Morgunblaðið - 07.12.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
51
Full búð af nýjum glæsilegum
fatnaði ............
Opið til kl. 6 a morgun.
jWfrKARNABÆR
P Laugavegi 66, s.ími 22950.
NÆTURLIFIÐ
„Yfir strikið“ fæðist
Unnið er hörðum höndum að því
að ljúka umbyltingu skemmti
staðarins sem áður hét Hollywood
þannig að hann megi opna á ný
undir nýjum formerkjum á annað
kvöld. Nokkrir tugir iðnaðarmanna
hafa farið hamförum síðustu daga
og er áætlað að þeir ljúki störfum
í fyrramálið og þá verði ekkert að
vanbúnaði að skemmtistaðurinn
„Yfir strikið" hefji göngu sína.
Aðstandendur hins nýja
skemmtistaðar hafa ábyrgst að ekki
nokkur maður sem þekkti gamla
Hollywood geti þekkt sig í nýja
umhverfinu, t.d. sé búið að aka
burtu átta fleytifullum gámum af
gamla Hollywood á haugana að
undanförnu og ekki sjái fyrir end-
ann enn . . .
Iðnaðarmenn að störfum í „Yfir strikið".
FRÆGÐ
Sherilyn
ekkiöll
þar sem
hún er séð
Stúlka er nefnd Sherilyn Fenn og
er allt í einu fræg leikkona, en
hún fer með eitt aðalhlutverkið í
sjónvarpsþáttaröðinni Twin Peaks
sem slegið hefur í gegn víða um
lönd, ekki síst á íslandi. Sherilyn
leikur hina léttgeggjuðu dóttur hót-
elhaldarans á staðnum, Audrey
Horden sem er ekki öll þar sem hún
er séð frekar en aðrir í þessum
dæmalausa sjónvarpsþætti.
Sherilyn Fenn sýndi og sannaði
fyrir skömmu, að þótt ímynd hennar
sé vafasöm eftir Twin Peaks-þætt-
ina þá er hún „húmanisti" og hún
undirstrikaði það fyrir skömmu, er
hún tók þátt í móttöku fyrir sjúkl-
inga sem þjást af alnæmi og síðar
vegna sjónvarpsþátta þar um.
Sherilyn er annars ekki feimin
stelpa, þeir sem vilja skoða hana
nánar fletta upp í nýjasta hefti tíma-
ritsins Playboy, sem hefur það orð
á sér að vera skemmtiefni fyrir
karlmenn.
Sherilyn Fenn
4>
FORLAGIÐ
COSPER
Komdu innfyrir, svo ég vekji ekki alla í húsinu.
Spennandi og tilfinningaþrungin saga um ungan dreng - óvel-
komið líf sem kviknar í kviði þrettán ára móður. Fyrstu ár ævinnar
er hann geymdur uppi á háalofti svo ekki falli blettur á heiður
fjölskyldunnar. Síðan hefst hraksaga hans um heiminn.
Hér er lýst fordómiim smáborgara sem umhverfið og fáfræðin gera
heimska og grimma. En þetta áhrifamikla skáldverk fjallar ekki um þá,
heldur um fórnarlamb þeirra - eitt af hinum ástlausu og óvelkomnu
börnum á jörðinni. Blóðbrúðkaup hefur verið lesin í Ríkisútvarpið og
hlotið frægustu og eftirsóttustu bókmenntaverðlaun Frakka, Goncourt-
verðlaunin. Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
a
|
AUK