Morgunblaðið - 15.12.1990, Page 2
) MORGlMBIíAÐIÐ' LMJG'AKB'AGUR - ÍSÍ DESEMBER) 19Ö0
82
Von á samningafundi eftir helgi
BJÖRN Rúnar Lúðvíksson, stjórnarmaður í Félagi ungra lækna,
segir að háværar raddir séu í röðum aðstoðarlækna um að segja
upp strax, verði ekki samið um nýtt vaktafyrirkomulag og greiðslur
fyrir vaktir aðstoðarlækna. Að sögn Guðríðar Þorsteinsdóttur í samn-
inganefnd ríkisins og Reykjavíkurborgar verður boðaður samninga-
fundur með samninganefnd læknafélaganna fljótlega eftir helgi.
„Það hafa engir formlegir samn- sögn Björns Rúnars er verulegur
ingafundir verið og við lýsum furðu vilji fyrir því í röðum aðstoðarlækna
okkar og miklurn áhyggjum yfir að
stjómvöld skuli ekki bregðast við
svona réttlátum kröfum,“ sagði
Björn Rúnar í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Eftir því sem tíminn
líður, aukast líkurnar á harðari
vinnudeilu.“
Kröfur aðstoðarlækna eru þær
að vaktafyrirkomulagi verði breytt,
að ekki verði skylda að vinna meira
en 90 yfirvinnutíma á mánuði, og
að tvöfalt álag verði greitt á vakt-
ir, sem eru lengri en 16 tímar. Að
Otto Wathne
með sölumet
í Bretlandi
OTTO Wathne NS frá Seyðisfirði
seldi 77,2 tonn í Grimsby í Bret-
landi á föstudag fyrir um 15,8
milljónir króna. Meðalverðið er
197,45 krónur, eða 1,86 sterlings-
pund, sem er hæsta meðalverð,
að segja upp störfum á sjúkrahús-
unum eða endurnýja ekki starfs-
samninga sina, gangi ekki saman
með samninganefndum ríkisins og
Reykjavíkurborgar annars vegar og
læknafélaganna hins vegar í næstu
viku.
Guðríður Þorsteinsdóttir, starfs-
mannastjóri Rikisspitaíanna, sem
einnig er í forystu samninganefndar
ríkisins, sagði að áætlað væri að
boða fund með samninganefndum
læknafélaganna fljótlega eftir
helgi. Hún sagði að enn hefði samn-
inganefndin ekki séð neinar kröfur
aðstoðarlækna um breytt vinnufyr-
irkomulag, þrátt fyrir að eftir þeim
hefði verið leitað. Einungis hefði
verið farið fram á hærra kaup fyrir
vaktir og fyrir yfirvinnutíma fram
yfir 90 á mánuði, sem ljóst væri
að myndu hafa mikinn útgjalda-
auka í för með sér.
Örn Rúnarsson
Síðasti vinnudagur
hjá Hvaleyri
Síðasti vinnudagur hjá Hvaleyri hf. í
Hafnarfirði var í gær en ákveðið hefur
verið að leggja starfsemina niður. Ekki
er ljóst hvað verður um húsið en þar hef-
ur verið fiskverkun í áratugi. Starfsmenn
voru milli 60 og 70, og gerðu þeir sér
dagamun í gær í tilefni þess að fiskur var
unninn í húsinu í síðasta sinn, a.m.k. í
bili. Flestir hafa fengið vinnu annars stað-
ar, skv. upplýsingum blaðsins.
Hugmyndir formanna þingflokkanna:
Aðstoðarlæknadeilan:
Háværar raddir
um uppsagnir
Heimíld til útgáfu bráða-
birgðalaga verði afnumin
Vilji fyrir því að Alþingi starfi 1 einni málstofu og þingrofsréttur verði afnuminn
sem fengist hefur í Bretlandi.
Ur skipinu voru meðal annars
seld 66 tonn af þorski fyrir
196,41 krónu meðalverð og tæp
3 tonn af ýsu fyrir 263,31 krónu
meðalverð.
Otto Wathne NS átti einnig
gamla metið, sem sett var 13. sept-
ember síðastliðinn. Þá voru seld tæp
68 tonn úr skipinu í Grimsby fyrir
185,70 króna, eða 1,75 sterlings-
punda, meðalverð. Skipið fékk þá
193,26 króna, eða 1,82 sterlings-
punda, meðalverð fyrir rúmt 61
tonn af þorski og 163,39 króna, eða
1,54 sterlingspunda, meðalverð fyr-
ir tæp tvö tonn af ýsu.
Stjóm veitustofnana:
Fundur verð-
ur eftir viku
Á fundi í stjórn veitustofnana í
gær skýrðu forsvarsmenn Hitaveitu
Reykjavíkur frá þeim orsökum, sem
taidar eru liggja að baki tregu
rennsli í Hafnarfjarðaræð veitunnar
og kulda í mörgum húsum á höfuð-
borgarsvæðinu. Ákveðið verður á
fundi í næstu viku hvemig brugðist
verði við vandandum.
FORMENN þingflokkanna á Al-
þingi ræða nú hugmyndir um
breytingar á sijórnarskrá og lög-
um um þingsköp, sem hefðu
meðal annars í för með sér, að
heimild til setningar bráða-
birgðalaga yrði afnumin, þing-
rofsréttur forsætisráðherra tak-
markaður eða afnuminn og að
Alþingi yrði ein málstofa. Að
sögn Ólafs G. Einarssonar, for-
manns þingflokks sjálfstæðis-
manna, má vænta þess að þessar
tillögur verði lagðar fram í frum-
varpsformi eftir jólaleyfi þing-
manna.
Að sögn Ólafs G. Einarssonar
sitja formenn þingflokkanna, að
beiðni forseta þingsins, í nefnd, sem
á að skoða tillögur um breytingar
á þingsköpum Alþingis og að þing-
ið starfi framvegis í einni málstofu.
Segir Ólafur að í nefndinni hafi
komið upp hugmyndir um ýmsar
breytingar og verið sé að kanna
hvort um þær náist nægileg sam-
staða á þingi.
Þær hugmyndir, sem eru til um-
ræðu, eru meðal annars á þá leið,
að stjórnarskránni verði breytt
þannig að heimild til útgáfu bráða-
birgðalaga verði afnumin eða tak-
mörkuð, að ákvæðum um þingrof
verði breytt þannig að þingsrofs-
réttur verði alveg afnuminn eða
færður úr höndum forsætisráðherra
til Alþingis og að umboð þingmanna
haldist ævinlega fram á kjördag,
en falli ekki úr gildi ef þing er rof-
ið fyrir lok kjörtímabils.
Ólafur segir að auk þessara mála
sé verið að ræðá ýmis önnur atriði
varðandi þingsköp, svo sem um
flutning mála, ræðutíma og nefnda-
skipun. í nefndinni sé góður vilji
til að reyna að ljúka þessu starfi
þannig að hægt verði að leggja til-
lögurnar fram í frumvarpsformi að
loknu jólaleyfi þingmanna. Hann
segist meta stöðuna svo, að á þingi
sé nú meirihluti fyrir því að gera
þingið að einni málstofu og að ef
ágreiningur verði um aðrar tillögur
nefndarinnar verði þær teknar út
af borðinu til þess að tefja ekki
framgang þessa máls.
Flugleiðir og
Kenya Airways
hefja samstarf
Hæstiréttur:
Byggimg vann málið gegn
fimmta byggingaflokki
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm borgardóms Reykjavíkur þess
efnis að uppgjör Byggungs í Reykjavík í október 1986 við félags-
menn í fimmta byggingaflokki, sem stóðu að byggingum á Reka-
granda og Seilugranda, hafi ekki verið endanlegt uppgjör með full-
nægjandi lokagreiðslu heldur bráðabirgðauppgjör og að félagar í
byggingasamvinnufélagi verði ávallt að taka á sig endanlegan kostn-
að við byggingu íbúða sinna, hvort, sem áætlanir forsvarsmanna
byggingafélagsins reynast réttar eður ei, enda hafi hver bygginga-
flokkur aðstöðu til eftirlits með fjárreiðum og framkvæmdum.
Málið snerti hagsmuni um 120
íbúðareigenda og nam heildarfjár-
hæðin sem þeir voru krafðir um
eftir á 80-100 milljónum króna.
Stór hluti fólksins greiddi hluta sinn
í endanlegum kostnaði samkvæmt
reikningi byggingafélagsins þegar
í ljós kom að forsvarsmenn bygg-
ingafélagsins höfðu vanáætlað
byggingakostnaðinn.
Um helmingur fólksins taldi end-
anlegt uppgjör þegar hafa farið
fram þar sem það hefði fengið í
hendur afsöl eða eignaryfirlýsingar.
Því ætti félagið að bera skaðann
af vanáætlunum forsvarsmanna
þess. Mál eins þessara aðila var
rekið sem prófmál fyrir bæjarþingi
sem dæmdi Byggung í hag og síðan
fyrir- Hæstarétti, þar sem hæsta-
réttardómaramir Guðrún Erlends-
dóttir, Hjörtur Torfason og Þór
Vilhjálmsson og varadómararnir
Gunnar M. Guðmundsson hrl. og
Sigurður Reynir Pétursson hrl.,
staðfestu þá niðurstöðu en létu
hvorn aðila bera sinn kostnað af
rekstri málsins.
FULLTRÚAR Flugleiða og Kenya Airways hafa að undanförnu
rætt um möguleika félaganna á samstarfi. Hugmyndir eru uppi
um samvinnu um flutning farþega milli Afríku og Bandarikjanna
þannig að Kenya Airways flytji þá milli Evrópu og Afríku og
Flugleiðir milli Bandaríkjanna og Evrópu. Félögin myndu mætast
í London og Kaupmannahöfn.
Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða og Joseph W.N. Nyagah
forstjóri Kenya Áirways ræddust
við í gær og í framhaldi af því
munu fulltrúar félaganna fjalla um
nánari útfærslu samstarfsins. Fé-
lögin eru svipuð að stærð, reka
bæði 10 til 12 flugvélar og nota
bæði Boeing 757-200 vélar og eru
bæði að taka Fokker 50 vélar í
notkun fyrir innanlandsflug sitt.
Sigurður Helgason segir einnig
uppi hugmyndir um samvinnu á
tæknisviðinu og skipti á flugvélum
en annatími Kenya Airways er
einkum að vetrinum þegar minna
er umleikis hjá Flugleiðum. Hann
sagði þó að þetta væru aðeins
hugmyndir ennþá.
Kenya Airways flýgur nokkrum
sinnum í viku milli London og
Nairobi og hefur nýverið tekið upp
flug milli Nairobi og Kaupmanna-
hafnar. Joseph W.N. Nyagah seg-
ir að heildarfarþegafjöldi milli
Kenya og Bandaríkjanna sé um
75 þúsund manns og með því að
bjóða upp á framhaldsflug milli
Evrópu og Bandaríkjanna með
samvinnu við Flugleiðir geti Kenya
Airways aukið hlutdeild sína á
þessum markaði. Þá segir hann
einnig vaxandi flutninga frá
Suður-Afríku en þangað flýgur
Kenya Airways einnig og eigi það
bæði við um ferðamenn sem fólk
í viðskiptaerindum.
(
c
i
1
I
1
1
I
I
I