Morgunblaðið - 07.12.1990, Síða 39

Morgunblaðið - 07.12.1990, Síða 39
M01i|G4'NBkAi>Ii)t PÖ^TUffAGb'R: DESEAjlBpi JcW49/ M Rosenthal Góð gjafahugmynd birtist í fegurð kristalsins. Gleður vinar hjarta. lrXX\\v\ Nýborgr# Hefst þá lesturinn. Nú hefur verð á langlínusímtölum innanlands lækkað um 20%. Eg endurtek: Nú hefur verð á langlínusímtölum innanlands lækkað um 20%. Petta hljóta að vera góðar fréttir fyrir alla þá sem vilja ná langt. Eg hringi síðar. Notaðu símann til að ná langt - það er svo ódýrt. PÓSTUR OG SÍMI Við spörum þér sporin Ármúla 23,.sími 83636 Míramar eftir Nóbels- skáldið Mahfúz komin út SETBERG hefur gefið út skáld- söguna Míramar eftir egypzka rithöfundinn Nagíb Mahfúz. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1988. Þýðandi bókar- innar er Sigurður A. Magnússon. í frétt frá útgáfunni segir m.a. um skáldsöguna: „Gömul grísk kona rekur gisti- heimilið Míramar í Alexandríu. Það ber merki um fornan glæsibrag, þótt það sé nú í nokkurri niður- níðslu. Utan sumartímans er erfitt að fá viðskiptavini, en þennan vetur »V mkk hýsir gistiheimilið fimm gesti, tvo roskna og þtjá unga karlmenn og fjallar sagan um samband þeirra við þjónustustúlkuna, hina fögru bóndadóttur Zóhru. Með heilbrigðu stolti sínu verður hún miðdepill í mikilli flækju er snýst um ástir, völd og auðæfi. Flækjan nær hámarki þegar einn gestanna finnst örendur." Ein bók hefur áður komið út á íslenzku eftir Nagíb Mahfúz, Blind- gata í Kaíró, sem út kom haustið 1989. Míramar er 216 blaðsíður að stærð, prentuð hjá Prentbergi hf. Bókin er gefin út með styrk frá íslenzka þýðingarsjóðnum. y Tólf hafnfirskir lista- menn kynna verk sín TÓLF hafnfirskir myndlistarmenn kynna verk sín í kaffistofu Hafnar- borgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Kynningin hefst, laugardaginn 8. desember kl. 13 og verður opin fram á Þorláksmessu. Nagíb Mahfúz Ekkert gallerí er starfrækt í Hafn- arborg enn sem komið er og nota listamennirnir því þessa leið til þess að minna bæjarbúa á að öflugt mynd- listarstarf blómgast í Firðinum. Það er von listamannanna að þetta geti orðið vísir að Listagalleríi Hafnfirð- ingum og öðrum sem þangað koma til gagns og gleði. Vinnustofur listamanna eru einnig opnar áhugasömum listunnendum. Starfsemi þeirra og efnisval er marg- breytilegt, Þeir vinna að höggmynda- list, leirlist, grafík, textil og málun. Listamennirnir benda á að hentugt væri að gestir hringdu á vinnustofur og boðuðu komu sína. Listamennirnir eru: Kristrún Ágústsdóttir, Elín Guðmundsdóttir, Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Jóna Guðvarðardóttir, Janos Probstner, Sigríður Erla, Sigríður Ágústsdóttir, Pétur Bjarnason, Rúna, Gestur Þorgrímsson, Gunnlaugur Stefán Gíslason og Sverrir Ólafsson. Kaffistofan er opin alla daga frá kl. 11-19. (Fréttatilkynning) Ingibjörg Sumarliðadóttir Ljóðabók eftir Ingibjörgn Sum- arliðadóttur ÚT ER komin ljóðabókin Ljósblik liðinna daga eftir Ingibjörgu Sumarliðadóttur frá Vaishamri. Bókin er 112 blaðsíður, almenn ljóð, eftirmæli og ýmis tækifæris- ljóð. Einnig eru nokkrar lausavísur eftir Karl Guðmundsson. Börn þeirra gáfu bókina út. Prentun og umbrot annaðist Prentsmíði hf. og bókband annaðist Flatey. Bókin mun fást í verslun- inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, bókabúð Ólivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, og hjá útgefendum. (Fréttatilkynning) Þú svalar lestrarþörf dagsins ásíöum Moggans! Góðar fréttir fyrir Jón Bergsson í Suðurlandeyjum og flöro sem viljo nó langt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.