Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBUR 1990
49
Frá jólasýningunni, sem verður í Árbæjarsafni á sunnudag.
>
Arbæjarsafn:
Brugðið upp mynd af
jólahaldi fyrr á tímum
Jólasýning verður á Árbæjar-
safni á morgun frá kl. 13:00 til
16:00. Brugðið verður upp mynd
af jólahaldi á stríðsárunum og
jólum í Prófessorsbústaðnum um
1920, byggt á frásögn Nínu Þórð-
ardóttur um jólahald þar.
Dansað verður í kringum jólatré
kl. 14:00. Karl Jónatansson spilar
á harmonikku og nokkrir íslensku
jólasveinanna munu koma í heim-
sókn.
Prentsmiðjan verður í gangi, þar
sem prentuð verða sérstök kort í
tilefni dagsins auk þess sem sýnd
verða jólakort frá fyrri hluta aldar-
BÆJARSTJÓRN Neskaupsstað-
ar hefur mótmælt þeirri ákvörð-
un Þjóðleikhússins og mennta-
málaráðuneytis að sýningar leik-
hússins á Næturgalanum skuli
eingöngu fluttar fyrir nemendur
í grunnskólum Reykjavíkur og
nágrennis.
I bréfi sem Ásgeir Magnússon
bæjarstjóri í Neskaupsstað hefur
ritað menntamálaráðherra segir að
Þjóðleikhúsið hafi auglýst sýning-
mnar.
Krambúðin verður opin, þar sem
ýmislegt er tengdist jólahaldi áður
fyrr, verður til sölu. Sýning verður
á föndri og sýnikennsla í gerð þess.
Gamalt tréjólatré vafið með lyngi
og skreytt með heimatilbúnu
pappírsföndri verður til sýnis á bað-
stofuloftinu. Þar verður auk þess
unnið við tóvinnu og sýnt hvemig
vaxkerti voru steypt áður fyrr.
Aðventumessa verður í kirkjunni
kl. 15:30, þar sem séra Kristinn
Á. Friðfmnsson messar og félagar
úr Kirkjukór Árbæjarsóknar
syngja.
una Næturgalann sem sýningu fyr-
ir grunnskóla landsins. Formaður
menningarnefndar Neskaupstaðar
hafi haft samband við forsvarsmenn
Þjóðleikhússins til að spyrjast fyrir
um það hvenær sýningar yrðu í
grunnskólum á Áusturlandi og
fengið þau svör að ekki væri gert
ráð fyrir því að farið yrðu með sýn-
inguna lengra en í grunnskóla
Reykjavíkur og nágrennis.
I samþykkt bæjarstjórnar Nes-
kaupstaðar segir: „Bæjarstjórn
Neskaupstaðar mótmælir harðlega
þessum vinnubrögðum og bendir á
að Þjóðleikhúsið er ríkisstofnun og
ber sem slíkri að leitast við að veita
íbúum landsins sem jafnasta þjón-
ustu.“
Þá minnir bæjarstjórn á yfirlýs-
ingar forsvarsmanna Þjóðleikhúss-
ins um að sá tími sem Þjóðleikhús-
ið er í endurbyggingu verði notaður
til að stórauka sýningar á lands-
byggðinni.
Umferðarráð um
jólaumferðina:
Nauðsynlegt
að menn sýni
þolinmæði
og tillitssemi
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Um-
ferðarráði:
„Desembermánuður er einn
mesti umferðarmánuður ársins. Þá
reynir meira en endranær á alla
vegfarendur, ekki síst ökumenn.
Nauðsynlegt er að menn sýni bæði
þolinmæði og tillitssemi. Minna má
á að þegar umferð er mjög þétt er
góð regla að gefa sér heldur lengri
tíma til að komast á milli staða
heldur en venjulega.
Nú fer að líða að þeim degi þeg-
ar sólargangur er skemmstur hér á
landi og því sérstaklega brýnt að
allir noti endurskinsmerki. Með því
móti eykur fólk öryggi sitt verulega
og getur sannarlega komið í veg
fyrir slys.
Á undanförnum árum hafa í
síauknum mæli verið haldin jóla-
glöggboð í fyrirtækjum og félaga-
samtökum. Umferðarráð hefur í
sjálfur sér ekkert nema gott um
það að segja, en bendir á þá stað-
reynd að í jólamánuðinum eru á
hveiju ári fjölmargir ökumenn
staðnir að því að aka ölvaðir. Marg-
ir þeirra hafa einmitt verið að koma
af slíkum „glögggleðifundum“. Það
leiðir hugann að þeirri staðreynd,
að akstur og áfengi mega aldrei
eiga samleið. Ölvaðir ökumenn eiga
því miður oft aðild að alvarlegum
umferðarslysum, sem ekki hefðu
orðið ef viðkomandi hefðu verið alls-
gáðir. Rétt er að vekja athygli á
óáfengum drykkjum fyrir þá sem
vilja skemmta sér og vera samt sem
áður í stakk búnir til að stýra
bílnum heim.
Umferðarráð hvetur alla sem í
umferðinni eru til að leggja sitt lóð
á vogarskálar þannig að jólahátíðin
gangi í garð án alvarlegra umferð-
arslysa.
Gleðileg slysalaus jól.“
Hilda hf.:
Lager þrota-
bús á útsölu
ÞROTABÚ Hildu hf., reynir nú
að koma lager fyrirtækisins í
verð með því að bjóða mikinn
afslátt á verði framleiðslu fyrir-
tækisins, sem eru peysur, kápur,
jakkar og fleira.
Útsalan, sem er í Borgartúni 22,
hófst í gær og stendur til jóla á
opnunartíma verslana á þessum
árstíma.-
Neskaupstaður:
Vinnubrögðum Þjóð-
leikhúss mótmælt
Morgunblaðið/Emilía
Nokkur verk sem sýnd eru í
Nýhöfn.
■ JÓLASÝNING verður haldin í
Listasalnum Nýhöfn, Hafnar-
stræti 8. Sýnd verða málverk,
vatnslitamyndir, teikningar, skúlpt-
úrar, keramik og verk naivista.
Listaverk eftir ijölda listamanna
svo nokkur dæmi séu tekin: Kjarv-
al, Braga Ásgeirsson, Jóhönnu
Yngvadóttur, Hring Jóhannes-
son, Magnús Kjartansson, Kar-
ólínu Lárusdóttur, Guðbjörgu
Lind, Björgu Þorsteinsdóttur,
Valgerði Hauksdóttur, Borghildi
Óskarsdóttur, Sverri Haralds-
son, Hörð Ágústsson, Guðmundu
Andrésdóttur, Ragnheiði Ream,
Snorra Arinbjarnar, Valgarð
Gunnarsson, Gunnar Örn, Guð-
rúnu Kristjánsdóttur, Daða Guð-
björnsson, Sigurð Örlygsson,
Sverri Ólafsson, Gest og Rúnu,
Sæmund Valdimarsson, Kristínu
Jónsdóttur Jóhannes Geir o.fl.
o.fl. Opið á verslunartíma til jóla.
Barnagnðsþj ónusta
í Dómkirkjunni
BARNAGUÐSÞJÓNUSTA verð-
ur haldin næstkomandi sunnu-
dag 16. desember kl. 11.00 í
Dóinkirkjunni.
Það hefur verð föst venja um
margra ára skeið að hafa baraa-
guðsþjónustu rétt fyrir jólin og
minnast komu jólanna á viðeigandi
hátt.
Á sunnudaginn er 3. sunnudagur
í aðventu og þá verður kveikt á
þremur aðventukertum og viðeig-
andi söngvar sungnir um leið.
Nokkur tíu til tólf ára börn flytja
helgileik. Kór Vesturbæjarskóla
syngur nokkur lög undir stjórn
Vigdísar Esradóttur. Lesin verður
jólasaga, sem börnin taka þátt í
með söng sínum. Þá koma góðir
gestir í heimsókn, og er það Lúðra-
Dómkirkjan í Reykjavík.
sveit Laugarnesskóla undir stjórn
Stefáns Þ. Stephensen.
Það er von okkar í Dómkirkjunni
að þessi barnaguðsþjónusta verði
vel sótt og hvetjum við foreldra að
ijölmenna með börnum sínum og
eiga þar með þeim dýrmæta stund.
(Frcttotilkynning)
Jólatónleikar
I Barnaheill Elly Amelino,
Dalton Baldwin og kórs Öldutúnsskóla
sunnudag kl. 14.00 í Háskólabíói.
Miðasala á skrifstofu Sinfóníuhljómsveitar íslands,
sími 622255, og við innganginn.
EIMSKIP
STEINAR WAAGE
Litur: Svartur
Stærðir: 40-45
Verð: 3.495,-
Domus Medica, Kringlunni 8-12,
sími 18519. sími 689212.
Karlmannaskór
HORNSÓFAR -
SÓFASETT
6 sæta hornsófi með leðri á slitflötum, lúxefni að utan,
kr. 125.000 stgr.
5 sæta hornsófi, leðurlúx, kr. 87.000,- stgr.
Sófasett með leðri kr. 160.000,- stgr.
Nýkomið mikið úrvai af sófasettum með áklæði eða leðri.
Nýjar sendingar af borðstofuhúsgögnum.
Eldhúsborð og stólar, gott úrval.
Opió til kl. 22.00
7*