Morgunblaðið - 07.12.1990, Qupperneq 39
M01i|G4'NBkAi>Ii)t PÖ^TUffAGb'R: DESEAjlBpi JcW49/
M
Rosenthal
Góð gjafahugmynd
birtist í fegurð
kristalsins.
Gleður vinar hjarta.
lrXX\\v\
Nýborgr#
Hefst þá lesturinn.
Nú hefur verð á langlínusímtölum innanlands lækkað um 20%.
Eg endurtek: Nú hefur verð á langlínusímtölum innanlands
lækkað um 20%.
Petta hljóta að vera góðar fréttir
fyrir alla þá sem vilja ná langt.
Eg hringi síðar.
Notaðu símann til að ná langt - það er svo ódýrt.
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin
Ármúla 23,.sími 83636
Míramar eftir Nóbels-
skáldið Mahfúz komin út
SETBERG hefur gefið út skáld-
söguna Míramar eftir egypzka
rithöfundinn Nagíb Mahfúz.
Hann hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1988. Þýðandi bókar-
innar er Sigurður A. Magnússon.
í frétt frá útgáfunni segir m.a.
um skáldsöguna:
„Gömul grísk kona rekur gisti-
heimilið Míramar í Alexandríu. Það
ber merki um fornan glæsibrag,
þótt það sé nú í nokkurri niður-
níðslu. Utan sumartímans er erfitt
að fá viðskiptavini, en þennan vetur
»V
mkk
hýsir gistiheimilið fimm gesti, tvo
roskna og þtjá unga karlmenn og
fjallar sagan um samband þeirra
við þjónustustúlkuna, hina fögru
bóndadóttur Zóhru.
Með heilbrigðu stolti sínu verður
hún miðdepill í mikilli flækju er
snýst um ástir, völd og auðæfi.
Flækjan nær hámarki þegar einn
gestanna finnst örendur."
Ein bók hefur áður komið út á
íslenzku eftir Nagíb Mahfúz, Blind-
gata í Kaíró, sem út kom haustið
1989.
Míramar er 216 blaðsíður að
stærð, prentuð hjá Prentbergi hf.
Bókin er gefin út með styrk frá
íslenzka þýðingarsjóðnum.
y
Tólf hafnfirskir lista-
menn kynna verk sín
TÓLF hafnfirskir myndlistarmenn kynna verk sín í kaffistofu Hafnar-
borgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Kynningin hefst,
laugardaginn 8. desember kl. 13 og verður opin fram á Þorláksmessu.
Nagíb Mahfúz
Ekkert gallerí er starfrækt í Hafn-
arborg enn sem komið er og nota
listamennirnir því þessa leið til þess
að minna bæjarbúa á að öflugt mynd-
listarstarf blómgast í Firðinum. Það
er von listamannanna að þetta geti
orðið vísir að Listagalleríi Hafnfirð-
ingum og öðrum sem þangað koma
til gagns og gleði.
Vinnustofur listamanna eru einnig
opnar áhugasömum listunnendum.
Starfsemi þeirra og efnisval er marg-
breytilegt, Þeir vinna að höggmynda-
list, leirlist, grafík, textil og málun.
Listamennirnir benda á að hentugt
væri að gestir hringdu á vinnustofur
og boðuðu komu sína.
Listamennirnir eru: Kristrún
Ágústsdóttir, Elín Guðmundsdóttir,
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, Jóna
Guðvarðardóttir, Janos Probstner,
Sigríður Erla, Sigríður Ágústsdóttir,
Pétur Bjarnason, Rúna, Gestur
Þorgrímsson, Gunnlaugur Stefán
Gíslason og Sverrir Ólafsson.
Kaffistofan er opin alla daga frá
kl. 11-19.
(Fréttatilkynning)
Ingibjörg Sumarliðadóttir
Ljóðabók eftir
Ingibjörgn Sum-
arliðadóttur
ÚT ER komin ljóðabókin Ljósblik
liðinna daga eftir Ingibjörgu
Sumarliðadóttur frá Vaishamri.
Bókin er 112 blaðsíður, almenn
ljóð, eftirmæli og ýmis tækifæris-
ljóð. Einnig eru nokkrar lausavísur
eftir Karl Guðmundsson. Börn
þeirra gáfu bókina út.
Prentun og umbrot annaðist
Prentsmíði hf. og bókband annaðist
Flatey. Bókin mun fást í verslun-
inni Jötu, Hátúni 2, Reykjavík,
bókabúð Ólivers Steins, Strandgötu
31, Hafnarfirði, og hjá útgefendum.
(Fréttatilkynning)
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Góðar fréttir fyrir
Jón Bergsson í Suðurlandeyjum
og flöro sem viljo nó langt