóðand-
inn að hún búi yfir dularfullum
mætti. Graciela stundar náttúru-
lækningar og greinir sjúkdóma
fólks með því að rannsaka ljósop
augnanna.
Opinberun
í bókinni „Heilagir hundar“ sem
Tyminski fékk kunningja sinn til
að færa í letur kemur fram að foy-
setaframbjóðandinn hafi orðið fyrir
andlegri opinberun hjá indíánunum
á frumskógasvæðinu en þeir hafa
haft lítil kynni af siðmenningu
hvítra manna. Þar lifði Tyminski
undir handaijaðri þeirra og nærðist
um' skeið á ormum og lirfum.
Alls dvaldi hann í fjögur ár í
Perú og kom á fót kapalsjónvarpi
í Iquitos. Efnið fékk hann frá mex-
íkóskum, bandarískum og sovésk-
um stöðvum en var sakaður um að
greiða ekkert fyrir það. Hann
stundaði einnig viðskipti á fleiri
sviðum í Perú, rekur veitingastað
og selur m.a. farsíma, lét einnig
smíða olíuskip en hélt 1985 aftur
til Kanada. 1989 varð hann formað-
ur smáflokks ákafra hægrisinna í
Kanada.
Tyminski virðist ekki hafa sýnt
málefnum Póllands verulegan
áhuga þar til allra síðustu árin og
háðfuglar gera sér mat úr því að
hann talar móðurmálið með sterk-
um hreim. Athygli hefur vakið að
hann segist ekki hafa heyrt um
herlögin sem kommúnistar settu
1981 og neitar að fordæma þær
aðgerðir. Snemma í október á þessu
ári fór hann á heimaslóðir til að
auglýsa bók sína en segir að vinir
og aðdáendur hafi hvatt sig til að
fara í forsetaframboð. Fáir tóku
baráttu hans alvarlega í fyrstu og
það var reiðarslag fyrir marga Sam-
stöðuleiðtoga. að hann skyldi fá
fleiri atkvæði en Tadeusz Mazowi-
ecki forsætisráðherra sem varð
þriðji í fyrri umferðinni.
Stjórnmálaskýrendur segja að
fylgið hafi Tyminski einkum sótt