Morgunblaðið - 07.12.1990, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
29
Reuter
SAS tapar stórfé á hótelkaupum
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
SAS-flugfélagið mun tapa tals-
verðum fjármunum á hótelkaup-
um sínum víða um heim, að sögn
danska blaðsins Politiken.
Að sögn blaðsins hafa sérfræð-
ingar Den Danske Bank og UNI-
BANK reiknað út að hóteldeild SAS
fréttaritara Morgunblaðsins.
verði rekin með a.m.k. 400 milljóna
danskra króna tapi á næstu tveimur
árum, jafnvirði 3,8 milljarða ÍSK.
Tapið er einkum til komið vegna
kaupa SAS á Intercontinental-hót-
elkeðjunni en 46 af hótelunum 106
eru fjarri áfangastöðum flugfélags-
ins. Kaupverðið var 3,5 milljarðar
danskra króna, jafnvirði 33 millj-
arða ÍSK.
Ib Jensen, fulltrúi starfsmanna í
stjórn SAS, segir í samtali við Pol-
itiken að kaupin á Intercontinental-
keðjunni sé heimskulegasta fjár-
festing SAS frá upphafi.
Engisprettnasveimur í Ástralíu
Starfsmaður landbúnaðarráðuneytisins í Ástralíu veiðir engisprettur
er sveima' til Perth eftir að hafa farið yfir hveitiakra í vesturhluta
landsins og valdið þar miklum skaða.
Þýskaland:
Teltschik segir af sér
Bonn. Reuter.
HORST Teltschik, helsti ráðgjafi
Helmuts Kohls Þýskalandskansl-
ara í utanríkismálum, sagði af.
sér á miðvikudag og er litið á
afsögn hans sem áfall fyrir kansl-
arann.
Teltschik er 50 ára og hefur ver-
ið náinn samstarfsmaður Kohls frá
1972. Hann hverfur úr opinberri
þjónustu til starfa hjá Bertelsmann-
stofnuninni, sem er einkafyrirtæki
er fæst við rannsóknastörf.
Kohl sagði á miðvikudag að
Teltschik hefði tjáð sér í október
að hann hygðist láta áf starfi deild-
arstjóra í ráðuneyti sínu og hverfa
til starfa í einkageiranum. Hefði
hann strax lýst hryggð sinni með
þá ákvörðun Teltschiks. Hann er
þriðji háttsetti embættismaðurinn
sem segir skilið við stjórn Kohls í
þessari viku. Áður höfðu Helmut
Haussmann efnahagsmálaráðherra
og Ursula Lehr, heilbrigðis- og
kvennamálaráðherra, sagt af sér.
NATO reiðubúið að útrýma
skammdrægum flaugum
Brussel. Reuter.
GERHARD Stoltenberg, varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði á
miðvikudag að Atlantshafsbandalagið (NATO) væri reiðubúið að
útrýma skammdrægum kjarnorkueldflaugum sinum í Evrópu.
^ lÍÖKflFORlHGSBŒKöi'.
Eldflaugarnar eru aðallega í
Þýskalandi. Búist er við að Banda-
ríkjamenn og Sovétmenn hefji við-
ræður um fækkun þeirra á kom-
andi ári. Bandaríkjastjórn hefur
ekki enn tjáð sig um hvort hún vilji
útrýma þeim algjörlega.
Varnarmálaráðherrann sagði
einnig að aðildarríkin í Evrópu litu
svo á að ekkert vit væri í því að
halda í stórskotaliðsvopn búin
kjarnahleðslum á sama tíma og
Sovétmenn væru að flytja hersveit-
ir sínar í álfunni heim. Einn af að-
stoðarmönnum hans sagði við
fréttaritara Reuters að samkomu-
lag væri í sjónmáli innan NATO
um að útrýma stórskotaliðsvopnun-
um einnig.
ARTIH'R
JÓDYNUR
GUNNAR HyARNASON “RÁDUNALTnJH
CTO ''b
öaga
cÍSISENZKAcHESTSINS<'Á 20. ÖLCD
Islenska óperan
___iiiu a
Frumsýning r%
26. desember •
Miöapantanirí síma 621077
L