Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
*
Islenskt vættatal eft-
ir Arna Björnsson
ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin Islenskt vættatal sem
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur hefur tekið saman.
í kynningu útgefanda segir: „I
bókinni segir frá þeim íbúum huliðs-
heima sem birst hafa alþýðu manna
hér á landi í aldanna rás og allt
fram á þennan dag.
Taldar eru í stafrófsröð allar
helstu nafngreindar vættir sem fyr-
ir koma í íslenskum alþýðusögum
og munnmælum, draugar, huldu-
fólk, tröll og aðrar kynjaverur. Get-
ið er ættar þeirra, heimkynna ’og
helstu afreka, auk þess sem vísað
er til heimilda þar sem fræðast má
nánar um verurnar. I bókinni er
fjöldi mynda frá dvalarstöðum
huldra vætta og einnig kort sem
sýna dreifíngu þeirra um landið."
Árni Bjömsson tók bókina saman
og ritaði inngang og eftirmála.
Þórarinn Óskar Þórarinsson tók
flestar Ijósmyndirnar. Erlingur Páll
Ingvarsson teiknaði kort og hannði
bók og kápu. Ljösmynd á kápu er
eftir Guðmund P. Óla'fsson.
Bókin er 192 bls., prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf.
Allir forngrísku harm-
leikimir komnir á bók
ÚT ER komin hjá Máli og menningu bókin Grískir harmleikir í
þýðihgu Helga Hálfdanarsonar.
í bókinni er að finna alla forn-
gríska harmleiki sem varðveist
hafa, eftir höfuðskáldin Æskílos,
Sófókles og Evripídes. Lesendum
til hægðarauka tilfærir þýðandinn
í bókarlok helstu sagnir sem höf-
undarnir byggðu á. Þar er jafn-
framt skrá manna- og staðanafna
með stuttum skýringum. Loks er
gerð grein fyrir íslensku þýðing-
unni.
Helgi Hálfdanarson er þjóð-
kunnur fyrir þýðingar sínar á leik-
verkum Williams Shakespeare og
ljóðum frá ýmsum löndum.
Bókin er 1.198 bls., prentuð hjá
Thomas Nelson, Hong Kong.
Myndskreyting er eftir Tryggva
Ólafsson listmálara. Bókin er einn-
ig fáanleg í gjafaöskju.
(Fréttatilkynning)
■ LAUGARDAGINN 15. des-
ember verður bókmenntadagskrá í
kaffístofu Hafnarborgar. Þar
munu eftirtaldir • rithöfundar lesa
úr nýútkomnum bókum sínum:
Árni Ibsen, Einar Már Guð-
mundsson, Guðrún Helgadóttir,
Kristín Loftsdóttir, Ólafur Gunn-
arsson, Símon Jón og Steinunn
Sigurðardóttir. í kaffstofunni
stendur nú yfir sýning á verkum
eftir tólf hafnfirska listamenn,
og eru öll verkin til sölu á staðn-
um.
■ INGA SÓLVEIG opnar sýn-
ingu í Te og kaffi Vesturgötu 52
Akranesi laugardaginn 15 desemb-
er. Þar verða til sýnis klippimyndir
og ljósmyndir. Inga Sólveig lauk
BA prófi frá San Francisco Art
Intitute 1987 og hefur hún tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum og
haldið einkasýningar bæði hér á
landi og erlendis. Sýningin verður
opin daglega frá kl. 10-11.30 og
stendur til 31. desember.
Sesselja Sigmundsdóttir
blaðsíður. Margar myndir eru í bók-
inni. Sameinaða auglýsingastofan
Jónína Michaelsdóttir
hannaði kápu. Prentsmiðjan Oddi
prentaði.
Dansstúdíó Sóleyjar:
Hnotubijóturínn með nýjum hætti
Saga Sesselju Sig-
mundsdóttur komin út
KOMIN ER út bókin Mér leggst eitthvað til eftir Jónínu Michaels-
dóttur. Styrktarsjóður Sólheima gefur bókina út.
í kynningu Styrktarsjóðs Sólheima
segir: „Mér leggst eitthvað til er um
brautryðjandann og baráttukonuna
Sesselju Sigmundsdóttur, stofnanda
Sólheima — gleði hennar og sorgir,
ótrúleg afrek og sálarstyrk, áralanga
baráttu við kerfið, sigur að lokum
og viðurkenningu samfélagsins.
Glæsileg ung kona kemur til ís-
lands 1930 eftir margra ára nám og
þjálfun í uppeldismálum í Evrópu.
Hún reisir heimili fyrir munaðarlaus
og vanrækt börn á afskekktri jörð í
Grímsnesi og setur jafnframt á stofn
fyrsta heimili fyrir þroskahefta á
íslandi. Hún fer nýjar leiðir í starfi
sínu. Er frumkvöðull í lífrænni rækt-
un og grænmeti er uppistaðan í fæð-
inu á Sólheimum.
Kerfið snýst gegn henni. Allt er
gert til að hrekja hana frá Sólheim-
um. Hún þarf að sækja rétt sinn
fyrir dómstólum og áður en niður-
staða er fengin setur ríkisstjórn Is-
lands bráðabirgðalög til að ná af
henni heimilinu.
Aðförin mistekst og Sesselja
stendur uppi sem sigurvegari.
Lífsstarf þessarar konu er einstakt
og örlagasaga hennar og fallegt sam-
band við þýskan listamann og kenn-
ara lætur engan ósnortin."
Mér leggst eitthvað til er 320
Þátttakendur I Hnotubrjótnum eru nemendur í Dansstúdíói Sóleyjar.
Morgunblaðið/Sverrir
Dansstúdíó Sóleyjar verður
með þrjár sýningar á Hnotubrjót-
unum í sal Verslunarskólans,
Ofanleiti 1,16.18. og 19. desemb-
er klukkan 21.00.
Nemendur dansstúdíósins dansa
jassballett, ballett, nútíma götudans
og jassfunk í sýningunni sem út-
færð er af Ástrósu Gunnarsdóttur,
Erni Guðmundssyni, Bryndísi Ein-
arsdóttur, Þórhalli Skúlasyni og
Jóni Agli Bragasyni. Svið og bún-
inga hannar Dóra Einarsdóttir.
Dansarar í sýningunni eru frá
fimm ára til fertugs.
Hnotubijóturinn er heimsfrægt
verk, sem flest allir dansflokkar
heims hafa flutt. Hér er verkið tek-
ið nýjum tökum og var það Ástrós
Gunnarsdóttir sem átti hugmyndina
að því.
Örn Guðmundsson, Dóra Einarsdóttir, Bryndís Einarsdóttir, Þórhall-
ur Skúlasson, Sóley Jóhannsdóttir, Jón Egill Bragasson og Ástrós
Gunnarsdóttir.
Hafnarfjörður:
Heildarsafn tónverka
Fríðríks Bjarnasonar
ÚT er komið heildarsafn tónverka Friðriks Bjarnasonar og er það
gefið út í minningu hans og konu hans Guðlaugar Pétursdóttur. I
ár eru liðin 110 ár frá fæðingu Friðriks.
Þau hjónin arfleiddu Hafnar-
fjarðarbæ að mestum hluta eigna
sinna og var svo fyrir mælt í erfða-
skrá að bækur hans, nótnahand-
rit, nótnasöfn og persónulegir
hlutir skyldu varðveittir í Bóka-
safni Hafnarfjarðar. Af arfafé
þeirra hjóna var stofnaður sjóður
í eigu Hafnarfjarðarbæjar, Sjóður
Friðriks Bjarnasonar og Guðlaug-
ar Pétursdóttur og renna í hann
höfundarréttargjöld af lögum
Friðriks. í frétt frá sjóðsstjóminni
segir, að Páll Kr. Pálsson organ-
leikari, einn stjórnarmanna hafi
átt hugmynd að útgáfu tónverk-
anna og sá hann um undirbúning
útgáfunnar en að útgáfunni
sfanda minningasjóðurinn og
Hafnaríjarðarbær.
Eins og fyrr segir, er hér um
heildarútgáfu á tónverkum Frið-
riks að ræða og voru mörg þeirra
tilbúin til útgáfu þegar hann lést.
Tónverkunum er skipt í átta
flokka; fyrir blandaðan kór, karla-
kór, einsöngvara, skólasöngva,
hljóðfæralög, sálmalög, hátíðar-
söngva, stólvers og orgelverk.
Bókin er 354 bls., prentuð í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar. Kápumynd-
in er eftir Eirík Smith listmálara,
en hönnuður hennar er Magnús
Arason. Bókin verður til sölu í
Bókasafni Hafnarfjarðar.
• Morgunblaðið/Árni Sæberg
I stjórn Sjóðs Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur eiga
sæti, talið frá vinstri, þeir Stefán Júlíusson gamall nemandi Friðriks
og samkennari, Páll Kr. Pálsson organleikari við Þjóðkirkjuna í
Hafnarfirði og Eiríkur Pálsson lögfræðingnr.
Menningarsjóður íslands og Finnlands:
3,2 milljónum króna úthlutað
STJÓRN Menningarsjóðs íslands
og Finnlands hefur úthlutað 38
aðilum samtals 207.500 finnskum
mörkum, jafngildi 3,2 milljóna
ísienskra króna.
Stjórn sjóðsins kom saman 'til
fundar í Tammerfors í Finnlandi
20. október sl. til að ákveða árlega
úthlutun styrkja úr sjóðnum. Um-
sóknarfrestur var til 30. september
sl. og bárust alls 105 umsóknir, þar
af 83 frá Finnlandi og 22 frá ís-
landi. 17 umsækjendanna frá ís-
landi fengu styrk.
Stofnfé sjóðsins var 450.000
finnsk mörk sem finnska þjóðþingið
veitti í tilefni af því að minnst var
1.100 ára afmælis byggðar á ís-
landi 1974. Fé hans nemur nú um
2,2 milljónum marka. Stjórn sjóðs-
ins skipa Matti Gustafson, deildar-
stjóri í finnska menntamálaráðu-
neytinu, sem er formaður, Juha
Peura, til. mag., Kristín Þórarins-
dóttir Mántylá, fulltrúi, og Þórunn
Bragadóttir, deildarstjóri.
Kreditkort hf.
og Samkort
hf. sameinast
ÁFORMAÐ er að sameina rekst-
ur fyrirtækjanna Kreditkort hf.
og Samkort hf. Samningur hefur
verið gerður á milli fyrirtækj-
anna með fyrirvara um samþykki
stjórna og hluthafa þeirra.
Öll starfsemi Samkorts hf. flyst
í húsnæði Kreditkorts hf. að Ar-
múla 28 um áramótin.
Engin breyting verður á útgáfu
eða notkunarmöguleikum Sam-
korta og Eurocard korta frá því sem
verið hefur. Stefnt er að því að
Samkort verði jafnframt alþjóðlegt
greiðslukort sem nota má á yfir 8
milljón afgreiðslustöðvum Eurocard
víða um heim. Þau fyrirtæki sem
samið hafa við Samkort hf. um að
ákveðnum hópum viðskiptamanna
séu veitt ýmis fríðindi út á sér-
merkt kort, svo sem aðildarfélög
Samtaka samvinnuverslana, munu
áfram tengjast Samkorti hf.
í tilkynningu frá fyrirtækjunum
segir að forsvársmenn þeirra telji
að með sameiginlegum rekstri megi
auka hagræði þeirra og bæta þjón-
ustu við korthafa og samstarfsaðila.