Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990 73 Steindór K. Stein- dórsson — Minning Skyndilega og fyrirvaralaust er hvassri egg dauðans brugðið á líftaugina. Fyrr en nokkurn varði er góður frændi og vinur, Steindór Kristinn Steindórsson, allur. Hann veiktist snögglega að morgni laug- ardags áttunda desember og lést að kvöldi sama dags. Steindór fæddist á Teigi á Sel- tjamamesi áttunda janúar árið 1924, þriðji í röð fjórtán barna þeirra Steindórs Ingimundarsonar og Oddnýjar Hjartardóttur. Skóla- ganga hans varð ekki löng enda mun hann hafa eirt illa við slímset- ur og iðjuleysi. Athafnasemi og strit erfiðisvinnunnar átti betur við hann. Árið 1947 gekk hann að eiga I’jólu Ágústsdóttur og entist sá hjú- skapur allt þar til Fjóla andaðist sumarið 1981. Börn þeirra eru Sól- rún, læknaritari á Sauðárkróki, og Kári, sjómaður í Vestmannaeyjum, en bamabörnin og aðrir afkomend- ur nálgast óðum annan tuginn. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau víða en festu hvergi yndi fyrr en þau settust að á Sauðárkróki. Þar byggðu þau hjónin sér hús á Iiólma- grund 7 og Steindór vann sem verk- stjóri líkt og áður en Fjóla hafði ýmis járn í eldinum, starfrækti m.a. fatahreinsun um skeið. Börnin hurfu að heiman eins og lög gera ráð fyrir og settu saman sínar eigin fjölskyldur. Gleði þeirra hjónanna var ósvikin þegar barnabörnin fóru að tínast í heiminn. Hjá afa og ömmu áttu þau líka vísan samastað þar sem alltaf var opið hús og nægur tími til að sinna smáfólkinu ekki síður en öðrum. Samskipti fjöl- skyldnanna einkenndust öll af ein- lægum trúnaði og gagnkvæmri virðingu. Þegar tímar liðu og um hægðist hjá þeim Steindóri og Fjólu gáfust þeim fleiri stundir til að sinna hugð- arefnum sínum, einkum ferðalögum um byggðir og öræfi íslands. Lögðu þau þannig áherslu á að rækta sam- búð sína og augljóst að það ræktun- arstarf bar ríkulegan ávöxt. Um hríð bjuggu þau í Kópavogi, líklega um 1960, og átti ég þá stundum erindi til þeirra. Það var ekki laust við að mér stæði stuggur af þessum stórvaxna, beinabera og harðleita frænda -og röddin afar dimm. En þá þekkti ég hann ekki í raun. Fjóla var hins vegar fíngerð, Hjónaminning: Elísabet Halldórsdóttir Eiríkur Benjamínsson Fátt er ómannlegra en að gleyma vinum sínum þegar þeir eru horfnir jarðneskum sjónum. En að kynnast góðu fólki og eignast vináttu þeirra er einn af mestu vinningum lífsins. Nærri hálf öld er liðin síðan ég fyrst festi augu á Eiríki Benjamíns- syni og eiginkonu hans Elísabetu Halldórsdóttur á Hesteyri í Jökul- fjörðum. Þau hjón voru bæði í frændsemi við móður mína og kær- ir góðvinir foreldra minna. Nú minnist ég Eiríks Benjamíns- sonar vegna aldarafmælis hans, en með fátæklegra hætti en verðleikar standa til. Eiríkur var af úrvalsættum kom- inn úr Grunnavíkurhreppi, en verða ekki raktar hér. Hann var fæddur á Marðareyri í Veiðileysufirði, N-ís. 15. desember 1890, missti föður sinn fárra mán- aða og ólst upp á Marðareyri með móður sinni og systkinum. Foreldr- ar hans voru hjónin Benjamín Ein- arsson frá Bolungarvík á Ströndum útvegsbóndi og oddviti Grunnavík- urhrepps, f. 1846, d. 1891, og frú Hansína Tómasdóttir, f. 1850, d. 1933, frá Nesi í Grunnavík. Börn þeirra voru: Þorvaldur stórkaup- maður, Ólafur stórkaupmaður, báð- ir í Reykjavík, Guðrún húsfreyja á Hesteyri, Hólmfríður húsfreyja á Grænagarði, ísafirði, Þórunn hús- freyja í Noregi, Einar bóndi á Sæ- bóli í Aðalvík. Frú Hansína Tómasdóttir var glæsikona, þrekin og hraustleg út- lits til elliára. Ágætlega verki farin, svo að af bar. Nærfærin við menn og skepnur. Gestrisin og veitul. Bjó yfir miklu stolti, hafði allríka geðs- muni, en stillti þar öllu í hóf. Hélt reisn sinni gegnum allt mótlæti og erfiðar aðstæður. Hansína naut álits sveitunga sinna. Eins og títt var um börn í þá daga, er Eiríkur ólst upp, þá var hann strax og hann megnaði nokk- uð látinn vinna. Byrjað var að láta hann vaka yfir túni, þá er hann 7 eða 8 ára gamall, og snemma byrj- aði Eiríkur að stunda sjómennsku: Að stunda sjóinn var aðal lífsbjörg heimilisins. Bærinn stóð á lítilli eyri undir Marðareyrarljalli, í klettunum í Veiðileysufirði eins og víðar í Grunnavíkurhreppi býr huldufólk sem varast ber að styggja. Eiríkur þótti afbragð annarra formanna um útsjónarsemi og brimlendingar, happasæll formaður, átti síðar sína eigin útgerð, er hann bjó á Hest- eyri 1913-1947. Eiríkur Benjamínsson var mikill vinur minn og það sem einkenndi hann umfram allt, að hann vildi vera en ekki sýnast. í engu mátti hann vamm sitt vita. Hann var fá- skiptinn, en þar sem hann batt tryggðabönd þá slitnuðu þau aldrei. Eiríkur kvæntist 5. nóvember 1912 Elísabetu Önnu Halldórsdótt- ur, f. 11. ágúst 1891, frá Neðri- Miðvík í Aðalvík. Var hún hin efni- legasta mær og einhver bezti kven- kostur þar um slóðir. Hún hlaut í arf góðar gáfur, glaðlyndi og hátt- vísi. Skipaði hún húsfreyjusæti með miklum myndarbrag, gekk hægt um gleðinnar dyr, hófsöm og holl- viljuð, skyldurækin og starfsöm. Hún naut virðingar og vinsælda allra, er kynntust henni. Dætur þeirra voru: Martha Guðrún hús- freyja í Reykjavík, ekkja Sæbjörns Magnússonar fyrrv. héraðslæknis á Hesteyri. Kristín, ekkja Bjama Vil- hjálmssonar cand. mag. þjóðskjala- varðar. Kristjana Jóhanna, f. 25. desember 1921, d. 18. júli 1941, óg. bl. Fyrir hjónaband eignaðist Eiríkur son með Jónu Ólöfu Jóhann- esdóttur síðar húsfreyju á Kollsá í Jökulfjörðum. Benjamín Kristján, f. 1909, ólst hann upp á Dynjanda í Jökulfjörðum hjá hinni vitru og veglyndu konu Gunnvöru Rósu El- íasdóttur húsfreyju og manni henn- ar Benedikt K. Benediktssyni bónda og kaupmanni. Benjamín var fyrr bóndi á Dynjanda, síðar í Furu- firði, en dvelur nú á Elliheimilinu Grund ásamt konu sinni Kristínu V. Árnadóttur úr Furufirði. Benj- amín er fósturbróðir móðursystur minnar Gunnvarar Rósu Falsdóttur. Eiríkur Benjamínsson var maður, sem í sannleika var gott að kynn- ast og mannbætandi. Eiríkur and- aðist í Reykjavík 3. apríl 1979. Helgi Falur Vigfússon Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. blíð og brosmild og þannig man ég hana enn. Ég kynntist þeim Steindóri ekki að ráði fyrr en ég dvaldi fáeinar vikur á Sauðárkróki sumarið 1978. Síðar átti ég oft eftir að njóta gest- risni þeirra. Það var mér ævinlega tilhlökkunarefni að sæka þau heim því þar var rausnarlega tekið á móti soltnum og lúnum ferðalöng- um og vís gisting. Varð okkur þá stundum skrafdijúgt enda einstök unun að hlýða á frænda þegar hann sagði frá af leiftrandi orðkynngi og einstakri kímni með skelmisglampa í móbrúnum augúm. Kom glöggt í ljós á þessum stundum hve víðlesinn hann var og margfróður um sögu lands og þjóðar og mátti einu gilda hvar borið var niður, alls staðar var hann heima og hafði fastmótaðar skoðanir á öllum hlutum. Hann var kominn af óbreyttu alþýðufólki og vann lengstum erfið- isvinnu sjálfur og mótaði það lífsviðhorf hans. Hann var eldheitur sósíalisti og vildi að hagur hins vinnandi manns væri meira metinn en gróðadufl fjáraflamanna. En stjórnmálaskoðanir sínar reisti hann ekki á kennisetningum eða kreddum heldur samúð með þeim sem hallir fara í lífsbaráttunni og ást á lífinu. Hann var ósmeykur við að segja meiningu sína og var þá sama hver átti í hlut. Fæstir munu þó hafa erft það við hann þó hann væri stundum þungorður, því þeir sem þekktu hann vissu að hann var réttsýnn maður og einlægur. Enda þótt Steindór þekkti vel mátt orðs- ins og beitti móðurmálinu af meiri færni en flestir þeir sem ég hef kynnst þá kaus hann fremur að láta verkin tala. Þeir voru margir sem þágu greiða og liðsinni af hon- um án þess að um það væru höfð mörg ot'ð. Steindór þoldi sára raun þegar Fjóla lést sviplega sumarið 1981. Enda þótt hann bæri ekki harma sína á torg var ljóst að hann treg- aði hafna mjög og varð raunar aldr- ei samur síðan. Hann hélt heimili áfram enda frábitinn því að eiga undir aðra að sækja og sinnti eril- sömu starfi af enn meira kappi en áður. Síðustu árin vann hann sem verkstjóri við skipaafgreiðslu og gátu vinnuloturnar orðið býsna- langar og sjaldan tók hann sér frí - hin síðari ár. Var því líkast að hann reyndi að bægja frá sér tómleika og hryggð með því að vinna sleitu- laust. Hann var því sannarlega vel að hvíldinni kominn. Steindór var stór í sniðum í mörg- um skilningi. Hann var heill í orði og verki. Af slíkum mönnum er sjónarsviptir og þeirra er gott að minnast. Að endingu vil ég votta börnum Steindórs og öðrum í nánasta skylduliði hans einlæga samúð mína. Fari Steindór í friði og hafi heila þökk fyrir allt. Ársæll Friðriksson t Ástkaer dóttir mín og systir okkar, HRÖNN JÓNSDÓTTIR, lést 10. desember í Svíþjóð. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Kristjánsson og systkini hinnar látnu. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför ÞÓRUNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Skeiðarvogi 79. Einar Jóhannsson, Jóna Sigurðardóttir, Kristinn Auðunsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, LEIFUR LÁRUSSON matsveinn, Baldursgötu 6, Reykjavik, lést þann 8. desember. Útförin fer fram frá Áskirkju þann 17. desember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna Börnin. t Útför föður okkar og tengdaföður, EGILS GEIRSSONAR bónda, Múla, Biskupstungum, fer fram frá Skálholtskirkju í dag, 15. desember, kl. 13.30. Jarðsett verður í Haukadal. Páll Egilsson, Guðbjörg Egilsdóttir, Geir Egilsson, Sóley Jónsdóttir, Anna S. Egilsdóttir, Erlendur Guðmundsson, Jónfna M. Egilsdóttir, Ásgeir Þorleifsson. t Okkur innilegustu þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts eiginmanns míns og föður okkar, HANNESAR ÞÓRÓLFSSONAR fyrrverandi lögregluþjóns, Brekkustíg 6b, Reykjavík. Þakkir til starfsfólks öldrunardeildar í Hátúni 10b fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Steinunn Axelsdóttir, Hafdís Hannesdóttir, Þórey Hannesdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.