Morgunblaðið - 07.12.1990, Blaðsíða 49
það voru brjósk, sem fínnast í einu
stykki - þorskhaus. Glíman við
þorskhausinn var skemmtileg en
ekki endilega þrautalaus; hún var
lærdómsrík og eftirminnileg.
Svo hætti ég að borða hjá henni
þorskhausa, stækkaði og kom
sjaldnar til hennar. Eitt var það þó
sem var jafn reglulegt og annað á
dagatalinu, en það voru margfræg
jólaboðin hennar. Jólaboðin voru að
sumu leyti sameiningartákn fjöl-
skyldunnar. Þar hitti maður ætt-
ingja sem maður hitti annars ekki
svo oft. En einmitt þannig var hún
amma, vildi alltaf sameina og halda
hópnum sínum saman.
Amma var úr sveit og þaðan var
gestrisnin hennar alveg örugglega
ættuð. Núna, hin seinni ár, leit ég
af og til inn til hennar í Alftahól-
ana. Maður byrjaði venjulega á því
að afþakka allt og segjast vera al-
veg pakksaddur, svona rétt til þess
að hlífa eldhúsborðinu örlítið. Hún
tók auðvitað ekkert mark á manni
og hlpð á borðið öllu mögulegu
góðgæti, og sagði svo: „Strákar eru
alltaf svangir." Ekki vildi hún þó
trufla mann við góðgætið og fór
því oftar en ekki fram í stofu á
meðan maður raðaði pínulítið í sig.
Ég held ég gleymi því þó aldrei,
þessu með pönnukökurnar. Einn
eftirmiðdag kom ég til hennar, og
hitti þá svo á að hún var nýbyrjuð
að baka pönnukökur. Þar sem hún
stóð við og bakaði sagði hún mér
að fá mér „pönsur“ og rétti mér
mjólk og glas. Eins og hlýðnu
barnabarni sæmir fékk ég mér ný-
bakaðar og ljúffengar pönnukökur.
Allgóða stund hækkaði ekkert á
diskinum hjá henni en plássið í
maga mínum fór þverrandi þar til
ég gat ekki meir. Amma lauk svo
bakstrinum, og þar sem hún leit á
hálffullan diskinn, fannst henni
verst að ég skyldi nú ekki vilja
neitt hjá henni. Ég reyndi með út'-
troðinn magann að segja henni að
ég væri búinn að raða í mig nokk-
urra mánaða skammti af pönnukök-
um og gæti bara alls ekki meir.
Það var eins og að tala fyrir daufum
eyrum, slík var gestrisnin. Arið
1983 rann upp sautjándi afmælis-
dagurinn minn með ökuskírteini og
öðru skemmtilegu tilheyrandi.
Mamma hafði útbúið veislu og ég
fékk að fara á bílnum og ná í ömmu
í veisluna. Ég hringdi nú fyrst til
að athuga hvort hún vildi koma í
smá kaffíboð. Hún var til í það og
ég sagðist vera að koma að ná í
hana. Þegar ég kom til hennar rétt
eftir kvöldmat, þá var hún þar að
steikja kótelettur og var, þrátt fyr-
ir fortölur, ekki í rónni fyrr en ég
hafði fengið hjá henni „eitthvað“
að borða þar sem „ég hlaut að vera
svangur". Já, hún amma var alltaf
höfðingi heim að sækja.
Ung að árum fékk hún amma
snert af lömunarveiki og bjó við
nokkra fötlun æ síðan. En hún var
þrautseig og lét aldrei deigan síga,
aldrei bilbug á sér fínna. Þetta kom
svo greinilega fram þegar maður
spurði hana frétta af sjálfri sér og
hvemig hún nú hefði það, og hvem-
ig hún hafí haft það frá því að
maður hitti hana síðast. Algengasta
svarið var svona: „Mér líður alveg
stórkostlega!“ Það gilti einu hversu
þjáða maður sá hana, alltaf vom
svörin á sömu lund.
Þegar ég í dag kveð þessa merku
konu hinstu kveðju, þá syrgir andi
minn. Minningarnar eru margar,
en helst vil ég muna hana í hlut-
verki ömmunnar. í hlutverki sem
fór henni svo vel. Ég er þakklátur
fyrir góðu stundirnar, fyrir brosin
hennar og góðvildina. Ég gleðst
þegar ég minnist þess hvernig hún
vildi allt fyrir alla gera; hvernig hún
vildi gleðja fólkið sitt. Ég bið algóð-
an Guð að hugga og létta sorg
barna hennar og annarra aðstand-
enda og geri orð Björns Halldórs-
sonar frá Laufási að mínum:
Svo fari þeir í friði,
er frá oss skiljast hér,
og hjá því dimma hliði,
sem holdið inn um fer,
skal frelsis engill fríður
oss flytja huggun þá,
að Drottins dýrð vor bíður,
ef Drottin trúum á.
Kristinn P. Birgisson
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
49
Kveðjuorð:
Milutin Kojic
íslendingar hafa í tímans rás
eignast vini af erlendum uppruna,
sem hafa orðið meiri og betri Islend-
ingar en við sjálfir. Milutin Kojic,
ræðismaður Júgóslava, var einn
þeirra.
Nú er hann látinn, horfínn okkur.
Kynni okkar urðu með nokkuð
sérstæðum hætti. Ég fékk vinnu
sumartíma á síldarplani. Kojic vann
þar sem díxilmaður.
Vikumar á planinu voru lær-
dómsríkar. Ég dróst að þessum
prúða, hljóðláta og hæverska
manni. Hann hafði sérstaka nær-
veru, lifandi frásagnargáfu og sér-
lega þroskað skopskyn. Hann naut
þess að segja góða sögu og ljómaði
þá af lífsgleði.
Þegar hádegismerkið- var gefið
og allir þustu í matsalinn með íra-
fári dvaldi hann við og sagði að við
skyldum láta mesta handaganginn
líða hjá. Höfðum við þá rólega stund
við spjall.
Kojic barðist' í fjallahersveitum
Júgóslava í seinni heimsstyijöld-
inni, í fremstu víglínu, þegar Hitler
og blöðlar hans lögðu höfuðáherslu
á að hafa hendur í hári frelsishetju
þeirra, Titos, og minnstu munaði
að þeim tækist það.
Það var barist í brennandi sól
hásléttunnar og fímbulvetri fjall-
anna. Á nóttunni voru allar flutn-
ingaleiðir nasista sundurgrafnar. Á
daginn barist með heimagerðum
vopnum. .Og með þessu sameinuð-
ust ólík þjóðarbrot og hélst svo
meðan Tito lifði.
Það var alltaf fagnaðarfundur
þegar við Kojic hittumst, sem var
því miður alltof sjaldan.
Við Dóra sendum Guðrúnu og
fjölskyldunni okkar innilegustu
kveðjur.
Baldvin Halldórsson
«Jólin na.lga.st
^ I Opió laugardaga kl. 10-16 og sunnudaga kl. 13-16
*
*
*
*
*
*
*
*
*
Öll gólfef ni á sama staó
Parket - flisar - dúkar - teppi - mottur
—*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
BOEN -parket
Eik, beyki,
askur, hiynur, merbau
og margar fleiri gerðir.
Yfir 30 valkostir í mynstrum.
Verð frá kr.
2.495,-
m2stgr.
Höganas -flisar
og einnig ítalskar og spænsk-
ar, gólf- og veggflísar.
Margar stærðir - mikið úrval
- hagstætt verð frá
1.395,-
m
i2kr..
ÍArm st ro ng-gólf dúkur
Frábær heimilisgólfdúkur —
sem ekki þarf að líma
- þykkur og mjúkur.
Fæst í 2, 3 og 4ra metra
breiddum í mörgum fallegum
litum og mynstrum.
Verð frá kr.
JF ■ m2 stgr.
Allar Höganas f lísar (afgangar)
med 20%-60% af slætti til jóla.
GOLFTEPPI - GOLFTEPPI
Yfir 100 litir í gólfteppum á
heimili, skrifstofur og stigahús.
Einlit - mynstruð - lykkjuð og
uppúrklippt.
Einungis Teppabúðin
býóur íslensk ullarteppi
á aðeins kr.
3#383#- m2stgr.
Gerum tilboð - önnumst lögn
/7
Stök teppi - mottur - dreglar - renningar
Pantió teppahreinsivélar timanlega fyrir jól
E
Greióslukjör við allra hæfi og góður staógreidsluaf sláttu
TEPPABUÐIN
Eurokredit - Visaraógreióslur - Samkort. gólfefnamarkaóur - Suóurlandsbraut 26 - sími 91 -681950
############********»**####**#######
, »