Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
65
Heiðurstónleikar í Edinborg:
Ánægður með þetta tækifæri
- segir Hafliði Hallgrímsson
TÓNLEIKAR til heiðurs Hafliða Hallgrímssyni, sellóleikara og
tónskáldi voru nýlega haldnir í Queen’s tónlcikasalnum í Edinborg
í Skotlandi. Á tónleikunum voru flutt tvö verk eftir Hafliða, og
var um frumflutning á öðru þeirra að ræða en það var samið í
minningu Vinar hans Bryn Turley píanóleikara, sem lést sviplega
fyrir tveimur árum. Bresk blöð hafa farið lofsamlegum orðum
um tónleikana.
Aðstandendur tónleikanna voru
samtök ungra tónlistarmanna EC-
AT, sem undanfarin tíu ár hafa
staðið fyrir um fimm tónleikum á
ári í Edinborg, þar sem flutt er
nútímatónlist og jazz auk sérstakra
„portrait“ tónleika. helgaða einum
listamanni, þar sem þeir eru beðnir
um að velja dagskrána.
„Á þessum tónleikum voru frum-
fluttir tveir strengjakvartettar eftir
mig og var annar þeirra saminn í
minningu vinar míns sem lést fyrir
tveimur árum,“ sagði Hafliði.
„Þetta var mjög góður kvartett frá
London, Mistry strengjakvartett-
inn, sem lék þessi verk. Kvartettinn
gerði þetta myndarlega og lagði sig
fram og spilaði frábærlega vel og
ég var mjög ánægður með flutning-
inn. Tónleikamir vor vel auglýstir
og aðsókn var mjög góð. Þetta er
mikill heiður fyrir mig og ég er
mjög ánægður með að fá þetta
tækifæri.
Annars er heiður ekki endilega
það sem við viljum. Við viljum
hamagang og rifrildi og deilur
þannig að fram komi skoðanir og
áhugi á því sem við erum að gera.
Heiður er frekar eins og mjúk sósa,
sem maður verður fljótt leiður á.
Við viljum miklu frekar að fólkið
komi á tónleikana og taki afstöðu.
Ræði við okkur beint eða opinber-
lega, annars hittir þetta ekki í
mark. Á þessum tónleikum gerðist
það.“
Hafliði sagði að tónlistinni sem
hann valdi til flutnings hefði verið
ætlað að gefa smá sýnishorn af
þeim áhrifum sem hann varð fyrir
sem ungur maður og var sjájfur
Hella:
Á efnisskrá tónleikanna eru tvö
tónverk: Klarinettukvintett í A-dúr
K 581 eftir Mozart og píanókvint-
ett í f-moli op. 34 eftir Brahms.
í efnisskrá tónleikanna segir um
verkin: Klarinettukvintett Mozarts
var frumfluttur í Vínarborg í des-
ember árið 1789. Mozart samdi
verkið fyrir vin sinn Anton Stadler,
sem var einn allra fremsti klarin-
ettuleikari síns tíma. Stadler vann
mikið að því að eindurbæta og þróa
hljóðfæri sitt. Kvintettinn Kv 581
er eitt dýrasta djásn klarinettunnar.
Árið 1862 hóf Johannes Brahms
(1833-1897) að semja kvintett fyrir
2 fiðlur, víólu og 2 selló, sem hann
SKIDAPAKKAR
HA6SÆTT
VERD!
Barnapakkar frá I ir. 12.600.-
Unglingapakkar frá I ir. 15.360,-
Fulloríinspakkar frá I [f. 22.400.-
Göngnpakki frá I ir. 12.600.-
ATH.! Tökum notaðan skíðabúnaó upp í nýjan.
OPIÐ FRÁ Kl. 10-22
SPORT|
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
'að byija að semja músík. „Og af
því að við vorum með strengjakvart-
etta þá fannst mér sjálfsagt að
velja tvo kvartetta sem ég heillaðist
mikið að sem unglingur," sagði
Hafliði. „Það var sem sagt verið
að tengja saman tónverk sem skiptu
mig miklu máli og gera enn og svo
þap sem ég er að gera í dag; kannski
falin áhrif þar á milli."
Nokkur bresk og skosk blöð hafa
birt dóma um tónleikanna og er þar
farið lofsamlegum orðum um tón-
leikanna og verk Hafliða. Um hann
segir meðal annars í The Guardian
að hann sé í stöðugri sókn og að
verk hans séu meðal þeirra sterk-
ustu og litríkustu á okkar tímum.
Hafliði Hallgrímsson sellóleikari
og tónskáld.
Aðventusýning
Listmálara-
félagsins í
Listhúsi
Listmálarafélagið tekur nú
upp þá nýbreytni að efna til sér-
stakrar aðventusýningar sem er
sölusýning myndverka þekktra
listmálara í Listhúsi, Vesturgötu
17.
Sýningin er opin til jóla alla daga
frá 2-6 síðdegis. Áðgangur er
ókeypis. Þessir litamenn eiga mynd-
verk á aðventusýningunni: Björn
Birnir, Bragi Ásgeirsson, Einar G.
Baldvinsson, Elías B. Halldórsson,
Guðmunda Andrésdóttir, Hafsteinn
‘Austmann, Jóhannes Jóhannesson,
Jóhannes Geir, Kjartan Guðjónsson,
Kristján Davíðsson, Pétur Már,
Helga Magnúsdóttir og Kristín
Geirsdóttir.
Tónleikar í dag
LAUGARDAGINN 15. desember kl. 16.00 verða haldnir opinberir
tónleikar í Ártúni 5 á Hellu, Rangárvöllum. Þórhallur Birgisson og
Kathleen Bearden leika á fiðlur, Helga Þórarinsdóttir á víólu, Nora
Kornbluch á selló, Oskar Ingólfsson á klarinettu og Snorri B. Birgis-
son á píanó.
sendi síðan vini sínum, fiðluleikar-
anum Joachim. Þegar æfingar hóf-
ust sannfærðist Brahms um að
hljóðfaraskipan sú sem han hafði
valið væri ekki sú heppilegasta og
árið 1864 umskrifaði hann tónsmíð-
ina fyrir 2 píanó og flutti opinber-
lega ásamt Karl Tausig. Skömmu
síðar breytti Brahms enn um og í
júlí 1864 sendi hann útgefanda
sínum verkið í endanlegri gerð,
þeirri sem hér er leikin: Kvintett
fyrir píanó og strengjasveit.
Brahms hefur brætt í eitt mót söng
strengjahljóðfæranna og mátt pían-
ósins úr fyrri gerðunum tveimur.
(Fréttatilkynning)
UPPSELD
Fyrsta prentun uppseld
hjá forlagi.
Onnur prentun væntanleg.
Margir vildu hann feigan
Kristján Pétursson löggæslumaður segir
frá
Hann er þekktastur fyrir störf sín við
rannsóknir á helstu sakamálum síðari
ára. Hann fór oftast sínar eigin leiðir
og lét ekki hótanir eða pólitískan
þrýsting hafa áhrif á störf sín. Það eru
örugglega margir sem vildu að þessi
bók kæmi ekki út, ekki síst þeir sem
eru sekir, en sluppu vegna þess að
þeir voru í náð hjá háttsettum
embættismönnum. Kristján segir frá
tilraunum sakamanna til að svipta
hann lífi. Bók þessi er hörð ádeila á
kerfið. Höfundur hefur fyrir löngu
sannfærst um, að ekki eru allir jafnir
fyrir íslenskum lögum.
ISkjaldboré
Ármúla23 - 108 Reykjavík
Ármúla 23-108 Reykjavík
Símar: 67 24 00
67 24 01
31599